Morgunblaðið - 10.07.1990, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.07.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 7 White- snakeí Reiðhöll- inni í haust BRESKU rokksveitirnar Whit- esnake og Quireboys halda tón- leika hér á landi 7. september næstkomandi í Reiðhöllinni. Qu- ireboys verður upphitunarsveit fyrir VV'iiitesnake á tónleikunum. Itugsanlegt er að hljómsveitirnar haldi aðra tónleika 8. september. Whitesnake er ein af þekktari þungarokksveitum heimsins og þess er vænst að hátt í 80 þúsund manns hlýði á sveitina á rokkhátíðinni í Darlington á Englandi nú á næst- unni. Quireboys var valin besta nýja rokksveitin af breskum fjölmiðlum í fyrra og hún er upphitunarsveit fyrir Rolling Stones sem nú er á ferðalagi um Evrópu. Alls koma um 50 manns vegna tónleikanna hér á landi og hljóm- sveitirnar hafa leigt eina Boeing 727 flugvél til að flytja hljómflutn- ingstæki hingað til lands. Miðasala hefst að öllum líkindum í þessari viku og er ráðgert að miðaverð verði undir 3 þúsund krónum. Alan Ball, hjá umboðsskrifstofunni Ice- agency, sagði að fyrirspurn hefði borist frá umboðsaðilum Whitesn- ake hvort unnt væri að selja miða á tónleikana einnig í London, Glas- gow, Danmörku og í Færeyjum. Ráðgert var að Whitesnake léki víðar á Norðurlöndum en hætt var við frekara tónleikahald þar. Mikill áhugi er meðal Svía fyrir tónleikun- um og er búist við allt að 500 manns þaðan á tónleikana. Að sögn Alan Ball er fátítt að jafn þekktar hljómsveitir fáist til að leika saman á tónleikum og fyr- ir jafn fáa áhorfendur og verða í Reiðhöllinni. „Við sögðum þeim að íslendingar krefðust aðeins þess besta og þeir féllu fyrir því,“ sagði Ball. Tónlistarmennirnir hafa sýnt því áhuga að skoða ísland og í ráði er að skipuleggja fyrir þá laxveiðiferð- ir og fleira í þeim dúr. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Safnað í lurka- ketilinn Mikið rekur á fjörur Stranda- manna og nota margir trjávið- inn til upphitunar. Heimilisfólk- ið í Kollafjarðarnesi var á dög- unum að safna rekaviði í fjö- runni hjá Stóra-Fjarðarhorni, fyrir botni Kollafjarðar, til að brenna í lurkakatli sínum. i ^^9 I vwfTwy i ] Elnet t H Á R L A K K L'ORÉAL Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíóum Moggans! Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll með sérstaklega ý stóra farangursgevmslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er Nýr, stærrí °8 kraftmeirí að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra strokka, 16 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparnevtni og hagkvæmni í rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyIdubíls. Ótrúlega hagstætt verð Daihatsu Charade Sedan SG 5 gíra kr.777.QQQ stgr. á götuna. Sjálfskiptur kr.839.OOO stgr. á götuna. Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan Brimborg hf. Faxafeni 8 • Sími 685870

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.