Morgunblaðið - 08.05.1990, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990
47
Olafía Þ. Theódórs
dóttir - Minning
Fædd 16. október 1921
Dáin 27. apríl 1990
Örlögin eða hvað?
Hvað er það sem veldur því að
í dag af öllum dögum, þann 27.
apríl á 28 ára afmæli mínu, skuli
móðir mín kveðja þennan heim.
Minningarnar streyma fram í huga
mér. Mamma er dáin. Hún sem fór
svo hress óg bjartsýn í þá aðgerð
sem hún hélt að myndi verða sér
til góðs, en hún kom ekki aftur.
Vegir guðs eru órannsakanlegir,
kannski hefur annað hlutverk beðið
hennar á öðrum stað. En samt er
það sárt að þurfa að sjá á bak
henni. Hún sem var ávallt tilbúin
að rétta hjálparhönd og fór hún
ekki í manngreinarálit þar. Það
gátu allir reitt sig á hana. Amma
Lóa eins og hún var kölluð af barna-
börnunum var í miklu uppáhaldi
hjá þeim. Því hjá henni leið þeim
ávallt vel. Tók hún vel á móti þeim
sem og öðrum, þó efni hefðu ekki
alltaf verið mikil.
Ólavia var dóttir þeirra hjóna,
Helgu Soffíu Bjarnadóttur og Theo-
dórs Jónssonar, ein af 12 börnum
þeirra. Á hún að baki tvö hjóna-
bönd, fyrri maður hennar var Gísli
Stefánsson. Seinni maður hennar
var Einar Jóhannesson, slitu þau
samvistum fyrir nokkrum árum.
Bömin urðu 10. Þau eru: Soffía
Kragan, Hafdís, Sigrún, Helga
Soffía, Kristinn Jósep, Edda Sólrún,
Óli Þór og Estíva Jóhanna. Einn
son missti hún aðeins tveggja mán-
aða gamalan, sem var óskírður.
Stór er hópurinn, hún hefur sannar-
lega skilað sínu hlutverki hér á
jörðu. Ég vil þakka mömmu þau
28 ár sem mér hafa auðnast með
henni. Guð gefi okkur börnunum
hennar og fjölskyldum styrk til að
mæta því sem okkar bíður. Ég er
viss um að mömmu líði vel núna
þar sem hún er og hefur eflaust
hitt fyrir litla drenginn sinn sem
hún talaði svo oft um. Ég kveð
hana með fátæklegum orðum, en
minningin um hana verður mér
ávallt ljóslifandi.
Estíva J. Einarsdóttir
í dag er til moldar borin amma
mín og langamma, Ólafía Þórunn
Theódórsdóttir. Hún var fædd í
Reykjavík, dóttir hjónanna Helgu
Soffíu Bjarnadóttur og Theodórs
Jónssonar sjómanns. Hún var ein
af 12 systkinum. Viljastyrkur, hug-
rekki, stilling og rósemi undir öllum
kringumstæðum voru aðalsmerki
skapgerðar hennar. 9 ára gömul fer
hún í sveit að útverkum, á Skeiðum.
Hún naut sveitalífsins og sérstak-
lega var hún hænd að hestum. Um
tvítugt fer hún til Grindavíkur með
unga dóttur sína, Soffíu, og starfar
sem vinnukona hjá systur sinni,
Ásu. Þar kynnist hún fyrri manni
sínum, Gísla Stefánssyni verka-
manni. Þau hófu búskap í Laugar-
neshverfi og varð þeim 6 barna
auðið. Fimm þeirra komust á legg.
Þau slitu samvistum eftir 10 ára
sambúð. Fyrir einstæða móður er
enn í dag erfiðleikum háð að koma
stórum barnahóp á legg. Á þessum
árum mátti hún ganga í gegnum
ýmsa erfiðleika, þó ég hafi aldrei
heyrt hana kvarta undan ómegð-
inni.
Um 1959 kynntist hún seinni
manni sínum, Éinari Jóhannessyni
bryta, og eignuðust þau þrjú börn.
