Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 53 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA i 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ,ur Bögffunarstöðvarhneyksli Til Velvakanda. Á fundi sem var haldinn í Grafar- vogi vegna eldsins í Áburðarverk- smiðju ríkisins lýsti borgarstjórinn í Reykjavík því yfir að hann vildi leggja þennan efnaiðnað af í miðri borginni. Meginþorri fundarmanna fagnaði þessum viðbrögðum borg- arstjóra en á fundinum kom líka fram megn óánægja með fyrirhug- aða sorpböggunarstöð sem á að reisa í landi Áburðarverksmiðjunn- ar. Á þessum borgarafundi kom fram að eiturefni verða flutt til sorpböggunarstöðvarinnar og lýsti borgarverkfræðinngur því yfir að þannig yrði búið um ímútana að engin hætta stafaði af þessum eit- urefnaflutningi í gegnum miðja íbúðarbyggðina í Grafan'Ogi. Borg- arstjóri ræddi síðan um þá hættu sem stafaði hugsanlega af eiturefn- unum í hinum vel búna og kælda ammoníaksgeymi Áburðarverk- smiðjunnar. Þarna gætti misræmis í málflutn- ingi sem ekki verður unað við. Hvernig ætlast kjörnir fulltrúar borgarbúa til þess að mark sé tekið á ummælum þar sem annárs vegar er krafist þess að hættuieg efni séu flutt úr miðju íbúðarhverfi og hins vegar séu slík efni flutt til hverfis- ins og er þá ekki talað um allan óþrifnaðinn og umferðarvandann er fylgir þessum miklu flutningum? Það er staðreynd að Grafarvogs- búar hafa ekki verið spurðir álits á sorpböggunarstöðinni sem var sett inn á skipulag hverfisins eftir að meginhluti íbúa flutti þangað inn. Teikningar að böggunarstöðinni voru að vísu sýndar í félagsmiðstöð hverfisins en síðan var haldinn fundur með örfáum einstaklingum í hverfisfélagii.u. Bréf þar sem kom fram andstaða gegn böggunarverk- smiðjunni hvarf í borgarkerfínu. Síðan barst íbúum fallegur litprent- aður auglýsingabæklingur þar sem var lögð þung áhersla á „glæsi- leika“ böggunarstöðvarinnar. Það er þungur hugur í mörgum Grafarvogsbúanum þessa dagana vegna fyrirhugaðrar böggunar- stöðvar ekki síður en íbúum í Mos- fellsbæ vegna fyrirhugaðrar sorp- urðunar í Alfsnesi. Undirrituð tekur undir ummæli Þengils Oddssonar fulltrúa D-iistans í bæjarstjórn Mosfellsbæjar sem sagði í grein hér í Morgunblaðinu 1. maí á blaðsíðu 12 um Álfsnesmálið: Aðalperla okk- ar eru útivistarsvæðin og viljum við standa vörð um þau og gerum þá kröfu,' að þeim verði ekki ógnað. Þórdís G. Stephensen Þessir hringdu ... Dýr þjónusta Sveitakona hringdi: „Unglingur skrifaði í Velvak- anda fyrir nokkru og ásakaði bændur um peningaplokk vegna þess að hann þurfti að greiða þrjú þúsund krónur fyrir skráningu hjá Ráðningarskrifstofa bænda. Eg vil benda á að það eru ekki bænd- ur sem fá þessa peninga því þeir þurfa líka að borga til skrifstof- unnar ef þeir leita til hennar vegna ráðninga. Eg vil taka undir það með honum að þetta gjald er óeðlilega hátt. Ég hef rætt þetta við bændur og bændakonur og ber öllum saman um að þessi gjaldtaka sé óeðlilega há.“ Fyót og góð þjónusta Kona hringdi: „Við höfum þurft á hjartabíln- um að halda í tvö skipti að undanf- örnu. Þetta er fljót og góð þjón- usta og gott fólk sem kemur með honum. Ég vil koma þakklæti á framfæri til þessa ágæta fólks.“ Kettlingar gefins Eins árs læða og tveir átta vikna kassavandir högnar fást gefíns. Upplýsingar í síma 33461. Köttur Gulhvítur köttur af angórakyni fór að heiman frá sér fyrir mán- uði. Vinsamlegast hringið í síma 31453 ef hann hefur einhvers staðar komið fram. Kettlingar Þijá kettlinga vantar heimili. Upplýsingar í síma 641586 eða síma 657086. Jakki Svartur hálfsíður jakki tapaðist á Lækjartorgi 5. apríl. