Morgunblaðið - 19.09.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/\tr i/WMi \ 4/ frd 'L) IT
HIN SÖNNU AUÐÆFI
Til Velvakanda.
Til eru miklu meiri verðmæti en
gull og silfur. Það eiga mennirnir
ákaflega erfitt með að skilja. Þeir
láta glepjast af skínandi gulli og
tæru silfri, þó augað fái sig aldrei
satt af glysi og gersemum heims-
ins. Hamingjunnar er leitað þar sem
hana er síst að finna.
í Postulasögunni standa eftirfar-
andi orð Péturs postula: „Silfur og
gull á ég ekki, en það sem ég hefi
það gef ég þér: í nafni Jesú Krists
frá Nasaret, þá gakk þú.“ (Post.
3:6.) Pétur og Jóhannes postular
Krists voru á leið inn i helgidóminn
í Jerúsalem þegar þeir komu auga
á bæklaðan mann, sem beiddist ölm-
usu við dyr helgidómsins. Ætli sá
maður hafi búist við því að annað
en veraldleg auðæfi myndi gjöra
honum glaðan dag. Silfur og gull
fékk hann ekki, heldur eitthvað sem
var svo miklu dýrmætara en það,
heilbrigði á sál og líkama fyrir mátt
hins lifandi orðs Guðs og heilags
anda.
Kristur Jesús frelsari mannanna
sagði: „Leitið fyrst Guðs ríkis og
réttlætis, og þá mun allt þetta veit-
ast yður að auki.“ (Matt. 6:33.) Við
sem trúum á Guð eigum undursam-
lega fjársjóði sem aldrei geta metist
til fjár. Því er verðmætamat okkar
svo fjarska ólíkt verðmætamati
fólks sem eingöngu reiðir sig á sinn
eigin mátt og veraldleg gæði.
Nú kann einhver að hvá og lofa
sjálfstæði sitt og trúna á manninn.
Það er svo sem gott, en þunga
áherslu ber að setja í orðin í Biblí-
unni þar sem segir: Aldrei í þínum
mannlega mætti megnað færð þú
neitt. Aðeins fyrir minn anda segir
Drottinn.
Hinna sönnu auðæfa fá þeir ein-
göngu að njóta sem hafa krossfest
sig með Kristi og algerlega hafnað
heiminum. Þeir fá að taka við hinum
falslausu, raunverulegu og dýrlegu
gjöfum Guðs sem gefnar eru í kær-
leika Guðs sjálfs.
Fatlaði maðurinn við Fögrudyr
sem Postulasagan greinir frá tók
því á móti stærstu gjöfinni sem
honum hafði hlotnast þarna þar sem
hann beiddi ölmusu með veru sinni
við dyrnar. Margir höfðu eflaust
labbað framhjá, án þess að gefa
vesælum manninum og enn aðrir
gáfu í nísku sinni af auðæfum sínum
eingöngu til að geta sagst hafa
gefið aumum manni, því betlið var
einu almannatryggingar þess tíma.
En góðverk Péturs og Jóhannesar
sýnir örlæti Guðs þar sem Hann
gefur góðar gjafir. Enda hefur Guð
sagt: Biðjið og yður mun gefast.
Svo hefur Guð mælt gegnum son
sinn Jesú Krist. (Matt. 7:7.) Ávallt
getum við leitað Guðs í bæninni
hveijar svo sem kringumstæðurnar
eru. í sálmi 34:5 segir: Ég leitaði
Drottins og hann svaraði mér, frels-
aði mig frá öllu því er ég hræddist.
Bænin er því svo sannarlega ein af
stærstu gjöfum okkar himneska föð-
urs. Það veit fólk sem hefur reynt
mátt bænarinnar og fengið áþreif-
anleg bænasvör frá Guði, stundum
samdægurs eða næstu daga á eftir.
Margir hafa gert grín að svona sög-
um, en við sem til þekkjum vitum
að grínið og háðið stafar af van-
þroska og vanþekkingu. Því fólk
þarf að læra að hlusta á svar Guðs
með augunum og horfa með eyrun-
um, ef svo má að orði komast. Guð
Völivamótorar
= HÉÐINN =
<
tn
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
svarar nefnilega svo oft bænum
manna með atvikum í lífi mann-
anna. Á þann hátt fá blindir efnis-
hyggjumenn sýn, og daufdumbir
efahyggjumenn heyrn. Þá sjá menn
hönd Guðs að verki í lífi sínu sér,-
hvern dag. Þá fara menn að koma
auga á hin raunverulegu auðæfi.
