Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 08.05.1990, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUIt 8. MAI 1990 Fundur um lífeyrissjóðina: Tekist á um samtrygg- ingu eða eignasjóði Selfossi. „Lífeyrissjóðirnir verða gjaldþrota árið 2020, við óbreytt kerfi,“ sagði Guðni Ágústsson alþingismaður á umræðufundi á Selfossi um lífeyrissjóðsmál. Ásmundur Stefánsson forseti Alþýðusam- bands Islands og Þórarinn V. Þórarinsson íramkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands Iögðu á það áherslu að fullbúið írumvarp um lífeyrissjóðina liefði legið tilbúið hjá íjármálaráð- herra undanfarin þrjú ár. Þeir sögðu að fyrir lægi loforð um að mælt yrði fyrir frumvarpinu á þessu þingi. Guðni Ágústsson hefur, ásamt tveimur öðrum þingmönnum, lagt fram þingsályktunartillögu um framtíðarskipulag lífeyrismála. Hún felur það í sér að lífeyris- greiðslur verði skráðar á nafn og lagðar á verðtryggðan banka- reikning sem úr fáist greitt eftir ákveðnum reglum er fólk hefur náð 65-70 ára aldri. Greiðslurnar séu skattfrjálsar og við andlát erfist inneignin til maka eða að- standenda. Eftirlaunasjóðir þessir séu sameign hjóna. Gert er ráð fyrir að ríkið stofni tryggingasjóð undir stjórn Tiyggingastofnunar ríkisins. Við þá ráðstöfun gerir Guðni ráð fyrir að skattar hækki um 1-2% en kveðst ekki hafa fengið um það upplýsingar hversu mikil hækkun skatta þyrfti að vera. Miðað við 70 þúsund króna mánaðarlaun og að 10% greiðist af launum í lífeyrissjóð á hver einstaklingur, samkvæmt tillögu Guðna, 13,4 milljónir í eftirlauna- sjóð sínum og getur fengið 87 þúsund krónur miðað við 20 ára greiðslutíma. Séu mánaðarlaun 100 þúsund verður sparnaðarupp- hæðin 19,2 milljónir í lok sparnað- artímans og endurgreiðslan 125 þúsund. Guðni sagði misrétti ríkja í lífeyrismálum, annars vegar væri ASI-fólkið og hins vegar opinber- ir starfsmenn. Hann sagði að kostnaður ríkisins væri einn og hálfur milljarður á ári við að standa við lífeyrisskuldbindingar. Guðni sagði að við óbreytt kerfi þyrfti að hækka lífeyrisgreiðslur í 18-20% af launum til þess að sjóðirnir yrðu ekki gjaidþrota. Hann sagði að vísitölufjölskyldan greiddi árlega 240 þúsund krónur í lífeyrissjóð. Hann sagði 12-15% vinnandi fólks hafa stofnað sína eigin sjóði, erfitt væri fyrir sjóðfé- laga að fá fram rétt sinn, erfitt væri að fá upplýsingar um rétt- indi, rekstrarkostnaður væri 4-40% af tekjum sjóðanna, bók- haldsóreiða væri víða fyrir hendi og gjaldþrot sjóðanna blasti við árið 2020. Guðni kvaðst gera ráð fyrir að 7-800 sparnaðarreikningar væru í bönkunum og að 100 þúsund til viðbótar hefðu ekki áhrif til auk- ins kostnaðar. Bankarnir gætu litið á lífeyrisbókina sem bakhjarl launamannsins og að unnt væri að leggja niður Húsnæðisstofnun ríkisins og láta bankakerfið ann- ast lán til húsnæðismála. „Kerfið grettir sig við þessari tillögu okkar,“ sagði Guðni, „og það er lítill áhugi fyrir þessu máli sem snertir alla landsmenn. Það átti að þegja málið í hel.