Morgunblaðið - 02.06.1990, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990
V estmannaeyj ar:
Morgunblaðið/Sigurgeir
Unnið við afla Eyjabátá á bryggjunni þar í gærmorgun.
Allt með friði o g spekt á
bryggjtmni í Eyjum í gær
Vestmannaeyjum.
SJÓMENN í Eyjum voru ekki að fullu sáttir vegna úthlutunar
Aflamiðlunar á leyfúm til ferskfiskútflutnings þessa viku. Eftir
fundinn, sem sjómenn héldu á þriðjudag héldu flestir aftur til
veiða og í gærmorgun komu þeir flestir inn til löndunar. Eyjasjó-
menn höfðu hótað að láta reyna á hvort þeir yrðu stöðvaðir í að
fly^ja út físk sem ekki væri leyfi fyrir. Tollayfirvöld gerðu útflytj-
endum það ljóst á fimmtudag að hart yrði gengið eftir því að lög-
um yrði framfylgt og ekki yrði flutt út meira en leyfi væru fyrir.
Hljóðið í sjómönnum var mis-
jafnt í gærmorgun þegar þeir voru
að landa. Þeir voru ósáttir við
Aflamiðlunina en ljósið í myrkrinu
var þó að innlendir fiskkaupendur
voru á bryggjunni og buðu í aflann
betra verð en Eyjasjómenn hafa
áður fengið fyrir afla sinn hér
heima.
í fyrrinótt voru kyrrsettir þrír
gámar frá austfjarðahöfnum, þar
sem ekki voru útflutningsleyfi fyr-
ir þá. Þessir gámar voru síðan
sendir til Reykjavíkur á markað í
gærmorgun.
Stefán Geir Gunnarsson, deild-
arstjóri Tollgæslunnar í Eyjum
sagði að alít hefði farið fram með
friði og spekt í gær. Menn hefðu
gert sér grein fyrir að gámar sem
ekki væri ieyfi fyrir yrðu ekki
fluttir út og hefðu því hagað sér
Samkvæmt því. „Ég veit um sex
gáma sem eiga að fara um borð
í Reykjafoss í kvöld. Sólborgin á
tvo af þeim en Gámavinir íjóra
og er einungis draslfiskur, eins
og við köllum það, í þeim,“ sagði
Stefán.
Morgunblaðið var á bryggjunni
i Eyjum í gærmorgun og ræddi
við nokkra sjómenn og fiskkaup-
endur sem þar voru við vinnu sína.
Bauð hærra verð en áður
hefixr þekkst í Eyjum
MAÐUR dagsins á bryggjunum í
Eyjum í gærmorgun var án efa
Geir Sigurjónsson frá Sjávarfiski
í Hafnarfirði. Hann gekk á milli
bátanna og bauð í fiskinn og var
það verð sem heyrðist hærra en
sjómenn í Eyjum hafa talið að
innlendir fiskkaupendur byðu.
„Þegar ég heyrði fréttirnar um
ástandið hér dreif ég mig bara á
staðinn til þess að kanna þetta og
reyna að ná í fisk fyrir mitt fyrir-
tæki. Það vantar fisk í Hafnar-
Qörð og marga aðila við Faxafló-
ann vantar fisk til vinnslu þannig
að við getum á því svæði tekið
við töluverðu magni til viðbótar
við það sem við höfum haft. Ég
trúi ekki öðru en að sá fískur sem
ekki fæst leyfi til að flytja út og
ekki er hægt að vinna hér gæti
vel selst á Faxaflóasvæðinu," sagi
Geir.
Hann sagði að verðið sem þeir
væru að bjóða í góðan fisk væri
vel sambærilegt við verð á erlend-
um mörkuðum. „Ég hef verið að
bjóða mönnum 83 krónur fyrir
kílóið af fiski sem er upp undir
fjögur kíló að þyngd og fyrir stór-
þorskinn býð ég 94 krónur,“ sagði
Geir. Hann sagði að smáfiskurinn
hefði ekki farið á afleitu verði á
markaðnum í Hafnarfirði undan-
farið og nefndi sem dæmi að smá-
ýsa hefði farið á allt að 60 krónum
kílóið og humarýsan á 70 krónur.
Undirmálsfiskurinn hefði verið að
fara á 42 til 54 krónur. Fiskur í
meðalþyngd, kringum 1,8 kíló,
hefði farið á 75 til 80 krónur og
fískur þyngri en það hefði farið á
80 til 90 krónur.
