Morgunblaðið - 20.07.1990, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 20. JULI 1990
Mokveiði af þorski á Vestfiarðamiðum:
Aflaverðmæti Guð-
bjargar 13 milljómr
eftir 3 sólarhringa
MOKVEIÐI hefur verið af þorski á Vestfjarðamiðum undanfarna
daga og mörg skip hafa fengið þar 20-30 tonn í hali, að sögn As-
geirs Guðbjartssonar skipstjóra á togaranum Guðbjörgu IS. Skipið
fór á veiðar síðastliðinn mánudag og var bóið að fá um 240 tonn
af þorski síðdegis í gær. Verðmæti aflans er 13,2 milljónir króna
miðað við heimalöndun. Ásgeir sagði að 25-30 skip hefðu verið á
Halanum í gær. Mörg skip hefðu þó farið þaðan til að leita að grá-
lúðu austur af Strandagrunni, þar sem þau ættu lítið eftir af þorsk-
kvóta sínum.
„Við höfum fengið ágætan þorsk
á Halanum," sagði Asgeir Guð-
bjartsson. Hafrannsóknastofnun
hefur hins vegar beitt skýndilokun-
um á Strandagrunni og Reykja-
íjarðarál undanfarið vegna veiða á
smáfiski og sjávarútvegsráðuneytið
hefur bannað togveiðar þar.
Ásgeir sagði að einnig hefði feng-
ist góður afli á Vestfjarðamiðum í
síðustu viku. „Þá fengum við 200
Ráðherra í
lofltbelgjaflug
Steingrímur J. Sigfusson,
samgönguráðherra, mun
hefia sig til flugs með loft-
belg firá Laugardal í
Reykjavík klukkan 11 í fyrra-
málið, ef veður leyfir.
Loftbelgurinn og áhöfn hans
komu til Seyðisfjarðar með
Norrænu í gær. Belgurinn er
hingað kominn í tiiefni af
Ferðamálaári Evrópu 1990.
Hefur verið efnt til ferðalags
tveggja loftbelgja til allra 18
landanna, sem aðild eiga að
ferðamálaárinu.
Áfprmað er að fara með loft-
belginn út á land og fljúga
honum á Akureyri og víðar eft-
ir því sem veður og önnur skil-
yrði leyfa. Tvennt er í áhöfn
belgsins.
tonn eftir fimm og hálfan sólarhring
en það þykir víst lítið núna. Hann
sagði að sjórinn við Vestfirði hefði
verið mjög kaldur í vetur og vor.
Sjórinn hefði hins vegar hlýnað
mikið að undanförnu og komið
væri æti fyrir fiskinn. Hann væri
búinn að éta mikið af loðnu og
lagstur við botninn, þannig að auð-
velt væri að ná honum.
„Við fáum 55 krónur fyrir kílóið
af þorski, sem við löndum heima
en megum trúlega setja í þijá gáma,
eins og vanalega, þar af einn á
England. Áður en heimalöndunar-
álagið kom til fengum við 5 króna
álag á kílóið fyrir að landa 100
tonnum heima á viku,“ sagði Ás-
geir Guðbjartsson.
Björgunarþyrlur í hópflugi
Morgunblaðið/Þorkell
Margur Reykvíkingurinn vissi vart hvaðan á sig
stóð veðrið þegar fjórar þyrlur flugu í fylkingu yfir
höfuðborgina og nágrenni í gærmorgun. Þar voru
á ferð þyrla Landhelgisgslunnar, ásamt tveimur Sik-
orsky-björgunarþyrlum Varnarliðsins og Sea King-
björgunarþyrlu frá björgunarsveitum breska flug-
hersins í Skotlandi. Að sögn Páls Halldórssonar,
yfirflugstjóra Landhelgisgæslunnar, var tilefni þessa
hópflugs það að verið var að binda með eftirminnileg-
um hætti enda á nokkurra daga heimsókn Bretanna
til björgunarsveitar Vamarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Páll sagði að þar sem björgunarsvæði Land-
helgisgæslunnar og Bretanna lægju saman hefði í
gegnum árin verið ágætt samstarf á milli þjóðanna
á þessu sviði og Bretarnir hefðu jafnan sótt vamar-
liðsmenn heim annað hvert ár. Nú eins og áður
hefðu menn hist og borið saman bækur sínar og
kynnst aðstæðum hver annars. „Það er gagnlegt
fyrir okkur að hitta Bretana, sem era sannir atvinnu-
menn, auk þess sem mönnum gefst þarna kostur á
að sjá alvörubjörgunarþyrlur,“ sagði Páll.
