Morgunblaðið - 20.07.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990
19
Mí
GEI
ST(
M-
Í)ÐI
Sovéskir geimfarar enn í vanda eftir sjö stunda geimgöngu
KRISTALL
0 10. júní:
Stigi skýst út úr
ómönnuðum hluta
geimstöövarinnar
SOJUZ TM-9
0 11. febrúar:
Einangrun skemm
ist í geimskoti /
KVANT2
Q 18. júlí:
Geimfararnir gátu
ekki lokað útgöngu
hlera eftir aö við-
gerðinni var lokið/-
REUTER
Geimfaramir
geta haldiö
í stigann á
geimgöngunni
0 18. júlí:
Lausum ein-
angrunarplöt'
um smellt á
„ réttan staö
Ovíst um afdrif Aral-vatns
Blooniingfton. Bandaríkjunum.
ARALVATN í Sovétríkjunum, sem eitt sinn var með stærstu og
gróskumestu vötnum í heimi, er nú svo til aldauða og óvíst að nokk-
urn tíma verði unnt að koma því til lífsins á ný, að sögn scrfræð-
inga sem rannsakað hafa vatnið. Þeir tclja hnignun þess eitt mesta
umhverfisslys aldarinnar.
Rithöfundar, vísindamenn,
stjórnmálamenn og aðrir sérfræð-
ingar frá Sovétríkjunum og Banda-
ríkjunum taka um þessar mundir
þátt í ráðstefnu í Bloomington í
Indiana þar sem Aralvatn er aðal-
umræðuefnið. „Ástand vatnsins er
mjög nærri því að vera vonlaust,"
sagði Randall Baker, prófessor í
umhverfismálum við háskólann í
Indiana og einn af forgöngunlönn-
um ráðstefnunnar.
Aralvatn, sem er í sunnanverð-
um miðhluta Sovétríkjanna,
skammt austan við Kaspíahaf, hef-
ur skroppið saman um 40% (var
ríflega 67.300 ferkílómetrar) frá
því að farið var að veita úr því á
hrísgrjóna- og bómullarakra fyrir
mörgum áratugum. Það sem eftir
stendur af því er gegnsýrt af salt-
mengun og skordýraeitri. Vindar
róta eiturmekki upp við strendur
þess og blása honum yfir nágrenn-
ið. „Þetta getur eiginlega ekki ver-
ið verra en það er,“ sagði Baker.
Vatnið hefur hörfað um 60 kíló-
metra á innan við 20 árum og lækk-
að um 15 metra. Mengun af völdum
skordýraeiturs er óskapleg. Þar er
jafnvel um að ræða efni sem nú
eru bönnuð bæði í Bandaríkjunum
og Sovétríkjunum. Menguninni
hafa fylgt alls kyns sjúkdómar fyr-
ir utan hátt hlutfall ungbarna-
dauða. Saltfokið af þurrum vatns-
botninum á að öllum líkindum stór-
an þátt í óvenjulega tíðu háls-
krabbameini á svæðinu í kringum
vatnið.
„Flestar lífveranna sem þar áttu
heima eru útdauðar og verða aldrei
endurskapaðar," sagði Baker. „Það
eina sem hægt er að gera er að
freista þess að hreinsa til.“
Aralvatn var talið fjórða stærsta
vatn í heimi, um 420 kílómetra
langt, 280 kílómetra breitt og 70
metra djúpt, áður en það fór að
þorna upp. Á ráðstefnunni voru
sýndar myndir sem teknar höfðu
verið 'utart úr geimnum og röktu á
áhrifamikinn hátt hvernig vatnið
hafði skroppið saman.
„Kommúnistaflokknum hefur
hefur verið kennt um,“ sagði Rand-
all Baker, „sömuleiðis sósíalisman-
um, 50 ára marxisma og sovéskri
heimsvaldastefnu. En það sem við
höfum verið að reyna að gera hér
er að draga lærdóm af því sem
þarna hefur orðið og gæti alveg
eins gerst hér hjá okkur.
ÍHÁDEGIS- ]
TILBOÐ
ALLA DAGA
í dag: Klúbbsamloka og franskar
kr. 395.-
Djúpsteiktur fiskur, salat (eða sósa)
UISALA • UTSALA
AIH ai 2 0% afslóttur
HAGKAUP
/4CCt í eivwc ýené-