Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990
27
' Morgunblaðið/Sverrir
Vasílíj Bosíkov og María Gavrílova frá sjálfstjórnarsvæðinu Jak-
útíu í Síberíu.
Jakútar vilja
aukið sjálfetæði
„MUNURINN á landslaginu hér og heima er að jöklarnir ykkar
eru á yfirborðinu en hjá okkur neðanjarðar," sagði María
Gavrílova, doktor í landafræði og forstöðumaður sifrerastofiiun-
ar sjálfstjórnarhéraðsins Jakútíu í austurhluta Síberíu í samtali
við Morgunblaðið. María og eiginmaður hennar, Vasílij Bosíkov,
aðstoðarmenntamálaráðherra landsins, komu hingað til lands í
boði Alexöndru Kjuregej leikkonu sem einnig er Jakúti en hef-
ur verið búsett hér á landi í allmörg ár. Hjónin sögðu að sjálf-
stæðishugmyndir ættu ekki upp á pallborðið meðal Jakúta, sem
eru um 300 þúsund, en settar hefðu verið fram kröfúr um að
30% tekna af gífúrlegum náttúruauðæfúm, sem grafin eru úr
jörðu, féllu í hluta landsmanna.
Jakútía er um 30 sinnum stærri
en ísland og íbúar alls rúm millj-
ón. Þar af eru nær tveir þriðju
frá Evrópuhluta Sovétríkjanna,
aðallega Rússar og Úkraínumenn.
Frost fer ekki úr jörðu á sumrin
nema efsta hluta jarðvegarins,
algengt er að kuldinn fari niður
í 70 gráður á celsíus. Atvinnulíf
fer þó ekki úr skorðum, að sögn
Bosíkovs keppist fólk bara enn
meira við til að halda á sér hita!
Á sumrin fer hitinn upp í 40 gráð-
ur og landbúnaður, einkum kvikfj-
árrækt, er verulegur, auk þess
sem nokkur hveitirækt er stund-
uð.
Bosíkov er spurður um sambúð
þjóðabrotanna. „Við höfum búið
með Rússum í hálfa fjórðu öld og
sambúðin hefur verið vandræða-
laus,“ segir hann. Þau hjón eru
sammála um að byltingin 1917
hafi orðið til að hraða framförum
í Jakútíu en Sovétstjórnin lagði
frá upphafi mikla áherslu á að
þróa atvinnulíf norðursvæðanna
og nýta auðlindir þeirra. Bosíkov
sagði að allir væru læsir í landinu,
menningarlíf stæði með miklum
blóma, m.a. störfuðu fimm at-
vinnuleikhús auk Ijölda áhuga-
mannafélaga. Jakútar hafa ekki
týnt niður tungu sinni sem er af
tyrkneska málaflokknum og sjón-
varpsstöð í höfuðborginni, Jak-
útsk, með um 200 þúsund íbúa,
sendir út á máli frumbyggjanna.
Þau hjón stunduðu háskólanám
í Moskvu og Leníngrad. Er þau
voru spurð um sjálfstæðishreyf-
ingar Eystrasaltsþjóða og fleiri
þjóða ríkjasambandsins sögðu þau
að aðstæður einstakra þjóða væru
mjög mismunandi. „Eystrasalts-
þjóðirnar voru svo miklu þróaðri
en við. Landið okkar er að vísu
stórt og auðugt frá náttúrunnar
hendi en það er umlukið Rúss-
landi og Norður-íshafmu. Við
verðum að eiga góða samvinnu
við Rússa en við viljum að Jak-
útía verði sérstakt Sovétlýðveldi,"
sagði María. „Núna er öllu efna-
hagslífinu miðstýrt frá Moskvu,
allar tekjur af vinnslu á gulli,
demöntum, kolum og fleiri jarð-
efnum renna í sameiginlegan sjóð
ríkjasambandsins. Við viljum að
30% teknanna verði eftir í landinu
og höfum sett fram kröfur um
þetta, enginn þorði að nefna slíkt
áður en perestrojka og glasnost
komu til sögunnar."
r
ENN E R TÆKIFÆRI!
Samvinnuferðir-Landsýn
Reykjavfk: Auslurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferöir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu viö Hagatorg,
s. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195.
BENIDORM17. MAÍ Á SÉRKIÖRIIM
Þar sem mun færri komust í oriofsferðir aðildarfélaganna en vildu, hefur Samvinnuferðir-Landsýn
í samráði við félögin skipulagt tveggja vikna ferð til Benidorm þann 17. maí n.k., á mjög hagstæðu
verði!
Félagsmönnum ASf, VR, BSRB, BHMR, KÍ, SÍB og Oriofsnefnd sjómanna býðst þetta einstaka
tækifæri til að komast í sólina á Benidorm og kynnast töfrum Spánar, m.a. í skemmtilegum
skoðunarferðum undir leiðsögn íslenskra fararstjóra.
Ferðirnar verða seldar næstu daga á skrifstofum Samvinnuferða-Landsýnar og hjá
umboðsmönnum.
orrabraut 56, 2. hæð,
bflastæði á bak við húsið.
Meirihattar
(í sam
usi
f ró kr. 300
r. 2.000
P.990
r. 9.990
...írók
r.5
.....
Peysur
. 2.000
ENGIMARKAÐURINN,
Snorrabraut 56.
Opið daglega frá kl. 13.00 til
Laugardaga frá kl. 10.00 til 16
HVÍTA HÚSID / SÍA