Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990
ffcimm
,Jaktu tv&r cxf Þessum me% mat,en. a/c/rei
f/e/H en 30 cí dag-"
Ast er...
<? CP O
c? æm&Po
O ^ N
c0
c?
S-/S
. . . þegar hjailað fyllist
elsku.
TM Reg. U.S. Pat Off.— all nghts reserved
° 1990 Los Angelos Times Syndicate
Með
morgunkaffínu
Einstaklega voru orð
prestsins hlýleg. Eg veit
ég leita til hans næst...
Armbaugar
bæta líðan
Fækkum þingmönnum
Til Velvakanda.
Ég hef orðið fyrir svo ánægju-
legri reynslu að ég má til með að
deila henni með öðrum, ekki síst
ef það gæti orðið til þess að fleiri
nytu góðs af en ég.
Fyrir um það bil tveimur mán-
uðum eignaðist ég armbaug sem
nefnist Bio-Ray og fæst í Heilsu-
húsinu í Kringlunni. Ég er svo sem
ekkert sérlega heilsuveil en eins
og margir i okkar ágæta þjóðfé-
lagi fæ ég minn skerf af streitu
og oft valda áhyggjur og spenna
fyrir mér vöku á nóttunni eða
koma mér úr jafnvægi.
En líðan mín hefur gerbreyst
upp á síðkastið. Ég er rólegri, laus
við kvíða þótt á móti blási og nú
missi ég aldrei nætursvefn. Þetta
þakka ég hiklaust lífseguljafnar-
ánum því að ég veit ekki hvað
annað ætti að valda breytingunni
enda liðu ekki nema nokkrir dagar
frá því að ég setti upp armbauginn
og þangað til ég var orðin allt
önnur manneskja. Ég veit að fólk
sem hefur alls konar vandamál svo
sem vöðvabólgu, bakverki eða gigt
telur sig fá bata af því að ganga
með þessi armbönd en ég get sem
sagt mælt með þeim líka fyrir þá
sem ekki eru með neina sérstaka
kvilla, heldur gætu bara hugsað
sér að öðlast betri líðan.
Kristín Hauksdóttir
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur iesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða tii að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Til Velvakanda.
Bið Velvakanda að flytja Davíð
Oddssyni sérstakar þakkir fyrir
kaupin á Hótel Borg. Og rétt er
það, sem borgarstjórinn sagði, að
húsnæðisvanda Alþingis mætti
leysa með fækkun þingmanna.
Þarna getur Davíð Oddsson djarft
úr flokki talað, því að hann fækk-
aði borgarfulltrúum úr 21 (frá tíð
vinstri meirihlutans) í 15. Sambæri-
legar tölur varðandi þingmenn og
ráðherra væri, að þingmönnum
fækkaði úr 63 í 45 og ráðherrum
úr 11 í ca. 7.
Fækkun borgarfulltrúa gafst
mjög vel, og fækkun þingmanna
yrði tvímælalaust mjög til bóta.
Þeir myndu t.d. halda sig betur að
verki eftir slíka fækkun. Ráðherra-
fækkun er einnig sjálfsögð. Þar
mætti t.d. nefna, að stjórnarfarið
versnaði stórum við inngöngu Borg-
araflokksmanna í ríkisstjórnina, og
var þó ekki úr háum söðli að detta
á þeim bæ.
Kristín Jónsdóttir
Ekki farið eftir seltnm reglum
Til Velvakanda.
Þegar væntanlegur húsbyggj-
andi sækir um lóð hjá borginni fær
hann reikning upp á stórar tölur,
sérstaklega ef hann hefur sótt um
einbýlishúsalóð. í trausti þess að
hann sé að borga fyrir viss fríðindi
sættir hann sig við þessi háu gjöld.
Svo líða fram tímar og þetta hverfi
eða gata er fullbyggt, þá fara að
spretta upp ýmsar þjónustugreinar
á þessum sama stað. Þeir húsbyggj-
endur sem byggðu rúmt um sig
fara að innrétta hjá sér sólbaðsstof-
ur, vídeóleigur, hárgreiðslustofur
o.fl.
