Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 28

Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Virðing Alþingis og þingmenn Síðasta löggjafarþings verður að líkindum ekki minnst fyr- ir mikið, þótt rétt sé að hafa í huga störf þingmanna og ríkis- stjórnar síðustu daga og vikur, sem einkenndust öðru fremur af flausturslegum vinnubrögðum og pólitískum hrossakaupum. Virðing Alþingis og þingmanna hefur því miður ekki aukist vegna starfa þeirra síðustu mán- uði. Kvótafrumvarpið er ágætt dæmi um þetta. Það var afgreitt á elleftu stundu sem lög eftir að hafa verið knúið fram við óánægju flestra þingmanna. Með þessum orðum er ekki tekin afstaða til efnisþátta þess, held- ur einungis vinnubragða við af- greiðslu þess. Undir lokin var samþykkt, að lögin giltu aðeins í tvö ár, en þann tíma hljóta þing- menn að nota til að fjalla ræki- lega um málið, þannig að sama sagan endurtaki sig ekki og á nýloknu þingi. Annað dæmi er frumvarp um verkefni umhverf- isráðuneytis, sem tókst eftir miklar sviptingar að knýja í gegn. Karvel Pálmason, þing- maður Alþýðuflokksins, var and- stæðingur frumvarpsins og taldi það bera vott um siðlaus hrossa- kaup. Þetta eru tvö dæmi af mörgum sem varpa skugga á vinnubrögð og starfshætti Al- þingis. í þessu sambandi vaknar líka sú spurning, hvers vegna svo mikil spenna ríkir við þing- lok. Alþingismenn eru á fullu kaupi allt árið um kring. Hvers vegna situr þingið ekki eins lengi og þörf krefur til þess að hægt sé að afgreiða nauðsynleg mál með sómasamlegum hætti? Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, gerði virðingu Alþingis að umtalsefni í kveðju- ræðu sinni síðastliðinn laugar- dag og vildi kenna fjölmiðlum um hversu virðing Alþingis með- al almennings hefur minnkað. Það verður ekki við fjölmiðla sakast þótt vinnubrögð og starfshættir Alþingis séu með þeim hætti að ekki þykir til fyrir- myndar eða eftirbreytni. Hitt kann að vera rétt að einhverjir fjölmiðlar eru uppteknari af því sem miður fer en því sem vel er gert. I ræðu sinni varpaði Guðrún Helgadóttir þeirri hugmynd fram að rétt væri að búa til enn eitt nýtt starf, sem auðvitað er borgað úr sameiginlegum sjóð- um landsmanna, - starf nokkurs- konar upplýsingafulltrúa, sem hefði það meginmarkmið að miðla upplýsingum um störf Al- þingis og þeirra sem þar sitja. Þannig ætlar forseti sameinaðs þings að reyna að endurheimta fyrri virðingu þingsins. „Alþingi á að vera þess umkomið að kynna störf sín sjálft og þau áhersluatriði sem löggjafarsam- koman hefur í fyrirrúmi hveiju sinni,“ sagði Guðrún Helgadóttir meðal annars: „Því er það skoð- un mín að tímabært sé að kynn- ing á störfum Alþingis verði stóraukin og til þess ráðinn aðili sem ábyrgur er gagnvart þing- inu sjálfu." Þingmenn eru að blekkja sjálfa sig með því að ætla að virðing þeirra og Alþingis geti áunnist með nýju embætti. Virð- ing Alþingis er ekki undir öðrum komin en alþingismönnum sjálf- um en ekki frásögnum fjölmiðla eða tilkynningum frá upplýs- ingafulltrúa. Því fyrr sem þing- menn gera sér grein fyrir þess- um einföldu sannindum því betra. Á nýliðnu þingi komu fram fleiri þingmál en oft áður og þingmenn geta enn einu sinni haldið heim í hérað með langan lista yfir þau mál sem þeir lögðu fram, jafnvel þótt þau hafi lang- flest ekki náð fram að ganga. Mörgum þingmanninum hættir því miður til þess að mæla eigið ágæti á mælistiku fjölda þiíig- mála og ræðufjölda. Afköst þingmanna geta aldrei orðið mælikvarði fyrir ágæti þing- manna og Alþingis. Afkastamik- ið