Morgunblaðið - 20.07.1990, Page 36

Morgunblaðið - 20.07.1990, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 tt pynr þai sem t/ié erurn nA -fícL - _ ■tizkk fijrir eJcJa ncibt. " © 1990 Univefsal Press Syndicale Andlitslyfting er það eina sem ég tel ráðlegt að gert verði fyrir konuna þína. Segðu kokknum að sósan hafi ekki valdið vonbrigðum eins og hitt. HÖGNI HKl.KKVÍSI Látum ferðamenn ekki yfirtaka landið Ótti hef- ur ekki heltekið þjóðina Til Velvakanda. Það var ánægjulegt að sjá að við búum ekki í ríki þar sem ótti við hryðjuverk og geðveika glæpamenn hefur heltekið þjóðina, þegar drottning Bretlands kom í heim- sókn. Ég er viss um að hún hefur sjaldnast í seinni tíð getað gengið óhindrað meðal fólks eins og hún gerði ásamt Vigdísi Finnbogadótt- ur, er þær gengu saman Fríkirkju- veginn og heilsuðu upp á fólkið sem safnast hafði í hundraðavís til að líta augum þessar merku konur. Vonandi getum við haldið þessu sem lengst. Það væri óheillaþróun ef hafa þyrfti alla málsmetandi menn í skotheldum bílum með lífverði á hvora hönd. Höldum þessu í því fari sem það er. Páll Til Velvakanda. Það er sjálfsagt hótfyndni en mér líst alls ekki vel á þessa nýju andlitslyftingu Alþýðubandalags- ins. Það eru orðnar nokkrar breyt- ingarnar frá því Kommúnistaflokk- ur íslands var stofnaður en alltaf voru þeir á sömu línunni. Sami fjandskapurinn gegn lýðræðisríkj- unum og allt var gott sem Stalín og eftirmenn hans gerðu. Draumur- inn var að kommúnisminn yrði alls- ráðandi í heiminum. Allt var sagt vera í besta lagi í Austur-Evrópu þrátt fyrir allan flóttann þaðan. Hryllingsögurnar sem þaðan bárust var sagður áróður og helber ósann- indi. Nú er ekki hægt að bera þetta á borð lengur og kommúnisminn er búinn að syngja sitt síðasta. Og hvað kemur þá í ljós, skortur á lífsnauðsynjum, húsnæðisskortur, mengunin yfirþyrmandi og heil- brigðisþjónustan ekki mönnum bjóðandi. Kommúnistarnir börðust gegn lýðræðisríkjunum og ótal fé- lög með fallegum nöfnum voru stofnuð. Friðar- og menningarsam- tök, græningjasamtök til varnar Til Velvakanda. Heimurinn minnkar mætti segja síðan öll þessi Ijarskiptakerfi hafa komið á örfáum árum og þotur fljúga um allt. Það er ekki langt síðan að menn hefðu talið slík und- ur lygileg. En sjón er sögu ríkari. Ferðamannahópurinn allstaðar allskyns dýrum og ekki má gleyma menguninni. En úlfshárin gægðust allstaðar út úr fínu hýjalínsdulunni. Helmut Schmidt sagði um græn- ingjana að þeir væru eins og melón- ur, grænir að utan og rauðir að innan, því þeir sáu ekki mengunina í Austur-Evrópu. Ekki mátti byggja kjarnorkuver sem reynast hafa fimm sinnum minni mengunar- hættu en olíu- og kolaverin. Og vísindamennirnir mega ekki segja neitt samanber hvalarannsóknirnar. Boðskapurinn nýi frá Alþýðu- bandalaginu hljóðar upp á baráttu gegn mengun og kapitalisma. Stjórnarfyrirkomulag sem öll Austur-Evrópa þráir og sem hingað til hefur veitt almenningi best lífskjör. Hvað gott getur komið frá þessum mönnum sem hvorki vilja sjá né heyra það sem nú er að ger- ast og eru eins og nátttröll sem urðu að steini þegar sólin skein á þau. Sannleikurinn sem nú blasir við kommúnistunum virðist engin áhrif hafa á þá. Húsmóðir. úr veröldinni