Morgunblaðið - 19.09.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
Sérfræðingar óttast sam-
drátt í bresku efnahagslífí
St Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORY STUMENN í breskum
iðnaði hafa sagft Qármálaráð-
herranum, John Major, að sam-
dráttur sé þegar hafínn í bresku
efnahagslífi. Ýmsar tölur styðja
skoðanir þeirra.
í síðustu viku fór verðbólga í
Bretlandi í fyrsta sinn yfír 10% og
er þá miðað við verðbólgu frá því
Pólland:
Kreflast afsagn-
ar Jaruzelskis
Varsjá. Reuter.
PÓLSKIR hægrisinnar sögðust í
gær ætla að slá hring um forseta-
höllina í Varsjá og neyða Wojci-
ech Jaruzelski forseta til afsagn-
ar. Fulltrúum flokksins, KPN, var
ekki boðið til fundar pólskra
stjómmálaleiðtoga þar sem taka
átti ákvarðanir um kosningar og
innleiðingu fulls lýðræðis.
í gær hittust 23 pólskir stjórn-
málaleiðtogar á heimili Jozefs
Glemps kardinála og var aðal við-
fangsefni fundarins að tímasetja
nýjar þing- og forsetakosningar.
Einnig að semja um nýtt fyrirkomu-
lag kosninga er taki við af hring-
borðssamkomulaginu svonefnda frá
í fyrra og tryggi alfijálsar kosning-
ar. Talið er að tillaga um þingkosn-
ingar verði lögð fyrir þingið og kosn-
ingadagur verði tilkynntur á morgun
eða föstudag. Lech Walesa og Jaruz-
elski voru meðal fundarmanna og
einnig Tadeusz Mazowiecki forsæt-
isráðherra.
í ágúst 1989 til ágúst 1990. Verð-
bólga hefur ekki verið hærri í Bret-
landi í 10 ár. Grunnvextir hafa nú
verið 15% í eitt ár og engar horfur
eru á. að þeir lækki á næstunni.
T síðustu viku birtust tölur um,
að atvinnulausum hefur fjölgað
fímmta mánuðinn í röð í Bretlandi
og eru nú 1,6 milljónir. í ágúst sl.
dróst heildsala saman um 1,6%,
sömuleiðis dróst iðnaðarframleiðsla
saman í ágúst þriðja mánuðinn í
röð.
Að undanförnu hafa mörg bresk
stórfyrirtæki tilkynnt mun minni
hagnað, en búist hafði verið við.
ICI, stærsta iðnaðarfyrirtæki Bret-
lands, tilkynnti í sl. viku, að hagnað-
ur fyrir árið 1990 yrði minni en
árið 1989. Heildarverðmæti hluta-
bréfa þess lækkaði um 25 milljarða
ÍSK við þessa tilkynningu. Fjölda-
mörg bresk fyrirtæki hafa sagt upp
starfsmönnum í stórum stíl að und-
anförnu. Þrisvar sinnum fleiri bresk
fyrirtæki hafa verið tekin til gjald-
þrotaskipta í ár en í fyrra.
í síðustu viku átti fjármálaráð-
herrann fjölmarga fundi með for-
ystumönnum í bresku atvinnulífí. Á
þeim öllum kom fram það álit, að
enginn vafí væri á, að samdráttur
væri hafinn í bresku efnahagslífí
og bregðast yrði við honum fljótt
til að koma í veg fyrir kollsteypu,
eins og gerðist árin 1980-81.
Ástæðumar fyrir þessu ástandi
nú em fyrst og fremst þær, að
háir vextir höfðu fyrst í stað ekki
merkjanleg áhrif á stöðu fyrirtækja,
vegna þess að pundið lækkaði á
gjaldeyrismörkuðum. Það hefur
hins vegar hækkað verulega frá því
í apríl. Full áhrif hárra vaxta em
því að koma fram nú. Margir virð-
ast hafa treyst á, að vextir yrðu
lækkaðir í haust. Þegar engar horf-
ur eru á því, hefur verið bmgðist
við með harkalegum niðurskurði og
hagræðingu.
