Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
Isaljörður:
U ndirbúningur að
jarðgangagerð kom-
inn í fullan gang
ísafirði.
UNDIRBÚNINGUR að jarðgangagerð undir Breiðadals- og Botns-
heiðar er nú kominn í fullan gang. Búið er að leggja bráðabirgða-
veg að munnanum í Tungudal við Isaljörð og unnið er að færslu á
neysluvatnsstíflu í Tunguá, en núverandi stífla er rétt neðan við
jarðgangamunnann. Gert er ráð fyrir að forval á verktökum fari
fram í haust, verkið boðið út um áramót og samningar undirritaðir
snemma á næsta sumri, þannig að verktakinn verði kominn vel inn
í bergið fyrir veturinn.
Vegagerðin mun sjálf sjá um að
sprengja gjá að fjallinu við alla
munnana og verður byijað á því
verki í haust. Hugsanlegir verktak-
ar eru þegar farnir að hugsa sér
til hreyfings, þannig voru fulltrúar
Krafttaks, sem grófu göngin í
Ólafsfjarðarmúla, hér fyrir nokkru
og nú í vikunni voru hér fulltrúar
frá tveim stórum sænskum verk-
takafyrirtækjum, Kraftbyggarna
og Rectus. Þeir héldu fundi með
atvinnumálanefnd og verktökum og
Sauðárkrókur:
Sláturhús
Slátursam-
lagsins fær
löggildingu
Sauðárkróki.
NÚ I byrjun september fékkst
loks frá heilbrigðisyfirvöldum
löggilding á sláturhús Slátur-
samlags Skagfirðinga.
Um margra ára skeið hefur verið
sótt um þessa löggildingu sem ekki
hefur fengist fyrr en nú.
Gerðar hafa verið miklar endur-
bætur og lagfæringar á húsnæði
sláturhússins, þannig að nú uppfyll-
ir það allar ströngustu kröfur sem
gerðar eru til þess að framleiða
fyrsta flokks matvæli.
Að sögn Birgis Bogasonar fram-
kvæmdastjóra, er þetta stór áfangi
sem nú hefur náðst, þar sem nú
er loks hægt af fullri alvöru að
snúa sér að þeim framkvæmdum
sem menn hafa ekki fram að þessu
lagt út í að gera, vegna óvissu um
framtíð fyrirtækisins.
Áætlað er að slátra nú í haust
um 14.500 fjár og er það svipaður
fjöldi og á undanförnum árum.
Gert er ráð fyrir að slátra um 450
fjár á dag og starfa við það 28
manns. Áætlað er að slátrun ljúki
um 20. október.
Að jafnaði, utan sláturtímans,
starfa hjá fyrirtækinu 3 menn, en
við stórgripaslátrun, sem fram fer
að jafnaði einu sinni til tvisvar í
mánuði árið um kring starfa 10-12
menn. Sláturhússtjóri er Smári
Borgarsson.
- BB.
V estmannaeyjar:
Fjölgun íbúa
V cstmannacyjum.
ÍBÚUM í Eyjum hefur fjölg-
að um 0,7% frá 1. desember
sl., samkvæmt upplýsingum
frá Upplýsingamiðstöð
Vestmannaeyjabæjar.
íbúar í Eyjum nú eru 4.858
og er íbúafjöldinn nú því sá
mesti síðan fyrir eldgosið 1973
en þá voru íbúarnir 5.179 tals-
ins.
Grímur
lýstu yfir vilja sínu t til verulegs
samstarfs við heim inenn við gerð
ganganna og san -t.arfsverkefna á
öðrum sviðum atvmnumála ef þeir
á annað borð kæmu hingað.
- Úlfar
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
Unnið við sjóvarnagarða á Flateyri
Unnið er fyrir um 9-10 milljónir króna við sjóvar-
nagarða á Flateyri. Lokið verður við 40 metra
sem átti eftir að bæta við smábátahöfnina, en
um 300 metra kafla við sjóvarnargarð á Brimnes-
vegi verður framhaldið frá því sem var í fyrra.
Þá er eftir annar eins kafli eða um 300 metrar
sem reynt verður að fá fjármagn til þess að klára
á næsta ári.
íslensk
tækni fyrir
nlþjóðlegan
sióvnrútveg!
50 íslensk iðnfyrirtæki kynna
framleiðslu sína á Alþjóðlegu
sjávarútvegssýningunni í
Laugardalshöll 19.-23. september.
íslenski fiskiflotinn sækir á fiskimið
sem eru tvímælalaust meðal hinna
erfiðustu í heimi. Fiskframleiðendur
og útvegsmenn lúta fiskveiðistefnu
sem er strangari en víðast annars
staðar gerist, enda lífsafkoma heillar
þjóðar í veði. Þessir aðilar gera
ítrustu kröfur og hafna öllum
tilslökunum þegar þeir velja sér
atvinnutæki: Þeir velja íslenskt ef það
stendur til boða.
1/1 ICELAND
///w^
íslenskir þátttakend-
ur í sýningunni sam-
einast undir þessu
merki. JLíttu inn í íslensku
sýningarbásana og þú munt
sannfærast um að þegar um er að
ræða búnað, tækni og þjónustu, sem
tengjast sjávarútvegi og sjómennsku,
eru íslendingar í fremstu röð.
É
Félag íslenskra iðnrekenda
Hallveigarstíg 1
Pósthólf 1407
121 Reykjavik
Simi (91)27577
Póstfax (91)25380
Félag málmiðnaðarfyrirtækja
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími (91)621755
Félag dráttarbrauta og skipasmiðja
Hallveigarstig 1
Pósthólf 102
121 Reykjavik
Simi (91)621590
Póstfax (91)12742
///
Útflutningsráð islands
Lágmúla 5
Pósthólf 8796
128 Reykjavik
Sími (91)688777
Póstfax (91)689197
ARGUS/SÍA