Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
51
FOLK
■ ALFREÐ Gíslason gerði sex
mörk í fyrrakvöld, þegar Bidasoa
vann Tres de Mayo 27:21 í
spænsku deildinni í handknattleik.
I Þetta var fyrsti leik-
Atli ur Bidasoa í deild-
Hilmarsson inni á tímabilinu.
skrífar ■ LEIKUR Ís-
ra pani lands og Spánar á
miðvikudag í Evrópukeppni lands-
iiða í knattspymu fer fram á heima-
velli Betis Sevilla, Benito Villam-
arin, sem er 107x64 m að stærð
og tekur 50.000 þúsund áhorfendur
í sæti. Leikvöllur Sevilla FC, Sanc-
hez Pizjuan, sem er venjulega not-
aður fyrir landsleiki, er í mjög lé-
legu ástandi og því var skipt um
völl.
■ SPÆNSKU landsliðsmennirnir
fá 1,2 milljónir peseta (tæplega
700.000 ÍSK) fyrir hvern unninn
leik í Evrópukeppninni — ef þeir
komast í úrslitakeppnina. Ef ekki
fá þeir „aðeins“ 250.000 peseta (lið-
lega 140.000 ÍSK) fyrir hvem unn-
inn leik.
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ 1993
íslendingar fá ekki
sæti A-Þjóðverja
- segirframkvæmdastjóri sænska sambandsins. Deilt við IHF um auglýsingarétt
Svíar, sem haida heimsmeist-
arakeppnina í handknattieik
1993, segja vonlaust fyrir íslend-
inga að gera sér vonir um að taka
■■■■■■ sæti Austur-Þjóð-
LogiB. veija í keppninni.
Eiðsson Austur- og Vest-
skrifar frá ur-Þýskaiand hafa
viÞioð nú sameinast og
skv. túlkun forráðamanna HSÍ á
reglum alþjóða handknattleiks-
sambandsins, IHF, ætti sameinað
lið Þýskalands að fara í B-keppni
og ísland í HM. Christer Thelin,
framkvæmdastjóri sænska hand-
knattleikssambandsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
Þýskaland yrði í HM og íslending-
ar yrðu að sætta sig við að fara
í B-keppnina 1992.
„Ég skil sjónarmið íslendinga,
en Þýskaland verður með í heims-
meistarakeppninni. Það er ör-
uggt,“ sagði Thelin.
Hann sagðist gera ráð fyrir
nokkrum hagnaði af keppninni,
þrátt fyrir deilur við IHF um sjón-
varps- og auglýsingarétt. IHF
hefur selt sjónvarpsréttinn til
Sambands evrópskra sjónvarps-
stöðva (EBU) og svissneskur aðili
hefur keypt auglýsingaréttinn af
IHF. „Við getum sætt við okkur
við að alþjóða handknattleikssam-
bandíð selji sjónvarpsréttinn. En
við ætlum okkur að fá auglýsinga-
réttinn og viljum byrja að selja
strax.“
Byijað er að selja miða á úr-
slitaleikinn sem fram fer í „Kúl-
unni“ í Stokkhólmi, en ieikið verð-
ur í sjö borgum. „Skipulagning
er iangt kotnin og við teljum okk-
ur vel undirbúnasagði Thelin.
Svíar hlynntir Evrópukeppni
tandsliða
Mikið hefur verið rætt um að
koma á Evrópukeppni landsliða í
handknattieik og sagði Thelin að
Svíar vildu byija á henni sem allra
fyrsL „Gallinn er bara sá að allt
of margir eru með puttana í mál-
inu og þrátt fyrir endalaust funda-
höld gerist ekkert. En eftir breyt-
ingarnar í Austur-Evrópu getum
við gert okkur von um að skriður
komist á málin.“ Hann sagði einn-
ig að Svíar vildu fá alvöru Norður-
iandamót og stefnt væri að því
að halda það á næsta ári. „Það
gæti verið góður undirbúningur
fjTÍr heimsmeistarakeppnina og
það vita allir að í handbolta vant-
ar alvöru leikisagði Thelin.
KÖRFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
KR féll á smæðinni
KR tapaði seinni leiknum gegn
finnska liðinu Saab, 108:84,
og kemst ekki áfram I 2. umferð
Evrópukeppni meistaraliða í körfu-
knattleik, en KR vann fyrri leikinn,
120:118. „Við lentum í viUuvand-
ræðum snemma í fyrri hálfleik, en
stærðarmunurinn gerði gæfumun-
inn,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálf-
ari og leikmaður KR, við Morgun-
blaðið eftir leikinn í Finnlandi í
gærkvöldi.
Jonathan Bow fékk fjórðu villu
sína eftir 10 mínútur og sagði Páll
að það hefði breytt miklu, en
Finnámir voru með ömgga forystu
í hálfleik, 61:39. Bow fékk fimmtu
villuna fljótlega eftir hlé og Axel
Nikulásson sömuleiðis. „Þetta em
tveir stærstu mennimir í liðinu og
við vomm illa settir án þeirra,“
sagði Páll. „Hins vegar verður að
segja liðinu til hróss að enginn gafst
upp og ég er ánægður með barátt-
una og viljann."
Páll sagði samt að allir hefðu
verið langt frá sínu besta, en menn
hefðu klórað í bakkann. „Við hittum
ekki vel í fyrri hálfleik og vomm
með lélega nýtingu: Það tók mig
langan tíma að komast í gang og
ég hitti ekki úr auðveldustu fæmm.
En munurinn var ekki nema tvö
stig í seinni hálfleik og að öðram
ólöstuðum var ég einna ánægðastur
með Ólaf Guðmundsson, sem komst
vel frá leiknum, sérstaklega í vöm.“
Stig KR: Páll Kolbeinsson 20, Guðni Guðna-
son 18. Jonathan Bow 14, Axel Nikulásson
10, Ólafur Guðmundsson 9, Matthías Einars-
son, Björn Steffensen 6, Gauti Gunnarsson
2, Lárus Ámason 2.
Ólafur Guðmundsson
Grótta - Selfoss 20:1 l<r -
íþróttahúsið á Seltjamamesi, 1. deild
kvenna í handknattleik, fimmtudag 4. okt.
Mörk Gróttu: Helga Sigmundsdóttir 8/2,
Brynhildur -Þorgeirsdóttir 5, Elísabet Þor-
geirsdóttir 2, Sara Haraldsdóttir, Björk
Brynjólfsdótlir 1, Þuríður Reynisdóttir 1,
Gunnhildur Ólafsdóttir 1.
Mörk Selfoss: Inga Tryggvadóttir 5, Guð-
rún Hergeirsdóttir 4, Hulda Hermanns-
dóttir 3, Auður Hermannsdóttir 3; Guðbjörg
Bjamadóttir 2.
I járnum
Jafnt var á öllum töium upp í 13:12,
— þá komst Grótta í 16:13, en
Selfoss jafnaði á ný. Grótta var svo
sterkari á endasprettinum. Helga Sig-
■^■■H mundsdóttir var best
HannaKatrín hjá Gróttu en Auður
Fnóriksen Hermannsdóttir atj
skrifar kvæðamest hjá Sel-
fossliðinu þrátt fyrir
að vera tekin úr umferð.
HANDKNATTLEIKUR
Víkingur-FH 29:24
Laugardalshöli, íslandsmótið, 1. deild — VÍS-keppnin — fimmtudaginn 4. okt. 1990.
Gangur leiksins: 0:1, 4:1, 7:4, 10:7, 14:9, 14:11, 16:12, 17:14, 21:16, 24:18, 26:20,
28:21, 29:24.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 6, Ámi Friðleifsson 6/5, Björgvin Rúnarsson 4, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Hilmar Sigurgíslason 3, Bjarki Sigurðsson 3, Alexej Trúfan 2,
Karl Þráinsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 9 (þar af 4 er knötturinn fór aftur til mótherja), Reynir
Reynisson 1/1. Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk FH: Guðjón Árnason 10/1, Stefán Kristjánsson 6/1, Óskar Ármannsson 2, Gunnar
Beinteinsson 2, Hálfdán Þórðarson 1, Amar Geirsson l, Þorgils Óttar Mathiesen 1, Óskar
Helgason 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14 (þar af 4/1 er knötturinn fór aftur til mót-
heija). Bergsveinn Bergsveinsson. Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: 260 greiddu aðgangseyri. Dómarar: Guðjón L Sigurðsson og Hákon Sigur-
jónsson dæmdu vel.
