Morgunblaðið - 19.09.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
27
Athugasemd vegna frétta um Qölda
nýstúdenta við Háskóla Islands
Þórður Kristinsson
framk væmdastj óri
kennslusviðs.
Miðvikudaginn 12. september sl.
birtist frétt á baksíðu Morgunblaðs-
ins undir fyrirsögninni „Háskóli Is-
lands: Færri nýnemar en í fyrra“.
Fréttin er höfð eftir nemendaráði
Háskólans. Sagt er að skráðir ný-
nemar á fyrsta ári séu nú 1.722
en hafi verið 1.983 að lokinn skrán-
ingu í fyrra. Tekið er fram að skrán-
ingu ljúki á næstu dögum og muni
því nýskráðum fjölga eitthvað frá
þeim tölum sem frá greinir í frétt-
inni. Tíundað er hvernig færri
nýskráningar birtast í einstökum
deildum, en að örlítið fleiri séu nú
skráðir á fyrsta ári í lagadeild og
tannlæknadeild en í fyrra. Ef ein-
ungis er horft á töiurnar sem fram
eru bornar í fréttinni er þessi sam-
anburður réttur, en hins vegar er
þess að geta, sem ekki er nægilega
skýrt í fréttinni, að tölurnar um
nýskráningu nú og . tölurnar um
nýskráningu frá því í fyrra eru alls
ekki sambærilegar. Ástæðan er sú
að þær eru ekki lesnar úr nemenda-
skránni á sambærilegu vinnslustigi
gagna. Skrásetning nýnema í Há-
skóla íslands háskólaárið 1990-91
fór fram frá 1.-29. júní 1990. Upp-
lýsingar um fjölda nýnema sem
skrá sig eru grunnur alls skipulags
kennslu 1. árs á komandi hausti.
Eftir að skrásetningartímabilinu
lauk hafa hins vegar borist margar
beiðnir um nýskráningu. Hið sama
var uppi á teningnum í fyrra og
hefur verið undanfarin ár. Slíkar
beiðnir um undanþágur frá skrá-
setningarreglum baka ýmis vand-
kvæði við skipulag háskólaársins
sem í hönd fer. Þær eru fyrst sendar
viðeigandi háskóladeild til umsagn-
ar og afgreiðslu og síðan sendar
nemendaskrá til úrvinnslu. Af-
greiðslan og úrvinnslan tekur tíma
þar sem m.a. þarf að taka tillit til
aðstæðna í hverri deild fyrir sig og
meta hvort unnt sé að bæta við
fleiri nemendum. Samþykktar und-
anþágubeiðnir um skráningu eru
færðar í nemendaskrá jafn óðum
og þær berast frá deildum. Tölur
um flölda skráðra stúdenta hafa
þannig breyst frá degi til dags frá
því auglsytu skrásetningartímabili
lauk í lok júní og eiga reyndar enn
eftir að breytast eftir að úrslit alira
haustprófa liggja fyrir í byrjun
oktpber, en þá er nokkuð um að
nemendur endurskrái sig sem ný-
nema.
Þannig skiptir máli er tölur er
bornar saman frá ári til árs að þær
séu lesnar úr nemendaskrá á sam-
bærilegu vinnslustigi. Talan 1.722
í fréttinni var lesin úr nemendaskrá
5. september 1990, en þá átti eftir
að færa inn töluverðan fjölda und-
anþágubeiðna og u.þ.b. 30 erlendra
stúdenta, auk þess sem úrslit haust-
prófa voru ekki kunn og eru ekki
enn. Talan 1.983 frá í fyrra var
lesin um miðjan nóvember 1989
löngu eftir að lokið var að afgreiða
allar undanþágubeiðnir og úrslit
haustprófa lágu fyrir.
Þar eð kennsla í flestum deildum
Háskólans er nú hafin eða að hefj-
ast er ekki unnt að veita undanþág-
ur frá skrásetningarreglum eftir 14.
september 1990. Sæmilega áreið-
anlegar tölur um fjölda nýnema og
þar með heildarfjölda stúdenta við
Háskólann á komandi haustmisseri
hafa því ekki legið fyrir fyrr en nú,
þ.e. eftir 14. september. Þessar töl-
ur eiga þó enn eftir að breytast
eftir að úrslit haustprófa liggja fyr-
ir, svo sem fyrr greinir. Á vormiss-
eri er síðan tekið á móti beiðnum
um skrásetningu 2.-5. janúar 1991.
Til fróðleiks fylgja hér tölur sem
unnt er að bera saman fyrir haust-
misserið í fyrra (tölur lesnar 21.
september 1989) og haustmisserið
sem nú fer í hönd (tölur lesnar 15.
september 1990).
