Morgunblaðið - 10.04.1990, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú færð frumlegar Fiugmyndir í
dag og ýmislegt kemur þér þægi-
lega á óvart i vinnunni. Skoðaðu
vel tillögur sem lagðar verða fyr-
ir þig. Vertu til í að gera tilraunir.
Naut-
(20. apríl - 20. maí) I
Þú gætir eignast nýtt áhugamál
í dag. Þú verður undrandi á frétt-
um sem þér F>erast úr fjarlægð.
Frumleg hugsun gerir gæfumun-
inn fyrir þig.
Tvíburar
(21. maí - 2Ó. júní) 5»
Innsæi og sjálfsagi færa þér
ávinning í vinnunni í dag. Ein-
hver launung er yfir tillögu sem
þú verður að taka afstöðu tii.
Hugsaðu þig vandlega um.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hg
Einhleypt fólk kynnist rómantík-
inni núna. Þiggðu heimboð sem
þú færð. Þú eignast nýja vini í
dag. Láttu maka þinn ganga fyr-
ir o g mættu honum á miðri leið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verður innblásinn í vinnunni
í dag og færð skemmtilegt at-
vinnutilboð. Sinntu verkum sem
þú hefur lengi ýtt á undan þér
heima fyrir.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
Fólk er yfir sig hrifið af þér núna.
Taktu þér tima til útiveru. Þér
býðst óvænt að fara í ferðalag.
Búðu þig undir að ferðaáætlunin
geti breyst með stuttum fyrir-
vara.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú vinnur við að prýða heimili
þitt. Nú er tilvalið að hyggja að
fjölskyidumálefnum. Þú átt bráð-
lega von á nokkrum gestum utan
af landi.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9!(^
Þú ert alvarlega þenkjandi í dag
og sinnir fyrst og fremst andleg-
um málefnum. Allt gengur eftir
þínu höfði. Maki þinn kemur þér
þægilega á óvart.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Fjármálaþróunin er þér í hag um
þessar mundir. Þér gefst tæki-
færi til að auka tekjur þínar svo
áð um munar. Haltu samt fast
utan um budduna þína.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) i^
Þú gerir gömlum vini greiða.
Dans, leikfimi eða önnur líkams-
mennt höfðar sterkt til þin núna.
Þú tekur þátt í óvenjulegri
skemmtun.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
* Þú ert að undirbúa fyrir að sinna
mikilvægu verkefni. Þú tekur
þátt í námskeiði eða einhvers
konar hópfundi heima hjá þér í
dag eða næstu daga.
Fiskar
(19. febrúar — 20. mars)
Farðu í heimsókn til vina þinna
í dag. Þú ert að hugsa um að
fara í nám eða þjálfun. Vinsældir
þínar fara að öllum líkindum vax-
andi á næstunni.
AFMÆLISBARNIÐ er óháð og
getur náð langt í viðskiptalífinu
ef það kærir sig um. Það á auð-
velt með að taka þátj, í hópstarfi
og ætti ævinlega að vera í hlut-
verki stjórnandans. Það verður
að vara sig á hneigð sinni til
sjálfsánægju þegar vel gengur,
en leitast hins vegar sífelit við
að bæta sig og þroska í lífínu.
Stjörnusþána á aö lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Tilgangur sagna getur aldrei
verið sá einn að hlusta á sjálfan
sig tala.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁK
¥ K63
♦ G10764
*KG3
Vestur Austur
* D952 * 1074
¥984 II ¥2
♦ D983 ♦ Á5
♦ 62 Suður ♦ G863 ♦D1098754
¥ ADG1075 ♦ K2 *Á
Vestur Norður Austur Suður
— 1 grand 3 lauf 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Utspil: laufsexa.
Eftir 15-17 punkta grandopn-
un norðurs er vandséð hvað
austur ætlaði sér með 3ja laufa
sögninni. Hindrunargildið er lítið
sem ekkert. En áhættan var svo
sem lítil líka, eða hvað?
Sagnhafi fékk fyrsta slaginn
á laufás, tók ÁK í spaða og
henti tígli niður í laufkóng. Spil-
aði síðan laufgosa og henti tígul-
kóng. Austur fékk þann slag á
laufdrottningu, en síðan var
vandalaust að trompa tvo spaða
í blindum.
Spilið kom upp í sveitakeppni
og samningurinn var einnig sex
hjörtu á hinu borðinu. En þar
hafði austur þagað allan tímann.
Út kom spaði og sagnhafi fór
eins af stað: byrjaði á því að
henda tígli niður í laufkóng.
Spilaði svo tígli. Austur fór upp
með ásinn og spilaði lauftíu!
Hættan á yfirtrompun var varla
teljandi og suður trompaði lágt:
Einn niður. Falleg blekking, en
hún hefði aldrei heppnast ef
austur hefði verið búinn að segja
frá lauflitnum.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Búnaðarbankamótinu um
daginn kom þessi staða upp í skák
þeirra Arinbjörns Gunnarssonar
(2.075) og Ásgeirs Þ. Árnason-
ar, sem hafði svart og átti leik.
26. - Bxg4!, 27. Ixg4 - Í3, 28.
Dxf3 (Svarta staðan er einnig iétt-
unnin eftir 28. Bxf3 — Hxh3e,
29. Dxh3 - Hxh3+ - Hxh3+, 30.
Kxh3 - Dxf3+, því hvítu peðin
falla eins og flugur) 28. -
Hxh3+!, 29. Kg2 (29. Dxh3 Df2+
er mát) 29. - Hxf3, 30. Bxf3 -
Hxhl, 31. Hxhl - Df4 og svart-
ur vann auðveldlega á liðsmunin-
um.