“ Misrétti ríkjandi Ásmundur Stefánsson lagði áhersiu á að lífeyrissjóðum þyrfti að fækka þannig að þeir yrðu 10 í stað 85. Eignir lífeyrissjóðanna voru 105 milljarðar 1989. Á sama tíma voru innlán banka og spari- sjóða 110 milljarðar og erlendar skuldir 165_ milljarðar. Á þessu ári sagði Ásmundur að eignir lífeyrissjóðanna yrðu meiri en inn- lán banka og sparisjóða. Hann sagði misrétti ríkja milli lífeyris- sjóðanna og nefndi sem dæmi að á móti hveijum 100 krónum sem lífeyrissjóðurinn greiddi af sínu fé þá greiddi ríkið 169 krónur vegna sinna starfsmanna, 372,30 vegna alþingismanna og 659 krónur vegna ráðherra. Ásmundur sagði lífeyrissjóðina vera bæði söfnunarsjóði og trygg- ingasjóði. Iðgjaldið skiptist þannig að 67% færu í ellilífeyri, 22% í makalífeyri, 10% í örorkulífeyri og 1% í barnalífeyri. Hann sagði að ef almannatryggingarnar öx- luðu aðrar greiðslur en ellilífeyri þyrfti 3,3% af launum í hærri skatta eða 6 miiljarða króna.. Ásmundur sagði tillögu Guðna nálgast það kerfi sem vinnumark- aðurinn bæði um. Ivlunurinn lægi í erfðaréttinum sem Guðni gerði ráð fyrir. Líta bæri á greiðslu í lífeyrissjóð sem tryggingaiðgjald. Hann sagði eftirlit vanta en það væri nokkuð sem aðilar vinnu- markaðarins vildu fá. Samtryggingin er nauðsyn Þórarinn Þórarinsson sagði Guðna vilja kasta fyrir róða nú- verandi lífeyriskerfi og samtrygg- ingunni sem fælist í því. Hann sagði aðila vinnumarkaðarins vilja sterka sjóði en færri en nú væri. Ekki einn sjóð því þá söfnuðust mikil völd á fárra hendur. Hann sagði að í því furmvarpi sem lægi fyrir væru ákvæði sem neyddu litla sjóði til að sameinast. Þar væru og ákvæði um að réttindi Frummælendur fundarins um lífeyrissjóðsmál, Guðni Ágústsson alþingismaður, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Þórarinn V Þórarinsson lramkvæmdastjóri VSI. Fundarstjórinn, Hansina Stefánsdóttir, er í ræðustól. Hluti fundarmanna á Selfossi. opinberra starfsmanna yrðu metin upp og greidd inn í lífeyrissjóðina. Þessi breyting ylli því að fjármála- ráðherra gæti ekki skrifað skuld- bindingu við lífeyrissjóðina sem skuld heldur yrði að greiða hana. Hún gæti því komið fram sem halli á ríkissjóði. Þórarinn benti á að ef ríkið greiddi við þetta 16% en launþeginn 4% þá gætu komið fram kröfur um lækkun á hluta ríkisins en fyrir beina hækkun launa. Hann sagði ríkisstjórnina hafa verið þvingaða tíl að leggja fram þetta frumvarp. „Við höfum verið að djöflast við að fá fram umræðu um lífeyrissjóðina. Við höfum ver- ið að veija réttindi sjóðanna og teljum það okkar skyldu svo hægt sé að tryggja þennan rétt fólks- ins,“ sagði Þórarinn. Ríkið er í feluleik Á fundinum komu fram spurn- ingar sem beindust í þá átt helst að gagnrýna núverandi lífeyris- sjóðakerfi. Ásmundur sagði að ef tryggingaþátturinn væri tekinn út úr lífeyriskerfinu mætti hækka lífeyri um 40%. Hann sagði kostn- að við bankabókakerfi verða meiri og benti á að Fijálsi lífeyrissjóður- inn væri með hæstan kostnað. Hann sagði að ef maki fengi lífeyrinn útborgaðan við fráfall þá lækkaði lífeyririnn um 30%. Hann benti á að lífeyriskerfið hefði orðið til vegna þess að kerfi ríkisins var ófullnægjandi og hingað til hefðu menn verið að byggja upp eigið kerfi. Guðni gagnrýndi málflutning Ásmundar og sagði að frumvarpið sem þeir Þórarinn töluðu um yrði dýrt. Hann sagði aukna skatta vegna þáttar ríkisins í tryggingum ekki leggjast á láglaunafólk. Þetta gagnrýndi Ásmundur harkalega. Hann sagði að frumvarpið sem lægi fyrir væri dýrt vegna þess að í dag borgaði ríkið uppbót á það sem greitt væri út. Vegna fjölgunar opinberra starfsmanna væri greiðslan