Morgunblaðið - 19.09.1990, Page 39
39
4
4
i
<
i
i
i
i
i
3
3
I
1
1
I
I
+
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 1990
HANDKNATTLEIKUR
ísland beint í HM í Svíþjóð?
Blöð í V-Þýskalandi velta því
nú fyrir sér hvar sameinað
landslið V- og A-Þjóðveija, Þýska-
land, leiki í heimsmeistarakeppn-
inni í handknatt-
leik - hvort það
leiki í A-keppninni
í Svíþjóð eða B-
keppninni í Aust-
FráJóni
Halldórí
Garðarssyni
íV-Þýskalandi
urríki. Blöðin eru ekki viss um
að Þýskaland fái samkvæmt regl-
um að taka sæti A-Þýskalands í
heimsmeistarakeppninni í handr
knattleik, sem fer fram í Svíþjóð
1993. Talið er að þýska liðið þurfí
að byija upp á nýtt og leika í
B-keppninni í Austurríki.
Ef svo er, sem er eðlilegur
gangur mála og eflaust eftir regl-
um alþjóða handknattteikssam-
bandsins, er íslendingar næsta
þjóð irin í HM í Svíþjóð og eiga
því að sleppa við að leika í B-
keppninni. Atta efstu sætin í HM
í Tékkóslóvakíu og það níunda ef
Svíþjóð var í einu af átta efstu
sætunum, gáfu farseðilinn til
Svíþjóðar. Svíar urðu heimsmeist-
arar og íslendingar í níunda sæti,
sem á að gefa Islandi rétt til að
taka sæti A-Þýskaiands.
V-Þýsku blöðin segja að Þýska-
land sé í erfiðum riðli í B-keppn-
inni í Austurríki. Leiki þar með
Dönum og Pólveijun og eitt bað-
ið, sem greinilega hefur ekki
reiknað með því að ísland fari
beint til Svíþjóðar, segir að síðan
sé leikið með íslandi og Noregi í
milliriðli.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA
Hvað sögðu þeir í Kaplakrikanum?
Hörður Magnússon fékk úr litlu að moða gegn sterkri vöm Dundee United.
Morgunblaðið/Einar Falur
Dýrkeypt
mistök
FH-INGAR léku sennilega einn
besta leik sinn á tímabilinu í
gær, en eftir að hafa náð for-
ystunni þegar á 3. mínútu,
sofnuðu þeir þrisvar illilega á
verðinum og var refsað jafnoft
fyrir með marki. 3:1 tap í fyruta
Evrópuleiknum er kannski ekki
svo slæmt, en tilfellið er að
ekki hefði þurft nema smá .
heppni til að úrslitin hefðu ver-
ið hagstæðari.
eikurinn fór fram við hin verstu
veðurskilyrði; norðan sex vind-
stig og upp í 9 vindstig í mestu
hriðjunum í 3 stiga hita — og völlur-
inn blautur. Það
Steinþór segir sig sjálft að
Guðbjartsson ekki er hægt að spila
skrífar knattspyrnu af viti
í slíkum stormi þvert
á völlirin, en leikmenn reyndu og
verður að virða viljann fyrir verkið.
Óskabyrjun
FH-Dundee Utd 1:3
Kaplakrikavöllur, Evrópukeppni fé-
lagsliða í knattspymu, þriðjudaginn 18.
september 1990.
Mark FH: Bjöm Jónsson (3.).
Mörk Dundee Utd.: Darren Jackson
(36.), Alex Cleland (77.) og Bjöm Jóns-
son (sjálfsm. 89.).
Dómari: Pat Kelly frá írlandi.
Línuverðir: Oliver Cooney og Jerry
McGrath frá írlandi.
Ahorfendur: Um 200 greiddu að-
gangseyri.
Lid FH: Halldór Halldórsson, Bjöm
Jónsson, Birgir Skúlason, Guðmundur
Hilmarsson, Guðmundur Valur Sig-
urðsson, Kristján Gíslason (Pálmi Jóns-
son vm. á 53.), Þórhallur Víkingsson,
Magnús Pálsson, Ólafur H. Kristjáns-
son, Andri Marteinsson og Hörður
Magnússon.
Lið Dundee United: Billy Thomson,
Maurice Malpas, Freddy van der Ho-
om, Alex Cleland, Brian Wélsh, Darren
Jackson (Patrick Connolly vm. á 80.),
Allan Preston, Raymond McKinnon,
Biily McKinlay, Mika-Matti Paatelain-
en og Jim Mclnally.
