Morgunblaðið - 19.09.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
21
Morgunblaðið/KGA
Fjöldi gesta var viðstaddur vígsluna. Fremst sjást frá vinstri, Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, Astríður Thorarensen, borgarsljórafrú, Ebba Sigurðardóttir, biskupsfrú, og herra Ólaf-
ur Skúlasson, biskup íslands.
Nýtt safnaðarheimili
Dómkirkjunnar vígt
NÝTT safnaðarheimUi Dóm-
kirkjunnar í gamla Iðnskólanum
við Vonarstræti var vígt við há-
tíðlega athöfn eftir hádegi á
laugardag. Fjöldi gesta var við-
staddur vígsluna.
Athöfnin, sem fram fór í safnað-
arheimilinu, hófst með því að Kjart-
flaorgunblaoio/KAX
an Gunnarsson, formaður bygging-
arnefndar endurbyggingar hússins,
afhenti Auði Garðarsdóttur, form-
anni sóknarnefndar kirkjunnar,
lyklavöld að safnaðarheimilinu. Þá
lásu Dómkirkjuprestar, Hjalti Guð-
mundsson og Jakob Ágúst Hjálm-
arsson, ritnjngarorð og biskup ís-
lands, séra Ólafur Skúlasson, bless-
aði húsið. Að því loknu söng Dóm-
kórinn nokkur lög og Davíð Odds-
son, borgarstjóri í Reykjavík, flutti
ávarp. Einnig fjallaði Leifur Blum-
enstein, arkitekt, um sögu hússins.
Viðgerðum, sem staðið hafa yfir
á gamala Iðnskólanum í tæpt, er
nú lokið.
Auður Garðarsdóttir, formaður
sóknarnefndar Dómkirkjunn-
ar, og Kjartan Gunnarsson, for-
maður byggingarnefndar end-
urbyggingar hússins, á þriðju
hæð hússins en þar er rúmgóð-
ur salur.
Minnisvarði afhjúp-
aður í Neskaupstað
Neskaupslað.
MINNISVARÐI um þá tólf ein-
staklinga sem fórust í snjóflóð-
unum sem féllu hér á byggðar-
lagið 20. desember 1974, var
afhjúpaður hér á staðnum, laug-
ardaginn 15. september sl.
Athöfnin sem var mjög hátíðleg
hófst með söng kirkjukórsins og
naut hann aðstoðar félaga úr
skólahljómsveit Neskaupstaðar. Þá
minntist sóknarpresturinn séra
Svavar. Stefánsson, hinna látnu.
Sigfinnur Karlsson, formaður
verkalýðsfélags Noi-ðfirðinga, af-
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sigfinnur Karlsson, formaður verkalýðsfélags Norðfirðinga, ávarp-
aði viðstadda.
'hjúpaði minnisvarðann og ávarpaði
síðan viðstadda og rakti aðdrag-
andann að því að verkalýðsfélagið
ákvað að kosta gerð og uppsetn-
ingu þessa minnisvarða.
Minnisvarðinn sem er um þrír
metrar á hæð stendur í skrúðgarði
bæjarins, hann prýðir listaverk eft-
ir Tryggva Ólafsson myndlistar-
mann.
Það var Marmemex í Hafnar-
firði, sem annaðist gerð minnis-
varðans. Talsverður fjöldi fólks var*’
viðstaddur athöfnina.
- Ágúst
Bjarnarfj örður:
Upphleðslu og endur-
gerð á Gvendarlaug lokið
Laugarhóli.
UPPHLEÐSLU og endurgerð á
setlauginni, sem forðum hét
Klúkulaug í Bjarnarfirði, lauk
föstudaginn 14. september, en
eftir að Guðmundur Arason
Hólabiskup vígði hana snemma á
13. öld hefír hún jafnan verið
kölluð Gvendarlaug, eða síðar
Gvendarlaug hins góða. Þetta er
baðlaug eða setlaug, þar sem
setið er á móbergsbrún niðri í
vatninu og fæturnir hafðir í skál
sem vatnið hefír grafið í móberg-
ið. Hleðsluna annaðist Sveinn
Einarsson frá Ilnjóti með aðstoð
Lionsmanna á Hólmavík og
heimamanna.
