Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ VJDSKÍFn/KNIHtfUlÍF ÞRIÐJÚDAGUR 8. MAÍ 1990
Húsavík
Kaupfélag Þingeyinga
með 11 milljóna hagnað
Á STJÓRNARFUNDI Kaupfé-
lags Þingeyinga nú nýlega voru
lagðir fram endurskoðaðir reikn-
ingar félagsins, sem sýndu að
afkoma þess batnaði mjög á árinu
og hagnaður á samanlögðum
rekstri KÞ og Mjólkursamlagsins
á síðasta ári var um 11 miHjónir
króna, sem segir um 80 millj.
króna betri rekstrarniðurstöðu
Verslun
„ Vaktboðar“ í verslan-
irinnan Kaup-
mannasamtakanna
VÍS hyggur á nýjar leiðir til að auka
tryggingarvernd kaupmanna
STEFNT er að því að setja upp svonefnda vaktboða í verslunum sem
eiga aðild að Kaupmannasamtökum Islands. Hér er um að ræða til-
tölulega nýja gerð af öryggistækjum sem tengja má við frystikistur,
reykskynjara og hitaskynjara þannig að hringt er í t.d. slökkvilið
og síðan heim til eigenda ef reykskynjari fer í gang. Jafnframt er
gert ráð fyrir að vaktboðarnir verði tengdir við sérstaka stjórnstöð
Vátryggingarfélags Islands við Ármúla. Þar verða vaktmenn allan
sólarhringinn sem gera viðeigandi ráðstafanir ef með þarf.
Sú Jpjónusta sem Vátryggingar-
félag Islands hyggst veita aðildarfé-
lögum Kaupmannasamtakanna er
hliðstæð þjónustu öryggisgæslufyr-
irtækjanna Vara og Securitas. Að
* ■ NÝLEGA flutti Rosenthal
verslunin, Laugavegi 91 í nýtt og
stærra húsnæði Nýborgar hf.,
Ármúla 23, þar sem félagið rekur
nú húsgagna- og gjafavöruverslun.
Allar innréttingar fyrir Rosenthal
hafa verið hannaðar af arkitektum
Rosenthal í V-Þýskalandi og eru
í sama stíl og í öðrum Rosenthal-
verslunum víða um heim, Rosenthal
sérhæfir sig í listrænum borðbúnaði
og postulínslistmunum teiknuðum
af þekktum alþjóðlegum listamönn-
um. Rosenthal selur framleiðslu
sína undir fjórum framleiðsluheit-
um: Rosenthal-studioline, Thom-
as, Classic Rose og Shopienthal.
Vörur frá öllum þessum fyrirtækj-
' um fást í Ármúla 23, hjá Nýborg hf.
sögn Magnúsar Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra Kaupmannasamtak-
anna tíðkast það erlendis að stór
tryggingarfélög veiti slíka þjónustu.
Vaktboðar eru framleiddir hér á
landi af fyrirtækjunum DNG og
Rafagnatækni en allur hugbúnaður
er íslenskur.
Á viðskiptasíðu síðastliðinn
þriðjudag var frá þvi greint að
Kaupmannasamtök Islands og VÍS
hefðu undirritað samning um að
bæta tryggingarvernd og kjör fé-
lagsmanna Kaupmannasamtak-
anna. Þessu markmiði á m.a. að
ná með áðumefnum tæknibúnaði.
Samningurinn er framhald af eldri
samningi samtakanna við Bruna-
bótafélagið sem komst á þegar þau
efndu til útboðs á tryggingum fyrir
félagsmenn. Brunabótafélagið var
eina félagið sem sendi inn tilboð á
þeim tíma sem fól í sér hagstæðari
kjör fyrir félagsmenn Kaupmanna-
samtakaifna en almennt gerðist.
en 1988. Fjármunamyndun frá
rekstri varð 43,8 millj. og hagn-
aður af reglulegri starfsemi 26,4
millj. króna.
