Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1990
31
Fjársöíiiun til styrktar
sjúkrahúsi í Jerúsalem
„SHAARE ZEDEK var stofnað árið 1873 og er því elsta sjúkrahú-
sið í Jerúsalem. Sjúkrahúsið þjónar íbúum Jerúsalem og nágrenn-
is, án tillits til þjóðernis, kynþáttar eða trúarbragða þeirra,“ sagði
Bernard Zimmer í samtali við Morgunblaðið en hann stendur fyr-
ir Ijársöfnun í Evrópu til styrktar sjúkrahúsinu.
Bernard Zimmer sagði að um
500 sjúkrarúm væru í Shaare Ze-
dek en þar væru einnig stundaðar
rannsóknir. Hann sagði að sjúkra-
húsið hefði verið reist af gyðingum
í Hollandi og Þýskalandi en um
30% sjúklinganna væru Arabar.
„Við höfum einnig hjúkrað van-
nærðum börnum frá Eþíópíu,“
sagði Bernard. Hann sagði að
fimm íslenskar ljósmæður og hjúk-
runarfræðingar hefðu starfað á
Shaare Zedek.
Þeir, sem vilja styrkja Shaare
Zedek-sjúkrahúsið, geta sent fjár-
framlög til Den norske insamling
til Shaare Zedek, Boks 8 Holmen,
Oslo 3, Postgiro 3849817, Bank-
giro 5251.63.28347.
Heimilisfang sjúkrahússins er
Shaare Zedek Medical Center
Public Relations Department
P.O.B. 293 Jerusalem 910002
Israel.
Stjórn Stúdentaráðs:
Virðisaukaskattur af bók-
um verði felldur niður
Morgunblaðið/Júlíus
Bernard Zimmer.
03 upplýsingasími Pósts og síma:
Skrefið 12 sekúndur ekki 9
EF hringt er í 03 upplýsingar
Pósts og síma telst eitt skref
eftir 12 sekúndur en ekki 9, eins
og sagt var í sunnudagsblaði
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
7. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 64,00 30,00 59,76 43,356 2.591.088
Þorskur(óst) 63,00 48,00 52,80 35,405 1.869.259
Ýsa 78,00 40,00 68,16 17,003 1.158.892
Ýsa(ósl.) 68,00 40,00 62,48 4,026 251.562
Þorskur(stór) 68,00 68,00 68,00 1,133 77.044
Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 2,255 67.657
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,720 14.390
Ufsi 20,00 10,00 19,23 3,501 67.325
Steinbítur 31,00 27,00 29,89 4,029 120.437
Hlýri 33,00 33,00 ■ 33,00 0,148 4.884
Langa 35,00 35,00 35,00 1,153 40.355
Lúða 200,00 100,00 156,83 0,374 58.575
Koli 33,00 32,00 32,70 1,422 46.520
Keila(ósL) 23,00 23,00 23,00 0,790 18.170
Samtals 55,11 116,382 6.414.090
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 66,00 30,00 42,12 15,017 632.514
Þorskur(ósL) ' 70,00 30,00 45,06 15,507 698.738
Ýsa 86,00 50,00 70,10 8,051 564.366
Ýsa(ósL) 79,00 50,00 67,71 5,371 363.657
Karfi 20,00 16,00 17,12 0,620 1Q.612
Ufsi 37,00 20,00 33,04 35,480 1.172.228
Steinbítur 29,00 20,00 25,03 8,505 212.843
Langa 70,00 20,00 25,92 1,217 31.550
Lúða 270,00 270,00 270,00 0,018 4.860
Keila 12,00 12,00 12,00 3,202 38.424
Skarkoli 29,00 24,00 27,86 0,140 3.900
Skata 85,00 85,00 85,00 0,133 11.305
Rauðmagi 110,00 13,00 43,79 0,205 8.976
Samtals 39,84 94,719 3.774.067
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 82,00 15,00 46,27 137,464 6.359.851
Ýsa 67,00 20,00 47,32 58,890 2.786.664
Karfi 39,00 15,00 26,66 1,352 -36.048
Ufsi 18,00 10,00 11,87 3,414 40,527
Steinbítur 25,00 15,00 17,63 6,965 122.818
Langa 30,00 19,00 23,07 0,319 7.359
Lúða 200,00 160,00 196,73 0,049 9.640
Skarkoli 47,00 30,00 35,00 0,950 33.254
Keila 5,00 5,00 5,00 2,495 12.475
Skata 76,00 76,00 76,00 0,100 7.600
Hrogn 133,00 133,00 133,00 0,110 14.630
Samtals 44,16 214,133 9.455.501
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
VESTUR-ÞYSKALAND 7. maf.
Hæstaverð Lægsta verð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 102,86 77,51
Ýsa 117,34 105,03
Ufsi 101,41 44,19
Karfi 144,87 52,15
SKIPASÖLUR í Bretlandi 30. apríl til 4. maí.
