Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 39 ’ Reykjavíkur árið 1935. Stjórnmála- störfum Jóhanns fylgdi eðlilega mikið álag á heimilið en Magnea var dugmikil húsfreyja og stýrði vinnustúlkum við heimilisstörf af öryggi og festu. Hjónaband þeirra einkenndist af ástúð og umhyggju og í þeim anda ólust böm þeirra upp. Jóhann Þ. Jósefsson lést í Hamborg í Þýskalandi 15. maí 1961 eftir að hafa veikst skyndilega, er þau hjónin voru á ferð heim eftir að hann hafði setið þing Evrópu- ráðsins í Strassbourg. Oft minntist hún hans með söknuði, enda var hann umhyggjusamur eiginmaður og heimilisfaðir með afbrigðum góður. Ég hygg að amma Magnea hafi verið óvenjulega mikilhæf kona. Hún hafði skarpa greind sem leit- aði stöðugt útrásar í fróðleiksþorsta og lærdómi. Minni hennar var óbrigðult og oft rifjaði hún upp kærar minningar. Hugur hennar var ávallt opinn og afstaða hennar jákvæð. Hún hafði næmt auga fýr- ir öllu fögm og því sem vel er gert. Allt slíkt mat hún að verðleikum. Hversdagsleiki og flatneskja voru ekki til í fari hennar, heldur hafði hún óbeit á því sem henni þótti smátt eða puðalegt. Hún var smekkvís í orði og æði og vissi allt- af hvað var viðeigandi að segja eða gera við ólíkar aðstæður. Hún klæddi sig ávallt eins og sómdi svo glæsilegri og fagurri hefðarkonu sem hún var. Hún átti þess kost að ferðast víðar en títt var um jafn- öldrur hennar og naut þess í ríkum mæli. Hvar sem hún gekk var hún heimsborgaraleg í fasi og það átti líka við um Ágústu systur hennar. Á erlendri grund vom þau Magnea og Jóhann glæsilegir fulltrúar þjóð- ar sinnar. Amma var viljasterk kona, heil- steypt og ákveðin. Allir bám virð- ingu fyrir henni hvar sem hún fór. Þegar mest á reyndi í lífi hennar má vera að hún hafi bognað, en hún brotnaði ekki. Hún var sjálfri sér nóg, hún var veitandi í sam- skiptum við aðra en ekki þiggjandi. Andlegu þreki hélt hún óskertu til hinstu stundar. Hún hafði sterka þörf fyrir að vera sjálfstæð og bjó ein þá nærri þijá áratugi sem hún var ekkja, fram til 1984 á Berg- staðastræti 86, og hafði hún þá búið í húsinu nærfellt hálfa öld, en síðar á Lynghaga 26. Alla tíð naut hún þó dyggilegrar aðstoðar Ágústu, dóttur sinnar, sem reyndist henni stoð og stytta. Reyndi mjög á hana síðustu árin við úmönnun móður sinnar. Amma saknaði mjög eldri dóttur sinnar, sem búsett er í Bandaríkjun- um: Heilsa hennar leyfir ekki að hún komi til að fylgja móður sinni, en til íslands em komnar tvær dætur hennar og dótturdóttir til að vera við útför ömmu sinnar. Amma fylgdist grannt með barnabörnum sínum og barna- barnabörnum og lét sig hag þeirra miklu varða. Með henni og eigin- konu minni, Dögg, tókst góð og náin vinátta. Hún ljómaði í hvert sinn þegar hún sá son okkar, Pál Ágúst, sem var mjög hændur að langömmu sinni. Eg kveð ömmu með innilegu þakklæti fyrir það sem hún var mér. Minningin um hana er björt og fögur. — Guð geymi hana og varðveiti og blessi minningu henn- ar. Ólafur ísleifsson Kveðja frá Qarstaddri dóttur Móðurástin á sitt óslítandi afl. Að heyra rödd hennar mömmu minnar I síma eða þegar ég fór til íslands í heimsókn gaf mér jafnan þrek og gleði. Hún var ævinlega boðin og búin að hjálpa til ef eitthvað skyggði á. Minningar hennar frá Vest- mannaeyjum, ferðalögin við hlið pabba míns, voru henni kærar. Hún sagðist hafa verið heilluð af lands- laginu á írlandi, sem væri líkt ís- landi. Hún unni öllu fögru, hljómlist, góðum bókum og listaverkum. Ég kveð elsku mömmu í þetta sinn með ástarþökk. Við sjáumst aftur. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, AGNAR J. SIGURÐSSON vélstjóri, Lindarbraut 10, lést 6. júlí. Seltjarnarnesi, Unnur Sigurðardóttir og börn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN SIGURVINSSON, Silfurgötu 9, Stykkishólmi, lést f sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 7. júlí. Jarðarförin fer fram frá Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 12. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Magnús Kristinsson, Elínborg Kristinsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og góðvinur, GUNNAR ÁKI SIGURGÍSLASON bifvélavirkjameistari, Nesbala 32, lést í Landspítalanaum laugardaginn 7. júlí. Ásdís Hafliðadóttir, Linda Björk Gunnarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Nína Kristín Gunnarsdóttir, Brynja Björk Garðarsdóttir, ArnfríðurTómasdóttir, Ásdís Hafliðadóttir. t Eiginkona mín, KRISTJANA G. ÞORVALDSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, , Akranesi, sem lést 3. júlí, verður jarðsungin frá Akraneskirkju í dag, þriðju- daginn 10. júlí, kl. 14.00. Guðmundur E. Guðjónsson. t Systir okkar, SVAVA SIGURGEIRSDÓTTIR, Norðurgötu 16, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 8. júlí sl. Jarðarförin fer fram föstudaginn 13. júlí kl. 13.30 frá Akureyrar- kirkju. Þóra Sigurgeirsdóttir, Gústav Sigurgeirsson, Elísabet Sigurgeirsdóttir, Þorgerður Sigurgeirsdóttir. t Föðursystir okkar, SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR hjúkrunarkona, Þórsgötu 20, Reykjavík, lést á heimili sínu 9. júlí. Salgerður Ólafsdóttir, Lára Ólafsdóttir, Hafsteinn Ólafsson. t Ástkær eiginkona mín, PÁLÍNA KRISTJANA GUÐJÓNSDÓTTIR, Skipasundi 6, Reykjavík, sem lést í Borgarspítalanum 3. júlí, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 10. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar fölna fljótt, en verk líknarstofnana lifa lengi. Fyrir hönd aöstandenda, _ ... Runolfur Elmusson frá Heydal. LEGSTEINAR MOSAIKH.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 t HANSINA ANNA JÓNSDÓTTIR frá Keisbakka, lest 9- Juh- Skógarströnd, Ásta S. Indriðadóttir Reynis. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KRISTJÁN BJÖRNSSON, Hvassaleiti 58, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miðvikudaginn 11. júlí kl. 15.00. Hólmfríður Jónsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR HANS ALFREÐ SCHRÖDER framreiðslumaður, Hringbraut 92c, Keflavik, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 12. júní kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð Landakotsspítala. Helga G. Vilhjálmsdóttir, Sigurður Gústafsson, Anna Vilhjálmsdóttir, Fríða P. Viihjálmsdóttir, Ásgeir Hólm, Vilhjálmur A. Vilhjálmsson, Jóhannes L. Vilhjálmsson, Guðrún St. Clair, Richard St. Clair, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR, áður til heimilis í Lönguhlíð 13, Reykjavík, fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 11. júlí kl. 13.30. Ólafur Kristjánsson, Guðrún Þ. Ólafsdóttir, Charles E. Burrell, Jón Kr. Ólafsson, Guðlaug Steingrímsdóttir, Jóna G. Ólafsdóttir, Guðmundur Þ. Björnsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN GUÐMUNDSSON bæklunarlæknir, Mávanesi 14, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 12. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag vangefinna. Sigríður Jóna Árnadóttir, Guðmundur Jóhannsson, Yrsa Bergmann Sverrisdóttir, Helena Margrét Jóhannsdóttir, Valdimar Helgason, Ásta Vala Jóhannsdóttir, JóhannJóhannsson og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför sonar míns og bróður okkar, ARA INGÓLFSSONAR eðlisfræðings, Laugavegi 135. Guðrún M. Snæbjörnsdóttir, Guðrún P. Richter, Valur Richter, Þorsteinn Richter, Kristinn Richter. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, lan- gafa og bróður, ÓSKARS SIGURGEIRSSONAR frá Sólbakka, Þykkvabæ. Margrét Ó. Óskarsdóttir, Reykdal Magnússon, Aðalheiður S. Óskarsdóttir, Haukur Ingvarsson, Sigurbjörg F. Óskarsdóttir, Brynjólfur Gestsson, María Óskarsdóttir, Unnar Ólafsson Herborg S. Óskarsdóttir, Gisli G. Sigurjónsson, Erla F. Oskarsdóttir, Kristján Ö. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Sigurbjartur Sigurðsson og fjölskyldur. Svana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.