þing er oftar en ekki vont þing. Frumvörp, sem síðar verða að lögum, og þingsályktanir horfa því miður flest í þá átt að skerða rétt einstaklingsins og kalla á auknar byrðar á launþega. Það heyrir til undantekninga að þing- mál auki athafnafrelsi einstakl- inganna og hafi það að mark- miði að virkja dugnað og þrótt sem býr í hveijum íslendingi. Ný lög og stöðugar breytingar og flóknari leikreglur hafa síst orðið til þess að auka rétt ein- staklingsins, heldur gert hann óljósari og minni. Það hefur löngum verið sagt að hver þjóð eignist þá stjórn: málamenn sem hún á skilið. í þessu felast mikil sannindi. Kjós- endur ganga að kjörborði a.m.k. á fjögurra ára fresti bæði til þess að ákveða hveijir fari með stjórn ríkisins næstu ár og eins til þess að gera upp við stjórn- málamenn vegna fyrri tíma. Það er því hlutverk og raunar skylda kjósenda að sjá til þess að á Alþingi sitji hverju sinni fulltrúar sem gæta virðingar Alþingis og eru þess umkomnir að skapa skýrar og einfaldar almennar leikreglur. Höfti í Hornafirði: Óskað eftir um 30 milljónum kr. vegiia aðgerða við innsiglinguna Morgunblaðið/Árni Helgason Frá vígsluathöfiiinni: Biskup íslands, herra Olafiir Skúlason, fyrir altari og Unnur Breiðfjörð meðhjálpari flytur bæn. Lengst til vinstri er Oli Þ. Guð- bjartsson dóms- og kirkjumálaráð- herra og fremstir prestanna eru Pét- ur Sigurgeirsson biskup, Injfiberg J. Hannesson prófastur, séra Arni Páls- son og séra Agúst Sigurðsson, en á innfelldu myndinni er hin nýja kirkja sem stendur á Borginni, einum feg- ursta stað Stykkishólms. Stykkishólmur: Á FUNDI sveitarstjórnarinnar á Hornafirði með sjávarútvegsráð- herra, samgöngumálaráðherra, fulltrúum Vita- og hafiiamálastofn- unar og þingmanna Austurlandskjördæmis á Hótel Höfii sl. sunnu- dag, þar sem drög voru lögð að framkvæmdum við innsiglinguna í Hornafirði, var ákveðið að mælast til þess við ríkisstjórnina að hún legði ft-am 24-28 milljónir króna vegna bráðaðgerða. Er þar um að ræða uppfyllingu í skarð á Suðurfjörutanga, uppsetningu innsiglingarvita, í stað vitans sem lagðist á hliðina í óveðri í mars síðastliðnum, og greiðslu reikninga vegna dýpkunarframkvæmda í innsiglingunni. Er þá ekki reiknað með nýjum lóðsbát sem talið er að muni kosta um 40 milljónir króna. Fjallað verður um vanda Hornfírðinga á ríkisstjórnarfúndi í þessari viku. Fjölmenni við kirkjuvígslu Stykkishólmi. STOR dagur var í Stykkishólmi síðastliðinn sunnudag. Þá fór fram vígsla nýju kirkjunnar sem lengi hefir verið í smiðum en nú er senn fúllgerð og hefir verið mikið annríki seinustu daga við frágang svo allt gæti staðist áætlun. Hátíðin hófst með því að kór kirkj- unnar söng ásamt Bjöllukórnum Geisla og Sæbjörn Jónsson lék á trompet. Því næst var skrúðganga starfsfólks kirkjunnar, sóknarnefnd- ar, biskups og gresta me_ð muni kirkj- unnar. Biskup íslands, Ólafur Skúla- son, og biskupinn Pétur Sigurgeirs- son, voru hér mættir ásamt frúm. Síðan hófst athöfnin. Unnur Breið- fjörð meðhjálpari flutti bænina og síðan hófst vígslan. 