Morgunblaðið - 02.06.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990
Flokksstjórn Alþýðuflokks:
Jafnaðarmannaflokk-
ur Islands verði við-
auki við nafii flokksins
JON Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins ræddi á flokks-
stjórnarfundi á fimmtudagskvöld hugmynd sína að naftibreytingu á
Alþýðuflokknum. Hann mun leggja Iram tillögu á flokksþingi í haust
þess efiiis að við nafin Alþýðuflokksins bætist „Jafnaðarmannaflokkur
Islands". Morgunblaðið hefur upplýsingar um að hart hafi verið
deilt um þessa hugmynd á fundinum, en þó sé líklegt að slík tillaga
fáist samþykkt.
Jón Baldvin mun hafa skýrt
flokksstjóminni frá því að hann
teldi að með slíkum viðauka muni
Alþýðuflokkurinn höfða til fleiri en
hann gerir nú og verða fýsilegri
kostur fyrir óánægða alþýðubanda-
lagsmenn, félaga úr Birtingu og
Nýjum vettvangi. Engin ákvörðun
hefur verið tekin í þessum efnum,
en búast má við því að málið fái
rækilega umfjöllun á flokksþingi
Alþýðuflokksins í haust.
Fimmmannanefiid :
Vinnslu- o g heildsölu-
kostnaður hækki ekki
FIMMM ANN ANEFND hefur
ákveðið að hækka ekki vinnslu-
Listahátíð:
Dylan kemur
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Bob Dylan mun koma og halda
tónleika hér á landi á vegum
Listahátíðar í Reykjavík.
• Með Dylan kemur um 20 manna
hljómsveit. Hann mun skemmta ís-
lendingum í Laugardalshöll miðviku-
dagskvöldið 27. júní. Valgarður Eg-
ilsson, formaður Listahátíðar, skýrði
frá þessu við opnun hátíðarinnar í
gærkvöldi.
og heildsölukostnað landbúnað-
arvara frá 1. júní, þrátt fyrir
þær kostnaðar- og launahækk-
anir sem orðið hafa síðastliðna
sex mánuði, en þessi liður heftir
ekki hækkað þann tíma.
Fimmmannanefnd samþykkti
að hækka ekki vinnslu- og heild-
sölukostnaðinn með hliðsjón af
aðstæðum í. þjóðfélaginu. Afurða-
stöðvamar taka því sjálfar á sig
þær hækkanir sem orðið hafa á
launum og kostnaðarliðum, þannig
að ekki þarf að koma til aukinna
niðurgreiðslna ríkisins á landbún-
aðarvörum.
Ólöf Stefánsdóttir og Karl Ómar Jónsson með væna laxa af Stokk-
hylsbroti í Norðurá. Lax Ólafar, 9 punda, reyndist fyrsti stangar-
veiddi lax sumarsins að þessu sinni.
Góð veiði
í Norðurá
LAXVEIÐI hófst í gær í Norð-
urá og Þverá í Borgarfírði.
Veiðin var lííleg fyrsta daginn
þrátt fyrir erfíðar aðstæður,
kalt og skolað árvatn, aðeins 4
til 6 gráður, og bakkafull vatns-
íollin. í Norðurá veiddust 12
laxar í gær, flestir 8 til 10 punda.
í Þverá veiddust tveir laxar.
Stjórn SVFR hóf veiðina í Norð-
urá að vanda og lofuðu stjórnar-
menn útkomuna. 11 laxar höfðu
komið á land um hádegi allir 8 til
10 punda hrygnur. Sá tólfti bætt-
ist við eftir hádegi, 16 punda fisk-
ur, sem veiddist á Stokkhylsbroti.
Helmingur laxanna veiddist á
flugu. 6 veiddust neðan Laxfoss á
Brotinu og Eyrinni, fjórir komu
af Stokkhylsbroti, einn úr Laugar-
kvörn og einn úr Myrkhylsrennum.
Ólöf Stefánsdóttir veiddi fyrsta
laxinn, 9 punda hrygnu, á maðk á
Stokkhylsbroti klukkan 8.40.
