Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
23
við spár taki 120 ár að tvöfalda
þjóðarframleiðsluna frá því sem
nú er, miðað við 20 ára síðasta
tvöföldunartíma, og að stór hluti
raunverulegrar skattheimtu sé
falinn og komi ekki fram í opin-
berum tölum um skattheimtu.
Greinarhöfundur segir frá sam-
setningu íslenska hagkerfisins í að-
alatriðum og kemur þar fram að
íslendingar byggi afkomu sína að
verulegu leyti á sjávarfangi, til dæm-
is sé um helmingur gjaldeyristekna
og um áttundi hluti landsframleiðslu
þaðan fenginn. Fram kemur að 1987
hafi Islendingar verið í fimmta sæti
yfir stærstu aðila heims í fram-
leiðslu matvæla úr fiski og standi
til dæmis Norðmönnum mun framar
í nýtingu tækja og mannafla við
sjávarútveg.
Þá segir svo í lauslegri þýðingu:
„Á fimm ára tímabilinu frá 1983 til
1987 tvöfaldaðist verðmæti útfluttra
íslenskra sjávarafurða. Þegar fis-
kverðið var í hámarki á heimsmark-
aði nýlega, voru tekjur íslendinga á
mann af fiskútflutningi tvöfaldar
miðað við olíutekjur á mann í Saudi
Arabíu."
Hið háa hlutfall tekna af sjávaraf-
urðum í heildartekjum íslendinga
segir höfundur vera eina megin skýr-
inguna á miklum sveiflum í efna-
hagslífínu. í samanburði við önnur
lönd kemur fram að hlutfall heildar-
útflutnings í þjóðarframleiðslunni
hefur verið 40% undanfarna tvo ára-
tugi eins og í Sviss og Austurríki,
en það er mun lægra heldur en í
Belgíu, Hollandi og Lúxemburg. Á
hinn bóginn sé efnahagslegur stöð-
ugleiki allur annar í þessum löndum
en hér á landi.
Meðal annars þess sem valdi
óstöðugleikanum nefnir höfundur
tíðar gengisfellingar krónunnar og
önnur afskipti stjórnmálamanna af
efnahagslífinu. Þar á meðal er tekið
dæmi af samanburði á skattheimtu
hér á landi og í öðrum OECD lönd-
um, þar sem fram kemur að skatt-
tekjur ríkisins séu 29% þjóðarfram-
leiðslu hér á landi en mun hærri
annars staðar. Um þetta segir höf-
undur, í lauslegri þýðingu: „Ríkis-
stjórnin er samt sem áður ekki svo
trúlegra vinninga
millionir
a?> i>oÁiÁ
Ót rúlegur fj
He,iÚPoUU1 f •
;r&mætií> er Ví n s
skeinmtiiega
Áíkur.
dreif1 hefur ve^
inskonar gírose&lar.
Gangi þér
skáta
sem óvenjuleg1
ogheildarvev-
t bæklingt oLKd
á\andinufylgj
olitttum
í B6ttt»P°tu
17. og 0
Prestsvígsla í
Dómkirkjimni
PRESTSVÍGSLA verður í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, sunnudag-
inn 7. október klukkan 10,30. Þá
vígir biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, Bjarna Karlsson guð-
fræðing til þjónustu í kirkjunni.
Bjarni Karlsson mun þjóna að
hálfu leyti sem aðstoðarprestur í
Laugarnessókn við hlið séra Jóns
Dalbú Hróbjartssonar sóknarprests.
Þá mun hann vera fangapresti, séra
Ólafí Jens Sigurðssyni, til aðstoðar
í þjónustu við fanga.
1 vígslumessunni á sunnudag
predikar biskupinn og séra Hjalti
Guðmundsson, dómkirkjuprestur
annast altarisþjónustu. Dómkórinn
syngur undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar organista.
Séra Bolli Gústavsson í Laufási
mun lýsa vígslu. Aðrir vígsluvottar
rverómæú vinn
•iranéminnaei
i„ostv«r »>■«.'
HIAÐ ER SKATASTARF?
Sumarstarf, vetrarstarf, útilíf, feróalög,
ferðir, púl, sviti, bros, söngur, svefnpoki
göngutjald og góðir vinir. Allt þetta og
miklu meira til köllum við skátastarf.
Sjaldan eða aldrei hefnr verið jafn mikil _
þörf á heilbrigðu æskulýðsstarfi
ÍÍpPrÍlri ogjákvæðu lífsviðhorfi og nú. Þess
' vegna viljum við renna styrkari
stoðum undir starf okkar og
þjóna æsku landsins enn betur
w'*1" flk lí ■f'1 — og þar með þjóðinni allri.
Þess vegna efnum við til þessa happdrættis.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
HEFURAFSTÓRHUG
STYRKT ÞLTTA HAPPDRÆTTl
HEITi POHURINN
Greiðslukortasíininn
Iceland Review:
_ *
Fiskur tvöfalt dýrmætari Islend-
ingum en olía Saudi-Aröbum
TEKJUR íslendinga af fiskveið-
um á árinu 1987 voru helmingi
meiri á mann að meðaltali heldur
en olíutekjur Saudi Araba, reikn-
aðar á sama háttl Þetta kemur
fram í grein sem Benedikt Stef-
ánsson blaðamaður skrifar í tíma-
ritið Iceland Review, 3. tölublað
1990, sem er nýkomið út. í grein-
inni er fjallað um þjóðarbúskap
Islendinga og hvernig þeir hafa
haldið á þjóðarauði sínum og er
þar meðal annars sagt að miðað
fjarri hinum ríkjunum sem virðikt
við fyrstu sýn, og hefur mun meiri
afskipti af efnahagslífinu en ætla
mætti af niðurstöðutölum fjárlag-
anna. Stjórnmálamenn úthluta him-
inháum upphæðum sem hvergi koma
fram í opinberum reikningum ríkis-
ins. Þar eru opinberir lánasjóðir fyr-
irferðarmestir sem úthluta árlega
jafnvirði milljóna dollara tii fyrir-
tækja um landið allt.“
Þá segir höfundur í lok _ þessa
kafla, í lauslegri þýðingu: „íslend-
ingar eru engin undantekning þeirr-
ar reglu að stjórnmálamenn eru
tregir til að sleppa þeim völdum og
áhrifum sem þeir hafa náð. En þeir
komast ekki hjá að fylgjast grannt
með þróun mála og hvert stefnir á
alþjóðavettvangi, og ástandið gæti
því breyst mun hraðar en nokkurn
grunar í dag.“
Klausturhólar:
Eineygði Fjöln-
ir á uppboði
BÓKAUPPBOÐ verður hjá
Klausturhólum á morgun, laug-
ardag, og hefst uppboðið klukk-
an 14. Bækurnar verða til sýnis
í Klausturhólum, Laugavegi 25,
í dag klukkan 13-18.
Á uppboðinu verða m.a. Fjölnir
og Eineygði Fjölnir, útg. í Viðey
árið 1840, Draupnir 1.-12. árg.
1891-1908, Svava, ýmisleg kvæði,
útg. í Kaupmannahöfn árið 1860,
og Islandske Folkesagn og Æven-
tyr, útg. í Kaupmannahöfn 1877.
verða: Séra Bernharður Guðmunds-
son fræðslustjóri kirkjunnar, séra
Jón Dalbú Hróbjartsson og séra
Ólafur Jens Sigurðsson.