14 prestvígðir menn yoru við athöfnina. Biskup ís- lands vígði því næst kirkjuna og bað þessu veglega guðshúsi blessunar guðs. Hann tendraði ljósin á altari en starfsfólk færði kirkjumuni á alt- ari. Ritningarlestur fluttu biskup, sóknarprestur og leikmaður. Þá sté biskup í stólinn og flutti prédikun dagsins. Biskup sagði meðal annars: Kirkjan er hér á höfðanum og byggð á bjargi á fegursta stað bæjarins. Guð gefi að fjöldi fólks mætti leita þar athvarfs á komandi tímum. Mun- um eftir gömlu götunum. Þá fór fram altarisganga þar sem 6 prestar aðstoðuðu. Bjarni Lár- entsínusson, formaður sóknarnefnd- -ar og byggingamefndar, sagði bygg- ingarsögu kirkjunnar og gat allra þeirra verktaka sem þar unnu að. Þá flutti bæjarstjóri, Sturla Böðvars- son, ávarp og árnaðaróskir og eins Óli Þ. Guðbjartsson dóms- og kirkju- málaráðherra. Prófastur, séra Ingi- berg Hannesson, flutti svo nokkur orð til fólks og óskaði kirkjunni bless- unar guðs. Á eftir athöfninni bauð sóknar- nefnd öllum til góðgerða í Hótel Stykkishólmi. Kirkjan var alveg troð- in af fólki, bæði heima- og komu- mönnum. Nýja kirkjan stendur á svonefndri Borg, á fögrum og tignarlegum stað. Aðalverktaki hennar er Trésmiðja Stykkishólms. Hún er teiknuð af Jóni Haraldssyni arkitekt, um 700 ferm. að stærð. Kirkjuskipið tekur 250 manns í sæti, safnaðarsalur sem er á bak við og má loka og opna eftir því sem við á tekur 150 manns í sæti. í hliðarálmum er skrúðhús fyrir prestinn og aðstaða fyrir meðhjálp- ara og söngstjóra. Þá er stofa sem hugsuð er sem aðstaða fyrir eldri borgara þæjarins. í hinni álmunni er fundarherbergi fyrir safnaðar- stjórn og eins er þar húsvarðarher- bergi og eldhús til veitingaaðstöðu. Gólf kirkjuskips, safnaðarsalár og anddyris er lagt portúgalskri steinsk- ífu. Grátur eru marmarasúlur og beykiviður og altarist5orðið er úr beyki og marmarafætur bera það uppi. Prédikunarstóll er úr beyki en neðri hluti klæddur marmaraskífum og aðalfætur eru einnig úr marmara. Skírnarfontur er úr hvítri marmara- súlu, ljósin eru 182 að tölu sem mynda sérstök mynstur úr lofti. Yfirsmiður byggingarinnar hefir frá upphafi verið Bjarni Lárentsínus- son, húsasmíðameistari í Stykkis- hólmi. Árni Að sögn Hermanns Guðjónsson- ar, Vita- og hafnamálastjóra, er gert ráð fyrir að kostnaður við að fylla skarðið í Suðurfjörutanga nemi 3-5 milljónum króna og end- urbygging á innsigiingarvita 5-7 milljónum króna. Þá óskaði fundur- inn eftir 10 milljónum króna til að gera upp reikninga vegna dýpkun- ar sem þegar hefur verið gerð í innsiglingunni og vegna áfram- haldandi dýpkunaraðgerða. Einnig var lögð fram beiðni um sex millj- ónir kr. til að flýta rannsóknum, straum- og öldumælingum, sem áttu að hefjast á næsta ári. Ríkis- sjóður greiðir 90% af dýpkunar- kostnaði við innsiglingu að höfnum. Á næstu tveimur vikum er ráð- gert að fylla 200 metra skarð í Suðurfjörutanga með 400-600 mjölsekkjum sem hver inniheldur um tvö tonn af sandi. Vonast er til að það flýti fyrir því að sjávar- straumar beri nægilegt magn af sandi upp á tangann til að skarðið iokist algerlega. Á fundinum kom fram að nýr lóðsbátur í stað Björnsins, sem sökk í Hornarfjarðarósi fyrir skömmu, kostar um 40 milljónir kr. Þar af yrði hlutur ríkisins 40%, eða um 16 milljónir kr. Hermann sagði að umræðurnar hefðu snúist um hvort 'sveitarstjórnin á Hornafirði gæti aflað sér heimildar til að bjóða út smíði nýs báts þar sem þá þyrfti ekki að hugsa til fjármögnunar fyrr en með haustinu eða á næsta ári. Einnig væri ráðgert að sækja um styrk til Hafnarbótasjóðs vegna kaupa á nýjum lóðsbát. Að sögn Hallgríms Guðmunds- sonar sveitarstjóra hefur þegar verið dælt 50 þúsund rúmmetrum af sandi úr innsiglingunni og þarf enn að dæla 7-8 þúsund rúmmetr- um til viðbótar til að innsiglingin verði greið. Sagði Hallgrímur að það væri árviss viðburður að Aust- urfjörutangi hlaupi eitthvað til en undanfarin þijú ár hafi það gerst í óvenjumiklum mæli. Þá bættist það við að skarð kom í Suðurfjöru- tanga í óveðri í mars síðastliðnum