Morgunblaðið - 10.07.1990, Síða 15

Morgunblaðið - 10.07.1990, Síða 15
MORGU.NBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 15 en þúsund röksemdir" sagði stjórn- vitringurinn Gladstone og svo sann- arlega verður hið góða og fagra for- dæmi alltaf sterkasta áfengisvörnin. Það er bæði heilbirgt og skynsam- legt að taka aldrei neina áhættu gagnvart neyslu áfengis. Bindindi er hin heilladrýgsta lífsákvörðun, sem enginn þarf að sjá eftir eða skamm- ast sín fyrir. Gleymum því aldrei, að „meðal okkar mannanna er eng- inn lævísari óvinur, enginn hættu- legri gleði- og gæfúspillir en sá sem fylgir hinni útbreiddu áfeng- istísku", eins og Karl Marthinussen, biskup Norðmanna, komst að orði í ávarpi til norskrar æsku. Hættulegasta nautnalyfíð að dómi mikilhæfs læknis í greinargerð frá alþjóðaheilbrigð- isstofnuninni kemur fram, „að drykkjuskapurinn sé einn skæðasti sjúkdómurinn í heiminum og taki öllum öðrum fram í mörgum þeim löndum, sem lengst hafa náð í heilsu- vernd“. Og alltaf eru að koma fram nýjar og nýjar upplýsingar um skað- semi áfengis á líffæri og heilsu fólks, sem of langt mál yrði hér að rekja nánar. Læt ég nægja að skírskota til þess, sem frægur læknir hefur sagt, að „í rauninni verði hvert ein- stakt líffæri fyrir skaðlegum áhrifum af áfengi, hvert sem magnið er“. Það er því furðulegt og með öllu óskiljan- legt, að 133 íslenskir læknar skyldu finna sérstaka hvöt hjá sér til að mæla með áfenga bjórnum og með því stuðla að aukningu sjúkdóma og annars ófarnaðar, eins og reynslan er búin að sanna. En sem betur fer hafa alltaf verið í röðum lækna margir einlægir bar- áttumenn gegn áfengisneyslunni og fyrir betra mannlífi. Einn af þeim var Helgi heitinn Ingvarsson, yfir- læknir á Vífilsstöðum. Fyrir síðustu jól kom út stórmerk bók og sérstak- lega vel skrifuð um ævi hans og störf. Einn kaflinn fyallar um baráttu hans á sviði áfengismála og heitir: „Hinir nýju smitberar", en þar nefn- ir læknirinn þá smitbera, sem halda áfengi að öðrum. Vil ég enda þessar hugleiðingar mínar með því að vísa til nokkurra varnaðarorða þessa merka og mikil- hæfa- læknis og hugsjónamanns. Hann sagði: „Þjóðfélagslega séð er alkoholismi miklu ömurlegi sjúkdóm- ur en berklaveiki nokkru sinni var. Á ég þar við sundrungu heimila, slys og margs konar misferli og óhæfu- verk, sem framin eru í ölæði.“ Og í ágætri grein í Mbl. 23. maí 1964 sagði hann, að „alkoholið væri að sínum dómi hættulegasta og lak- asta nautnalyfíð". Hafði Helgi í sömu grein vikið að ýmsum öðrum nautnalyfjum, sem í dag er hvað mest varað við og ekki að ástæðu- lausu. Það er von mín, að þessi skrif verði einhverjum til umhugsunar og tilefni aðgerða í því mikla alvöru- máli, sem áfengisvoðinn er þjóðinni. Gegn þeim voða verður að berjast. Það er ekki hægt að horfa upp á það með aðgerðar- og sinnuleysi, hvernig áfengið og önnur fíkniefni fara með líf, heilsu og hamingju fólks. Höfundur er hæstaréttnrlögmaður. Islensk múrefni íslenskar aðstæður SEMKIS múrblöndur í allt múrverk lítil og stór, úti sem inni. fllPIP ídAllclfílV SEMKÍS múrblöndurtil viðgerða á múrskemmdum. SEMKÍS er samnefnari fyrir efni sem þróuð eru og framleidd fyrir íslenskan markað með rysjótta veðráttu í huga. SEMKÍS efnin fást hjá öllum helstu byggingavöruverslunum og SANDIHF. Viðarhöfða 1 í Reykjavík, sími: (91)-673555. SEMKIS AKRYL 100 ÍSLENSKAR MÚRVÖRUR HF Viðarhöfði 1 Reykjavik, simi: 673555 íblöndunarefni fyrir múr og steinsteypu. FRAMLEIÐANDI: sórdke ypan KALMANSVÖLLUM 3, 300 AKRANESI. SÍMI - 13355

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.