Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 33

Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ VJÐSHPtl/AIVINIIUlÍF ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 33 i I I I I I í 4 4 4 4 4 4 4 4 ■i Sjávarútvegur 37milljóna króna hagnaður hjá Skagstrendingi hf. Hugbúnaður Samningur um knup á Synon/2 liönnunnr- hugbúnaði FORRITUN sf. gerði nýlega samning við Þróun hf. um kaup á Synon/2 hönnunarhugbúnaði og er Forritun fimmta fyrirtækið hér á landi sem tekur þennan hugbúnað í notkun. Synon/2 hönnunarhugbúnaðurinn er framleiddur af breska fyrirtæk- inu Synon Ltd. en um síðustu áramót var hann í notkun hjá um 1.200 fyrirtækjum víða um heim. Þar á meðal eru mörg þekkt fjölþjóðafyrirtæki á borð við Coca Cola, Apple, Benetton, Shell og Volvo. IBM hefúr sér- staklega mælt með Synon/2 hönnunarhugbúnaði fyrir AS/400 að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Þróun hf. Synon/2 hönnunarhugbúnaður- inn felur í sér svonefnt CASE hönn- unarumhverfi (Computer Aided Software Engineering) þar sem byggð eru upp líkön fyrir þau verk- efni sem unnið er að. Með kerfinu eru búin til svokölluð sýnilíkön þannig að notandinn getur strax á fyrsta stigi kerfisgerðar flett val- myndum og skjámyndum, áður en nokkur forritun á sér stað. Síðan er hægt að forrita í þriðju kynslóð- ar forritunarmálunum Cobol og RPG III en jafnframt búa til fjórðu kynslóðar kóða. í Synon/2 er fram- kvæmd sjálfvirk skjölun sem nýtist við gerð hjálpartexta, bæði fyrir notendur og hönnuði. Við endur- bætur eða viðhald á hugbúnaði eru breytingar gerðar á líkaninu og sér kerfið um að breyta tengdum forrit- um og heldur utan um breytingarn- ar. SKAGASTRÖND — Frá höfninni á Skágaströnd. inn á lang flest heimili landsins! Goid Star Telecommunication Co., Ltd. er í dag einn af risunum í hátækniiðnaði í heiminum. Á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 var þeim falin öll ábyrgð á flóknum samskiptabún- aði innan leikanna og við umheiminn. Frábær frammistaða þeirravakti heimsathygli. Sigurganga þeirra hefur verið óslitin og er t.d. staða þeirra á Bandaríkjamarkaði gífurlega sterk eftir að mörg þarlend stór- fyrirtæki, þar á meðal A.T.&T. hafa gengið til samstarfs við þá. ÍSLAND LYKILUNN AÐ EVRÓPUMARKAÐI Gold Star Telecommunication Co., Ltd. vinnur nú að undirbúningi stórfeldrar markaðssetningar á símabúnaði fyrir Evrópumarkað. íslandvarðfyrirvalinu semtilraunamarkaður í þeirri áætlun. Fyrir milligöngu Kristals hf. hefur fyrirtækið gengið í einu og öllu að kröfum Pósts og síma um gæðastaðal fyrir íslenskt samskiptaumhverfi. FULLKOMIN SÍMKERFI Á ÓTRÚLEGU VERÐI Gold Star GSX símkerfin eru tækniundur, sem eru sér- hönnuð til þess að vera auðveld og þægileg í notkun auk þess að hafa fjölbreyttustu valmöguleika sem bjóðast. Vegna áhuga Gold Star Telecommunication Co., Ltd. á Evrópumarkaði og beinna samninga okkar við verksmiðj- urnar getum við nú boðið símkerfi fyrir allar stærðir fyrirtækja á einstóku tilboðsverði. Hafir þú metnað fyrir hönd fyrirtækisins að auka tímasparnað, öryggi og sjálfvirkni í samskiptum innan fyrirtækisins og við þá, sem þurfa að hafa samskipti við þitt fyrirtæki, þá hafðu samband við okkur strax og við munum færa þér ánægjulegar fréttir. IdrBiCtlPJI. S i UEf SÍMI 685750 FAX 685159 SKEIFAN 11B 108 REYKJAVÍK GSX 21 hnappa handfrjáls sími. GSX 8 hnappa sími. GSX 4 hnappa sími. BYLTING í SAMSKIPTABÚNAÐIÁ ÍSLANDI! GSX 33 hnappa handfrjáls skjásími. GSX 21 hnappa handfrjáls skjásími. GSX 33 hnappa handfrjáls sími. Skagastrcimi A aðalfúndi Skagstrendings hf. 22. apríl sl. kom fram að hagnað- ur af rekstri félagsins varð 37 milljónir á síðasta ári. Launagreiðslur voru tæpar 260 milljónir en að jafnaði störfúðu 55 manns hjá fyrir- tækinu. Meðaltals árslaun hjá fyrirtækinu voru því rúmlega 4,7 millj- ónir. Skagstrendingur hf. rekur nú tvo togara. ísfisktogarinn Arnar var rpeð sjötta hæsta skiptaverðmæti á úthaldsdag af ísfisktogurum lands- ins. Aflaði hann 3.642 tonna að verðmæti rúmlega 153 milljónir króna. Frystitogarinn Ötvar varð í öðru sæti frystitogara landsins með aflamagn og aflaverðmæti. Örvar aflaði 5.465 tonna að verðmæti tæplega 462 milljóna króna. Auk togaranna tveggja rekur félagið Hótel Dagsbrún og matvælaiðjuna Marska. Marska er nýlega farið að flytja út saltfískrúllur í samvinnu við SÍF og virðist vera að ná fót- festu fyrir framleiðsluvörur sínar á erlendum mörkuðum. Samþykkt var á fundinum að heimila stjórn félagsins að byggja húsnæði fyrir starfsemi Marska sem í dag er rekið í leiguhúsnæði. Einnig voru samþykktar á fundin- um tillögur stjórnar urn að greiða 10% arð af hlutafé og að hækka hlutafé fyrirtækisins um 25% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. - ÓB. FYRIRTÆKI 0G ST0FNANIR GULLIÐ TÆKIFÆRI - EINSTAKT TILBOÐ GoldStar TGldcommunication Co.,Ltd. Símvirkinn hf. er samstarfsaðili Kristals hf. Hér eru á ferð þrautreyndir símvirkjar, sem munu tryggja notendum Gold Star simkerfa vandaða uppsetningu og forritun og snögga og fagmannlega þjónustu. :------------------------------------s ii

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.