Morgunblaðið - 05.10.1990, Side 1
72 SIÐUR B/C/D
ttrjtititlMfafrlfr
STOFNAÐ 1913
225. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fækkun hefðbundinna vopna í Evrópu:
Meiri kvaðir á Yar-
sj árbandalaginu
Washington. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að sam-
kvæmt ákvæðum samninga um niðurskurð hefðbundins herafla í Evr-
ópu (CFE), sem nú væru á lokastigi, yrðu Sovétmenn og fyrrum fylg-
iríki þeirra í Varsjárbandalaginu m.a. að eyðileggja 19.000 skriðdreka
en ríki Atlantshafsbandalagsins (NATO) 4.000.
Að sögn Bakers mun CFE-samn-
ingurinn heimila hvorum aðila fyrir
sig, NATO-ríkjum annars vegar og
Varsjárbandalagsríkjum hins vegar,
Noregur:
Boða lækkun
tekjuskatts
Ósló. Reuter.
BOÐIJÐ er lækkun tekjuskatts í
fjárlagafrumvarpi norsku stjórn-
arinnar sem lagt var fram i gær.
Skattar á áfengi og tóbak verða
hækkaðir en útgjöld til umhverf-
isverndar aukin. í frumvarpinu
er reiknað með 21 dollars meðal-
verði á olíu, þ.e. að verðhækkun
sem orðið hefur vegna
stríðsástandsins við Persaflóa
verði ekki varanleg.
Útgjöld tii varnarmála verða
bundin við sömu krónutölu og á
þessu ári. Gert er ráð fyrir 5,5 millj-
arða króna fjárlagahalla á næsta
ári, jafnvirði 51 milljarðs ÍSK. Er
það nánast sami halli og á þessu ári.
Arne Skauge ijármálaráðherra
sagði helsta markmið frumvarpsins
■vera að vinna bug á atvinnuleysi og
örva vöxt í þeim geira atvinnulífs
sem ekki tengdist olíuiðnaðinum en
þar hefur ríkt stöðnun.
Norska stjórnin er í minnihluta á
þingi, hefur 62 sæti af 165, og reið-
ir sig á stuðning annarra flokka til
að koma frumvarpinu í gegnum
þingið. Leiðtogar Framfaraflokks-
ins, sem á 22 þingmenn og getur
ráðið úrslitum, sögðu frumvarpið
fela í sér of litla skattalækkun. Tals-
menn Verkamannaflokksins sögðu
boðaða skattalækkun einungis koma
efnamönnum til góða.
að eiga 20.000 skriðdreka, 20.000
fallbyssur, 30.000 brynvagna og
2.000 þyrlur. Samkomulag er einnig
um innbyrðis hlutfall einstakra
vopnaflokka, sem hvert aðildarríkj-
anna má eiga. Þannig mega skrið-
drekar ekki vera meira en 33,3%
hefðbundinna vopna hvers ríkis, fall-
byssur 34,3%, brynvagnar 33,3% og
þyrlur 37,5%.
Baker sagði að mun meiri skyldur
væru lagðar á Sovétmenn að granda
vopnum samkvæmt þeirri niðurstöðu
sem náðst hefði. Samkomulag hefði
enn ekki tekist um hámarksijölda
flugvéla en samningamenn risaveld-
anna væru að ráðfæra sig um það
atriði við bandamenn sína.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði að samkomulagið, sem ráðgert
er að undirrita í París 18. nóvember
við upphaf leiðtogafundar ríkja sem
aðild eiga að Ráðstefnu um öryggi
og samvinnu í Evrópu (RÖSE),
myndi stórlega draga úr yfirburðum
Varsjárbandalagsríkjanna í hefð-
bundnum herafia í Evrópu.
Reuter
Mitterrand í Persaflóaríkjum
Fahd, konungur Saudi-Arabíu, tekur á móti Francois Mitterrand Frakklandsforseta á Jeddah-fjugvelli í
gær. Talsmaður Mitterrands hafði eftir Fahd að hann væri vonlítill um að viðskiptaþvinganir dygðu til
að koma írökum frá Kúvæt. Franski forsetinn hélt til Persaflóa á miðvikudag, hitti yfirmenn franska liðs-
aflans á svæðinu og átti viðræður við ráðamenn í Abu Dhabi. Toshiki Kaifu, forsætisráðhérra Japans,
ræddi við íraskan aðstoðarforsætisráðherra í Jórdaníu og sérstakur sendimaður Míkhaíls S. Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga, Jevgeníj Primakov, fór til Bagdad í gær í boði þarlendra stjórnvalda. Þar hyggst hann
ræða afdrif mörg þúsund sovéskra borgara í Irak og mögulegar leiðir til friðsamlegrar lausnar Persaflóa-
deilunnar. Sjá einnig fréttir á bls. 25.
Fyrsti fundur þings sameinaðs Þýskalands:
Þingmenn minnast fóniar-
lamba þýskra einræðisafla
Berlín. Reuter.
FYRSTI fundur þings sameinaðs
Þýskalands markaðist af fjörugri
umræðu um framtíð landsins.
Helmut Kohl kanslari sagði við
setningu þingsins í gömlu þing-
hússbyggingunni í Berlín að
Þjóðverjar ætluðu sér ekki að
Forsetakjör í Póllandi:
Mazowiecki í fram-
boð gegn Walesa
Varsjá. Reuter.
TADEUSZ Mazowiecki, forsætisráðherra Póllands, tilkynnti í gær-
kvöldi framboð sitt til embættis forseta og stefnir því í kosningabar-
áttu milli hans og Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, sem áður hefur
tilkynnt framboð sitt.