Þá fara þeir fyrst óhaltir yfír frá
tómum heimi yfír i heim hinna sönnu
verðmæta og sækjast ekki lengur
eftir gulli og silfri. Þá safna menn
sér fjársjóðum á himni og öðlast
auðæfi með því að gefa alvöru gjaf-
ir. Þá þurfa menn ekki lengur að
spytja hvað það kosti lærisveina
Krists að gefa, því lögmál nútíma
hagkerfisins gildir ekki í ríki Guðs.
Þar auðgast menn á því að gefa,
og þeim mun stærri gjafir sem þeir
gefa, þeim mun meiri gleði verða
þeir aðnjótandi. Góðsemin verður
sem dagsverk verkamannsins og
launin sannur friður og gleði í eilífð-
arvist hjá Guði.
Lífsganga þeirra manna sem
fundið hafa Guð er því dásamlegur
tími. Þegar maðurinn hefur lotið
þeim sem hann um síðir verður að
lúta. Þegar hann hefur losað sig við
hrokann og stoltið, fellt grímu sína
og sett Guð sem æðasta takmark
lífsins. Vissulega mæta kristnum
mönnum erfiðleikar og raunir oft
þungar svo mjög og kannski fyrst
fyrir alvöru þá, eða eins og kristin
kona sem huggaði kristinn bróður
sagði: Guð hlýtur að elska þig heitt,
vegna þess að Satan íþyngir þér svo
mikið.
En kristnir menn læra að bera
krossa sína fyrir Krist og muna að
Hann þurfti að þjást svo mjög fyrir
þá á krossinum. En þeir vita líka
að erfiðleikarnir eru til þess að sigra
þá, eins og Kristur reis upp frá
dauðum, með Guðs hjálp.
Það fer vel á því að ljúka bréfi
þessu með orðunum í Jesaja þar sem
segir: Ég, Drottinn Guð þinn held
í hægri hönd þína og segi við þig:
Óttast þú eigi, ég hjálpa þér.“
(41,13.)
Þegar menn skilja orðið þennan
eilífa sannleika, og fá fullvissu um
það að Guð er sannarlega lifandi
og hinn sami í dag og í gær, þegar
menn skilja orðið hve hið sanna
verðmætamat er, þá geta þeir sjálf-
ir gengið inn um hinar miklu Fögru-
dyr á sínum eigin fótum, sem Guð
hefur blessað og gefið máttinn.
Einar Ingvi Magnússon
Þakstál með stíl
Plannja tm þakstál
Aðrir helstu sölu-og
þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi,
sími 78733.
Blikkrás hf, Akureyri,
sími 96-26524.
Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Vélaverkstaeðið Þór,
Vestmannaeyjum, slmi 98-12111
Hjá okkur færðu allar
nýjustu gerðir hins vinsæla
og vandaða þakstáls
frá Plannja. Un/al lita
og mynstra, m.a. Plannja
þakstál með mattri litaáferð,
svartri eða tigulrauðri.
ÍSV/OFT mfl
Dalvegur 20 Kópavogur
Pósthólf 435 • 202 Kópavogur
Sími 91-670455 • Fax 670467
AlúÖar þakkir til allra sem glöddu mig með
gjöfum, blómum, skeytum og hlýju handtaki
á'70 ára afmœli mínu 15. september 1990.
GuÖ blessi ykkur öll.
Kristján Guójónsson.
Til London með
íslenskum fararstjóra
fyriraðeins
kr. 33.900,- hjá Veröld
- íslenskir fararstjórar
- Ferðir til og frá flugvelli - Gisting á afbragðsgóðum hótelum
Brottfarir:
11. okt. 18 sæti laus
14. okt. 10 sæti laus
18. okt. 22 sæti laus
21.okt. 12sætilaus
25. okt. 16 sæti laus
AUSTURSTRÆT117,101REYKJAVÍK. SÍMI: (91) 622011 & 622200.
ÍiSj iTBBBMg