Morgunblaðið - 19.09.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
31
Minning:
Andrés Sveinsson
„Ljúflyndi yðar verði hveijum
manni kunnugt.“
Þessi orð postulans koma fyrst í
hug þá hugsað er til Andrésar
Sveinssonar. Framganga hans öll,
orð hans og æði, samskipti við aðra
menn markaðist öðru fremur af
ljúflyndi, glaðlegu yfirbragði, já-
kvæðu hugarfari.
Ekki síst komu þessir skapgerð-
areiginleikar skýrt fram í baráttu
hans við erfiðan sjúkdóm, sem hann
barðist við hetjulegri baráttu und-
anfarin tvö ár.
Andrés Fjeldsteð Sveinsson, eins
og hann hét fullu nafni, var fæddur
í Reykjavík 12. desember 1934.
Andrés var góðum námsgáfum
gæddur og settist í Menntaskólann
í Reykjavík, en hvarf frá námi og
stundaði ýmis störf uns hann gekk
í þjónustu Pósts og síma 1963, þar
sem hann lauk símvirkjanámi. Vann
hann störf á því sviði um árabil eða
þangað til hann árið 1968 varð full-
trúi í aðalbókhaldi Pósts og síma
við erlend reikningsskil. Forstöðu-
maður símamáladeildar varð hann
svo 1977 og gegndi því starfi þar
til yfir lauk.
Náin kynni og samstarf hófust
við komu hans í bókhaldið, við urð-
um nágrannar, störfuðum á sömu
hæð og þurftum oft að bera saman
bækur, starfa okkar vegna. Var öll
okkar samvinna og samstarf með
hinum mestu ágætum og fyrir það
hljótum við að þakka.
Andrés tók upp þráðinn þar sem
hann hafði frá horfið, ias til stúd-
entsprófs utanskóla og settist í
Háskóla íslands þar sem hann lauk
BA-prófi í ensku. Var hann raunar
óþreytandi við að afla sér aukinnar
menntunar samhliða starfi sínu og
sótti námskeið um margvíslegustu
efni.
Hann var félagslyndur og átti
gott með að koma fyrir sig orði í
ræðu og riti. Af sjálfu leiddi, að
hann var kosinn til trúnaðarstarfa
innan ýmissa félagasamtaka, þar
með talið Félag íslenskra síma-
manna og var í ritnefnd Símablaðs-
ins. Ennfremur var hann kallaður
til kennslu við Póst- og símaskólann
og fórst það ekki síður vel úr hendi
en annað er hann tók að sér.
Við sem áttum því láni að fagna
að starfa með Andrési sjáum nú á
bak góðum félaga og samstarfs-
manni, sem gekk að sérhveiju verki
af trúmennsku og alúð. Vandvirkni
hans og snyrtimennsku voru engin
takmörk sett. Alltaf var hann giað-
ur í bragði, örlátur á græskulaus
spaugsyrði þegar honum sýndist
grámi hversdagsins vera að ná
fullmiklu valdi á mönnum.
Mannkostir hans voru slíkir sam-
Iðunn Jónsdóttir,
Húsavík — Minning
Fædd 17. júlí 1908
Dáin 9. september 1990
Atvikin höguðu því svo að hjónin
Iðunn Jónsdóttir og Sigurður Jak-
obsson frá Þórshöfn urðu nágrann-
ar mínir þegar þau fluttu til
Húsavíkur fyrir 12 árum. Þessi eldri
hjón buðu af sér einstaklega góðan
þokka vegna snyrtimennsku og
glaðlegs og hlýlegs viðmóts og við
fundum því strax að við höfðum
eignast góða granna. Iðunn bjó þá
þegar við heilsubrest og það var
því frekar að við Sigurður ræddum
saman yfír grindverkið milli garð-
anna um framgang jarðargróðurs
og önnur brennandi nytjamál.
Kynnin urðu að vísu ekki náin
fýrstu árin, enda var ég erlendis í
rúm tvö ár á fýrrihluta síðasta ára-
tugar. En síðustu fimm árin urðu
kynnin miklu nánari vegna van-
heilsu Iðunnar, en hún var astma-
veik og lagðist sá sjúkdómur mjög
þungt á hana, einkum síðustu árin.
Það er erfitt hlutskipti að vera
haldinn langvinnum sjúkdómi sem
stundum blundar, er þó ávallt ná-
lægur og getur blossað upp þegar
minnst varir eða þegar verst stend-
ur á. Það reynir á þrekið, á mann-
eskjuna. Þannig getur astminn ver-
ið og þannig lék hann Iðunni. Hún
þurfti oft að neyta allra krafta til
að komast í gegnum köstin. Það
þarf sterk bein til að standa slíkt
af sér um áraraðir.
Iðunn var greind kona og glæsi-
leg, skoðanaföst og vinaföst. Þrátt
fyrir sinn erfíða sjúkdóm hélt hún
ávallt reisn sinni og var alltaf svo
vel til höfð að eftirtekt vakti. Og
þrátt fyrir erfiðleikana var alltaf
stutt í glettnina og stundirnar með
henni urðu því gefandi og eftir-
minnilegar. Og það er fyrir þær sem
ég vil þakka með þessari stuttu
kveðju.