„Eftir mikið hik
féllst ég á að bjóða
mig fram,“ sagði
Mazowiecki í við-
tali við pólska
sjónvarpið.
Akvörðunar hans
hefur verið beðið
lengi. Hann sagð- Mazowiccki
ist hafa verið efins
um skynsemi þess
gegn sínum gamla
Samstöðuléiðtoginn
að
fara fram
vini Walesa.
hefur verið
óvæginn i gagnrýni á stjórn
Mazowiecki og sagðist forsætisráð-
herrann ekki sjá hvernig sér gæti
orðið stætt á því að sitja áfram á
ráðherrastóli tapaði hann fyrir
Walesa í forsetakjörinu.
I fyrradag undirritaði Nikolaj
Kozakieweics forseti neðri deildar
pólskáþingsins tilskipun þess efnis
að forsetakosningar færu fram 25.
nóvember nk. Er talið að það hafi
orðið til þess að reka á eftir Mazowi-
ecki til að gera upp hug sinn.
beita yfirgangi á alþjóðavett-
vangi. „Heima og erlendis ætlum
við að vera góðir nágrannar,“
sagði kanslarinn. Við upphaf
þingfundar stóðu þingmenn úr
sæti og minntust fórnarlamba
þýskrar harðstjórnar; þeirra
milljóna sem nasistar útrýmdu,
Austur-Þjóðverja sem létust af
völdum stjórnar stalínista í
Austur-Þýskalandi og þá sérstak-
lega þeirra sem voru skotnir á
flótta yfir Berlínarmúrinn.
„Fijálst og sameinað þing í
fijálsri og sameinaðri Beriín og
ftjálsu og sameinuðu Þýskalandi —
hvílíkur dagur í sögu þingræðis
lands okkar,“ sagði Rita Sussmuth,
forseti þingsins. Síðan sóru fimm
austur-þýskir ráðherrar án ráðu-
neytis embættiseið. Þeir eru Lothar
de Maiziere, fynverandi forsætis-
ráðherra, Sabine Bergmann-Pohl,
fyrrverandi þingforseti, Giinther
Krause, fyrrum ráðuneytisstjóri,
Rainer Ortleb, úr flokki fijálslyndra
demókrata, og Hans-Joachim
Walther, úr Þýska sósíalsamband-
inu. Samtals setjast nú 144 austur-
þýskir þingmenn á sambandsþingið
í Bonn en þar eru fyrir 519 vestur-
þýskir.
Kohl sagði að allir Þjóðveijar
þyrftu að færa fórnir vegna samein-
ingarinnar. Hami talaði um staðfest
djúp milli Þjóðvetja sem verið höfðu
sólarmegin í tilverunni og hinna
sem þjáðst hefðu undir kommún-
istastjórn. „Við gerum allt sem í
okkar valdi stendur til að yfirvinna
skiptinguna eins fljótt og auðið er.
En það sem hefur verið í niður-
níðslu í fjörutíu ár verður ekki
bætt á nokkrum vikum.“
Oskar Lafontaine, kanslaraefni
jafnaðarmanna, sakaði Kohl um að
hugsa mest um „Stórþýskaland“ en
skeyta lítt um þá Austur-Þjóðveija
sem þyrftu að þjást vegna samein-
ingarinnar. „Þýskaland er ekki ein-
ungis föðurland það er líka „móður-
land“,“ sagði hann og mælti með
að sameinað Þýskalands tæki Aust-
ur-Þýskaland sér til fyrirmyndar
hvað varðaði jafnrétti kynjanna og
frjálslega fóstureyðingalöggjöf.
Gregof Gysi, formaður Flokks
hins lýðræðislega sósíalisma, arf-
taka austur-þýska kommúnista-
flokksins, var ómyrkur í máli í jóm-
frúrræðu sinni. Hann sagði að
margir spyrðu hver kostnaðurinn
við sameininguna væri en honum
væri hugleiknari sú spurning hveij-
ir græddu á sameiningunni. Hann
gagnrýndi hægrimenn sem þökk-
uðu Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seta fyrir að hafa stuðlað að sam-
einingunni en bönnuðu kommúnist-
um að gegna starfi bréfbera en
samkvæmt þýskum lögum mega
öfgasinnar ekki gegna opinberum
störfum. Gysi beindi spjótum sínum
einnig að jafnaðarmönnum og sagði
að þeir hefðu aldrei gagnrýnt
austur-þýska ráðamenn í fjörutíu
ár jafnharkalega og Flokk hins lýð-
ræðisiega sósíalisma.
Sjá frétt á bls. 24.
Súkkulaðið
eðaökuleyfið
London. Reuter.
OF MIKIÐ súkkulaðiát getur
leitt til þess að menn missi
ökuskírteinið, samkvæmt
nýjum rannsóknum sem
skýrt er frá í enska lækna-
blaðinu Lancet.
Að sögn Lancet hafa rann-
sóknir leitt í ljós að við súkku-
laðineyslu eigi sér stað glúkósa-
geijun í maga sem leiði til fram-
leiðslu alkóhóls en glúkósi er
uppistaða í súkkulaði.
I ljós kom að væri súkkulaðs
neytt á fastandi maga í nokkr-
um mæli yrði áfengismagn í
blóði það mikið að menn misstu
ökuréttindi í Svíþjóð. Þar varðar
það ökuleyfissviptingu ef
áfengismagn í blóði mælist
meira en 0,15 prómill en hér á
landi er leyfilegt áfengismagn
í blóði bílstjóra 0,50 prómill.