Þorskur 119,00 308,250 36.680.216
Ýsa . 121,87 28,700 3.497.540
Ufsi 52,98 16,060 850.903
Karfi 41,67 7,350 306.257
Grálúða 90,67 51,780 4.694.867
Samtals 111,68 418,034 46.686.488
Selt var úr Gullveri NS í Grimsby 30. april, Hugin VE i Hull Grimsby 2. maí, svo og Sléttanesi IS í Hull 3. maí. og Þorra SU
GÁMASÖLUR í Bretlandi 30. april til 4. maí. Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð (kr.) (kr.) (kr.)
Þorskur 116,13 438.750 50.963.030
Ýsa 128,18 402,558 51.599.845
Ufsi 60,00 66,803 4.008.371
Karfi 53,49 30,085 1.609.113
Koli 100,66 267,619 26.937.397
Grálúða 196,74 13,700 2.695.438
Samtals 110,99 1.344,965 149.278.371
SKIPASÖLUR íBremerhaven íVestur-Þýskalandi 30. apríltil 4. maí.
Þorskur 98,69 15,095 1.489.677
Ýsa 73,61 0,705 51.892
Ufsi 83,87 7,135 598.393
Karfi 71,59 302,779 21.675.679
Grálúða 102,23 71,698 7.329.911
Samtals 78,07 420,541 32.832.501
Morgunblaðsins. Að sama skapi
er innanbæjarskrefið 4 mínútur
en ekki sex eins og sagt var.
Þessar upplýsingar fengust hjá
Ólafi Eyjólfssyni, forstöðumanni
Ritsímans. Hann sagði að þessi
upplýsingaþjónusta væri ekki dýr
í samnaburði við það sem gerðist
í öðrum löndum.
Hann vissi ekki til að hún væri
annars staðar ódýrari. Hins vegar
væri handvirk þjónusta alltaf dýr-
ari en sjálfvirk.
Þannig kostnaði 52 krónur án
virðisaukaskatts að láta Lands-
ímann 02 vekja sig, en aðeins
fimm teljaraskref, sem samsvarar
tæplega 15 krónum, ef sjálfvirka
kerfið væri notað.
Fólk virtist hins vegar ekki gera
sér grein fyrir þessu, þó þetta
væri vandlega útskýrf á bls. 16 í
símaskránni.
STJÓRN Stúdentaráðs Iiáskóla
Islands hefúr sent öllum þing-
mönnum bréf, þar sem hvatt er
til þess að niðúrfellingu virðis-
aukaskatts á bókum verði flýtt,
þar sem stúdentar kaupi bækur
sínar einkum í september. Nú
er fyrirhugað að fella niður
bókaskattinn 16. nóvember
næstkomandi.
í bréfinu segir að það, sem valdi
stúdentum þó mestum áhyggjum,
sé að samkvæmt lögunum um
virðisaukaskatt sé eingöngu gert
ráð fyrir niðurfellingu hans af
„bókum á íslenzkri tungu jafnt
frumsaminna sem þýddra,“ sam-
kvæmt laganna hljóðan.
„Námsbækur þær, sem kenndar
eru við Háskóla íslands eru nær
allar á erlendum málum og munu
væntanlega verða það í náinni
framtíð. Þetta þýðir að námsbæk-
ur stúdenta við Háskóla íslands
munu bera virðisaukaskatt þrátt
fyrir þessa breytingu laganna,"
segir í bréfi stjórnar Stúdentaráðs.
Haraldur Vídal prófessor
Haraldur Vídal látinn
Professor Haraldur Vídal við
háskólann í Brandon í Manitoba
andaðist í sjúkrahúsi í Árborg,
Manitoba, Kanada, 29. apríl
síðastliðinn.
Hann var mörgum íslendingum
kunnur, þar sem hann dvaldi við
Háskóla íslands árið 1986 við
fræðistörf og auk þess átti hann
marga ættingja á Islandi og talaði
íslensku, þótt bæði foreldrar hans
og hann væru fædd í Kanada.
Hann var ókvæntur og barnlaus,
en nokkur systkini hans eru á lífi
þar vestra.
*
Margrét Arsæls-
dóttir - Minning
Selt var úr Otto Wathne NS 30. apríl og Vigra RE 3. maí.
Fædd 2. desember 1928
Dáin 23. apríl 1990
Mig langar með örfáum orðum
að minnast frænku minnar, Mar-
grétar Ársælsdóttur, Grétu, en hún
lést 23. apríl síðastliðinn eftir harða
baráttu við krabbamein, þennan
sjúkdóm sem stöðugt leggur fleiri
að velli.
