Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 Snjómokstur 50 millj. dýr- ari í fyrra en nokkru sinni í alls 795 daga var unnið við mokstur á 24 fjallvegum SÍÐASTA ár, 1989, varð metár í kostnaði víð snjómokstur. Samkvæmt Arsriti Vegagerðar- innar kostaði vetrarþjónusta 527 milljónir króna það ár, en hafði hæst farið áður í 477 millj- ónir árið 1984, reiknað á verð- lagi 1989. Ekki er sagt að snjó- þyngsli hafi verið meiri í fyrra en áður, en sagt er að kostnað- ur sé mismikill eftir tíðarfari. Snjómokstursdagar á 24 fjall- vegum voru aUs 795 allt árið í fyrra, flestir á Breiðadalsheiði, 76. í Ársriti Vegagerðarinnar 1990 er birt yfirlit yfir færð á 24 fjall- vegum á síða'sta ári. Þar kemur fram að mest er mokað á þeim vegum sem tengja byggðimar á Vestfjörðum og Austfjörðum, á Norðurleiðinni og í Ólafsfjarðarm- úla. Þeir vegir sem lokaðir eru flesta daga, eru yfirleitt ekki mokaðir nema til að opna að vori, eftir að sýnt þykir að þeir lokist ekki aft- ur. Samkvæmt reglum um snjóm- okstur, sem samgönguráðherra setur, skal miðað við tíða opnun vega innan atvinnu- og skóla- svæða og reglulega opnun milli- byggðavega. Vegagerðin sér um allan snjómokstur á þjóðvegúm og hafa verkstjórar hennar stjóm hans á hendi, en Vegaeftirlitið í Reykjavík sér um samræmingu snjómoksturs um allt land. Af þeim fjallvegum í þessu yfir- liti sem eru mokaðir 50 daga eða oftar á árinu 1989, mælist mestur umferðarþungi, mælt í meðalfjölda bfla á dag allt árið, um Holtavörðu- heiði, Breiðadalsheiði, Öxnadals- heiði, Ólafsfjarðarmúla, Fjarðar- heiði og Oddsskarð, 200 til 500 bflar á dag. Aðrir oftast mokaðir fjallvegir eru minna eknir að jafn- aði, umferð á þeim mælist minni en 200 bílar á dag. Mesti umferð- arþunginn er um Vatnsskarð nyrðra, yfír 500 bílar á dag. Ekki eru í yfírlitinu í Ársriti Vegagerð- arinnar upplýsingar um snjóm- okstur á Hellisheiði syðra né í Víkurskarði. Umferð um Hellis- heiði mælist yfír 1.000 bílar á dag og um Víkurskarð 200 til 500 á dag. Þjónusta við alnæmis- sjúklinga verði aukin LANDSNEFND um alnæmisvarnir sem heilbrigðisráðherra skipaði 1988 hefur lagt fram skýrslu um landsáætlun alnæmisvarna. Þar er ítarlega fjallað um einstaka efnisþætti, svo sem forvarnarstarf, smit- vamir, heilbrigðisþjónustu, félagslega þjónustu og lagalega stöðu smitaðra og sjúkra. 55 einstaklingar eru smitaðir alnæmi hér á landi, þar af hafa fjórtán fengið sjúkdóminn á lokastigi og átta þeirra eru iátnir. Áætlað er að 200-400 manns kunni að vera smitaðir á Islandi. Guðjón Magnússon, aðstoðarland- læknir sem er formaður landsnefnd- ar, sagði landsáætlun vera nokkurs konar verkáætlun þar sem nánar væri kveðið á um hlutverk starf- stétta og stofnana sem leggja barát- tunni gegn alnæmi lið. Tilgangur áætlunarinnar væri að draga úr út- breiðslu alnæmis ogtryggja smituð- um og sjúkum heilbrigðis- og félags- þjónustu. Landsnefndin gerir tillögu um að áfram starfi landsnefnd um alnæmisvamir sem beri ábyrgð á framkvæmd landsáætlunarinnar. Fyrsta verkefni nefndarinnar verði að gera framkvæmdaáætlun