„Anægður að sigra í svona veðri“
Jim Mc Lean, yfirþjálfari Dundee
United, er að sögn kröfuharður og
sektar leikmenn miskunnarlaust, geri
þeir ekki sitt besta. Hann var órólegur
á hliðarlínunni, en þungu fargi var af
honum létt í leikslok.
„Eg er feginn að þetta er yfirstað-
ið. Það er ómögulegt að spila í stormi
sem þessum, nær vonlaust að hemja
boltann og því get ég ekki verið annað
en ánægður með að sigra í svona
veðri.“
Darren Jackson gerði sjöunda mark
sitt í átta leikjum, en var skipt út af
eftir annað mark Skotanna. „Við átt-
um erfiðan leik gegn Aberdeen um
helgina og mætum Rangers um næstu
helgi og þar þarf ég á öllum kröftum
hans að halda,“ sagði Mc Lean.
Maurice Malpas
„Okkur leist satt að segja ekki á
aðstæður. Við erum vanir kulda, en
ekki stormi. Við vanmátum mótheij-
ana ekki, en komum til að gera okkar
besta og það tókst miðað við aðstæð-
ur. Auðvitað erum við mjög ánægðir
„EG hef séð Djurgárden leika
og tel að við eigum góða mögu-
leika gegn Svíunum. Við mun-
um leika til sigurs," sagði Ás-
geir Elíasson, þjálfari Islands-
meistara Fram, sem leika gegn
Djurgárden á Laugardalsvellin-
um kl. 17.30 í dag í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Djurgárden leikur sænska
knattspyrnu, 4-4-2. Við mun-
með sigurinn og hvað sem seinni leikn-
um líður ættu mörkin að nægja til að
koma okkur í aðra umferð.
Við náðum ekki að spila okkar
bolta, viljum leika stutt með jörðinni
°g byggja upp, en það var vonlaust.
Hins vegar áttum við tiltölulega náð-
ugan dag í vörninni — en markið kom
okkur á óvart. Það er erfitt að dæma
FH-liðið, en miðað við baráttuna geri
ég ráð fyrir að það geti leikið mun
betur við betri aðstæður. “
Malpas lék sinn 50. Evrópuleik.
„Þessi leikur verður aðeins eftirminni-
iegur vegna veðursins — því gleymi
ég aldrei," sagði fyrirliðinn.
Bjöm Jónsson
„Ég er mjög sáttur við leik okkar
og krafturinn var mikill, en við misst-
um einbeitninguna undir lokin. Við
höfum verið með þennan leik í kollin-
um í eitt ár og þetta er einn af betri
leikjum liðsins. Okkur hefur gengið
ágætlega í æfingaleikjum erlendis og
því er ég ekkert smeykur við seinni
leikinn."
um reyna að nýta okkur aukamann-
inn á miðjunni og reynum að ná
völdum þar. Það er ekkert lið hér
á íslandi sem leikur sömu leikað-
ferðina og Djurgárden, þannig að
þetta verður nýtt fyrir okkur. Ef
við hittum á góðan leik og áhorfend-
ur styðja við bakið á okkur er allt
hægt,“ sagði Ásgeir.
Asgeir mun tilkynna byijunarlið
sitt í dag. Kristinn R. Jónsson er
orðinn góður af meiðslum á kálfa
Hörður Magnússon
„Jafntefli hefði ekki verið ósann-
gjamt. Það var ekkert að gerast hjá
þeim í stöðunni 1:1, en okkur var refs-
að fyrir smá mistök og kannski bökk-
uðum við of mikið í seinni hálfleik.
Þetta var fyrsti leikur okkar í Evrópu-
keppni, við gerðum það sem við gátum
og getum borið höfuðið hátt.“
Viðar Halldórsson, þjálfari
„1:1 eða 2:1 tap hefði verið viðun-
andi, en það var fúlt að fá þriðja
markið. Annars spiluðum við ágætlega
við hrikalegar aðstæður og reyndum
að láta boltann ganga. Ég átti von á
Skotunum sterkari og því drógum við
mennina á vængjunum meira til baka,
en hefðum hugsanlega getað sótt
meira.“
Halldór Halldórsson
„Ég er sáttur við þetta og við verð-
um að vera ánægðir þrátt fyrir kiaufa-
ieg mörk. Með svona leikjum í sumar
hefðum við örugglega orðið ofar í
deildinni."
og er klár í slaginn, en aftur á
móti mun Guðmundur Steinsson
ekki vera með. Hann er meiddur á
nára.