Vandi fjármálaráðherrans er sá,
að lækkaði hann vexti nú, tækju
fjármálamenn það sem uppgjöf í
baráttunni við verðbólguna, sem
myndi veikja sterlingspundið. Haldi
hann vöxtunum háum, eykst hætt-
an á vemlegum samdrætti í efna-
hagslífinu. Mikil verðbólga dregur
einnig úr líkum á, að Bretar gangi
inn í evrópsku myntsamvinnuna.
Engar líkur em taldar á lækkun
vaxta fyrr en í nóvember, sennilega
ekki fyrr en á næsta ári.
Reuter
Eins manns kafbátur
Starfsmaður „þýska sögusafnsins" í Austur-Berlín sýnir safngestum
heimasmíðaðan eins manns kafbát. Hann var smíðaður af Austur-Þjóð-
veija sem hugðist flýja á honum til Vestur-Þýskalands. Maðurinn
komst þó hvergi þar sem hann var handtekinn er hann hugðist láta
til skarar skríða.
Winnie Mandela ákærð fyr-
ir mannrán og líkamsárás
Jóhannesarborg. Reuter.
WINNIE Mandela, eiginkona Nelsons Mandela, varaforseta Afríska
þjóðarráðsins, var í gær ákærð fyrir mannrán og líkamsárás í
máli Stompie Seipei, svarts unglings sem fannst látinn í skurði í
Soweto í janúar 1989.
Lík Seipei var illa leikið þegar
það fannst og hafði hann augljós-
lega verið skorinn á háls. „Mand-
ela-fótboltafélagið“, nokkurs kon-
ar lífvörður Winnie Mandela, var
Sovétmenn flytja orrustu- og
sprengjuþotur til Kóla-skaga
Ósló. Reuter.
TALSMAÐUR norsku hersljórnarinnar skýrði frá því í gær að
Sovétmenn hefðu flutt ótiltekinn Qölda orrustu- og sprengjuþotna
til Kóla-skaga en Norðmenn telja að verið sé að endumýja tækja-
kost Rauða hersins á norðurslóðum.
Talsmaðurinn, Ame Skjaerpe
majór, sagði að 12 til 24 þotur
af gerðinni Su-17 hefðu verið
fluttar til Kóla-skaga nú í sumar.
Herfræðingar Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) nefna otur þessar
„Fitter H“ en þær eru hannaðar
bæði til eftirlitsflugs og sprengju-
árása. Sagði talsmaðurinn að flest
benti til þess að flugvélamar hefðu
áður verið í Mið-Evrópu. Þá kvað
hann herstjórnina á Kóla-skaga
hafa fengið ótiltekinn fjölda þotna
af gerðinni SU-25 eða „Frogfoot“
í sumar. Þetta em orrastuþotur,
sérhannaðar til lágflugs og þykja
nýtast sérlega vel í ijalllendi enda
notuðu Sovétmenn þær í stríðinu
í Afganistan. Skjaerpe majór
kvaðst ekki vita hvort þoturnar
hefðu upphaflega verið staðsettar
þar.
Norðmenn telja að Sovétmenn
séu að endurnýja og efla tækja-
kost heraflans á Kóla-skaga sem
nefndur hefur verið mesta
víghreiður veraldar. í maímánuði
skýrðu norsk hermálayfírvöld frá
því að 40 orrastiiþotur, sem borið
geta kjarnorkuvopn, hefðu verið
fluttar til Kóla-skaga frá Ung-
veijalandi.
grunað um ódæðið og við húsleit
hjá henni fundust fingraför og
blóðug föt sem virtust styðja gran-
semdirnar. í síðasta mánuði var
Jerry Richardsson, leiðtogi lífvarð-
anna, dæmdur til dauða fyrir morð
á Seipei.
Samkvæmt vitnaframburði var
Seipei, sem einungis var fjórtán
ára gamall, haldið föngnum á
heimili Winnie Mandela. Þar var
hann barinn og kvalinn á ýmsan
máta fyrir þær sakir að vera upp-
ljóstrari á vegum stjórnvalda. Sum
vitni héldu því fram að Winnie
hefði sjálf tekið þátt í barsmíðun-
um. Hún hefur neitað því. Nýverið
þegar hún var á ferð um Banda-
ríkin sagðist hún myndu fagna því
ef hún yrði dregin fyrir rétt því
þá fengi hún tækifæri til að
hreinsa mannorð sitt.
