Morgunblaðið - 20.07.1990, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Séra Vigfíis Þór Árnason messar á lóðinni, þar sem fyrirhugað er að kirkja Grafarvogssóknar rísi.
Grafarvogshverfí:
Fyrsta messan á lóð kirkjunnar
ÚTIMESSA var við Fjörgyn í
Grafarvogi síðastliðinn sunnu-
dag á lóð, þar sem áformað er
að reisa kirkju Grafarvogssafii-
aðar. Söfnuðurinn fékk lóðina í
febrúar og standa vonir til að
hægt verði að taka fyrstu skófl-
ustungu að byggingunni í haust.
Séra Vigfús Þór Ámason sókn-
arprestur í Grafarvogi segir, að
nokkrar arkítektastofur hafi verið
valdar til að skila hugmyndum að
kirkjubyggingunni og muni þær
skila þeim í september. Af hálfu
safnaðarins hafí mikil áhersla verið
lögð á að byggingin hentaði vel
fyrir almennt safnaðarstarf, enda
ætti hún að þjóna einum fjölmenn-
asta söfnuði landsins. Sóknarböm-
in væru nú farin að nálgast 5.000
og fjölgaði ört. Auk þess væru
uppi hugmyndir um að í kjallara
kirkjunnar yrði útibú frá Borgar-
bókasafni Reykjavíkur, eins og nú
er í Bústaðakirkju.
Við messuna á sunnudag, sem
var skímarmessa, söng kór Grafar-
vogssóknar og organisti var Sigríð-
ur Jónsdóttir.
Útimessan í Grafarvogi var skímarmessa. Séra Vigfús Þór Árna-
son skirði Ámunda, son Rögnvaldar Ámundasonar og Lám Sigur-
þórsdóttur.
Yirðisaukaskattur af viðhaldsvinnu:
Höfum alltaf bent á að þessi
skattlagning gengi ekki upp
- segir íramkvæmdastj óri Meistara- og
verktakasambands byggingarmanna
FRAMKVÆMDASTJORI
Meistara- og verktakasam-
bands byggingarmanna segir
að sambandið hafi, ásamt Land-
sambandi iðnaðarmanna og
Verktakasambandi íslands,
ítrekað bent á, að ekki gengi
upp að leggja virðisaukaskatt á
vinnu við viðhald, viðgerðir og
endurbætur á íbúðarhúsnæði
og hafi kynnt tillögur þar að
lútandi. Ríkisstjórnin hefúr nú
ákveðið með bráðabirgðalögum
að afnema þessa skattlagningu.
Sverrir Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Meistara- og verk-
takasambands byggingarmanna,
segir að sambandið, ásamt Lands-
sambandi iðnaðarmanna og Verk-
takasambandi íslands, hafí frá því
á síðasta ári unnið að tillögum um
niðurfellingu virðisaukaskatts á
vinnu við endurbætur, viðhald og
viðgerðir á íbúðarhúsnæði, enda
hafi alla tíð verið ljóst að skatt-
lagning af þessu tagi gengi ekki
upp. Þessir aðilar hafi ítrekað haft
samband við Ólaf Ragnar
Grímsson, fjánnálaráðherra,
vegna málsins, en ekki hafí verið
hlustað á tillögur þeirra fyrr en nú.
Fyrstu bílar
um Siglu-
flarðarskarð
Siglufirði.
BÍLAR fóru um Siglufjarðarskarð
á mánudag, en undanfarna daga
hefur stór jarðýta unnið að því að
hreinsa snjó úr skarðinu. Fjórhjóla-
drifnir bílar komast nú um skarðið,
en nokkur ræsi munu vera varasöm.
Matthías
>_
Hækkun á afiiotagjöldum RUV frestað:
Ekki enn rætt um að
draga saman dagskrá
- segir útvarpssljóri
heildardæmið var ákveðið á Al-
þingi. En við lifum þetta að sjálf-
sögðu af,“ sagði Markús.
Aðspurður hvort hann teldi að
draga þyrfti saman dagskrá
Ríkisútvarpsins vegna ákvörðunar
stjómarinnar, sagði hann að slíkt
hefði enn ekki verið ráett. „Við
munum leitast við að láta þetta
bitna sem allra minnst á dagskrár-
þjónustu við fólk í landinu," sagði
Markús.
Skattlagning
kvóta:
MARKÚS Örn Antonsson, út-
varpsstjóri, segir að ekki hafi enn
verið rætt um að draga saman
dagskrá Ríkisútvarpsins í fram-
haldi af ákvörðun ríkissljórnar-
innar um að fresta afnotagjalda-
hækkun RÚV, sem verða átti 1.
október.
„Þetta kemur sér að sjálfsögðu
illa, vegna þess að stofnunin hefur
verið rekin nákvæmlega samkvæmt
þeim fjárlagaforsendum, sem búið
var að samþykkja í upphafí ársins
og sú afkoma hefur verið viðun-
andi, þótt reyndar sé gert ráð fyrir
200 milljóna króna halla eins og
Einstakt íslenskt listaverk:
18 holu golfvöll-
ur í húsagarði
Kempervennen. Frá Kjartani L. Pálssyni frcttaritara Morgunblaðsins.