Menntamálaráðherra veitir
Mér er stórum létt, segir Thomas McGovern sem ætlar að hefjast handa í dag
„Mér er stórum létt og ég vii lýsa ánægju minni og þakklæti til
allra sem hafa aðstoðað okkur í þessu máli,“ voru orð bandariska
fornleifafræðingsins Thomas McGoverns, en menntamálaráðherra
veitti honum í gær leyfi til fornleifarannsókna í Árneshreppi á Strönd-
um. Lagði ráðherra áherslu á að hér væri um endurnýjun á eldri
leyfum að ræða og að leyfið hefði ekkert fordæmisgildi. Það yrði
að vera ljóst að forræði með fornleifarannsóknum væri í höndum
Islendinga.
Landsvirkjun:
Vegalagning á Fljóts-
dalsheiði boðin út
LANDSVIRKJUN hefiir óskað
eftir tilboðum í vegagerð á
Fljótsdalsheiði og í Norðurdal.
Er þetta gert í kjölfar þess að
ríkisstjórnin hefur heimilað 100
milljóna króna lántöku til undir-
búningsframkvæmda við
virkjanagerð vegna nýs álvers.
Alþingi setti í vor lög, þar sem
Landsvirkjun var heimilað, í sam-
ráði við ríkisstjórnina, að taka að
láni allt að 300 milljónir króna til
að hefja undirbúningsframkvæmdir
vegna virkjanagerðar. Ríkisstjórnin
hefur nú sent Landsvirkjun bréf,
þar sem samþykkt er að lán að
upphæð 100 milljónir króna verði
tekið í þessu skyni.
Landsvirkjun hefur nú auglýst
eftir tilboðum í vegagerð á Fljóts-
dalsheiði og Norðurdal vegna gerð-
ar Fljótsdalsvirkjunar. Heildarlengd
vega er um 30 kílómetrar og magn
fyllinga er áætlað um 140.000 rúm-
metrar. Stefnt er að því að verkinu
verði að fullu lokið 24. október í
haust.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, boðaði til blaðamanna-
fundar í gær þar sem hann kynnti
svar ráðuneytisins til þjóðminja-
varðar en hann óskaði úrskurðar
ráðuneytis á afgreiðslu á umsókn
Thomas McGovems og Thomas
Amorosis um leyfi til fomleifarann:
sókna á Ströndum sumarið 1990. í
bréfi ráðherra segir m.a. að með
hliðsjón af því að umsækjendurnir
hafi áður stundað rannsóknir hér á
landi og óski nú eftir að fá að ljúka
þeim, telji ráðuneytið óhjákvæmi-
Iegt að fallist verði á beiðni þeirra
að sinni. Leggur ráðuneytið áherslu
á að hér sé í raun um endurnýjun
á eldri leyfum að ræða og að Ieyfið
gildi aðeins fyrir þetta sumar og
fyrir tiltekið svæði.
McGovem fagnaði þessari niður-
stöðu ráðherra mjög og gerði hann
ráð fyrir að rannsóknirnar myndu
hefjast þegar í dag. Tíu manns era
í hópi McGoverns, þar af fimm ís-
lendingar. Sagði McGovern að legði
hópurinn nótt við dag, ætti að tak-
ast að ljúka rannsóknunum í lok
ágúst.
í máli ráðherra kom fram að
ekki væri verið að taka til þess af-
stöðu hvort útlendingar gætu
stundað fornleifarannsóknir hér eða
ekki, enda uppfylli þeir þær kröfur
sem þeim era settar sem slíkar
rannsóknir stunda. Að sjálfsögðu
væri gerð krafa um íslenskt for-
ræði en einnig faglegt mat á hæfni
umsækjenda, ekki hvaða vegabréf
þeir kynnu að hafa. Ráðherra lagði
áherslu á að íslendingar hefðu fulla
yfirsýn yfir þá muni sem grafnir
hefðu verið upp hér á landi.