Heildartekjur í samandregnum
rekstri KÞ og MSKÞ voru 1.479
millj. og er sú aukning um 13,1%
frá fyrra ári. Heildartekjur í verzl-
unarþættinum voru 776 millj. og
höfðu aukist um 21,9% frá fyrra
ári. Launakostnaður 205 milljónir
hafði aðeins hækkað um 5,6%. Af-
koma allra rekstrarþátta batnaði á
árinu og sumra mjög veruiega.
Kaupfélagsstjórinn Hreiðar
Karlsson sagði rekstarbatann
mætti „hiklaust rekja til hins rót-
tæka hagræðingarátaks, sem gripið
var til á miðju síðasta ári, svo og
þeirra aðgerða, sem framkvæmdar
voru á árinu 1988, en skiluðu ekki
fullum árangri þegar á því ári.
Ekki má gleyma elju og dugnaði
starfsfólksins né hollustu og sam-
stöðu félagsmanna, en hvort
tveggja á vissulega dijúgan hlut í
þeim árangri, sem nú er að koma
í ljós. Engu að síður,“ bætti hann
við, „er ljóst að staða félagsins er
enn ekki nógu sterk og aðgát því
nauðsynleg á öllum sviðum."
- Fréttaritari
AFKOMA — Afkoma allra rekstrarþátta Kaupfélags Þingey-
inga batnaði á árinu og sumra mjög verulega.
NordEx - Norræn viðskipta-
símaskrá 1990komin út
ÚT ER komin Norræn viðskiptasimaskrá 1990, NordEx. Þetta er
þriðja árið sem skráin er gefin út, en hún er prentuð í Smm mismun-
andi útgáfum, þ.e. á máli hvers lands fyrir sig, íslands, Danmerkur,
Noregs, Finnlands og Svíþjóðar, og er efnið hið sama í þeim öllum.
isþjónustunnar og allra sem þess
óska á meðan upplag endist. í henni
er að finna upplýsingar um rúmlega
þrettán þúsund norræn fyrirtæki
og kemur hún út í 70.000 eintök-
um. íslenska útgáfan er gefin út í
um 2.500 eintökum.
NordEx er sameiginlegt verkefni
símastjóma Norðurlanda undir
umsjón vinnunefndar sem skipuð
er einum fulltrúa frá hveiju landi.
Fulltrúi íslands í nefndinni er Ágúst
Geirsson, símstjóri í Reykjavík, og
er hann jafnframt ritstjóri íslensku
útgáfunnar.
NordEx er í sama broti og
íslenska símaskráin og er í megin-
atriðum skipt í tvennt, starfsgreina-
skrá og nafnaskrá, þ.e. gular síður
og hvítar.
Fremst í skránni eru upplýsingar
um hvernig hringja á til Norður-
landa og hvernig samskiptum milli
landanna er háttað með telex- og
telefax-sendingum, gagnaflutningi
og símafundum. NordEx er ætlað
að greiða fyrir viðskiptasambönd-
um milli Norðurlanda.
NordEx er dreift ókeypis til
þeirra sem eru í skránni, til stór-
kaupmanna og iðnrekenda, utanrík-
A MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Hver hjálpar ekki þeim
sem hjálpar sér sjálfiir?
Frumheijar í baráttunni gegn
berklaveiki og annarri lömun hér á
árum áður völdu sér sem vígorð:
Styðjum sjúka til sjálfsbjargar! I
þessum orðum er fólgin athyglisverð
félagsmálastefna, sem einnig er orð-
uð í spakmælum svo: Guð hjálpar
þeim sem hjálpa sér sjálfir. Kjarni
þessa boðskapar er sá, að aðstoð við
HÓTELDÚKAR
OG SERVIETTUR
Einnig mikið úrual af sœngum,
koddum og sœngurfatnaði.
|0 S. ÁRMANN MAGNUSSON HEILDVERSLUN
SKÚTIIVOGI 12j SÍMI 687070
minni máttar sé best ef hún skapar
þeim aðstöðu til þess að leysa sín
mál sjálfir. Banhungraður maður
étur útsæðið eigi hann ekki kost á
rétti dagsins.
