Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990 fclk f fréttum GRINDAVÍK Dagamunur í skólalífinu Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Mættir til að kveðja kennarana og skólann Skömmu áður en krakkarnir í 9. bekk grunnskólans í Grindavik gangast undir próf til að mæla af- rakstur níu ára skólasetu gera þau sér dagamun á síðasta kennsludegi þeirra í skólanum. Tilbreytingin felst í því að vakna fyrir allar aldir og hittast í skólan- um. Þar klæða nemendurnir sig í afkáraleg föt og mála sig. Um kl. 6 um morguninn er haldið af stað um bæinn í dráttarvélarkerru, þar eru blásnir lúðrar og barðar tromm- ur. Eftir hring um bæinn er haldið heim til kennaranna sem hafa kennt þeim um veturinn og þeir vaktir ljúfmannlega með því að beija hurðir og ef ekki vill betur, svefnherbergisglugga. Þessi siður hefur verið undanfar- in ár í Grindavík og nokkurskonar dimission nemendanna sem eru að kveðja skólann sinn og kennara. Yfirleitt hefur þetta gefið bæjarlíf- inu lit og mælst vel fyrir, þó nokkr- ir séu súrir yfír því að vera vaktir á óvenjulegum tíma. Aðrir nemendur grunnskólans fara ekki varhluta af ærslum 9ndu bekkinga og fá heimsókn þeirra í kennslustofumar um morguninn með tilheyrandi skralli. Nokkrum dögum seinna tekur síðan alvaran við í formi sam- ræmdra prófa og skólaprófa. FÓ FORELDRAR! Ævintýraleg sumardvöl fyrir6-12árabörn að sumardvalarheimilinu Kjarnholtum í Biskupstungum Á sjötta starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá: Reiðnámskeið, íþróttir, leiki, sveitastörf, siglingar, ferðalög, sund, kvöldvökur o.fl. V E R Ð : 1 vika 15.800 kr., 2 vikur 29.800 kr. Staðfestingargjald fyrir 1 viku 5.800 kr., 2 vikur 9.800 kr. Systkinaafsláttur: 1 vika 1.200 kr., 2 vikur 2.400 kr. T í M A B I L : 27. maí - 2. júní (1 vika) 3. júní — 9. júní (1 vika) 10-júní - 16. júní (1 vika) 17.júní — 23.júní (1 vika) 24. júní - 6.júlí (2 vikur) 8.júlí — 14-júlí (1 vika) 15.júlí - 21. júlí (1 vika) 22.júlí - 3.ágúst (2vikurj 6. ágúst - 12. ágúst (1 vika) 12. ágúst - 18. ágúst (1 vika) Innritun fer fram á skrifstofu SH verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði Sími 65 22 21 KLÆÐABURÐUR StllttR tískan kost- aði Mondale atvinnuna Hin þrítuga Elanore Mondale, sem er einkadóttir Walters Mondale, fyrrum varaforseta Bandaríkjanna og forsetafram- bjóðanda demókrata þar, hefur hrökklast frá WCCO-sjónvarps- stöðinni í Minneapolis í Minnesota eftir sjö mánaða starf sem um- sjónarmaður skemmti- og viðtals- þátta. Mondale, sem þykir mikil kynbomba, fékk svo harðvítuga gagnrýni fyrir klæðaburð, bæði í sjónvarpi og við opinber tækifæri, að sjónvarpsstöðin var farin að tapa áhorfendum og vinsældum. Ungfrú Mondale segist ekki enn trúa því sem gerst hefur. Þetta hafí byrjað á því að hún fór í opinbera móttöku í stuttum kjól og jakka í stíl, en svo hneykslað hafí fólk orðið, að það gekk á hana á staðnum og tilkynnti að Elenore Mondale slíkur klæðaburður væri óviðeig- andi. „Eftir það var allt týnt til og allt varð bandvitlaust. Ég hefði aldrei trúað því að Minnea- polisbúar væru þvílíkir smáborg- arar og sveitalubbar. Ég vann áður við sjónvarp í Chicago og Los Angeles. Þarívarð ég aldrei vör við gagnrýni af neinu tagi. En í heimahögunum, í Mondale- landi, kveður við annan tón og fjölskyldunafnið virkar eins og ávísun á íhaldssemi og tepru- skap,“ segir Elenore, sem reiknar ekki með að ganga lengi um at- vinnulaus. LYKT Pricilla Presley í ilmvatnsiðnaðinn Pricilla Presley leikkona og ekkja rokkgoðsins Elvis Presleys, hefur ratað inn á margtroðna braut frægra kvenna og blandað og þróað sitt eigið ilmvatn sem nýlega er komið á markaðinn og heitir „Mo- ments“, eða Augnablik. Hefur Pric- illa stjórnað framkvæmdum allt frá því að frumblandanir hófust og til markaðaðssetningar. Augnabliki hefur verið ágætlega tekið, en keimnum hefur verið þannig lýst: „Rómantískur, ævintýragjarn og með snert af dulúð“. Meðal annars er að fínna í Augnablikinu keim af baldursbrám, appelsínublöðum, kúrenum ogýmsu fleiru úr jurtarík- inu. Pricilla, sem leikur Jennu Crebbs í Dallas, reiknar með að raka sam- an fé á ilmvatni sínu. Byggir hún þá væntingu á fyrstu viðtökum svo og þeirri staðreynd að allt hefur gengið henni í haginn séinni árin og því ekki ástæða til að ætla að þetta dæmi gangi ekki upp. Pricilla er væntanleg innan skamms á hvíta tjaldið í kvikmyndinni Ford Fairlane auk þess sem hún er einn framleið- Pricilla Presley með risaglas af nýja ilmvatninu „Augnabliki“ er það var fyrst kynnt á Bel Age hótelinu í Los Angeles fyrir skömmu. enda sjonvarpsþáttaraðar um rokk- kónginn fyrrum eiginmann hennar Elvis. Heitir þáttaröðin „Elvis: Good rockin’ tonight". Dags. 8.5.1990 NR. 133 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4507 4300 0003 4784 4507 4500 0008 4274 4507 4500 0015 7880 4548 9000 0023 8743 4548 9000 0028 6346 Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ÍSLAND -5xf-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.