ásamt kostnaðaráætlun og leggja fyrir heil- brigðisráðherra. Meðal annarra tillagna nefndar- innar má nefna þjálfun aðila í heil- brigðis- og félagsþjónustu, fræðslu í skólum, fjölmiðlum og til heilbrigð- isstarfsstétta, að alnæmissjúklingar njóti sömu kjara og elli- og örorku- lífeyrisþegar á tannlæknaþjónustu og að komið verði upp sérstakri tannlæknastofu fyrir smitaða. Einn- ig er lagt til að á Borgarspítala verði starfrækt göngudeild sem sinni þjón- ustu við smitaða einstaklinga. Þá leggur nefndin til að tekið verði upp alþjóðlegt samstarf á sviði alnæmi- svama, hafnar verði viðræður við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina um rannsóknarverkefni þar sem kannað verði hvaða árangri aðgerðir á ís- landi gegn alnæmi hafa skilað. 30. júní 1990 höfðu greinst 14 sjúklingar með alnæmi á íslandi en 55 einstaklingar með alnæmissmit þar af 51 á aldrinum 20-39 ára. Af þeim sem eru smitaðir em flestir hommar, eða 68,5%, 14,8% fíniefna- neytendur, 7,4% gagnkynhneigðir og 7,4% blóðþegar. Samkvæmt mis- munandi reikniaðferðum er áætlað að 200-400 smitaðir einstaklingar kunni að vera á landinu. í skýrslu landsnefndarinnar segir að alnæmi hafi greinst í 152 þjóð- löndum og skráð sjúkdómstilfelli á lokastigi í árslok 1989 voru um 204.000. Alþj óðaheilbrigðisstofnun- in'gerir ráð fyrir að um síðustu ára- mót hafí um 600.000 manns fengið alnæmi og í lok aldarinnar hafí 5-6 milljónir manna fengið sjúkdóminn. Fjöldi daga i hverjum mánuöi sem nokkrir fjallvegir voru iokaöir vegna snjóa 1989 Snjómokstursdagar Hlutfall at 365 dögum -j—" Jan Febr Mars Apríl Maí Júnl Júlí Ág Sept Okt Nóv Des Alls % 1 Fróöárheiöi _a. m B -ú. 0 0 0 0 0 0 0 0 50 13,6 48 2 Svínadalur _a.-i.B_iL 0 0 0 0 0 0 0 0 39 10,6 29 3 Klettháls ■ ■■■ 0 0 0 0 0 0 mk 140 38,3 9 4 Hálfdán éík m m _a. 1 0 0 0 0 0 0 0 50 13,6 50 5 Dynjandisheiöi 0 0 0 0 0 ' o ^ 152-41,6 7 6 Hrafnseyrarh. ■ ■■■ ■ 0 0 0 0 0 mim mJm 155 42,4 10 7 Breiöadalsh. ■■ Efl ■■ 3 0 0 0 0 1 2 _a. 76 20,8 76 8 Botnsheiöi mmm-SL 2 0 0 0 0 1 1 3 i 71 19,4 67 9 Steingrímsfjh. -mWwm _2- 0 0 0 0 0 0 JL. 69 18,9 51 10 Holtavöröuh. _á_ _fa. -± 0 0 0 0 0 0 0 0 0 14 3,8 66 11 VatnssK. nyröra I 0 0 L o 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0,2 32 12 Siglufjv,- Fljót3 7 JJ— —A 0 0 0 0 0 0 7 lím m 5,7 50 13 Lágheiöi ■ ■■■ ■ 0 0 0 0 ó 0 0 168 46,0 11 14 Öxnadalsheiöi _£ _2 1 o 0 0 0 0 0 0 0 0 11 3,0 59 15 Ólafsfjaröarm. 0 0 0 0 0 0 2 0 25 6,8 63 16 Hólssandur ■ ■■■ ■ m 0 0 0 _L ■ ■ 223 61,1 3 17 Axarfjaröarh. ■ ■■■ ■ m 0 0 0 -íé. ■ ■ 230 63,0 5 18-Sandvikurheiöi o _á_ 0 0 0 0 0 0 0 0 • 21 5,7 25 19 Vopnafjaröarh. _■■■ _fa. 0 0 0 0 0 0 0 98 26,8 7 20 Möörudalsöræfi 5 H | -fa. 0 0 0 0 0 o m 113 30,9 15 21 Vatnssk. eystra 5 H 0 0 0 0 0 0 0 2_ 47 12,8 25 22 Fjaröarheiöi 0 0 0 0 0 0 0 2_ 21 5,7 60 23 Oddsskarö 3^40 0 0 0 0 0 0 0 2_ 18 49 65 24 Breiödalsheiöi „■■■ 0 0 0 0 0 0 0 115 31,5 12 TR féll út á síðustu stundu Skák Margeir Pétursson TAFLFÉLAG Reykjavíkur og þýzka félagið Solingen skildu jöfn með sex vinningum gegn sex í undanúrslitum