Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 56

Morgunblaðið - 08.05.1990, Side 56
 Rynkeby HREINN APPELSÍNUSAFI / ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Landgræðsluskógar: Milljón birkiplönt- ur tilbúnar í júní Selfossi. NÆSTU daga hefst útplöntun á þeim milljón birkiplöntum sem 18 garðyrkjumenn Árnessýslu hafa verið með í ræktun frá í fyrra vegna fyrirhugaðra landgræðsluskóga. Að sögn Sigurðar Blöndal fyrrum skógræktarstjóra hafa ekki orðið óeðlileg affoll í ræktuninni. Fyrstu plöntunum verður plantað út í Garðabæ en alls eru það 76 staðir sem valdir hafa verið undir landgræðsluskógana. Bændurnir 18 rækta plönturnar samkvæmt sérstökum samningi um að skila einni milljón plantna í júní. Alls var sáð fyrir 1.340 þúsund plöntum. Einhver afföll urðu en bændurnir geta staðið við samning- inn með góðu móti. „Reynslan sem menn hafa fengið eftir þessa fyrstu ræktun er mjög dýrmæt fyrir framhaldið og tryggir raunar að við garðyrkjubændur getum framleitt ódýrar tráplöntur,“ sagði Jóhannes Helgason garð- yrkjubóndi í Hvammi í Hruna- mannahreppi.-Sigurður Blöndal tók í sama streng og sagði að nóg yrði af birkiplöntum fyrir landgræðslu- skógana í ár. Landgræðsluskógarnir eru sam- eiginlegt verkefni Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins í tilefni 60 ára afmælis Skógræktar- félags íslands. Sig. Jóns. Um 39% verðliækkim á ísfíski í Bretlandi Á BRESKU fiskmörkuðunum var meðalverð fyrir kílóið af óunnum íslenskum fiski úr gámum og fískiskipum 1,28 pund fyrstu Ijóra mánuðina í ár, eða 39% hærra en á sama tíma í fyrra. Meðalverð á þorski var 1,26 pund, eða 45% hærra en í fyrra. Selfoss: Tekinn á 161 kílómetra Selfossi. *LÖGREGLAN á Selfossi tók um helgina 21 ökumann fyrir of hraðan akstur. Einn þeirra var sviptur ökuskírteininu en hann ók á 161 kílómetra hraða í Ölf- usi klukkan 22.50 eftir að skugg- sýnt var orðið. Þrír voru teknir fyrir ölvun við akstur og ökumaður mótorhjóls var tekinn á 92ja kílómetra hraða á Engjavegi á Selfossi. Nokkuð var um innbrot og skemmdarverk og fjöidi útkalla vegna ölvunar. Sig. Jóns. Meðalverð á ýsu var hins vegar l, 50 pund fyrstu Qóra mánuði þessa árs, eða 40% hærra en á sama tíma á síðastliðnu ári en meðalverð á kola var 1,30 pund og hækkaði því um 34%. Minni aflakvótar í Norður-Atlantshafi í ár en í fyrra eru aðalástæðan fyrir verðhækkuninni. í Vestur-Þýskalandi var meðal- verð á óunnum, íslenskum karfa 2,96 mörk fyrstu fjóra mánuðina í ár, eða 6% hærra en á sama tíma á síðastliðnu ári, og meðalverð á ufsa var 5,5% hærra en í fyrra, eða 2,32 mörk. Á bresku fiskmörkuðunum voru m. a. seld 10.993 tonn af óunnum, íslenskum þorski fyrstu fjóra mán- uðina í ár, sem er 947 tonnum meira en á sama.tíma í fyrra, 4.775 tonn af ýsu, eða 419 tonnum minna en í fyrra og 1.880 tonn af kola, sem er 123 tonnum minna en á sama tíma á síðastliðnu ári. í Vestur-Þýskalandi voru seld 219 tonnum meira af óunnum, íslenskum karfa fyrstu fjóra mán- uðina í ár en á sama tíma í fyrra, eða 9.598 tonn, og 280 tonnum meira af ufsa, eða 1.783 tonn. Morgunblaðið/Rúnar Þór Froðumengun íBótinni við Akureyri Nokkrir fuglar drápust í gær í fjörunni sunnan við Krossanesverksmiðjuna yst í Akureyrarbæ. Ekki er ljóst hvers vegna, en úr klóaklögn í fjörunni hafði komið mikil hvít froða, í nokkrar klukkustundir - og lagði sterka sápulykt af froðunni. Valdimar Brynjólfsson, heilbrigðisfulltrúi, sem skoðaði aðstæður í fjörunni sagðist ekki viss um að froðan væri orsök fugladauðans. Ekki er vitað hvaðan froðan kom. Valdimar sagði að í fyrra hefði orðið svipuð froðumýndun frá tunnuþvótti í efnaverksmiðj- unni Sjöfn. Forráðamenn Sjafnar neituðu því að froð- an væri frá þeim nú og því alveg óljóst hvaðan hún kæmi. En skólplögnin úr ysta hluta Glerárþorps ligg- ur út í Bótina að sögn heilbrigðisfulltrúans. Humarkvótinn verður sá samí og á síðasta árí Betri aflabragða vænst á næsta ári Hafrannsóknastofnun hefúr lagt til að veidd verði 2.100 tonn af óslitnum humri á þessu ári, sem er sama heildarmagn og úthlut- að var í fyrra. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að úthluta þessu magni til skipanna með sama hætti og á síðastliðnu ári og mega veiðarnar hcQast 15. maí. „Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskifélaginu voru einungis veidd 1.865 tonn af humri í fyrra,“ sagði Ilrafhkell Eiríksson hjá Hafrannsóknastofnun í samtali við Morgunblaðið. Hrafnkell Eiríksson sagði að síðasta humaivertíð hefði verið sú lélegasta frá árinu 1979. Veiðarn- ar hefðu hafist um 20. maí í fyrra og þeim hefði að mestu verið lokið um 20. ágúst. Hrafnkell sagði að aflinn hefði verið minni við Suð- Skráning í Háskóla Islands: Betri heimtur eldri nem- enda með breyttum reglum UM 2.700 manns hafa látið skrá sig til náms við Háskóla íslands næsta vetur en skráningarfrestur eldri nemenda er runninn út. Eru þetta mun betri lieimtur á þessum tíma miðað við fyrri ár, að sögn Brynhildar Brynjólfsdóttur deildarstjóra skráningardeild- ar, og má rekja til breytinga á reglum um innritun í Háskóla íslands. Heildarfjöldi nemenda við Há- skólann er um 4.600 manns en skráning nýnema hefst í júni. „Endanlegar upplýsingar um fjölda skráðra stúdenta liggja því ekki fyrir fyrr en í október,“ sagði- Brynhildur. „En þetta eru betri heimtur en við höfum þekkt til þessa og má rekja til breytinga á fyrirkomulagi skráninga. Skrán- ingardagar eru fjórir og þá eiga nemendur að staðfesta skráningu sína fyrir næsta ár og greiða þá um leið skránignargjald sem er 7.900 krónur. Þeim sem þess ósk- uðu var veittur greiðslufrestur fram í júlí en við það hækkaði gjaldið um 5%. Skráningargjald þeirra, sem skrá sig síðar hækkar hins vegar um 25%. Þetta er trú- lega skýringin á því hversu marg- ir létu skrá sig núna.“ Brynhildur sagði, að alltaf hefðu verið vandræði með heim- turnar, sem síðan komu fram í lélegri vinnubrögðum, óöryggi og erfiðleikum með að útvega kennslugögn, þar sem ekki var vitað hvað þurfti að kaupa inn. „Héðan í frá á að vera hægt að koma á góðu skipulagi og sparn- aði í framtíðinni og tryggja fólki að það fái sín gögn sem til þarf til að vinna eftir,“ sagði Brynhild- vesturland og Vestmannaeyjar árið 1989 en 1988. Aftur á móti hefði afli við Suðausturland aukist nokkuð en þar hefði humarvertíðin hins vegar verið ákaflega léleg árið 1988. „Það eru nokkrar ástæður fyrir samdrætti í humarveiðum árin 1989 og 1988 miðað við nánast 10 ára tímabil þegar afli á sóknar- einingu var mjög góður og mun betri en á síðasta áratug," sagði Hrafnkell. „Veðurfar var fremur óhagstætt bæði 1989 og 1988. Þá virðast helst til miklar humar- veiðar við Suðausturland árin 1986 og 1987, svo og við Vest- mannaeyjar árið 1988, hafa högg- við nokkurt skarð í eldri árganga stofnsins. Einnig hafa rannsóknir staðfest að 1981 til 1983-árgan- garnir eru allir mjög lélegir“ sagði Hrafnkell. Hann sagði að 1984 og 1985- árgangarnir virtust hins vegar vera betri en 1981 til 1983-árgan- garnir. „Þetta er það smár humar að ég tel að hann muni ekki skipta sköpum í veiðinni á þessu ári. Hins vegar vænti ég betri afla- bragða frá og með næsta ári. Ár- gangarnir frá 1984 og 1985 voru geysilega áberandi á tilteknum svæðum í fyrra og þar gengu veið- arnar best. Á öðrum svæðum bar hins vegar ekki mikið á þeim,“ sagði Hrafnkell. Samið við hjúkrunar- fræðingana SKRIFAÐ var undir samninga á milli Hjúkrunarfélags Islands, samninganefiidar ríkisins fyrir hönd fjánnálaráðherra, Reykjavíkurborgar og Landa- kotsspítala laust fyrir kl. 11 í gærkvöld „Það er ekkert sem kemur á óvart í þessum samningi, hann er að lang- mestu leyti eins og þeir samningar sem gerðir hafa verið að undanf- örnu,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkisssáttasemjari í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Iðnaðarráð- herra skoðar álver Alumax JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, fór á sunnudag til Washington, þar sem hann sit- ur fúnd þróunarnefndar Alþjóða- bankans og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Á inorgun, miðvikudag, skoðar hann álver Alumax fyrir- tækisins í Mount Holly í Suður- Kajiforníufylki. Á fimmtudag fer iðnaðarráðherra til Atlanta í Georgíufylki, þar sem hann ræðir ásamt samstarfsmönn- um sínum í álmálinu við Paul Drack, aðalforstjóra Alumáx. "

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.