Auk þess taka sumir inn á sig
leigjendur. Nú skilst mér að til sé
reglugerð þar sem ofangreind starf-
semi sé ekki heimil. Grun hef ég
um að seint sé beitt þessari reglu-
gerð eða aldrei. Eins og ég hef
áður sagt var fólk í þeirri góðu trú
að þessi lóðagjöld veittu viss hlunn-
indi, minni umferð, rólegra hverfi,
fleiri bílastæði o.fl. Er ekki borgin
að ganga bak orða sinna með þessu
afskiptaleysi?
Kjósandi
*
■>
HÖGNI HREKKVÍSI
„VAThlSfiÚMl& þlTT LEKUR, HÖCJNI
Víkveiji skrifar
Kraftaverkin gerast enn - þrátt
fyrir allt! Eftir ófarir okkar í
hinni svonefndu Evrópusöngva-
keppni undanfarin ár var vissulega
ánægjulegt að fylgjast með árangri
íslenzku þátttakendanna í Júgóslav-
íu sl. laugardag. Þegar íslendingar
ná árangri á erlendum vettvangi,
sem eftir er tekið, hefur það óneit-
anlega örvandi áhrif á þjóðarstoltið!
Það breytir hins vegar engu um
það, að þessi keppni verður leiðin-
legi'i með hveiju árinu, sem líður.
Af einhveijum ástæðum eru lögin,
sem flutt eru í keppninni ótrúiega
lík. Þjóðir, sem búa yfir sterkum
sérkennum senda lög í þessa
keppni, sem bera engin einkenni
þessara þjóða. Lögin eru öll eins!
Og það veldui' því, að Evrópusöngv-
akeppnin er ekki skemmtilegt sjón-
varpsefni.
Hins vegar einkennist keppnin
mjög af þeim yfirborðslega og háv-
aðasama gerviheimi, sem er að
vei'ða stöðugt meira áberandi í fjöl-
miðlaveröld nútímans. Er fólk ekki
að verða þreytt á þessari gervi-
mennsku? Og þessu innihaldslausa
yfirborði?
Auglýsingamennska og sölu-
mennska er að verða yfirþyrm
andi í daglegu lífi okkar. Það er
eins og sölumennirnir haldi, að jarð-
arbúar geti allir lifað á einhvers
konar sölumennsku! Jónas Kristj-
ánsson, ritstjóri DV, gerir þessu góð
skil í leiðara blaðs síns sl. laugar-
dag þar sem hann segir m.a.:“Aug-
lýsingar og kynningar af ýmsu tagi
heita núna “markaðssetning" og
fjalla oftar en ekki um eitthvað
annað en innihald þess, sem verið
er að auglýsa....Við erum þegar
komin á það stig, að “markaðssetn-
ing“ felst ekki í að búa til gott inni-
hald, heldur góða ímynd af hvaða
innihaldi eða innihaldsleysi, sem
er.“
xxx
að var hins vegar engri gervi-
mennsku fyrir að fara í Lang
holtskirkju um helgina. Kór kirkj-
unnar flutti H-moll messu Bachs
með giæsibrag bæði á laugardag
og sunnudag. Jón Stefánsson, org-
anisti kirkjunnar og stjórnandi
kórsins hefut' unnið merkilegt
menningarstarf í þessari kirkju sl.
aldaríjórðung, sem tímabært er orð-
ið að veita verðuga athygli.
Kirkjan var troðfull í fyrradag
og kórnum, tónlistarmönnum,
stjórnanda og einsöngvurum vel
fagnað. í hópi einsöngvara var sér-
stæður söngvari frá Israel, Yaacov
Zamir. Hið sérstæða við söng hans
er það, að hann hefur vald yfir-
ýmsum raddgerðum og syngur
bæði baritón, tenór, alt og mezzo-
sópran. Það var óneitanlega mjög
forvitnilegt að hlusta á hann syngja
í þessu verki en leiðir hans og kórs
Langholtskirkju lágu saman í ísrael
í tónleikaferð kórsins þangað á sl.
ári. Samkvæmt söngskrá hélt Zam-
ir sérstaka tónleika í kirkjunni í
gærkvöldi.
Það fer ekkert á milli ntála, að
metnaður kórs Langholtskirkju er
meiri en vejulegra kirkjukóra og
jafnframt er ljóst, að kórinn og
stjórnendur hans hafa haft erindi,
sem erfiði.