Eina af þeim mörgu uppsprett-
um, sem Guðmundur Arason Hóla-
biskup vígði á sínum tíma, er að
finna norður í Bjarnarfirði á Strönd-
um. Er þetta ríflega 35° heit set-
laug, svipuð að ummáli og Snorra-
laug í Reykholti, nema hv.að vatns-
uppsprettan er í lauginni sjálfri og
hefir í aldanna rás holað móbergið
svo sérstök skál er í laugirini til að
hafa fæturna í. Var hún notuð af
Bjarnfirðingum til þess meðal ann-
ars að fara í jólabað í á hverri Þor-
láksmessu, auk þess sem vatn hefir
verið tekið úr henni allt fram á
þennan dag til að gefa sjúkum.
Á þessari öld var svo lauginni
hrundið saman, eða hleðslum henn-
ar, svo búpeningur færi sér ekki
að voða í henni. Fyrir þrem árum
setti svo Lionsklúbbur Hólmavíkur
á dagskrá sína að gera laugina upp
í upprunalegri mynd. Var hafist
handa um verk þetta í síðustu viku,
en hinsvegar hafði laugin verið frið-
lýst um ári áður. Það var Sveinn
Einarsson frá Hnjóti, nú búsettur á
Egilsstöðum, sem fenginn var til
verksins, að ábendingu þjóðminja-
varðar. Auk hans unnu að verkinu
undir stjórn hans nokkrir Lions-
menn og Bjarnfirðingar. Varð verk-
inu þannig lokið á rúmum þrem
dögum.
Þegar hleðsla laugarinnar var
nánar aðgætt, kom í ljós gróp sem
náði nær allan hringinn og sýndi
greinilega hvar brún fyrri hleðslu
hafði verið. Var því nýja hleðslan
sett á þessa gróp í móberginu. Var
notað allt gijót sem fyrir var og
lítið eitt sótt til viðbótar. Síðan var
hellum raðað á brúnir hennar og
tyrft að svo hún félli sem best inn
í landslagið, eins og hún mun alltaf
hafa gert.
Þetta er annað verkið sem Lions-
klúbbur Hólmavíkur tekur að sér
við varðveislu og viðhald gamalla
minja á svæði sínu. Áður hafði ver-
ið hlaðið upp sæluhús á Steingríms-
fjarðarheiði, sem er hlaðið úr gijóti,
með torfþaki.
Vogum.
ATVINNUMÁL tóku mikinn
tíma á síðari degi 13. aðalfundar
sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum sem haldinn var í Vogum
um helgina. Meðal annars fór
mikill tími í umræður um tillögu
Njarðvíkinga um framtíðarskip-
an samvinnu sveitarfélaganna í
stóriðjumálum, og voru fundar-
menn ekki á eitt sáttir í þeim
efnum. Talið var að málið þyrfti
ítarlega skoðun og því vísað til
Síðar stendur svo til að merkja
laugina, girða umhverfis hana og
stjórnar sambandsins.
Umhverfismál tóku einnig mik-
inn tíma og telur fundurinn að sveit-
arfélögin verði að leggja mun meiri
áherslu á þennan málaflokk. I
ályktun frá fundinum er vakin at-
hygli á slæmu ástandi frárennslis-
mála og sveitarfélögin hvött til að
leita leiða til úrbóta.
Fundurinn samþykkti að stofna
menningarsjóð Suðurnesja, en lilut-
verk sjóðsins verði meðal annars
sjá til þess að ferðamenn geti skoð-
að úthluta peningum til listamanna
og veita verðlaun.
í lok fundarins voru eftirtaldir
tilnefndir í stjórn sambandsins:
Jónína Guðmundsdóttir frá
Keflavík, Kristján Pálsson frá
Njarðvík, Sigurður Jónsson frá
Gerðahreppi, Sigurður Bjarnason
frá Miðneshreppi, Bjarni Andrésson
frá Grindavík, Jón Gunnarsson frá
Vatnsleysustrandarhreppi og Borg-
ar Jónsson frá Hafnahreppi. EG.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum:
Umræður um atvinnu-
málin tóku mikinn tíma