Grétafæddist 1928 í Vestmanna-
eyjum, en fluttist með foreldrum til
Grindavíkur og þaðan á Hvaleyri
við Hafnarfjörð. 1964 giftist hún
eftirlifandi manni sínum, Ragnari
Gíslasyni, en ári áður eignuðust þau
dóttur, Ilönnu Björk, sem var alltaf
sólargeisli í lífi hennar.
Hjá börnum hefur hugtakið
uppáhaldsfrænka vafalaust mis-
munandi merkingu eftir því við
hvern er talað. Þó má reikna með
að lýsingar eins og er góð, les fyrir
mig, gefur mér af afmælis- eða
jólagjafir, skilur mig, leikur sér með
mér, geti gefið dæmi um svör barna
við þeirri spurningu af hveiju ein-
hver er uppáhaldsfrænka. Sennileg-
ast færi eins fyrir börnunum og
þeim fullorðnu að erfitt gæti verið
að skilgreina hvað verður til þess
að ein frænka verðskuldar, án
nokkurs vafa, að vera kölluð uppá-
haldsfrænka. Það er ljóst að Gréta
var mín uppáhaldsfrænka og ef ég
væri spurður af hveiju þá gæti ég
tínt margt til en sennilega næði ég
seint að telja alla þá kosti sem
prýddu Grétu og gerðu hana að
minni uppáhaldsfrænku. í barns-
minni mínu var Gréta alltaf kát og
skemmtileg, Gréta gleymdi ekki
afmælisdegi, Gréta gaf ekki lina
pakka þegar vonast var eftir hörð-
um, reyndar virtist Gréta allaf vita
hvað lítill strákur vildi, Gréta hafði
tíma til alls, bæði leikja og lestrar
eða einhvers annars. í stuttu máli
þá skildi Gréta mig og mér Ieið vel
með henni.
Þessar vangaveltur vakna þegar
litið er til baka og æskiftírin rifjuð
upp. Ég sem fyrsta systkinabarnið
naut þess að fá að vera í nokkur
sumur í sveit hjá ömmu og afa á
Hvaleyri við Hafnarfjörð. A þeim
tíma bjuggu Gréta og Grímur í for-
eldrahúsum, þannig að fyrir lítinn
strák var ekki hægt að hugsa sér
betri kringumstæður að sumri til.
Þrátt fyrir að alltaf væri nóg að
gera virtist alltaf einhver hafa tíma
til að leika sér, þannig að í minning-
unni er ekki til sú hugsun að ein-
hvern tíma hafi verið leiðinlegt.
Reyndar fínnst mér að alltaf hafi
verið sól á Hvaleyri.
Eftir því sem systrabörnunum
fjölgaði, fjölgaði í hópnum þeim sem
áttu sömu uppáhaldsfrænku því að
Gréta sinnti öllum og gerði ekki upp
á milli. Gjafmildi sem engan enda
tók og skilningur á þörfum hvers
og eins var alltaf til staðar. Meira
að segja börn okkar voru ekki und-
anskilin. Ég velti því fyrir mér hvort
við höfum nokkurn tíma getað end-
urgoldið þessa væntumþykju.
Sennilega hefur það ekki verið
nema í þeirri barnslegu gleði og
einlægni sem börnum er gefin. Hins
vegar er ég viss um að uppskera
hennar bíður hjá þeim einum sem
getur dæmt um verk okkar mann-
anna. Eins er ég viss um að þar
bíða móðir, bróðir og systursonur
sem líka átti sína uppáhaldsfrænku.
Megi góður Guð styrkja ástvini
alla.
Hannes
Hún Gréta frænka er dáin, eftir
langa baráttu við ólæknandi sjúk-
dóm var hún kölluð burt.
Minningarnar hrannast upp, frá
þvi að ég var lítil stelpa í pössun
hjá Grétu. Það var ógleymanlegui
tími glaðværðar og hláturs. í sveit-
inni, eins og ég kallaði Haukaberg, ^
var yndislegt að vera, staður þai
sem ekki var hægt annað en láta
sér líða vel á. Þarna fékk ég, borg-
arbarnið, að kynnast óspilltn
náttúrunni með hrauni og beija-
lyngi rétt fyrir utan borgarmörkin
I þessari sveit lékum við Hanna
Björk okkur daginn út og inn. Oft
var farið í bíltúr lengra út fyrii
bæinn og ómaði þá ósjaldan lagið
„Bjössi á mjólkurbílnum" og allii
sungu hástöfum. Hjá Grétu leif
manni vel, umvafinn kærleik og
hlýju, og þar var bjartsýni og glað-
værð ávallt í fyrirrúmi. Hver hefð
getað hugsað sér yndislegri frænku
Frænku sem alltaf var tilbúin að
hugga og gleðja.
Elsku Hanna Björk og Ragnar,
megi góður Guð styrkja ykkur.
Megi minningin um uppáhalds-
frænku lifa.
Að ósk hinnar látnu fór útföi
hennar fram í kyrrþey.
Naima