Háskólaár Nýskráðir
(haustniis eri) .arlar Konur Alls
1989- 90: 859 1.004 1.863
1990- 91: 797 1.081 1.878
Heildarfjöldi
Karlar Konur Alls
2.012 2.408 4.420
2.133 2.690 4.823
Hörpuútgáfan hefur endurútgef-
ið bókaflokkinn „Leiftur frá liðn-
um árum“.
Leiftur frá liðn-
um árum I-III
endurútgefíð
HÖRPUÚTGÁFAN hefur endur-
útgefið í sérstakri gjafaöskju
bókaflokkinn „Leiftur frá liðnum
áruin“, þrjár bækur, samtals 620
bls. Safnað hefur Jón Kr. ísfeld.
í safni þessu eru fjölbreyttar frá-
sagnir af fólki og atburðum frá öllum
landshlutum. Birtur er margháttað-
ur þjóðlegur fróðleikur.
(Fréttatilkynning)
ATVINNUHUSNÆÐI
Hótel - veitingahús
Til sölu er lítið hótel á Norðurlandi. Tilvalið
f. fjölskyldu sem vill vinna að sjálfstæðum
rekstri og getur lagt fram fjármagn til kaupa
á eigninni á móti heimamönnum. Eignin er
laus nú þegar.
Upplýsingar gefnar í síma 95-12454 og skrif-
leg tilboð sendist í pósthólf 40, 530 Hvamms-
tanga, f. 25. september.
KENNSLA
Herrar!
Getum bætt við nokkrum herrum á herra-
námskeið, sem hefst nk. sunnudag.
IMýtt - Nýtt
„Vogue“ línan
Sérstakt námskeið í framkomu, göngu og
dansi hefst sunnudaginn 30. sept.
Upplýsingarfrá kl. 16.00-19.00, símar 37878
- 687480.
Kennaraháskóla Islands
kennara B.A. nám í
islands serkennslufræðum
Kennaraháskóli íslands mun, ef fjárveiting
og næg þátttaka fæst, bjóða upp á eftirfar-
andi nám í sérkennslufræðum sem hefst að
hausti 1991:
B.A. nám í sérkennslufræðum, fyrri hluti.
Þetta er hlutanám með starfi og tekur tvö
ár. Kennslan er í formi námskeiða utan
skólatíma (haust og vor) og fjarkennslu með-
an á skóla stendur. Námskeiðin verða að
líkindum haldin í heimavistarskóla utan
Reykjavíkur.
B.A. nám i sérkennslufræðum, síðari hluti.
Þetta er hlutanám með starfi og tekur tvö
ár. Kennslan er í formi námskeiða utan
skólatíma (haust og vor) og fjarkennslu með-
an á skóla stendur. Námskeiðin verða haldin
í heimavistarskóla á Norðurlandi.
Þetta er auglýst nú með ofangreindum fyr-
irvara til þess að þeir kennarar sem hug
hafa á þátttöku og vilja sækja um orlof
geti gert það fyrir 1. október nk.
Umsóknarfrestur verður auglýstur og nánari
upplýsingar veittar í febrúar nk. eftir að end-
anleg ákvörðun hefur verið tekin.
Rektor.
Innritun í almenna flokka
Kennslugreinar:
Verklegar: Fatasaumur, skrautskrift, postu-
línsmálun, bókband, myndbandagerð
(vídeo), hlutateikning og módelteikning.
Bóklegar: Danska 1.-4. fl., norska 1.-4. fl.,
sænska 1.-4. f!., enska 1.-4. fl., þýska 1.-4.
fl., franska 1 .-4. fl., ítalska 1 .-4. fl., spænska
1.-4. fl., latína, gríska, portúgalska, hebr-
eska, tékkneska, rússneska, kínverska,
stærðfræði, vélritun og bókfærsla.
Danska, norska, sænska fyrir börn 7-10
ára til að viðhalda kunnáttu þeirra barna sem
kunna eitthvað fyrir í málunum.
í almennu flokkunum er kennt einu sinni eða
tvisvar í viku, ýmist 2, 3 eða 4 kennslustund-
ir í senn, í 11 vikur.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Laugar-
lækjarskóla, Gerðubergi og Árbæjarskóla.
Kennslugjald fer eftir stundafjölda og greið-
ist við innritun.
Kennsla hefst í byrjun október.
Innritun fer fram 19. og 20. september kl.
17-20. Einnig 21. september kl. 16-18.
ICENNSLA • B Mllfl f S jp j IIÉlj
Vélritunarkennsla ncj aD tojJn [ n'
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Wélagslíf
St.St. 59909207 VIII Gþ.
