Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 37 Pétur Valdimar Sævarsson — Minning Fæddur 19. september 1964 Dáinn 28. september 1990 I dag er til moidar borinn elskuleg- ur frændi okkar, Pétur Valdimar, sem lést í bílslysi í Perth í Astralíu 28. september sl. Upp í hugann koma minningar um lítinn, ljóshærðan, íjörugan dreng, sem kom inn á heimili foreldra okk- ar, ásamt móður sinni, aðeins 8 mánaða garrrall. Við minnumst stundanna þegar hann sat fyrir framan plötuspilarann og spilaði hveija plötuna á fætur annarri og söng með. Við minnumst' líka sólskinsdaganna þegar hann var kominn út í sandkassa kl. 7 á morgn- ana á náttfötunúm einum saman. Pétur fluttist til Astraiíu ásamt móður sinni, stjúpföður og systur árið 1970, tæplega sex ára gamall. Við vitum ekki hvað hefur verið í huga lítils drengs, en það hefur ábyggilega verið erfitt að setjast á skólabekk í fyrsta sinn í framandi landi og heyra aðeins framandi tungu. Pétri auðnaðist aðeins einu sinni að koma aftur til Islands á þessum 20 árum, en við vitum að hugur hans stefndi til Islands. Elsku Maggý systir, Grétar, Elísa- bet og Jonni, við biðjum almáttugan guð að gefa ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Minningin um góðan dreng lifir. Yndislega ættaijörð, ástarkveðju heyr þú mína þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak i arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. Faðir lífsins, faðir minn, fel ég þér minn anda’ í hendur. Foldin geymi fjötur sinn. Faðir lífsins, Drottinn minn, hjáipi mér í himin þinn heilagur máttur, veikum sendur. Faðir lífsins, faðir minn, fel ég þér minn anda’ í hendur. (Sig. Jónsson frá Arnarvatni) Guðný, Gógó, Guðrún (Hjólabrettabúðin) SKÓLA VÖRÐUSTÍG 17b SÍMI 628260 PACER, SANTA CRUZ, POWELL PERALTA, H-STREFF o.f I. Bretti, plötur, hjól, öxlar, bolir, hjólmar, hlífar o.fl. o.fl. ÖRNINNU HJÓLABRETTADEILD NÚ ER TIL MIKILS AÐ VINNA! Vertu meö í verölaunasamkeppni norrænu krabba- meinsfélaganna um aö hætta aö reykja! Fáðu þér upplýsingabækling með eyðublaði fyrir þátttökutilkynningu, fylltu þaö út og settu ófrímerkt í póst í síöasta lagi 15. október. Þann dag byrjar þú fjögurra vikna líf án tóbaks og átt möguleika á glæsi- legum verölaunum. Bæklinginn færðu í apótekum,- á heiIsugæslustöðv- um, á bensínstöðvum Olís og Shell, í Kringlunni og mörgum stórverslunum, hjá Krabbameinsfélaginu og víðar. C Krabbameinsfélagið ■ Landsbanki íslands AUK k88d99-76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.