Fyrsta flugulaxinn veiddi Halldór
Þórðarson á Eyrinni 10 mínútum
síðar; 10 punda hrygnu á Skrögg
túbu.
Tveir laxar veiddust í Þverá í
gær. Mikið vatn var í ánni og töldu
menn að töluvert væri af fiski þar.
Meiríhlutasamstarf sjálfstæðis- og framsóknarmanna í Kópavogi:
Áherzla lögð á upp-
byggingu eldri gatna
Samningar um íþróttahöll endurskoðaðir - Sigurður Geirdal
verður bæjarsljóri, Gunnar I. Birgisson formaður bæjarráðs
' & •.
Morgunblaðið/Þorkell
Davíð Oddsson borgarstjóri setur Listahátíð í Borgarleikhúsinu
í gærkvöldi.
Listahátíð sett
LISTAHÁTÍÐ var sett við há- Andrei Gavrilov leikur með Sin-
tíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu fóníuhljómsveit íslands í Há-
í gærkvöldi af Davíð Oddssyni skólabíói kl. 17.
borgarstjóra. í dag verða fjöl- Sjá um komu Vínardrengja-
margar myndlistarsýningar opn- kórsins á bls. 4 og dagskrá
aðar og hinn heimsþekkti píanisti Listahátíðar á bls. 26.
Málefhasamningur Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
Kópavogs var samþykktur í full-
trúaráðum beggja flokka í bæn-
um í gærkvöldi. Sjálfstæðismenn
samþykktu samninginn sam-
hljóða, og framsóknarmenn með
miklum meirihluta.
Að sögn Braga Michaelssonar,
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins,
ber tvö mál hæst í málefnasamn-
ingnum. Annars vegar er ákveðið
að byggingu íþróttahallar fyrir
heimsmeistarakeppnina í handbolta
verði lokið fyrir 1995, en endur-
skoðaðar fyrirliggjandi teikningar
og samningar um bygginguna. Hins
vegar á að leggja mikla áherzlu á
uppbyggingu eldri gatna í bænum.
Sigurður Geirdal, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks, verður bæjar-
stjóri í Kópavogi. Sjálfstæðismenn
fá formann bæjarráðs, sem verður
Gunnar I. Birgisson, og forseta
bæjarstjómar. Kjörið verður i
Gengið firá meirihlutasamstarfi
í Bolungarvík og á Húsavík
Víðast hlé á viðræðum fram yfír helgi
SJÁLFSTÆÐISMENN og jafiiaðarmenn og fijálslyndir í Bolung-
arvík komust í gær að samkomulagi um að halda áfram meirihluta-
samstarfi í bæjarstjórn. Þá hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn
á Húsavík samþykkt meirihlutasamstarf.
í Bolungarvík verður Ólafur
Kristjánsson af D-lista áfram bæj-
arstjóri, Ólafur Þór Benediktsson
af Á-lista verður formaður bæjar-
ráðs og Ágúst Oddsson af D-lista
verður forseti bæjarstjómar.
Á Húsavík verður bæjarstjóri
Einar Njálsson, útibússtjóri Sam-
vinnubankans. Forseti bæjarstjórn-
ar verður Þorvaldur Vestmann
Magnússon frá Sjálfstæðisflokki.
Jafnræði verður með meirihluta-
fiokkunum í nefndakjöri. Málefna-
samningur flokkanna var sam-
þykktur á fundum beggja í gær-
kvöldi. Fyrri meirihluta á Húsavík
skipuðu sjálfstæðismenn, fram-
sóknarmenn og jafnaðarmenn.
Hlé er víða á meirihlutaviðræðum
fram yfir helgina. í Borgarnesi
ætla sjálfstæðismenn og alþýðu-
flokksmenn að hvíla sig á viðræðum
fram á mánudag. „Það er frekar
gott hljóð í fólki," sagði Sigrún
Símonardóttir, D-lista, í gær.
Á ísafirði var viðræðufundur
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks í gær-
kvöldi og var búizt við stuttum
fundi. Næsti fundur verður senni-
lega á mánudag.
