Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 08.05.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 35 Þinglausnir á laugardag: Meira en 30 lög sam- þykkt síðustu tvo dagana ÞINGLAUSNIR voru á Alþingi á elleíla tímanum síðastliðið laugar- dagskvöld. Miklar annir voru á þingi siðust.u starfsdaga þess og voru til dæmis samþykkt meira en 30 fi-umvörp til laga á fostudag og laugardag. Þar á meðal voru frumvörp um yfirstjórn umhverfis- mála, stjórn fiskveiða, Húsnæðisstofnun ríkisins og raforkuver. Morgunblaðið/Sverrir Þinglausnir voru á Alþingi á ellefta tímanum síðastliðið lauggrdagskvöld. Kvöddust þá þingmenn eftir þing, sem á stundum var æði stormasamt. Hér kveður Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, þá Pálma Jónsson, Hreggvið Jónsson og Guðmund H. Garðarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Föstudaginn 4. maí urðu eftiital- in frumvörp að lögum: 1) Heilbrigðisþjónusta. 2) Launasjóður stórmeistara í skák. 3) Innflutningur dýra. 4) Varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum. 5) Tilraunastöð Háskólans í meina- fræði. 6) Sjómannalög. 7) Skákskóli íslands. 8) Lánasýslá ríkisins. 9) Tekjuskattur og eignaskattur. Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings: MálaQöldi hefur aldrei verið meiri á Alþingi 10) Atvinnuleysistryggingar. 11) Grunnskóli. Laugardaginn 5. maí voru eftir- farandi lög samþykkt frá Aþingi: 1) Yfirstjórn umhverfismála. 2) Kignarréttur íslenska ríkisins á auðiindum hafsbotnsins. 3) Hagræðingarsjóður sjávarút- vegsins. 4) Stjórn fiskveiða. 5) Fjáraukalög 1988. 6) Ríkisreikningur 1988. 7) Fjáraukalög 1990. 8) Skipan prestakalla. 9) Öryggi á vinnustöðum. 10) Húsnæðisstofnun ríkisins. 11) Læknalög. 12) Þróunarsjóður lagmetisiðnaðar- ins. 13) Vegtenging um utanverðan Hvalfjörð. 14) Verðjöfnunarsjóður sjávarút- vegsins. 15) Búnaðarmálasjóður. 16) Umferðarlög. 17) Raforkuver. 18) Lífeyrissjóður starfsmanna tíkisins. 19) Flokkun og mat á gærum og ull. 20) Sveitarstjórnalög. 21) Tekju- og eignarskattur. í Fremur rólegl þing, segir Olafiir G. Emarsson GUÐRÚN Helgadóttir, forseti sameinaðs Alþingis, segir að mála- Qöldi hafi aldrei verið meiri á þingi en nú. Hún telur að yfirleitt hafi náðst viðunandi niðurstaða varðandi framgang mála og Ólaf- ur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, segir að minni deilur hafi verið hvað það varðar en oft áður. í samtali við Morgunblaðið sagði Guðrún Helgadóttir, að á þessu þingi hefði verið meiri mála- fjöldi en nokkru sinni fyrr. Á því gætu verið ýmsar skýringar. Til dæmis hlytu breytingar í heimin- um á borð við aukið samstarf Evrópuþjóða að valda miklum UR DAGBÓK LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK: 4. - 6. maí 1990. Nýtt símanúmer embættisins, 699000, var tekið í notkun í stað 10200. Þá er nýr upplýsing- asími, 699020 í stað 11Í10. 26 ökumenn vora stöðvaðir um helgina og grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis. Tveir aðrir, sem lentu í óhöppum, era jafnframt grunaðir um ölvuna- rakstur. 