Eg votta eftirlifandi manni henn-
ar, Sigurði Jakobssyni, dætrum og
+
Þökkum innilega auðsýnda vináttu og
samúð við andlát og útför eiginkonu
minnar, fósturmóður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RAGNHEIÐAR ÞÓRÓLFSDÓTTUR,
Skipasundi 60,
Reykjavík.
Kristján J. Einarsson,
Erna M. Kristjánsdóttir, Simon Ágúst Sigurðsson,
Ómar Á. Kristjánsson, Anna Björg Kristbjörnsdóttir,
Sólveig Kristjánsdóttir, Sigþór Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
UNU M. HELGADÓTTUR
frá Steinum
íVestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja
og Hraunbúða fyrir góða umönnun.
Þórunn S. Ólafsdóttir,
Þorsteinn B. Sigurðsson,
Unnur K. Þórarinsdóttir,
Ólafur Þórarinsson,
Torfhildur Þórarinsdóttir,
Sigrún Þorsteinsdóttir,
Ingunn Sigurðardóttir,
Konráð Einarsson,
Kristín Jónsdóttir,
Kristján Gestsson
og barnabarnabörn.
Kvennalistinn:
011 börn hafi í raun
jafnan rétt til náms
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi frá Kvennalistanum:
„Kvennalistakonur telja mikil-
vægt að öll börn liafi í raun jafnan
rétt til náms og að löggjafinn og
túlkendur laganna hafi það ætíð
að leiðarljósi.
Kvennalistakonur fagna því
þeirri niðurstöðu umboðsmanns Al-
þingis að foreldrar skuli ekki bera
kostnað af námsgögnum barna í
skyldunámi.
Nauðsynleg forsenda þess að
skólayfirvöld á hverjum stað geti
setið vörð um jafnrétti til náms er
að í boði sé ijölbreytilegt úrval
námsbóka.
Kvennalistakonur skora á
menntamálaráðherra að sjá til þess
að Námsgagnastofnun verði efld í
hvívetna og þannig gert kleift að
uppfylla þær skyldur sem á hana
eru lagðar lögum samkvæmt.“
Stykkishólmur:
Fjölmenni við útför
Kiistins Friðrikssonar
fara góðri menntun, að gott var til
hans að leita, þegar góðra ráða og
stuðnings var þörf. Fyrir það ber
að þakka. Minningin um Andrés
Sveinsson er fyrst og fremst minn-
ing um góðan dreng, sem auðgaði
umhverfi sitt með jákvæðu og glað-
legu viðmóti, tók meðlæti jafnt sem
mótlæti af fullkomnu æðruleysi.
Sárastur er þó að sjálfsögðu
söknuður eiginkonu hans, Ragn-
hildar Þóroddsdóttur, sem stóð við
hlið honum í veikindastríðinu.
Blessuð sé minning Andrésar
Sveinssonar.
Bragi Kristjánsson,
Rafn Júlíusson.
fjölskyldum þeirra mína dýpstu
Gísli G. Auðunsson
Vegna gallaðrar myndbréfasend-
ingar á þessari grein, sem birtist á
laugardaginn var, er hún endurbirt.
^ Stykkishólmi.
ÚTFÖR Kristins Friðrikssonar,
frystihússtjóra hraðfrystihúss
Sig. Agústssonar hf., fór fram
8. þ.ni. frá nýju kirkjunni í Hólm-
inum, að viðstöddu því mesta íjöl-
menni sem hér hefir áður sést
við jarðarför.
Kristinn var frystihússtjóri hér í
nær 45 ár. Veður var gott þegar
athöfnin fór fram. Fólk kom til út-
fararinnar víða af landinu. Séra
Gísii H. Kolbeins flutti útfararræð-
una og jarðsöng og kirkjukór
Stykkishólmskirkju söng við. Org-
anisti var Colin Harper.
- Árni
+
Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúð vegna andláts
KRISTJÁNS JÓNSSONAR
frá Snorrastöðum.
Elísabet J. Sveinbjörnsdóttir,
Helga S. Sveinbjörnsdóttir,
Kristfn S. Sveinbjörnsdóttir,
Jóhannes B. Sveinbjörnsson,
Haukur Sveinbjörnsson,
Kristján Benjamínsson,
Baldur Gíslason,
Indriði Albertsson,
Grétar Haraldsson,
Björk Halldórsdóttir,
Ingibjörg S. Jónsdóttir,
Hulda Guðmundsdóttir,
Margrét J.S. Jóhannesdóttir.
Lokað
Vegna jarðarfarar verður skrifstofa Fasteigna-
mats ríkisins í Reykjavík lokuð eftir kl. 14.00
fimmtudaginn 20. sept. nk.
Fasteignamat ríkisins.
BIODROGA
YETURINN 1990
BIODROGA
fagnar vetrinum 1990 með
k 15 nýjum varalitum
k 15 nýjum naglalökkum
k og annarri litavöru í takt við jjað
Kynntu þér nýjungarnar á næsta
útsölustað BIODROGA
BIODROGA
lífrænar jurtasnyrtivörur
Útsölustaðir:
Stella Bankastræti, Brá Laugavegi, Ingólfsapótek Kringlunni, Snyrtistofan Rauðarárstíg
27, Snyrtistofa Lilju Grenigrund 7, Akranesi, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Eyfirð-
inga, Húsavíkurapótek, Vestmannaeyjaapótek.