„Ég geri mér fulla grein fyrir
því nú eftir að hafa verið hér á
bryggjunni í morgun og fylgst
með þessu öllu hvað þetta er mikil-
vægt fýrir útgerðina og sjómenn-
ina hér að geta komið fiskinum
út. Þeir hafa byggt sig upp á þessu
og það er erfitt að láta stoppa sig
af. Mér hefur þó verið afar vel
tekið hér. Ég hef boðið mönnum
viðskipti og þeir hafa tekið vel í
það. Aðalmálið er að koma fiskin-
um í gott verð og það er ég að
gera með því að kaupa þann fisk
sem ekki fer út eða til vinnslu
hér. Ég ætla að reyna að ná í fisk
í þrjá gáma sem síðan verða fiutt-
ir til Hafnarfjarðar. Þessi kaup
fara öll í gegnum Hafnarfjarðar-
markaðinn og útgerðimar fá þetta
greitt fljótt og örugglega."
Geir sagði að hjá Sjávarfiski
væri stærri fiskurinn verkaður í
salt en flókin af smærri fiskinum
væru lausfryst fyrir Bretlands-
markað og afgangurinn færi síðan
í harðfisk. Hann sagði að þeir
keyptu allan sinn fisk af mörkuð-
unum og fyndist það fyrirkomulag
mjög gott.
„Eyjamenn verða að líta meira
til markaðanna við Faxaflóann og
koma fiski i einhverjum mæli
þangað því þá fara þeir að sjá að
þeir fá sambærilegu verð miðað
við það sem þeir fá úti þegar á
heildina er litið,“ sagði Geir að
lokum.
„Salan í dag árangur af
aðgerðum okkar“
SIGURBJÖRN Árnason, skipstjóri
á Emmu VE, sagðist vera þokka-
lega ánægður með það verð sem
þeir hefðu fengið fyrir þann afla
sem þeir seldu, en Sjávarfiskur í
Hafnarfirði keypti aflann af þeim.
„Ég tel að þessr sölur hér á
bryggjunni í morgun hafi verið
árangur þeirrar umræðu sem
skapaðist er við sigldum til hafnar
og funduðum í vikunni," sagði
Sigurbjörn. Hann sagðist ekki
hafa áður orðið var við að fisk-
kaupendur af Faxaflóasvæðinu
hefðu sóst eftir fiski héðan af
slíkum krafti áður, enda sýndi það
sig að best í því að fískkaupandi
frá Hafnarfirði væri mættur á
bryggjuna til að bjóða í fískinn.
Hann sagðist þó engan veginn
vera sáttur við úthlutanir aflamiðl-
unar og taldi að þessi niðurskurð-
ur á útflutningi frá Eyjum gæti
einungis orðið til þess að skaða
markaðinn úti.
„Við höfum ekki flutt allan okk-
ar fisk út. Frostver hér í Eyjum
hefur keypt þó nokkuð af okkur
á verði sem við höfum verið án-
ægðir með og við höfum alltaf
verið tilbúnir að selja fiskinn hér
heima ef sambærilegt verð hefur
fengist fyrir hann hér og erlendis.
Allt tal um einhveija gámablindu
er því bara bull. Við verðum bara
að fá hæsta mögulega verð fyrir
fiskinn og ég óttast að ef við fær-
um að flytja fisk í stórum stíl á
markaðina við Faxaflóann myndi
verðið þar bara hrynja. Það gildir
alveg sama lögmál um þá markaði
og markaðina úti. Þess vegna er
best að hafa þetta fijálst og menn
geta þá selt þangað sem hæsta
verðið er hveiju sinni,“ sagði Sig-
urbjörn.
„Ósáttir við að ekki skuli
jaftit yfir alla ganga“
„VIÐ ERUM ósáttir við að ekki
skuli jafnt yfir alla ganga í þessum
útflutningi. Frystitogararnir flytja
sinn afla óheft út og eins hafa
stóru togararnir í Reykjavík fastar
siglingar á Þýskalandsmarkað,
nánast út af fyrir sig,“ sagði Jú-
líus Óskarsson skipveiji á Frá VE.