verður alltaf stærri og stærri sem gistir ísland og þar eru menn með allskonar hörundslit allstaðar að úr heiminum. Aldrei hafa sést fleiri ferðamannatjöld hér en nú, hótel og aðrir dvalarstaðir hafa haft nóg að gera og jafnvel hefur þurft að nota gamla barna- skólann. Þetta er svo ört að það hlýtur að vera kominn tími til að setja þessum hóp einhveijar skorður, láta fylgjast með yfirferð hans svo hann bókstaflega yfirtaki ekki landið okkar. Eins og önnur undur getur það skeð. Er ekki rétt að opna aug- un og skoða það yiánar. Arni Helgason Lögregl- an hefiir reynst vel Til Velvakanda. Mig langar til að koma á fram- færi þakklæti til lögreglunnar í Reykjavík sem hefur reynst mér mjög vel undanfarin ár. Þeir hafa komið undantekningarlaust og keyrt son minn sem hefur átt við mikil geðræn vandamál að stríða og hefur dvalist á sjúkrahúsi. Þar sem lögreglunni er oft hallmælt langar mig til að það komi fram að þeir eru sérstaklega prúðir og kurteisir menn í alla staði, og mjög mannlegir. Þakklát móðir. Eins og nátttröll sem urðu að steini Víkverji skrifar Oðum nálgast mesta umferðar- helgi ársins, verzlunar- mannahelgin. Einnig má búast við því að sú helgi, sem lifir fram að verzlunarmannahelginni verði þung hvað umferð varðar. Því er aldrei nógsamlega fyrir mönnum brýnt að fara varlega og verður fólk að haga sér í samræmi við átak Slysa- varnafélags íslands, sem ber ein- kunnarorðin: „Komum heil heim!“ Átak Slysavarnáfélagsins er mjög lofsvert, svo sem raunar var von og vísa frá þeim aðila. En átak- ið sjálft er ekki nægjanlegt eitt sér; til þess að það verði annað en upphrópunin tóm, þurfa allir lands- menn að virða það og taka höndum saman með félaginu, takmarkið er að slysum sé úthýst úr íslenzku samfélagi. í því sambandi er vert að hafa í huga máltækið „flýttu þér hægt“. Hannes Þ. Hafstein, forstjóri SVFÍ, reit hinn 5. júlí síðastliðinn, um það leyti er átaki félagsins „sem alla varðar“ var hleypt af stokkun- um, grein í Morgunblaðið. Millifyr- irsagnir í grein hans segja mikið, en þær voru: „Akstur er dauðans alvara“, „Akstur um öræfaslóðir krefst aðgæslu", „Varúð við ár og vötn“ og „Göngum vel um landið — komum heil heim“! Víkveiji vill gera niðurlagsorð Hannesar að sínum, en hann segir í greininni: „í ár fögnum við norrænu um- hverfisári og á þeim vettvangi ber okkur skylda til að taka höndum saman og íhuga þá ábyrgð sem þar felst. Frá mörgum hinna fegurstu staða eru sagðar miður fagrar sög- ur um sóðaskap, spjöll á gróðri jarð- ar og skemmdarverk á ýmsum hlut- um. Umhverfisvernd er hugtak sem alla varðar og verum minnug þess að ill umgengni, trassaskapur og hirðuleysi eru augljósir slysavaldar. Göngum því vel um landið. Þessa dagana er að þefjast Iandsátak Slysavarnafélags íslands undir kjörorðinu „Komum heil heim“. SVFÍ hvetur ykkur til átaks. Á þessum fjölþætta vettvangi þarf samstöðu og samhug hvers og eins einasta ferðamanns og vegfaranda. Slysavarnafélag Islands árnar ykkur góðrar ferðar, ánægjulegrar útivistar og gleðilegs sumarleyfis. Festum okkur í minni „að vegurinn heiman er vegurinn heim“, ef við sýnum aðgát og tillitssemi á öllum leiðum. „Komum heil heim“.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.