NÝLEGA var opnuð í Hoorn í Hollandi alþjóðleg myndlistarsýning
þar sem 15 listamenn frá 10 löndum voru valdir til þátttöku og þeim
boðið að vinna útilistaverk og stórar „innsetningar" (installations)
vítt og breitt um borgina. Gengur sýningin undir nafninu „For real
now“ og hefúr vakið mikla athygli enda óvenju myndarlega að henni
staðið auk þess sem listamenn fengu að sögn algjörlega ftjálsar
hendur hvað varðaði umfang og eðli verkanna.
Morgunblaðið/Ted de Bruin
Listamaðurinn Þorvaldur Þorsteinsson í miðju verki sínu.
Listamennirnir eru flestir vel
þekktir í listheiminum, s.s. Guill-
aume Bijl, þekktasti listamaður
Belga um þessar mundir, Banda-
ríkjamaðurinn Dennis Adams,
Kanadamaðurinn Alan Belcher og
Frakkinn Ange Leccia, sem vakið
hefur mikla athygli á undanfömum
ámm. Meðal þeirra listamanna sem
þarna urðu fyrir valinu er íslenski
myndlistamaðurinn Þorvaldur Þor-
steinsson sem á síðasta sumri lauk
framhaldsnámi hér í Hollandi. Hafa
verk hans nú þegar vakið athygli
meðal þeirra sem fylgjast með nýj-
ustu hræringum í myndlist í Evrópu
og fer áhugi fyrir verkum hans
vaxandi hér ytra.
Framlag Þorvaldar á sýningunni
í Hoom ber það h'ka með sér að
stórt er hugsað: 18 holu golfvöllur
sem komið er fyrir inni í húsa-
garði. Hér er á ferðinni þar sem
listamaðurinn kallar „styttri útgáf-
una“ af 18 holu golfvelli og lýsir
hún sér í því að „aðalatriðunum“,
þ.e. holunum 18 með tilheyrandi
stöngum og flöggum, er hrúgað
saman á eina flöt í fullri stærð. Þá
em fjórar sandgryfjur eru í kring.
Brautir finnast hins vegar engar
og þaðan af síður teigar fyrir upp-
hafshögg þannig að óhætt er að
draga notagildi vallarins mjög í efa,
jafnvel þó að listamaðurinn segist
hafa teygt sig þarna mjög langt í
þá átt að fullnægja þörf nútíma-
mannsins fyrir að hafa „allt á einum
stað“.
Framkvæmdir hófust við golf-
völlinn í lok mars. Þá mótaði Þor-
valdur flötina í fagurlegum öldum,
en að sama skapi óárennilegum
fyrir kylfínga. Síðan þá hafa sér-
fræðingar keppst við ræktun og
þjöppun eftir kúnstarinnar reglum
og síðasta verk listamannsins var
svo að ganga frá sandgryfjum og
skera fyrir holunum 18.
„Þetta hefur allt gengið afskap-
lega vel eftir að samningar tókust
við tvo hunda sem voru vanir að
grafa djúpar gryfjur í þessum garði
sér til heilsubótar. Þeir héldu lengi
vel að ég hefði mótað þetta sérstak-
lega handa þeim sem æfíngasvæði.
En svo skildu þeir að menn vilja fá
að gera sínar holur sjálfir," sagði
Þorvaldur í viðtali við Mogunblaðið.
Þetta verk Þorvaldar hefur vakið
mikla athygli, eins og sýningin öll
og verkin á henni. Meðal annars
hefur mikið verið fjallað um hana
í blöðum og listímaritum. Sýningin
í Hoorn, sem er skammt frá Amst-
erdam, mun standa yfir fram í sept-
ember.
Skattamál -
ekki pólitísk
skilgreining
- segir vararíkis-
skattstjóri
„ÉG vil nú meina að ríkisskatt-
stjóri forðist að setja reglur sem
stangast á við lög,“ sagði Ævar
ísberg, vararíkisskattstjóri þeg-
ar borin voru undir hann um-
mæli Björgúlfs Jóhannssonar
endurskoðanda í Morgunblaðinu
á miðvikudag.
„Það er af og frá að ég ætli að
fara í deilur við menn í fjölmiðlum
um þessi mál,“ sagði Ævar.
Hann bætti því við að 1. grein
laga um stjórnun fískveiða þar sem
segir að fiskimiðin séu sameign
íslensku þjóðarinnar komi þessu
máli ekkert við. „Við erum að ræða
um skattamál en ekki pólitíska skil-
greiningu á því hver eigi fiskinn í
hafinu. Það er þessu máli alveg
óviðkomandi," sagði Ævar.
■ / HAFNARBORG, Menningar-
og listastofnun Hafnartjarðar, lýk-
ur um helgina sýningum þeirra
Toshikatsu Endo og Jordan So-
urtchev.