með þeim afleiðingum að feikilegt sandmagn barst inn í innsigling- una. í júní næstkomandi er fyrirhug- uð ráðstefna í Hornafirði á vegum bæjaryfii’valda og Hafnarmála- stjórnar þar sem tekið verður á öllum þáttum þessa máls og hefur þegar fjöldi vísindamanna ákveðið að taka þátt í henni. Einnig stend- ur fyrir dyrum áætlun til þriggja ára um gagnasöfnun vegna innsigl- ingarinnar og að þeim tíma loknum verður hafist handa við að vinna úr gögnum. Á því stigi vinnur danskt rannsóknarfyrirtæki í sam- vinnu við Vita- og hafnamálastofn- un og bæjaryfirvöld á Hornafirði að lausn vandans. SIGLINGALEIÐIN TIL HAFNAR % Hér hefur brimið rofið 200 m skarð í Suður- fjörutanga. 400-600 sekkjum verður komið fyrir í skarðinu, en hver þeirra inniheldur tvö tonn af sandi. Um 50.000 rúm- metrum af sandi hefur nú verið dælt úr Horna- fjarðarós, og enn a eftir að dæla um 7-8.000 rúmmetrum. 0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 km >■■■■ .i ... ... i I I II i I ........I Morgunblaðid/KG Þakklátur fyrir að íá þetta tækifæri — segir Ólafiir Árni Bjarnason sem heldur sína fyrstu opinberu tónleika í kvöld ÓLAFUR Arni Bjarnason, tenór heldur sína fyrstu opinberu tón- leika í Islensku óperunni í kvöld kl. 20.30. Ólafur Árni hefur stundað söngnám síöustu fjögur ár og nú nýlega undirritaði hann samning við Óperuhúsið í Reg- ensburg í Vestur Þýskalaudi. „Styrktarfélag íslensku óperunn- ar bauð mér að halda þessa tónleika og ég sló til. Ég er þakklátur fyrir að fá þetta tækifæri og hef æft mig vel síðustu tvo mánuði með undirleikara mínum; Ólafi_ Vigni Albertssyni," sagði Ólafur Árni. Hann stundaði fyrst söngnám hjá Guðrúnu Tómasdóttur og síðar hjá Sigurði Demetz, áður en hann hélt utan til Bandaríkjanna til frekara náms, en Ólafur Árni stundaði um tveggja ára skeið söngnám við Tón- listarháskólann í Indiana. Ólafur Árni Bjarnason heldur sína fyrstu opinberu tónleika í Islensku óperunni í kvöld . „Ég heillaðist strax af þessari tegund tónlistar og ég hlakka til að syngja í óperunni í kvöld,“ sagði Ólafur Árni. Tónleikarnir heijast kl. 20.30 og á efnisskránni eru lög eftir íslensk, norræn og ítölsk tón-' skáld og óperuaríur eftir Mozart, Verdi og Puccini. Elns og áður hefur komið fram hefur Ólafur Árni skrifað undir samning við Óperuhúsið í Regens- burg og mun hann halda utan í haust, en í september syngur hann hlutverk Don Jose í Carmen og einnig syngur hann hlutverk Eriks í Hollendingnum fljúgandi í desem- ber. Að sögn Ólafs Arna eru settar upp 14 óperur á árin í húsinu. „Þetta er besti skólinn, að fá að spreyta sig á sviði og mér líst mjög vel á mig úti í Þýskalandi og hlakka til að takast á við verkefnin þar,“ sagði Ólafur Árni. Morgunblaðið/Emilía Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfúlltrúi á vinnustaðafundi með starfsmönnum Verkamannabú- staða í Húsahverfi i Grafarvogi. Um 50 manns sátu fundinn og voru umræður líflegar. Kosningabaráttan: Vinnustaðafundir heíjast í Reykjavík Vinnustaðafundir hafa verið fastur liður í kosningabaráttu um nokkurt skeið. Hefúr verið misjaíhlega að þeim staðið. Frambjóðendur hafa sjálfir haft frumkvæði að fúndunum og hitt kjósendur í vinnuhléum eða starfsfólk hefúr kallað í þá sem bjóða sig fram til að kynnast viðhorfum þeirra. Samkvæmt upplýsingum á kosningaskrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er það megin- regla flokksins að þessu sinni að senda frambjóðendur til vinnu- staðafunda sé þess óskað. Verður í minna mæli en áður sótt að fyrra bragði inn á vinnustaði. Fyrstu