5 umferðarslys urðu um helg- ina. Fótgangandi vegfarandi varð fyrir bifreið á Hverfisgötu við Hlemmtorg á föstudags- morgun. Einn slasaðist í árekstri á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar um hádegisbil á föstudag. Barn á reiðhjóli varð fyrir bifreið á gatnamótum Hverfisgötu og Vitastígs á föstu- dagskvöld. Fótgangandi vegfar- andi lenti fyrir bifreið á Kirkju- stræti við Tjarnargötu á laugar- dagsmorgun og ökumaður og farþegi meiddust í árekstri tveggja bifreiða á Fjallkonuvegi við Hverafold á sunnudag. Lögreglan þurfti 105 sinnum að hafa afskipti af ölvuðu fólki. Fangageymslur lögreglunnar vora þéttsetnar aðfaranætur laugardags (25) og sunnudags (22). Flestir voru þar vegna ölv- unaróláta, en nokkrir voru þar eftir að hafa verið handteknir við innbrot og þjófnaði. 15 voru færðir fyrir dómara að morgni og var hverjum og einum gert að leggja fram nokkur þúsund krónur í yfirbótagreiðslur. Fjölmargir voru kærðir fyrir of hraðan akstur (53) og önnur umferðarlagabrot. Mikill mannfjöldi var í mið- borginni aðfaranótt sunnudags og talsverður órói var í ölvuðu ungu fullorðnu fólki undir morg- un. Þurfti að handtaka nokkra og vista í fangageymslum. Eldur kom upp um borð í bát er lá við Grandagarð. Litlar skemmdir urðu. Þrír drengir voru handteknir vegna innbrota og þjófnaða und- anfarna daga. Nokkrir ungir menn voru handteknir vegna bensínþjófnaða. Maður var hand- tekinn í Kringlunni á föstudag eftir að hafa reynt að hnupla þar karlmannsfrakka, bók og skær- um. Tveir aðrir voru staðnir að hnupli í verslunum Kringlunnar um helgina. Þeir höfðu gert sig að þjófum af litlu tilefni. Lögreglan aðstoðaði 24 við að opna læstar bifreiðir. 3 menn voru handteknir við innbrotstil- raun í Fóstbræðraheimilið við Langholtsveg aðfaranótt mánu- dags. Tilkynnt var um stuld á 5 reiðhjólum. Þetta er sá árstími þegar fólk tekur reiðhjól sín úr geymslum og er fólk hvatt til þess að gæta þeirra vel. Á síðast- liðnu ári var tilkynnt um þjófn- aði á 427 reiðhjólum til lögregl- unnar í Reykjavík. 5 reiðhjólum hefur þegar verið stolið það sem af er þessu ári. umræðum á þingi. Eins væru umhverfismái nú mjög í brenni- depli og hefðu umræður um þann málaflokk aukist til muna. Hún nefndi, að þátttaka þing- manna í alþjóðlegu samstarfi af ýmsu tagi hefði færst mjög í vöxt og væri þar um að ræða viðbót við_ störf þeirra. í máli Guðrúnai' kom fram, að það þing, sem nú er nýlokið, hafi að mörgu leyti verið erfiðara en undanfarin þing. Til umræðu hafi verið nokkur mjög stór mál, sem ágreiningur hafi verið um, svo sem viðræðurnar milli Evrópubanda- lagsins og EFTA, yfirstjórn um- hverfismála og stjórn fiskveiða, og hafi stundum verið tvísýnt um það, hvort þau næðu afgreiðslu. Samið hefði verið um framgang mála og teldi hún að þar hefði yfirleitt náðst viðunandi niður- staða. Stjórnarandstaðan hefði ekki verið úr hófi fram ósanngjörn og hefði síst verið erfiðari viður- eignar en ýmsir stjórnarþingmenn. Ólafui' G. Einarsson, fonnaður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði að þrátt fyrir harðar deilur um einstök mál, hafi þetta verið fremur rólegt þing og minni deilur hafi verið um framgang mála en oft áður. Lengi hafi legið fyrir, að einkum yrði lögð áhersla á að þijú mál næðu fram að ganga, stjórn fiskveiða, yfirstjórn um- hverfismála og uppbygging ra- forkuvera. „Við afgreiðslu þessara mála gerðist það,“ sagði Ólafur, „að seinni þingdeild hafði aðeins örfáa daga eða jafnvel innan við einn sólarhring til að fjalla um viðkom- andi mál og við það er erfitt að sætta sig. Þingmenn í deildinn hafa þá að vísu tekið þátt í umræð- um um málin í þingflokkum sínum, en þingnefndir hafa alltof skam- man tíma til að fjalla um þau. Það er líka gagnrýnisvert, að tafir urðu á afgreiðslu þessara mála vegna harðra innbyrðis deilna í stjórnar- flokkunum.