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja ísíma 19451. Gleraugu Grá gleraugu töpuðust í Nóat- úni í Mosfellssveit fyrir nokkru. Finnandi er vinsamlegast beðinn að skila þeim í afgreiðsluna þar. Veggteppi Veggteppi fannst við Grensás- veg í vikunni sem leið. Upplýsing- ar í síma 37365. Úr Laugardaginn fyrir páska tap- aðist gyllt armbandsúr í Kópa- vogi. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 42469. i eftir Ásgeir Svanbergsson Handbók ræktunarmannsins. Leiðbeiningar um ræktun og hirðingu. Með 170 litmyndum. ÖRN OG ÖRLYGUR SfÐUMÚlA 1 f - SfMI 84866 < Q- GLUGGINN AUGLÝSIR Nýkomið frá Sviss og Þýskalandi mikið úrval af jakkapeysum, blússum og peysum. GLUGGINN, Laugavegi 40, sími 12854. Námskeið fyrir sumarið TIL ÚTLANDA í SUMAR? Hraðnámskeið í tungumálum í maí fyrir byrjendur og fyrir þá sem vilja bæta við eða dusta rykið af fyrri kunnáttu. Kennd verður danska, enska, franska, gríska, italska, spænska, sænska, rússneska og þýska. VILTU TAKA MYNDIR? Helgarnámskeið í Ijósmyndatöku 12.-13. maí. Tæknileg undirstöðuatriði um myndavélar, filmurog fylgihluti. Einnig myndataka við misjöfn skilyrði og myndbygging. Leiðbeinandi Halldór Valdimarsson. FERÐASTU Á BÍLNUM? Á námskeiðinu „Að gera við bílinn sinn“ lærirðu að fylgjast með bílnum og halda honum við, skiþta um platínur, kerti, viftureim og bremsuklossa og annast minni viðgerðir. Elías Arnlaugsson kennir í bifvéiadeild Iðnskólans. VORÞREYTA? Námskeiðið „Hollusta, hreyfing og heilbrigði" miðar að heilbrigðara lífi án öfga. Kennt inni og úti um streitu, slökun og hreyfingu, tengsl andlegrar og líkamlegrar heilbrigði og hollt mataræði. Skokkað saman í lokin. „Do-lnsjálfsnudd og slökun" 15.-23. máí ernámskeið í jaþanskri aðferð við sjálfsnudd §em felst í banki á orkurásir líkamans. Tilgangurinn er jafnvægi og betri líðan. Leiðbeinandi Sigrún Olsen. ÞEKKIRÐU REYKJAVÍK? Á námskeiðinu „Reykjavíkurrölt" í lok maí skoðarðu bæinn á kvöldgöngu með Páli Líndal og fræðist um sögu gömlu Reykjavíkur, íbúa hennar, götur og hús og færð yfirlit yfir stækkuninaog nýju hverfin. Börn velkomin í fyigd fullorðinna þátttakenda. Hefst 29. maí. VANTAR FÖT FYRIR SUMARIÐ? Síðasta saumanámskeiðið á þessu misseri. Fyrir byrjendur og lengrakomna. Hefst 15. maí. Leiðbeinandi Ásdís Ósk Jóelsdóttir. UMHVERFISVERND VIÐ BÆJARDYRNAR OG VÍTTUMHEIM Helgarnámskeið um umhverfismál í samvinnu við Landvernd. Hvað er að gerast á hnettinum okkar? Hvernig er ástandið á íslandi? Hvað getum við sjálf lagt af mörkum til verndar umhverfinu? Fyrirlestrar, umræðurog útivist. Haldið á Alviðru í ölfusi 9.-10. júní. Tilvalið námskeið fyrir alla fjölskylduna. Nánari upplýsingar um námskeiðin, stað- og tímasetningu og verð á skrifstofunni. TÓMSTUNM SKOUNN Skólavörðustig 28 Sími 62 U» 88 • ÓPERUKJALLARINN • KRINGLUKRÁIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐNO • H0RNIÐ • FIMMAN • H0TEL B0RG • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐN0 • HORNIÐ • IREVKMW 6.-13. M\ 1990 HÓTEL BORG: FIMMAN: Gammar Súld FÓGETINN: HORNIÐ: Kvartett Guðmundar Ingólfssonar Blúskvöld/Vindlar Faraós DUUS HÚS: ÓPERUKJALLÁRINN: Big band og Sextett Tónlistarskólo FÍH Kvartett Kristjóns Magnússonar GAUKUR Á STÖNG: KRINGLUKRÁIN: Borgarhljómsveitin Tríó Egils B. Hreinssonar • OPERUKJALLARINN • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐN0 • H0RNIÐ • F0GETINN • DUUSHUS • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐN0 • H0RNIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.