Evrópu- keppni tafifélaga sem fram fóru hér í Reykjavík á þriðju- dags- og miðvikudagskvöld. Jafnteflið dugar Solingen, því þeir fengu sína vinninga á hærri borðum en Taflfélags- menn. Reyndar leit allt út fyrir að TR myndi merja sigur. Um miðnættið á miðvikudagskvöld- ið var íslenzka liðið vinningi yfir og Jóhanni Hjartarsyni hafði með hatrammri vörn tek- ist að bjarga töpuðu tafli í jafn- tefli gegn Short á fyrsta borði. En þá fataðist Jóhanni illilega, hann lék biskupi sínum á rang- an reit og þó mistökin virtust smávægileg dugðu þau Eng- lendingnum til að tryggja liði sínu sigur. Það voru því daprir áhorfendur sem hurfu heimleiðis í fyrrinótt, en sumir þeirra höfðu fylgst með keppninni alla sjö klukkutímana sem hún stóð yfír. Það má þó segja að skákkeppnir verði ekki mikið meira spennandi, framan af virtist Solingen standa með pálmann í höndunum, en í enda- tafli sneri Hannes Hlífar Stefáns- son á Lobron og náði forystunni. Á hinum borðunum mistókst hins vegar gestunum að knýja fram vinning, það var ekki fyrr en á síðustu stundu að þeir jöfnuðu eins og áður segir. Það er reyndar mjög mikill munur á þessum tveimur liðum. Solingen kaupir alla liðsmenn sína, suma dýru verði og í liðinu eru tveir öflugustu skákmenn V-Þjóðveija, þeir Hiibner og Lobr- on. Þeir eru þó aðeins á þriðja og fjórða borði, því erlendar stjörnur, Short og Spasskíj, hafa verið keyptir á fyrsta og annað. Þýzka liðið kom hingað til lands á einka- þotu en fjárhagsstaða TR er hins vegar þannig að það er ekki til umræðu að keppendur fái eitthvað fyrir sinn snúð. Liðsandinn virtist þó mun betri hjá okkar mönnum, Hiibner vildi t.d. ekki búa með „félögum" sínum á gistihúsi, en fék_k inni hjá Jóhanni Hjartarsyni. Urslit fyrri keppnisdaginn: Solingen —TR 3-3 Short —Jóhann 1-0 Spasskíj — Jón L. jafnt Hiibner — Margeir jafnt Lobron — Helgi 0-1 Lau — Hannes 1-0 Dueball — Karl 0-1 Hannesi urðu á slæm mistök í byijuninni og Solingen náði því snemma forystunni. Slðan vann Short Jóhann, sem var fjarri sínu bezta í þessari keppni. Þá virtist sem illa ætlaði að fara, Jón L. sá sig því knúinn til að hafna jafn- tefli gegn Spasskíj þótt staðan byði ekki upp á mikið. En þeir Helgi og Karl björguðu málunum með öruggum sigrum og skák mín við Hubner var alltaf nokkurn veginn í jafnvægi. Að lokum leyst- ist skák Jóns og Spasskíjs upp í jafntefli. Öllum skákunum var því lokið á fjórum klukkustundum. Þessi úrslit þýddu það að gest- unum myndu duga jafntefli á öll- um borðum í seinni umferðinni, því á jöfnu ræður það hvor sveitin vinnur skákir á hærri borðum. Þar sem Þjóðvetjamir vildu komast snemma af stað heimleiðis á fímmtudagsmorguninn féllst Jón G. Briem formaður TR og liðs- stjóri á að teflt yrði til enda á miðvikudagskvöldið, þ.e. engar biðskákir. Sú ákvörðun reyndist dýrkeypt þegar yfír lauk, en skilj- anleg þar sem TR sveitin stóð ívið lakar að vígi eftir fyrri daginn og því reynandi að taka áhættu. Þegar skákir eru tefldar í botn verður taflmennskan á síðustu tímunum oft býsna þreytuleg. Breytingar voru gerðar á báð- um