“ Ólafur vék að inngöngu Borg- araflokksins í ríkisstjórnina og sagði það vera versta dæmið um þau hrossakaup, sem haldið hefðu lífinu í ríkisstjórninni. Stjórnin hefði keypt flokkirin til liðs við sig og greiðslan hefði verið umhverfis- ráðuneytið. í því máli væri rétt að athuga, að á þessu þingi hefði engin stefnumótun farið fram í þessum mikilvæga málaflokki; það hefði aðeins verið stofnað ráðu- neyti. Ólafur G. Einarsson sagðist að lokum lýsa sérstakri ánægju sinni með inngöngu þingmanna Frjáls- lyndra hægrimanna í þingflokks sjálfstæðismanna. Ánægjulegt væri að þeir sem aðhylltust svipuð sjónarmið sameinuðust með þess- um hætti, en sundruðust ekki eins og venjulega gerðist í hópi vinstri manna. Breyting1 á umferðar- lögum: Farþegar í aftursæti noti öryggisbelti ALÞINGI samþykkti á laugardag breytingu á umferðarlögum, þar sem gert er ráð fyrir að farþeg- um í aftursæti bifreiða verði skylt að nota bílbelti frá og með I. október í haust. Frumvarpið til laga um breytingu á umferðarlögum var flutt af Salome Þorkelsdóttur (S/Rn) og fleirum. Þar er gert ráð fyrir að farþegum í aftursæti bifreiða vei'ði skylt að nota bílbelti frá og með 1. október næstkomandi, ef bílbelti eru í bifreiðinni. Jafnframt er gert ráð fyrir að börn undir 6 ára aldri skuli nota bílbelti, barnabílstól, bílpúða, sem festur er með bílbelti eða annan viðurkenndan öryggis- búnað og óheimilt sé að hafa börn laus í framsæti eða fyrir framan framsæti í akstri. I meðförum þingsins varð sú breyting á frumvarpinu, að farþeg- ar í leigubifreiðum þurfa ekki að nota bílbelti, en samkvæmt núgild- andi lögum eru leigubílstjórar ekki skyldir til þess. Fjárgreiðslur úr ríkissjóði: Afgreiðslu ft*estað til haustsins FRUMVARP til laga um fjárgreiðslur úr ríkissjóði, sem takmark- ar nijög heimildir til aukafjárveitinga, var ekki afgreitt á þessu þingi. Samkomulag hefúr náðst um að forsætisráðherra og fjárveit- inganefiidarmenn vinni að málinu í sumar og nýtt frumvarp þessa eíhis verði lagt fram á Alþingi þegar þing kemur saman í haust. Frumvarpið var lagt fram fyrir jói og var það flutt af fjáiveitinga- nefndarmönnum úr öllum flokk- um. Á fundi neðri deildar á laugar- dag gagmýndu nokkrir flutnings- manna harðlega meðferð málsins í fjárhags- og viðskiptanefd deild- arinnar og sagði Pálmi Jónsson (S/Nv) meðal annars, að nefndin hefði vanrækt að sinna málinu. Kom fram hörð gagnrýni á form- ann nefndarinnar, Pál Pétursson (F/Nv), en hann hafði áður lýst sig andvígan frumvarpinu. Fjárhags- og viðskiptanefnd lagði til á laugardag, að frumvarp- inu yrði vísað frá í Ijósi þess að íjái;málg.ráðhen'a hefði lagt frani hugmyndir sem gengju í sömu átt og frumvarpið og forsætisráðherra væri að láta gera lögfræðilega úttekt á málinu. Teidin nefndin því rétt, að áfram yrði unnið að *" málinu. Sú afgreiðsla málsins var samþykkt og lýsti Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ■ því yfir, að hann hefði mikinn áhuga á því að athuga málið í sumar í samstarfi við fjárveitinga- nefndarmenn, með það í huga, að frumvarp um þetta efni yrði lagt fram á Alþingi í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.