Snjórá Akureyri
Við rennum nokkuð blint í sjóinn
varðandi leikinn gegn Búlgörunum,
en það er vitað að CSKA Sofía er
mjög sterkt lið og leikreynt," sagði
Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, sem
Heimamenn náðu óvænt foryst-
unni í byijun leiks. Guðmundur
Hilmarsson tók aukaspyrnu, sendi
boltann inn í teig, Hörður Magnús-
son stökk upp með mótheija og allt
í einu féll boltinn beint fyrir framan
Björn Jónsson, sem skoraði örugg-
lega af stuttu færi — fyrsta mark
hans í sumar. „Ég hafði sagt
ákveðnum mönnum fyrir ieik að ég
myndi skora og fór fram með því
markmiði," sagði Björn við Morgun-
blaðið. Hann fékk reyndar annað
færi undir lok hálfleiksins; skallaði
að marki eftir aukaspyrnu Guð-
mundar, en Billy Thomson varði af
öryggi. Önnur marktækifæri voru
ekki til staðar. „Við áttum ekki von
á að þeim tækist að skora í leiknum
og allra síst á upphafsmínútunum,“
sagði Maurice Malpas, fyrirliði
Skotanna.
Markið hleypti lífi í menn og
skömmu síðar átti Darren Jackson
skot í stöng. Bæði lið reyndu að
spiia, Skotarnir voru aðgangsharð-
ari, en FH-ingar vörðust vel og
Halldór Halldórsson varði það sem
þurfti að veija.
leikur sinn fyrsta leik í Evrópu-
keppni í dag kl. 17.30 á Akureyri.
Veðurspá segir um að éljagangur
verði á Akureyri, en þar snjóaði í
gær.
Við munum því hefja leikinn
frekar varlega og sjá til hvernig
málin þróast,“ sagði Guðjón, sem
reiknaði með að KA gæti stillt upp
sínu sterkasta liði, en meiðsli hafa
hrjáð leikmenn KA-liðsins í sumar.
Mistök
Yfirleitt tókst heimamönnum að
halda boltanum sæmilega, alla vega
á eigin vallarhelmingi, en þeir
gleymdu sér í lok hvors hálfleiks
og ekki var að sökum að spyija.
Tvö fyrstu mörk gestanna voru
keimlík; FH-ingar á leið í sókn
misstu boltann við miðlínu, Skot-
arnir sneru vörn í sókn, brunuðu
upp og skoruðu — fyrst Darren
Jackson af stuttu færi eftir að
Raymond McKinnon hafði skotið í
stöng, og síðan Alex Cleland með
góðu skoti úr teignum eftir fyrir-
gjöf frá Finnanum Paatelainen.
Björn Jónsson átti loks síðasta orð-
ið — varð fyrir því óláni að senda
boltann í eigið mark eftir þunga
en snögga sókn, sem lauk með fyrir-
gjöf frá Alan Preston, í Björn og
inn. „Vörnin var illa á verði,“ sagði
Halldór Halldórsson. „Þetta var
klaufaskapur — menn áttu að loka
fyrr og hreinsa, þegar tækifærið
var til þess.“
Barátta
FH-ingar sýndu allt aðra hlið á
sér en lengst af í sunmr. Baráttan
var mikil, strákarnir hugsuðu um
að loka svæðum og byggja upp
sóknir, þó það væri erfitt aðstæðna
vegna. Vörnin var yfirleitt traust
sem og miðjan, en framlínumenn-
irnir fengu úr litlu að moða. FH á
ekki möguleika á að komast áfram,
en liðið er reynslunni ríkari.
Leikmenn Dundee United sköp-
uðu sér fleiri og betri færi. Liðið
verður samt ekki dæmt af þessum
leik, en Malpas var öruggur í vörn-
inni og Cleland gerði oft usla og
skapaði hættu með hraða sínum.
íkvöld h
Handknattleikur
í 1. deild karla leika Stjarnan-Grótta I
(20:15), ÍR-Víkingur (20) o gValur-FH I
(18:30). Leik ÍBV og Fram var frestað. í I
1. deild kvenna leika Stjaman-Selfoss H
(18:30), Grótta-Fram (18:30) og Valur-FH ■
(20). *
„Við munum leika til sigurs“
- segirÁsgeir Elíasson, þjálfari Fram, sem mætir Djurdárden. Leikur KA gegn CSKA Sofía í snjó
á Akureyri í Evrópukeppni meistaraliða. Spáð er éljagangi þegar leikurinn ferfram