Þau slitu samvistum eftir 20 ára
samveru. Gott samband hefur verið
þeirra á milli þar til yfir lauk.
Amma Lóa, eins og hún var ætíð
köllúð, var einskonar tengiliður
milli kynslóða í þessari stóru fjöl-
skyldu. Hún var alltaf boðin og
búin að hlusta á raunir okkar hinna.
Fyrir utan það að létta hin daglegu
störf hinna yngri, t.d. með því
prjóna sokka og vettlinga, stoppa
í og lagfæra. Nokkuð sem okkur
af yngri kynslóðinni gefst hvorki
tími til né kunnátta. Alla vega þeg-
ar eitthvað bjátaði á, mátti ég reiða
mig á hana að koma mér í léttara
skap. Eitt mátti hún eiga að stutt
var í hláturinn og glensið.
Guð geymi ömmu mína.
Tilvera okkar er undarlegt' ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag,
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Linda María og
Eggert Þorbjörn
í dag kveðjum við tengdamóður
mína og ömmu drengjanna minna,
Ólaviu Þórunni Theodórsdóttur.
Lóa amma, eins og við kölluðum
hana alltaf, var hrókur alls fagnað-
ar, barnabörnin voru efst í huga
hennar, enda hændust þau að henni.
Kynni okkar Lóu hófust fyrir 14
árum, áttum við margar ánægjuleg-
ar stundir saman, kom fyrir að litið
var í bolla.
Mjög gestkvæmt var á heimili
hennar, enda var Lóa mjög gestris-
in. Síðustu 4 ár var Lóa okkur inn-
an handar varðandi Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna, þar sem við
bjuggum erlendis við nám. Innti hún
það vel af hendi; enda alltaf hægt
að stóla á hana. Á hún miklar þakk-
ir skilið.
Góða kveðju vil ég færa frá
drengjunum mínum, sem staddir
eru erlendis, með söknuði og sam-
úðarkveðju til allra. Með þakklæti
fyrir góð viðkynni. Ég bið Guð að
blessa og styrkja alla ættingja
hennar og vini í þessari miklu sorg.
Þú Guð sem stýrir stjama her
og stjómar veröldinni,
í straumi lífsins stýr þú mér
með sterkri hendi þinni.
(Sb. 1886 - V. Briem.)
Kveðja,
Elísabet M. Erlendsdóttir,
Kristinn Jósep Kristinsson,
Alfreð Brynjar Kristinsson.
Ekkert er stöðugt hér í þessum
heimi. Vinir og ættingjar falla frá.
Kynslóðir koma og fara.
í dag verður lögð til hinstu hvílu
elskuleg Lóa mín. Lóu kynntist ég
fyrir 15 árum, þegar ég og yngsta
dóttir hennar Éstíva urðum góðar
vinkonur. Minningarnar frá mínum
unglingsárum, þegar við vorum all-
ar saman vinkonurnar heima hjá
Lóu okkar, eru mér mjög kærar.
Alltaf vorum við velkomnar inn á
heimilið hjá Lóu, hún bar svo mikla
umhyggju fyrir okkur, hlustaði á
okkur öll bæði í sorgum okkar og
gleði. Lóa var alltaf til staðar til
að ráðleggja og tala við okkur. Hjá
Lóu vorum við eins og heimalningar
í mörg ár, og minnist ég þess, að
oft var margt um manninn á heimil-
inu bæði börn hennar og barnabörn
og við heimalningarnir, þá stóð Lóa
mín í eldhúsinu að útbúa eitthvað
gott handa öllum og það voru ófá
skiptin sem okkur var boðið í mat
hjá henni, og mörg eru þau skiptin
sem setið var við kaffibolla og
pönnukökum í eldhúsinu hjá Lóu
og þá var talað mikið og hlegið.
I hvert skipti sem ég hitti Lóu
nú síðustu ár þá minntumst við
ætíð á þessi góðu ár, rifjuðum við
þá margt skemmtilegt upp og hlóg-
um mikið. Ég er sannfærð um það
að við hittumst aftur, og þá verður
haldið áfram að rifja upp það gamla
og J?óða.
