Morgunblaðið - 06.05.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1990
D 25
Skráning verkamanna í Bretavinnu. Ljósmynd/imperiai War Museum
Þeir voru rifnir á hol.
Morgunblaðið/Sverrir
BRESKA HEIMSVELDW
BYGGÐIFLUGVÖLLINN
Rauðhólar voru uppfyllingarefnið í Reykjavíkurflugvelli
eftir Pál Lúðvík Einarsson
ÞEIM, SEM SKOÐAR vegsummerki við Rauðhóla
austan við Reykjavík, blandast ekki hugur um hvílík
hryðjuverk hafa verið framin þarna á móður jörð;
rauð holundarsárin blasa við. Ofan af Öskjuhlíð blasir leg-
staðurinn við, Vatnsmýrin. Þarna er engin mýri, þarna er
flugvöllur. Gjöf sem Islendingar þáðu afbandamönnum í
stríðslok.
FLUGVÖLLUR ER samgöngu-
bót, framfarir. — En það finnast
Islendingar sem eru ekki þakklátir,
þeir ákæra heimsveldið um glæpi.
Kæran er þríþætt: 1) Rauðhólar
voru eyðilagðir. 2) Væntanleg úti-
vistarpardís Reykvíkinga var eyði-
lögð. 3) Vinnumórall íslendinga var
eyðilagður.
1) Eins og fyrr hefur verið greint
frá blasa sárin við í dapurlegum
leifum Rauðhóla ofan við Reykja-
vík. Páll Líndal greinir frá því í bók
sinni Reykjavík. Sögustaður við
sund að íslendingar hafi þó eitthvað
hafið þar efnistöku fyrir stríð en
segir einnig að undir Reykjavíkur-
flugvelli „er víst að fínna megin-
hluta þess, sem horfið er af Rauð-
hólurn".
2) Það var áformað að íþrótta-
og boltavellir yrðu í Vatnsmýrinni
í tengslum við sjóböð Reykvíkinga
í Nauthólsvík. Gunnar M. Magnúss
rithöfundur segir m.a: „Með her-
náminu þyrmdi yfir þessa hugsjón.
Herinn tók þetta svæði, kakkaði
þar niður drasli sínu, hróflaði upp
byrgjum og bröggum og hóf undir-
búning að flugvallargerð á móunum
og melunum frá Hljómskálasvæð-
inu og suður að sjó.“
3) Gerð Reykjavíkurflugvallar
var umfangsmesta hervirki breska
hernámsliðsins. Akvörðun um þessa
framkvæmd vartekin haustið 1940.
Flugvöllurinn komst í gagnið um
mánaðamótin maí/júní 1941 en þó
var mikil vinna eftir við að fullgera
flugbrautir.
Bresk hernaðaryfirvöld vildu
hraða verkinu sem mest og réðu
fjölda íslenskra verkamanna í
vinnu. Mörgum þótti verkstjórn og
verklag í Bretavinnunni slakt,
„þarna lærðu íslendingar að skóflan
væri til stuðnings en ekki mokst-
urs“. Gunnar M. Magnúss fer t.a.m.
nokkrum orðum um siðspillandi
áhrif í bókum sínum Virkið í norðrí.
í riti Tómasar Þórs Tómassonar
sagnfræðings Heimsstyrjaldarárin
á Islandi 1939-45 má lesa að Bret-
um hafi þótt íslendingar latir og
værukærir til vinnu. Aftur á móti
má þess má geta að sumum íslend-
ingum fannst ekki mikið til um
vinnulag og afköst breskra her-
manna. T.d. líkti Brynjólfur Bjarna-
son í umræðum á Alþingi 12. maí
1941 við þeim við fanga í þvingun-
arvinnu.
Reykjavíkurflugvöllur var um-
deildur og jafnvel enn þann dag í
dag má heyra gagnrýnisraddir gegn
vellinum. Islendingar þáðu hann að
gjöf en vitnisburður foitíðar og
nútíðar bendir heldur en ekki í þá
átt að gjöfin hafi verið goldin
nokkru verði.
Ljósmynd/Imperial War Museum
Hurricane-orustuflugvélar á Reykjavíkurflugvelli. Myndin er
væntanlega tekin í júní 1941.
$ Kortur!
Kosningaskrifstofur Kvennalistans eru á eftirfarandi stöðum:
Akureyri - Brekkugötu 1, sími 96-11040.
ísafjörður - Silfurgötu 11, sími 94-4633.
Kópavogur - Hamraborg 20a, símar 91-42943 og 42944.
Reykjavík - Laugavegi 17, bakhúsi, símar 91-26310, 25326
og 622908.
Konur! Lítið við, fáið upplýsingar og komið til starfa.
Einbýlishús í Farum
Við Furusjó, 20 km norðan við Kaupmannahöfn,
er til sölu skemmtilegt og vandað 180 fm einbýl-
ishús með fallegum garði. Góð kjör og langtíma-
lán með lágum vöxtum.
Upplýsingar hjá Arnheiði Tryggvadóttur í síma
91-621210.
Tannlæknir
Hafsteinn Eggertsson, tannlæknir, hefur
hafið störf á tannlæknastofu Sigurgísla
Ingimarssonar, Garðatorgi 3, Garðabæ.
Viðtalstími eftir samkomulagi í síma
656588.
HEILSU nn LINDIN
NÝBÝLAVEGI24 SÍMI46460
Sjúkraþjálfun
Það tilkynnist hér með að hollenski
sjúkraþjálfarinn Joost Van Erven hefur
hafið störf við Heilsulindina.
Tekið er á móti tímapöntunum alla virka
daga frá kl. 10-15.
NJ>
m
CENTARI
HAGÆÐA BILALAKK
FYRIR ÍSLENSKARAÐSTÆÐUR
/ " i —-x / "C—/ v"
Dupont bílalakk er mest selda bílalakk
í heiminum frá upphafi bílaaldar.
Vertu velkomin á blöndunarbarinn
okkar. Blöndum alla lifi, á alla bíla,
setjum einnig lakk á úðabrúsa. Vandaðu
valið, pað gera fagmennirnir sem nota
Centari bílalakkið frá DUPONT.
• FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 •