Júlíus sagði að sjómönnum
fyndist það einna harðast að fá
ekki að flytja út smáfiskinn. „Við
fáum gott verð fyrir smáfiskinn,
eins og t.d. þorsk, ýsu, ufsa og
lýsu úti en hér fáum við ekkert
fyrir þetta. Smá lýsa fer á 80
krónur í Bretlandi en ætli við fáum
ekki innan við 10 kr. fyrir hana
hér. Svo er það líka alltaf all-
sendis óvíst að við losnum við
smáfiskinn hér. Ef við getum ekki
flutt smáfiskinn út þá erum við
ekkert að koma með hann að landi
því menn eru ekki að koma með
afla að landi sem ekkert fæst fyr-
ir og minnka með því kvótann.
Þá verður þessu bara hent í sjó-
inn,“ sagði Júlíus.
Hann sagði að hluti aflans hjá
þeim nú færi til vinnslu hjá stöðv-
unum í Eyjum, stórýsan færi
líkega á markað í Reykjavik en
smáfiskinn ætluðu þeir að geyma
í kæli þar til í næstu viku og reyna
þá að koma honum út í gámum,
ef þeir fengju einhveija úthlutun.
Hann sagði að þeir hefði flutt tals-
vert .minna út á þessu ári en í
fyrra og sagði að líklega væru
þeir búnir að flytja um helming
aflans út í gámum.
„Ætli við sjáum ekki til fram í
næstu viku og skoðum hvernig
úthlutunin verður þá áður en við
ákveðum eitthvað um framhaldið.
Mér fyndist annars best að halda
hér fund þar sem þingmennimir
okkar kæmu og ræddu við okkur.
Þeir ættu að gefa sér tíma í það
því það er aldrei að vita upp á
hvetju sjómenn taka. Við gætum
þess vegna farið út í að stofna
sérstakan sjómannaflokk ef eng-
inn hefur áhuga á að tala við okk-
ur. Þá kæmum við örugglega
manni á þing sem myndi reyna
að beijast fyrir hagsmunum okkar
og koma sjónarmiðum okkar á
framfæri," sagði Júh'us að lokum.
„Skil vel að menn séu
óánægðir með
Aflamiðlunina"
„ÉG GET ekki verið óánægður
með að fá nóg af fiski en ég skil
vel að menn séu óánægðir með
Aflamiðlunina. Það sjá allir að
þegar bátarnir eru fleiri en tonnin
sem úthlutað er til þeirra, til út-
flutnings, þá verða menn vitlausir.
Það er bara eðlilegt," sagði Arthur
Bogason, fiskverkandi í Tinnu í
Vestmannaeyjum.
Arthur var á fullu á bryggjunni
í Eyjum í gærmorgun að fylgjast
með löndun hjá bátunum. Hann
sagðist vera hundóánægður með
að hlusta á menn halda því fram
að ekkj væru borgaðar nema
20-30 krónur fyrir tonnið af fiskin-
um í Eyjum. „Meðalverðið sem við
höfum borgað í vetur fyrir slægð-^
an þorsk eru 85-90 krónur og við
erum búnir að taka á móti 2.000
tonnum frá miðjum febrúar fram
í miðjan maí. Mér leiðist því að
hlusta á þennan söng um lága
verðið," sagði Arthur.
Hann sagðist vilja gefa útflutn-
inginn fijálsan því þá myndi sá
sem best borgaði fá fiskinn.
„Markaðslögmálið á að ráða en
ekki einhver miðstýring sem er í
hrópandi ósamræmi við markað-
inn. Ég hef þá trú að menn skoði
verðið frekar hér heima ef útflutn-
ingurinn er fijáls. Það er ætíð svo
þegar haftastefna ríkir að þá hafa
menn tilhneigingu til að nota þau
leyfi sem þeir fá. Menn vilja vera
inni i pottinum til að detta ekki
út og nýta sér því útflutningsleyf-
ið þó þeir fái jafnvel ekkert betra
verð en hér heima,“ sagði hann.
Arthur sagði að það væri rifist
um þorskinn hér heima og menn
tilbúnir að borga vel fyrir hann.
„Það er verra með ýsuna og sjó-
mennirnir eiga í meiri vanda með
að losna við hana á viðunandi
verði. Þetta á því bara að vera
fijálst og þá selja menn hveija
tegund hæstbjóðanda. Alla vega
álít ég þá menn sem standa í út-
gerð ekki það vitlausa að maður
ætli þeim að flytja út villt og ga-
lið ef ekkert verð fæst fyrir af-
Iann,“ sagði Arthur Bogason, fisk-
verkandi í Eyjum, að lokum.
Grímur
Geir Sigurjónsson með væna þorska sem hann keypti í Eyjum í gær.