Starfsfólk Rauða krossins og
hjálparstofnana kristinnar kirkju
hafa fundið það út af reynslu, að sú
þróunarhjálp er haldbest sem nær
að virkja þiggjandann og hvetja hann
til þess að leggja sitt af mörkum til
að búa í haginn fyrir framtíðina.
Vítahringur
Michael Sherraden, aðstoðarpróf-
essor í félagsráðgjöf við Wash-
ington-háskólann í Bandaríkjunum,
hefur komist að þeirri niðurstöðu,
að fátæklingar séu fremur í vítahring
vegna þess hve lítið þeir eigi en vegna
þess hve lítils þeir afli.
Hann spyr hvers vegna fátækling-
ar lifi jafnan því lífi og hegði sér á
þann hátt sem haldi þeim snauðum.
Þeir eigi fleiri börn en hinir, þeir
hafa minni áhuga á menntun barna
sinna, þeir kaupi frekar hluti sem
þeir þarfnist ekki nauðsynlega og
hafi ekki efni á og þeir spari yfir
höfuð ekki.
Þarna eru ekki á ferðinni fordóm-
ar þess sem ekki þekkir til. Aðstoðar-
prófessorinn hefur af því bæði eigin
reynslu og annarra sem annast ráð-
gjöf við fátækt fólk, að fólk með
tekjur undir fátæktarmörkum en sem
eigi eignir, hafi almennt frekar meiri
fyrirhyggju. Fólk sem búi undir fá-
tæktarmörkum en afli oft og tíðum
góðra tekna þess í milli, lifi hins
vegar frekar frá degi til dags og
sólundi skjótfengnum tekjum.
Eign er betri eri ölmusa
Eigi ung og einstæð móðir sína
eigin íbúð, er líklegt að hún reyni
að viðhalda eigninni eftir mætti og
fylgist fremur með verðgildi hennar
og reyni að spara til að halda í þessa
eign sín, segir aðstoðarprófessorinn.
Eigi hún skuldabréf eða aðrar inni-
stæður á vöxtum, er líklegra að hún
fylgist með ávöxtunarkröfum og
meti lausafé sitt í Ijósi ávöxtunar-
kosta. Hann leggur til að í stað þess
að byggja félagsmálastefnu á úthlut-
un ölmusu til þeirra sem þurfa á
peningum að halda til daglegrar
neyslu, þá verði reynt að grípa til
„Það eru eignir
en ekki tekjur,
sem skapa
mönnum
von . . .“
aðgerða sem geri fólki kleift að halda
í eignir. Það eitt leiði til hugarfars
sjálfstæðis og sjálfshjálpar.
Michael Sherraden segir að þótt
tekjur seðji maga, þá hafi þær í
sjálfu sér lítil langtímaáhrif. Eignir
breyta hugarfari, veíta stöðugleika
og fá fóik til að hugsa til framtíðar.
Hann segir að eignir séu von, í föstu
formi. Eða eins ogorðaleikurinn seg-
ir iíka á ensku: (Assets are hope“
„in concrete form“ — í steinsteypu-
formi.
Þegar vonin er úti
Áhrifarík sjónvarpsviðtöl við fólk
sem hefur reynslu af sjálfsvígum í
fjölskyldu sinni gefa til kynna að
kvíði um fyrirsjáanlegan eignamissi
og áhrif hans á fjölskyldulífið séu
þjakandi álag á geðheilsu margra
vinnandi manna. Þegar vonin er úti
þrýtur allan styrk.
í allri umræðu um gjaldþrotahrinu
heimila og fyrirtækja hér á landi
síðustu misseri hefur lítið borið á til-
lögum um stefnu í hjálparstarfi. En
stefnulausir komast menn skammt á
veg. Stefnu finna menn heldur ekki
nema skoða allar leiðir. Kannski ein-
blína menn um of á markaðsöflin sem
orsök vandans í stað þess að skoða
hvar og hvernig þau geti hjálpað til
og fært mönnum von.