liðum. Helgi Ólafsson treysti sér ekki til að tefla með svörtu seinni daginn vegna veikinda og Þröstur Þórhallsson kom því inn á sjötta borð. Solingen gerði að- eins þá breytingu að alþjóðameist- arinn B. Schneider kom inn fyrir kollega sinn Dueball á sjötta borð. Úrslit seinni keppnisdaginn: TR — Solingen 3-3 Jóhann — Short 0-1 Jón L — Spassky jafnt Margeir — Hiibner jafnt Hannes — Lobron 1-0 Karl — Lau jafnt Þröstur — Schneider jafnt. Framan af blés ekki byrlega fyrir liði TR, Jón L. þáði snemma jafnteflisboð Spasskíjs með svörtu, en á fyrsta borði lenti Jóhann í miklum erfíðleikum gegn Short. Tap þar þýddi að hinir yrðu að vinna tvær skákir til að shúa dæminu við. Hvergi virtist þó vinningur væntanlegur þótt ég hefði nokkru betra tafl út úr byij- uninni gegn Hiibner. Þröstur lenti í nokkrum erfíðleikum með svörtu en tefldi vörnina vel og hélt ör- uggu jafntefli. Þegar tímamörk- unum var náð eftir 40 leiki voru fjórar skákir eftir og spennan I algleymi. Karl hafði þá teygt sig of langt gegn Lau og var peði undir I. hróksendatafli. Því hélt hann þó án mikilla erfíðleika. Ég gætti heldur ekki að mér gegn Hiibner og honum tókst að ná frumkvæðinu, þótt ekki dygði það til vinnings. Hetja dagsins var Hannes Hlífar. Hann notfærði sér það að Lobron vildi rétta hlut sinn eftir tapið daginn áður, gekk á lagið og vann í endatafli. Á meðan hafði Jóhann varist hatrammlega gegn Short og tekist á ná upg fremur einfaldri jafnteflisstöðu. í tæpan klukkutíma voru keppina- utar okkar mjög vondaufir, en við þorðum varla enn að hrósa sigri, svo glöggt hafði keppnin staðið. Svart: Nigel Short Hvítt: Jóhann Hjartarson Þessi staða kom upp eftir 75. leik svarts í skák Jóhanns og Short. Eina vinningsvon svarts felst í að koma riddara til b5 og koma hvíti í leikþröng í leiðinni, en það er hægt að hindra: 76. Bf6?? Allt annað en þetta, því nú vinnur svartur leik. Einfaldasta jafnteflisleiðin virðist 76. Bg7 (eða 76. Bh8) - Re4 77. Kd3 - Kf3 78. Be5, því ef riddarinn fer frá e4 þá kemst hvíti kóngurinn til c3 og b4. Einnig sýnist mega halda taflinu með því að leyfa svarta riddaranum að kómast til b5, en valda peðið frá a3 með biskup á cl eða b2. Dæmi: 76. Bg7 - Re4 77. Bh6 - Rc3 78. Kd3 - Rb5 79. Bcl - Kf3 80. Bb2 — Kf2 81. Kd2 og svarti kóngurinn kemst ekki inn. 76. - Re4 77. Bd8 - Rc3 78. Ba5 Eina leiðin til að valda peðið á a3 er að setja biskupinn á b4, en þá er hvítur dæmdur til að lenda í leikþröng rétt eins og um peð- sendatafl væri að ræða: 78. - Rb5 79. Bb4 - Kg5! 80. Kd3 - Kf5 81. Ke3 - Kg4 og hvitur gafst upp, því eftir 82. Kd3 — Kf3 tapar hann peði og þá er staðan strax hrunin. Þrátt fyrir þetta má segja að TR megi vel við árangur sinn una í Evrópukeppninni og 6-6 gegn þessu öfluga þýska liði er heldur ekki neitt til að skammast sín fyrir, því á pappírnum voru gest- imir töluvert öflugri. TR hefur reyndar aldrei tapað keppni á vinningum í Evrópukeppninni. Árið 1987 gerði félagið 6-6 við Politekhnika Búkarest, en féll þá einnig út á stigum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.