há frá ríkinu og kerfið dýrt. Hann sagði að ríkið fæli skuldbindingarnar í núver- Morgunblaðið/Sigurður Jónsson andi kerfi en gæti það ekki sam- kvæmt nýja frumvarpinu og þar væri kominn kostnaðaraukinn. „Bankar eru ekki billegar þjón- ustustofnanir," sagði Ásmundur og að hann hefði ekki sama traust á lágum kostnaði bankakerfisins og Guðni. „Það þarf að eyða muninum á milli lífeyriskerfanna og viðhalda samhjálpinni svo við séum örugg í ellinni," sagði Ás- mundur. „Frumvarp Guðna er rógur," sagði Þórarinn og að verst væri að eiga við afstöðuleysi stjórn- valda varðandi lífeyrismálin. Hann sagði að því hefði verið lof- að að unnið yrði í frumvarpinu í sumar og það afgreitt næsta haust. Yrðu ekki efndir á því þá gæti Vinnuveitendasambandið ekki varið núverandi kerfi vegna þess að það væri ekki öruggt. Annaðhvort lifði þetta kerfi eða ekki, pólitíkin yrði að taka afstöðu til þess. Aðilar vinnumarkaðarins hefðu beðið í þrjú ár. — Sig. Jóns. Aðalfimdur Hitaveitu Suðurnesja: Tæplega 200 milljóna króna liagiiaður Vogum. TÆPLEGA 200 milljóna króna Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson Frá aðalfundi Hitaveitu Suðurnesja. hagnaður varð a rekstri Hita- veitu Suðurnesja á síðasta ári. Árið 1989 var að mörgu leyti hagstætt fyriitækinu rekstrariega og fimmta árið í röð þar sem varð '7? hagnaður. Hagnaðinum er eins og áður varið til jöfnunar á tapi fyrri ára, en eigið fé í árslok, að frá- dregnum stofnframlögum, er nei- kvætt um 164 milljónir króna. Hagnaðurinn kemur allur frá rekstri orkuvera og hitaveitukerfa og stendur og fellur með vatnssölu til vamarliðsins. Tapaðar kröfur hitaveitunnar á síðasta ári voru 46 milljónir króna, þar af voru 60-70% hjá laxeldisfyr- irtækjum. Heildarskuldir hitaveitunnar námu 2.535 milljónum króna í árs- lok 1989 og eigið fé nam 2.283 milljónum króna, eða 47% af heild- arfjármagni. Þetta hlutfall var 40% í árslok 1988. Á aðalfundi fyrirtækisinslýsti Finnbogi Björnsson stjórnarmaður hitaveitunnar undrun sinni á að nú ætti að fara að bora við Kröflu, á sama tíma og Orkustofnun óski eftir auknum upplýsingum um jarðhitakerfið í Svartsengi, ástandi og horfum, þegar eingöngu væri verið að biðja um að fá að nota þá gufu sem blæs út í Svartsengi til raforkuframleiðslu. Finnbogi sagði gufuna engum til gagns á meðan hún blási út og valdi aðeins skemmdum. Hann spurði hvort ástandið hafi skyndi- lega skánað við Kröflu. - EG ■ DR. Fredrick Woodard, dós- ent við enskudeild University of Iowa, flytur opinberan fyrirlestur í boði Heiinspekideildar Háskóla íslands, í dag, þriðjudaginn 8. maí, kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist „Fantasy and Myth in the Contemporary Americ- an Novel“ og verður fluttur á ensku. Dr. Woodard kemut' hingað til lands til að vinna að samskiptamálum Háskóla íslands og University of Iowa skv. samningi milli skólanna. Sem bókmenntafræðingur hefur hann sérhæft sig í bókmenntum og menningu bandarískra blökku- manna. Fyrirlesturinn er öllum op- inn. - (Frétt frá Háskóla íslands) ■ SAMTOK um sorg og sorgar- viðbrögð heldur fræðslufund í Safnaðarheimili Laugarnes- kirkju, 8. maí kl. 20.30. ÓlöfHelga Þór og Páll Eiríksson munu fjalla um efnið „Sjálfsvíg", segir í frétt- tilkynningu frá samtökunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.