Eg vil þakka Lóu minni langa
trygga vináttu og hjálpsemi sem
ég ætíð mun minnast með hlýhug
og met mikils.
Börnum, tengdabörnum, barna-
börnum, ættingjum og vinum sendi
ég innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu hennar.
Feijan hefur festar losað,
farþegi er einn um borð.
Mér er Ijúft af mætti veikum
mæla fáein kveðjuorð.
Þakkir fýrir hlýjan huga,
handtak þétt og gleðibrag,
þakkir fyrir þúsund hlátra,
þakkir fyrir liðinn dag.
(J. Har.)
Veiga Sigurðardóttir
t
Þökkym af alhug öllum þeim er styrktu okkur og studdu og sýndu
okkur hlýhug við andlát og útför litla drengsins okkar,
ÆGIS INGA HERBERTSSONAR.
Kristjana Hafdís Hreiðarsdóttir, Herbert Guðmundsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og góðvild við fráfall og
útför ástkærs eiginmanns míns,
SIGURÞÓRS ÁRNA ÞORLEIFSSONAR.
Sérstaklega viljum við þakka sóknarpresti okkar, sóra Ólafi Oddi
Jónssyni, fyrir hans einstöku góðvild.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigriður Björnsdóttir.
t
Elskulegur faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN FRIÐBJÖRNSSON
frá Bakkabæ, Akranesi,
Bergstaðastræti 53, Reykjavík,
sem andaðist i Landakotsspítala 3. maí, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 9. maí kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Kristjana Guðjónsdóttir, Guðlaugur Stefánsson,
Fanney Sigurðardóttir, Guðmundur Guðjónsson,
Sigurður Hólm Sigurðsson, Eygló Hjálmarsdóttir,
Guðrún M. Sigurðardóttir
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Hraunbæ 132, Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. maí kl.
15.00.
Emil Björnsson,
Birgir Ö. Björnsson,
Harpa Norðdahl,
Katrín Björnsdóttir,
Ragnar Sigurðsson,
Björn Þór Björnsson,
Einar Björnsson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar,
ÁRÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem lést þann 27. apríl síðastliðinn.
Baldur Þorvaldsson,
Hólmfríður Þorvaldsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
STEFÁNS SIGURGEIRS JÓNSSONAR,
Melabraut 23,
Seltjarnarnesi.
Kristfn K. Stefánsdóttir, Þórarinn Bjarnason,
Guðbjörg V. Stefánsdóttir, Kristján R. Kristjánsson,
Guðrún Stefánsdóttir, Helgi Hjaltason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem
sýndu okkur samúð og veittu okkur styrk og huggun á margvísleg-
an hátt í sárri sorg vegna andláts og jarðarfarar
ÞORSTEINS GUÐNASONAR
frá Brekkum,
Skaftahlíð 26,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar Olíufélaginu hf. fyrir ómetanlegan
stuðning og hlýhug. Guð blessi ykkur öll.
Hrefna Kristmundsdóttir,
Gyða Traustadóttir, Gunnar Gíslason,
Kristmundur Þorsteinsson, Sigurlaug Ragnarsdóttir,
Júlíus Þorsteinsson, Heiga Guðmundsdóttir,
Elí Þorsteinsson,
Erna Kristmundsdóttir,
Guðni Guðjónsson.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
EINARS M. ÞORSTEINSSONAR
húsgagnasmiðs,
Reynihvammi 33,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir vil ég færa systkinum minum og venslafólki á
ísafirði.
Heiðrún Helgadóttir,
Anna Einarsdóttir, Ragnar J. Jónsson,
Reynir Einarsson, Laufey Jensdóttir,
Ólafía G. Einarsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Valgerður H. Einarsdóttir, Hilmar Adolfsson
og barnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar INGVARS KJARTANSSONAR
verður lokað eftir hádegi í dag 8. maí.
Elding Trading hf.,
Rekís hf.
Lokað
Vegna jarðarfarðar INGVARS KJARTANSSONAR,
forstjóra, verður verslun okkar lokuð frá kl. 12.00
í dag, þriðjudaginn 8. maí.
Vald. Poulsen hf.