tveir fundir frambjóð- enda sjálfstæðismanna voru í há- deginu í gær. Vilhjálmur Þ. Vil- lijálmsson og Anna K. Jónsdóttir hittu starfsmenn Verkamannabú- staða í mötuneyti þeirra í Húsa- hverfi í Grafarvogi. Hinn fundur- inn var hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar með Árna Sigfússyni og Jónu Gróu Sigurðar- dóttur. Hafskipsmál: Ákæruvaldið gerir ofurmannleg- ar kröfur byggðar á vanþekkingu - sagði Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl, verjandi Björgólfs Guðmundssonar GUÐMUNDUR Ingvi Sigurðsson hrl, verjandi Björgólfs Guðmunds- sonar fyrrum forstjóra Hasfkips, lauk í gær varnarræðu sinni í Haf- skipsmálinu. I dag flytur Jón Magnússon hrl fram varnir fyrir Ragn- ar Kjartansson fyrrum sljórnarformann fyrirtækisins. Við iok ræðu sinnar reifaði Guð- mundur Ingvi Sigurðsson í stuttu máli ákæru á hendur skjólstæðingi sínum fyrir skilasvik. Honum er gefið að sök að hafa dregið taum eins lánardrottins Hafskips, Reykv- ískrar endurtryggingar, þar sem Björgólfur átti hlut og sat í stjórn, með því að greiða fyrirtækinu nær vikulega 20 þúsund dali síðustu 3 mánuði fyrir greiðslustöðvun Haf- skips. Lögmaðurinn sagði að skjól- stæðingur sinn hefði fyrst vitað um þessar greiðsiur við yfirheyrslur. Huglæg afstaða hans væri ljós. Hann hafí ekkert vitað um þessar greiðslur enda ákvarðanir um þær teknar af til þess bærum starfs- mönnum. Lögmaðurinn sagði það vera öryggis- og forgangsatriði í rekstri, ekki síst jafn áhættusömum rekstri og farskipaútgerð, að hafa tryggingar í lagi og gat þess að þrotabú Hafskipos hefði aldrei reynt að fá þessum ráðstöfunum rift. Lögmaðurinn sagði að í þessu tilfelli væri skjólstæðingur sinn ákærður fyrir ákvörðun og verknað sem ekki hefðu verið í hans verka- hring innan fyrirtækisins og með öllu væri ósannað að hann hefði haft nokkra vitneskju um né hefði átt í nokkru samráði við aðra ákærðu um. Hann sagði að til að leggja refsiábyrgð á Björgólf vegna þessa þyrfti sterkari sönnun en hugleiðingar saksoknara um að hann hljóti að hafa vitað um þetta eða haft af því pata. Þá sagði Guðmundur Ingvi það rangt sem komið hefði fram hjá saksóknara í upphafi ræðu hans, og greint var frá í Morgunblaðinu, að þrotabú Hafskips hefði lýst 26 milljón króna kröfu í þrotabú Björg- ólfs Guðmundssonar. Björgólfur væri ekki gjaidþrota og því hefði engum kröfum verið lýst. Fyrir lægi í skiptarétti gjaldþrotabeiðni frá Utvegsbanka Islands en sú beiðni hafi ekki verið tekin til úr- skurðar. Lögmaðurinn kvaðst ekki skilja hvaða nauðir hefðu rekið sak- .sóknara til að gera þetta mál að umtalsefni. Sama ætti við um skattamál hinna ákærðu en Guð- mundur Ingvi kvaðst haía talið slík mál sveipuð sérstökum leyndarhjúp trúnaðarmála, sem starfsmenn skattyfirvalda ættu ekki að vera ræða um við óviðkomandi. Lögmað- urinn sagði það hafa vakið furðu sína að saksóknari hefði vakið máls á þessu í Hafskipsmálinu. Þangað ættu skattamál hinna ákærðu ekk- ert erindi enda væri ekki ákært fyrir skattalagabrot. Hann sagði það umhugsunarefni hvort sérstak- ur saksóknari hefði þarna stuðlað að því að opinberir starfsmenn liefðu framið trúnaðarbrot og ætti þá sjálfur hlutdeild í því broti. Guðmundur Ingvi Sigurðsson beindi því til dómenda að þeir minntust þess að efnahagslíf gengi í bylgjum, það væri lögmál sem lítið réðist við með hagstjórn. Eina sem menn gætu gert væri að standa af sér kreppurnar. Þetta ætti ekki síst við um áhætturekstur eins og far- skipaútgerð. Hann rakti að síðustu misserin sem Hafskip var