Athæfí lífvarða Winnie vakti á
sínum tíma reiði innan Afríska
þjóðarráðsins og sögðust helstu
samtök gegn aðskilnaðarstefnunni
ekkert vilja með hana hafa eftir
þetta. í nokkra mánuði eftir morð-
Winnie Mandela
ið fór lítið fyrir Winnie en hún kom
aftur fram í sviðsljósið þegar mað-
ur hennar var látinn laus fyrr á
þessu ári. Nelson Mandela sem enn
sat í fangelsi þegar fyrrnefndir
atburðir áttu sér stað hefur sakað
yfirvöld um ofsóknir á hendur eig-
inkonu sinni í þeim tilgangi að
koma óorði á Afríska þjóðarráðið.
Winnie starfar nú sem yfirmaður
félagsmáladeildar ráðsins.
Félagi í bandaríska herráðinu rekinn úr starfí:
Bush sagður vilja kveða mður
vangaveltur um árás á Irak
Washington. Reuter.
BROTTREKSTUR Michaels Dugans, fulltrúa flughersins í her-
ráði Bandaríkjanna, vegna ógætilegra ummæla í blaðaviðtali sýn-
ir að mati fréttaskýranda Rcuters-fréttastofunnar að Bandaríkja-
stjórn sé sérlega umhugað um að kveða niður vangaveltur um
fyrirhugaðar sprengjuárásir á írak eða morð á Saddam Hussein.
Það hefur einungis gerst einu sinni áður að félaga í herráðinu
sé vikið frá störfum.
Árið 1949 var Louis Denfeld,
fulltrúi flotans í herráðinu, rekinn
vegna deilna við þáverandi varn-
armálaráðherra, Louis A. John-
son, um útgjöld ti! hermála. Billy
Mitchell, yfirmaður flughersins á
þriðja áratugnum, var leiddur fyr-
ir herrétt og Iækkaður í tign
vegna gagnrýni sinnar á afstöðu
stjórnvalda til flughersins. Einnig
má minnast þess að Douglas
MacArthur hershöfðingi, yfirmað-
ur bandaríska heraflans í Austur-
löndum fjær í seinni heimsstyij-
öldinni og síðar í Kóreustríðinu,
var rekinn úr embætti árið 1951
í forsetatíð Harry S. Trumans.
McArthur hafði gagnrýnt stefnu
Bandaríkjastjómar í málefnum
Austurlanda fjær.
Michael Dugan var rekinn úr
starfí á mánudag vegna ummæla
í viðtölum við dagblöðin Los
Angeles Times og Washington
Post. Hann komst svo að orði að
yfirmenn Bandaríkjahers hefðu
komist að þeirri niðurstöðu að
eina raunhæfa leiðin til að flæma
íraka frá Kúvæt ef stríð brytist
út væri að beita flughernum.
Meðal annars þyrftu að koma til
miklar loftárásir á Bagdad þar
sem Saddam Hussein sjálfur, ætt-
ingjar hans og jafnvel hjákona
væru skotmarkið. Dick Cheney
varnarmálaráðherra brást við með
því að segja að Dugan hefði brot-
ið þá reglu yfirmanna hersins að
ræða aldrei opinberlega um ein-
stök skotmörk hvað þá fyrirhug-
aðar árásir á nafngreinda ein-
staklinga. Fréttaskýrandi Reut-
ers-fréttastofunnar lætur að því
liggja að brottreksturinn sýni
helst hversu bandarískum stjóm-
völdum sé umhugað um að kveða
niður getgátur um árás á írak.
Dagblaðið The Daily Telegraph
segir að miklu ráði að ummæli
Michael Dugan
Dugans komi á viðkvæmum tíma
þegar Bush leggur mikið upp úr
að fá fjölmiðla og almenning á
sitt band í taugastríðinu gagnvart
írak. Sjálfur sagði Dugan að það
hefði verið sín persónulega skoðun
en ekki stefna stjórnarinnar að
reynt skyldi að koma Hussein fyr-
ir kattarnef.