Á Eskifirði eru viðræður „í góð-
um gangi“ að sögn Gísla Benedikts-
sonar á B-lista. Framsóknarflokkur,
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
áttu fyrsta sameiginlega fund sinn
í gærkvöldi.
í Keflavík hafa sjálfstæðismenn
gert það að kröfu sinni í viðræðum
við framsóknarmenn að Ellert J.
Eiríksson, efsti maður D-listans,
verði bæjarstjóri. Fulltrúar flokk-
anna sátu á fundi fram á gærkvöld-
ið.
nefndir bæjarins eftir styrkleika
flokkanna, en formenn nefnda
munu skiptast nokkum veginn jafnt
á milli sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna.
Á síðasta kjörtímabili skipuðu
alþýðuflokksmenn og alþýðubanda-
lagsmenn meirihluta í bæjarstjórn.
Sá meirihluti féll í kosningunum á
laugardag er sjálfstæðismenn unnu
mann af Alþýðubandalaginu. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur fimm menn
í bæjarstjórn Kópavogs, en Fram-
sóknarflokkurinn einn.
Nærri þúsund manns á skrá hjá
Atvinnumiðlun námsmanna:
Atvinnuhorfiir náms-
manna sjaldan verri
UM 950 manns. hafa skráð sig hjá Atvinnumiðlun námsmanna og
hafa aldrei fleiri leitað sumarvinnu með hjálp miðlunarinnar. Allt
sumarið í fyrra skráðu sig 932, en í byrjun júní voru þá tæplega
700 námsmenn á skrá. Framboð á störfum er hins vegar enn sem
komið er svipað og í fyrra, en þá voru miklu færri störf í boði en árið
á undan. Stúdentaráð Háskólans, sem rekur atvinnumiðlunina, hefiir
mælzt til að ríkisstjómin geri svipað átak og í fyrra til þess að út-
vega námsfólki vinnu á vegum hins opinbera.
Að sögn Elsu B. Valsdóttur,
framkvæmdastjóra Atvinnumiðlun-
ar námsmanna, hafa atvinnuhorfur
námsmanna aldrei verið verri í þau
13 ár, sem miðlunin hefur starfað.~
Undanfarin ár hefur umsóknum
fjölgað í sífellu, en framboð á störf-
um verið sæmilegt þar til í fyrra.
Árið 1986 skráðu sig 585 manns
hjá miðluninni, en 395 störf buð-
ust. Á þensluárinu 1987 voru 648
námsmenn um 887 störf, 1988
sóttu 778 um og 692 störf buðust.
í fyrra buðust 556 störf, en um-
sækjendur voru 932.
Um 240 störf hafa nú boðizt
námsmönnum fyrir milligöngu at-
vinnumiðlunarinnar, sem er álíka
mikið og á sama tíma í fyrra. Mið-
að við reynslu fyrri ára má búast
við að talsvert komi inn af störfum
í júnímánuði. Þegar hefur tekizt að
útvega tæplega 100 manns vinnu.
Sigurjón Þ. Árnason, formaður
Stúdentaráðs, ritaði Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráðherra
bréf í síðustu viku, þar sem hann
segir að nú sé erfiðasta ár atvinnu-
miðlunarinnar frá upphafi, og að
það yrði mjög til bóta að félags-
málaráðuneytið myndi gangast fyr-
ir „námsmannaátaki" eins og í
fyrrasumar. Þá samþykkti ríkis-
stjórnin að ráða námsfólk í vinnu
við umhverfisvernd og -fegrun, auk
þess sem sumarafleysingafólki hjá
ríkisstofnunum var fjölgað.
Elsa B. Valsdóttir segir að í fyrra
hafi um 400 manns fengið vinnu
fyrir milligöngu Atvinnumiðlunar
námsmanna, þar af um 100 vegna
stuðnings ríkisstjórnarinnar. „Það
er ekki spuming að það er þörf á
svona átaki,“ sagði Els_a.
Að sögn Berglindar Ásgeirsdótt-
ur, ráðuneytisstjóra í Félagsmála-
ráðuneytinu, er verið að athuga
möguleika á að útvega námsmönn-
um vinnu á vegum ríkisins, en
ákvörðun hefur ekki verið tekin.