í rekstri hefðu komið nýir bankastjórar til starfa í Útvegsbankanum sem ekki hefðu búið að sömu reynslu og for- verarnir og ef til vill ekki haft sama skilning á atvinnulífinu. Hefðu þeir þraukað hefði ekkert gjaldþrot orð- ið og ekkert Hafskipsmál væri að vefjast fyrir mönnum því öruggt mætti telja að árið 1986 hefði tek- ist að koma Hafskip á réttan kjöl, með lækkandi olíuverði, hækkandi farmgjöldum og skipaverði og betri stjórn á erlendum kostnaði. Banka- stjórana hafi hins vegar brostið kjark og því hafi farið sem fór. . Um fjárdráttarákærur sagði Guðmundur Ingvi Sigurðsson að í starfskjarasamningi Björgólfs og einnig Ragnars Kjartanssonar hefði verið ákvæði um að í vörslum þeirra skyldi vera opinn bankareikningur þar sem þeir gætu ráðstafað allt að 60% fastra launa sinna, að hluta til greiðslu kostnaðar vegna starfs fyrir Hafskip. Hann sagði það frá- leita túlkun hjá saksóknara að ráð- stafanir af þessum reikningi hefðu verið bundnar því að þær tengdust • beint rekstri Hafskips enda hefði þá verið óþarfi að gera nokkurn samning eða veita nokkra heimild. Heimildir samkvæmt starfskjara- samningi ætti ekki að skilgreina á grundvelli liegningarlaga og um fjárdrátt væri ekki að ræða. Björ- gólfur yrði ekki sakfelldur fyrir fjár- drátt með öðru móti en því að loka augunum fyrir þeim heimildum sem veittar hefðu verið. Endurskoðanda Hafskips hefði verið falið að fylgj- ast með notkun þeirra og útreikn- ingar hans hefðu sýnt réttilega að notkun þeirra hefði verið langt inn- an hámarks. Lögmaðurinn vísaði í og sagði rétmætan þann skilning Björgólfs þessarar heimildir hefðu verið hans eign og sagði að fram- burður þeirra stjórnarmanna fyrir- tækisins sem samið hefðu við hann staðfesti að um hefði verið að ræða viðbótarlaun. Lögmaðurinn sagði Hafskipsmál- ið einkennast af móðursýkislegum viðbrögðum og leit að sökudólgum vegna gjaldþrots stórfyrirtækis. Hann sagði að sér hefði þótt dapur- legt að heyra hve saksóknari gerði ofurmannlegar kröfur og teldi skyldur miklar. Saksóknari túlkaði og teygði lög og reglur til að koma ábyrgð á þá ákærðu. Teldist mæli- kvarði ákæruvaldsins réttur væri víða pottur brotinn og taldi Guð- mundur Ingvi að með sama móti mætti saka dómara og lögmenn fyrir seinagang sem oft væri talað um að væri í meðferð dómsmála þótt hið sanna væri að þar ynnu menn baki brotnu undir miklu álagi en hefðu ekki undan. Hið sama ætti við um hina ákærðu sem hefðu sinnt störfum sínum með sóma undir gífurlegu álagi og án nokkurs brotavilja. Þó hefði aldrei í málinu verið gerð nokkur úttekt á álagi á þá og afköstum þeirra. Ákæruvald- ið í málinu hefði skort allt raunveru- leikaskyn og erfitt væri að segja hvað veldur. Guðmundur Ingvi rakti að lokum nýframkomin skoðanaskipti Jóns Óttars Ragnarssonar á samskiptum Útvegsbankans og Hafskips. Hann hefði skömmu eftir gjaldþrot Haf- skips ritað blaðagrein uppfulla af ranghugmyndum ogtalað um bank- arán aldarinnar. Á þeim tíma hefði hann hann verið dósent í háskólan- um. Nú fyrir skömmu, eftir að hafa aflað sér mikillar reynslu og þekk- ingar af þátttöku í viðskiptalífinu, hefði hann lýst því yfir í blaðavið- tali að fyrri afstaða hans hefði ver- ið á misskilningi og vankunnáttu byggð. Fyrir vikið væri hann maður að meiri og kvaðst Guðmundur Ingvi efast um að ákæruvaldið hefði tekið þá afstöðu til Hafskipsmálsins sem raun ber vitni ef með það hefði farið maður sem hefði skilning og reynslu af viðskiptalífi og banka- starfsemi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.