Meistaramir áttu ekki möguleika
Sigur Víkinga á íslandsmeisturum FH var öraggur og sanngjarn. Víkings-
liðið var mun heilsteyptara; vörnin góð nær allan tímann, hraðaupphlaup-
in tókust mörg hver mjög vel og sóknarleikur liðsins var í alla staði markviss-
ari en Hafnfirðinga. Margar skemmtilegar leikfléttur gengu upp hjá Víking-
■■■■ um og markaskomnin dreifðist jafnt á leikmenn. Það er ljóst
Skapti að þetta fyrmm stórveldi á handboltasviðinu hefur styrkst
Hallgrímsson vemlega frá því á síðasta keppnistímabili og verður ömgglega
skrifar } toppbaráttu. FH-ingar vom aftur á móti langt frá því sann-
færandi. Vamarleikurinn var ekki góður og sóknin er enn
ekki nógu samstillt. Það var helst einstaklingsframtak Guðjóns Amasonar
og Stefáns Kristjánssonar sem fleytti þeim áfram.
ÍBV-KA 27:23
íþróttamiðstöðin í Eyjum, íslandsmótið, 1. deild — VÍS-keppnin — fimmtud. 4. okt. 1990.
Gangur leiksins: 3:0, 7:3, 10:5, 14:17, 15:10, 16:16, 18:18, 23:20, 25:23, 27:23.
Mörk iBV: Gylfi Birgisson 7, Sigurður Gunnarsson 7/2, Sigurður Friðriksson 4, Haraldur
Hannesson 3, Jóhann Pétursson 3, Sigurður V. Friðriksson 1, Þorsteinn Viktorsson 1,
Davíð Guðmundsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 11/1, Ingólfur Amarsson 3. Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 8/2, Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 5/1, Pétur Bjarnason
4, Erlingur Kristjánsson 4, Jóhannes Bjarnason 1, Andrés Magnússon 1.
Varin skot: Bjöm Bjömsson 5/1, Axel Stefánsson 1. Utan vallar: 10 mínútur.
Ahorfendur: Um 350. Dómarar: Egill Már Markússon og Öm Markússon.
Fyrsta tap KA
Vestmannaeyingar byrjuðu ai' krafti og náðu strax undirtökunum. Sóknin
gekk gríðarlega vel og til að mynda náðu markmenn KA aðeins að veija
eitt skot í fyrri háfleik; rétt fyrir hlé, en hjá ÍBV varði Sigmar Þröstur eins
og berserkur. ÍBV náði mest 7 marka forskoti í fyrri hálfleik og voru þeir
Gylfi og Sigurður iðnir við kolann — gerðu þá báðir 5 mörk.
Þegar nálgaðist leikhléð misstu Eyjamenn einbeitinguna,
KA-menn nýttu sér það vel og jöfnuðu fljótlega í síðari hálf-
leik. En þá vöknuðu heimamenn af þyrnirósarsvefni, sigu
fram úr aftur og sigraðu. Þetta var fyrsta tap KA í vetur.
Hjá ÍBV léku Gylfi og Sigurður vel og Sigmar Þröstur varði oft vel. Þá stóð
Haraldur Hannesson, sem kom inn á seint í leiknum, sig einnig vel. Hjá KA
var Sigurpáll í horninu sprækur og Hans átti ágæta spretti.
Sigfús Gunnar
Guömundsson
sSkrifar
úrEyjum
NÝn 0G GLÆSILEGT ÆFINGASVÆDI
rt>
S
3
I
>
o
JUDO
NÝ BYRJENDANÁMSKEIÐ
ERU AD HEFJAST
ari er Michal Vachun fyrrverandi
þjáifari tékkneska landsliðsins.-
“7 Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl. 16—22
ísíma 627295
t