I.O.O.F. 7 = 172919872 =
I.O.O.F. 9 = 172919872 =
REGLA MUSTERISRIDDARA
RMHekla
18. 4. SÚR MT
19. 9. VS. MT. A.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30
„í fótspor hans“. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ISLENSKI
ALPAKLÚBBURINN
Isklifurnámskeið
fyrir byrjendur
Kennd verður meðferð ísaxa,
brodda, klifurlína, belta, trygg-
inga o.fl. Kennsla fer fram I
Gígjökli eða Sólheimajökli.
Skráning á Grensásvegi 5, 19.
september, kl. 20.30 eða í sima
53410. Námskeiðsgjald kr.
3.500,- fyrir félaga, kr, 4.000,-
fyrir aðra.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður séra Gísli Jónas-
son. Allir velkomnir.
ÚTIVIST
GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMlAÍMSVARI 14604
Haustlita- og grillveisluferð í
Bása 21.-23. sept. og síðasti
áfangi Þórsmerkurgöngunnar.
Gistirými í Básum fer nú ört
minnkandi þessa helgi. Pantanir
óskast því sóttar fyrir lokun skrif-
stofu fimmtud. 20. sept. hvort
sem farið er föstudagskvöld eða
að morgni laugardags. Eftir
þann tíma verður ekki hægt að
halda frá gistiplássi í skála. Næg
pláss laus í ferðinni ef gist er í
tjaldi.
Vegna veisluhalda í Básum fell-
ur niður dagsferðin sunnudag
23. sept., Sleggjubeinsskarð -
Orrustuhóll .
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFELAG
# ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Sæluhús 60ára
Afmælishátíð í Hvftárnesi
laugardaginn 22. sept.
Ferðafélag íslands býður félaga
sína og aðra velunnara vel-
komna í Hvítárnes laugardaginn
22. september til að fagna 60
ára afmæli Hvítárnesskála, elsta
sæluhúss félagsins. Brottför er
frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin kl. 08.00. Verð farmiða
er kr. 2.000, frítt fyrir börn 15
ára og yngri með fareldrum
sínum.
Dagskrá:
Genginn lokaáfangi afmælis-
göngunnar Reykjavik - Hvitár-
nes, sem hófst 22. apríl í vor,
stutt og auðveld leið frá Svartá
og Ath. að það þurfa ekki allir
að taka þátt í göngunni. Minnst
verður Skúla Skúlasonar.
Boðið verður upp á afmæliskaffi
í þjóðlegum stíl. Dregið verður í
afmælisgetrauninni o.fl. verður
á dagskránni. Hver verður þús-
undasti þátttakandinn i afmælis-
göngunni?
Afmælisferð á Kjöl
21 .-23. september.
í tilefni afmælishátíðarinnar er í
boði helgarferð með brottför
föstudagskvöldið kl. 20.00. Verð
f. félaga kr. 5.000- en 4.500 f.
aðra. Einnig hægt að fara á
laugardeginum og dvelja til
sunnudags. Verð f. félaga kr.
3.150 en 3.500 f. aðra. Gist í
Hvitárnesskála eða Hveravöll-
um. Ferð fyrir þá sem ekki vilja
missa af neinu í Hvítarnesi um
helgina. Nauðsynlegt er að
panta fyrirfram, bæði dags- og
helgarferðina. í helgarferðina
þarf að taka farmiða á skrifstof-
unni.
Haustlitaferð í Þórsmörk
helgina 21 .-23. sept.
FrábæÁ gistiaðstaða í Skag-
fjörðsskála í hjarta Þórsmerkur.
Fjölbreyttar gönguleiðir til allra
átta um Þórsmörk, Goðaland og
víðar. Gönguferðir við allra hæfi.
Grill á staðnum. Fararstj. Hilmar
Þór Sigurðsson.
Haustlitaferð með uppskeru-
hátíð og grillveislu verður 5.-7.
okt. Allir með!
Dagur fjallsins, sunnudaginn
23. sept. Gengið á Esju kl.
13.00. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin.
Gengin Ferðafélagsleiðin á Ker-
hólakamb. Einnig hægt að koma
á eigin bílum að Esjubergi. Ath.
breytingu á dagskrá: Haustlita-
ferð í Heiðmörk er seinkað til
7. október.
Allir eru velkomnir í Ferðafé-
lagsferðir, en það borgar sig
samt að gerast félagsmaður,
árbók og fleiri friðindi fylgja.
Eignist nýútkomin spil með
merki Ferðafélagsins og styrk-
ið þar með byggingasjóð F.f.
Ferðafélag íslands,
félag fyrir þig.