Fram kom í máli ráðherra að
fornleifanefnd starfaði í umboði
þjóðminjaráðs og nefndin gæti þar
af leiðandi skotið málum til þjóð-
minjaráðs, rétt eins og sá sem fom-
leifanefnd synjar mögulega um
leyfi.
Aðspurður kvaðst ráðherra ekki
vita hvenær niðurstaða lægi fyrir
vegna óskar þjóðminjaráðs um að
ráðið yrði í stöðu deildarstjóra fom-
leifadeildar. „Mín skoðun er sú að
ríkið eigi að vinna sig út úr æviráðn-
ingafarganinu en það verður að
taka sinn tíma.“
í gær vora gefnar út reglugerðir
um þjóðminjavörslu þar sem farið
er yfir skipulag þjóðminjavörslunn-
ar í heild. Einnig reglugerð um
húsfriðunarsjóð og reglugerð um
veitingu leyfa til fornleifarann-
sókna.
Haraldur Hannesson
varaform. BSRB látinn
HARALDUR Hannesson, for-
maður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og varafor-
maður BSRB, er látinn eflir erfið
veikindi, 66 ára að aldri.
Hann fæddist á Norðfirði 13.
júlí 1924 en fluttist níu ára gamall
á Stóra-Núp í Gnúpverjahreppi, þar
sem hann bjó fram á unglingsár.
Haraldur lærði til vélstjóra og starf-
aði sem slíkur hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur og síðar hjá Hitaveitu
Reykjavíkur.
Haraldur Hannesson var kjörinn
formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar 1982. Því félagi
veitti hann forystu til dauðadags.
Frá 1988 var hann varaformaður
BSRB. Undanfarin ár átti Haraldur
einnig sæti í stjórn sámtaka nor-
rænna borgarstarfsmanna, auk
þess sem hann gegndi um ævina
fjölda annarra trúnaðarstarfa.
Eftirlifandi eiginkona Haralds
Hannessonar er Sveinbjörg Georgs-
dóttir. Þau eignuðust fímm böm.
ÁTVR framleiðir tvær
nýjar tegundir ætl-
aðar ferðamönnum
Sala að heflast á óáfengum vínum
HJÁ Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins er nú verið að leggja síðustu
hönd á tvær nýjar áfengistegundir. Nefiiast þær Hekluglóð og Merk-
urdögg og eru aðallega ætlaðar sem minjagripir fyrir ferðamenn.
Þær verða seldar í 100 ml flöskum sem verða í kassa, prýddum
myndum af Heklu annars vegar og úr Þórsmörk hins vegar.
Haraldur Hannesson
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR segir Hekluglóðina verða
setta á markað eftir um hálfan
mánuð en lengra sé í Merkurdögg-
ina. „Drykkimir eru fyrst og fremst
minjagripir og verða væntanlega til
sölu í fríhöfninni í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Einnig eru líkur til
þess að þeir verði seldir í útsölum
ÁTVR, þar sem íslendingar vilja
ef til vill kaupa drykkina til gjafa.“
Hekluglóðin er rauður snafs, um
40% að styrkleika, og Merkurdögg-
in er grænleitur líkjör, um 25% að
styrkleika, og er bragðefnið fengið
úr jurtum sem vaxa í Þórsmörk.
Höskuldur segir ástæðu þess að
farið er út í framleiðslu drykkjanna
þá, að margir hafi ýjað að því við
starfsmenn ÁTVR hvort ekki væri
möguleiki á að bjóða upp á vín sam-
kvæmt íslenskri uppskrift og í
skemmtilegum umbúðum. Mönnum
hefði þótt slíkt betra en að kaupa
heilar eða hálfar flöskur af
brennivíni eða vodka.
Þá er þessa dagana að hefjast
sala á óáfengum vínum í útsölum
ÁTVR. Verður boðið upp á tvær
tegundir af freyðivíni, tvær af
rauðvíni, tvær af hvítvíni og eina
af rósavíni.