Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Kínversk ritskoðun í Ríkisútvarpi IMorgunblaðinu í fyrradag var frá því skýrt, að inn gangi að útvarpsþætti um Dalai Lama og Tíbet hefði verið breytt að kröfu kínverska sendiráðsins í Reykjavík, en í innganginum eins og hann upphaflega var, sagði, að Dalai Lama væri þjóðhöfðingi Tíbeta. Starfs- maður kínverska sendiráðs- ins gerði athugasemdir við þetta og fullyrti, að Tíbet væri sjálfsstjórnarsvæði í Kína. í samtali við Morgunblaðið í fyrradag sagði Gísli Þór Gunnarsson, höfundur þátt- arins m.a.: „Ég vildi hins vegar ekki, að þættinum yrði breytt án míns samþykkis og tók það skýrt fram. Ég tel því, að Ríkisútvarpið sé að bijóta bæði höfundarlög og mannréttindi með því að senda þáttinn út breyttan, án þess að hafa fengið sam- þykki mitt til þess. Það er þó alvarlegast, að Ríkisút- varpið skuli taka mótmæli Kínveija til greina, en þeir hafa verið sakaðir um þjóðar- morð á Tíbetum.“ Afskipti kínverska sendi- ráðsins í Reykjavík af efni í íslenzka Ríkisútvarpinu eru afar óviðeigandi, svo að ekki sé meira sagt. Þau minna fyrst og fremst á tilraunir þýzkra stjórnvalda á tímum Hitlers til þess að hafa áhrif á fréttaflutning fjölmiðla hér á þeim tíma. Sérhverri tilraun til þess að hafa áhrif á efni fjölmiðla með þessum hætti ber að vísa afdráttarlaust á bug. Sú afstaða Ríkisútvarpsins að verða við kröfu kínverska sendiráðsins er óskiljanleg. Ritskoðun er óþekkt fyrir- bæri hér á íslandi, að ekki sé talað um ritskoðun erlends ríkis á efni í íslenzkum fjöl- miðli. Það eru því alvarleg mistök hjá forráðamönnum Ríkisútvarpsins að hafa látið undan kröfu kínverska sendi- ráðsins. Tíbetar hafa í áratugi barizt gegn yfirráðum Kín- veija í landi sínu. Kínveijar lögðu Tíbet undir sig á sínum tíma í krafti hernaðarlegs ofbeldis. Það var á þeim árum, þegar heilu þjóðirnar voru kúgaðar í nafni sósíal- ismans bæði í Austur-Evrópu og í Asíu. Veldi sósíalismans er brostið í Evrópu. Það á eftir að bresta í Asíu og þ. á m. í Tíbet. Mikill meirihluti íslenzku þjóðarinnar hefur haft mjög einarða afstöðu til þeirra ofbeldisverka, sem á undan- förnum áratugum hafa verið framin í nafni sósíalismans. Þau ofbeldisverk hafa ekki síður verið framin af Kínveij- um en Sovétmönnum. At- burðirnir á torgi hins himn- eska friðar eru mönnum enn í fersku minni. Tilraunum fulltrúa kín- verskra stjórnvalda hér á Is- landi til þess að hafa áhrif á umræður hér um málefni þeirra þjóða, sem eiga um sárt að binda af völdum Kínveija, ber að mótmæla mjög harðlega um leið og ástæða er til að harma það, að Ríkisútvarpið hafi látið undan slíkum þrýstingi Afturhald Umræður um álmálið að undanförnu hafa leitt skýrt í ljós, hvar mesta aftur- haldið er að finna í landinu um þessar mundir. Það er hjá Kvennalistakonum, í Al- þýðubandalaginu og hluta Framsóknarflokksins. Kvennalistakonurnar hafa tekið sér fyrir hendur að ganga um bæinn með ryk- grímur til þess að mótmæla byggingu álvers. Þær hafna stóriðju, sem kosti í atvinnu- málum. Um leið og þær snúast gegn stóriðju hafna þær því, að þessi þjóð nýti að nokkru ráði aðra aðal auðlind sína, sem er orka fallvatnanna. Við höfum nú tveggja ára- tuga reynslu af stóriðju á íslandi. Sú reynsla er í öllum meginatriðum góð. Þær stjórnmálahreyfingar, sem beijast gegn byggingu nýs álvers, eru að beijast gegn framförum og batnandi lífs- kjörum fólksins. O ÁFANGASAMKOMULAG UM BYGGINGU NÝS ALVERS Eitt stærsta framfaraskref síðustu ára í atviimumálum - sagði Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra um álver á Keilisnesi JON Sigfurðsson iðnaðarráðherra sagði við undirritun áfangasamkomu- lags um nýtt álver sem á að rísa á Keilisnesi, að þar væri um að ræða eitt mikilvægasta framfaraskref síðustu ára í atvinnumálum íslend- inga. Iðnaðarráðherra og Atlantsálshópurinn lýstu því sameiginlega yfir að álverið skyldi rísa á Keilisnesi, en einnig var staðfest minnis- blað um grundvallaratriði skattlagningar, orkuverðs, umhverfisvernd- ar og samningsskilmála. Lýstu báðir aðilar yfir ánægju með samninga- viðræðurnar og samkomulagið. Samkomulagið undirrituðu Jón Sigurðsson, Robert G. Miller að- stoðarforstjóri Alumax, Hans G.D. van der Ros framkvæmdastjóri Hoogovens, Ulf Bohlin aðstoðarfor- stjóri Granges, Robert R. Goble aðstoðarforstjóri hjá Alumax, Jó- hannes Nordal formaður ráðgjafa- nefndar iðnaðarráðherra um áliðju, og Jón Gunnarsson oddviti Vatns- leysustrandarhrepps. Jón Sigurðsson sagði eftir undir- ritunina, að mál á borð við álvers- málið, drukknuðu oft í umræðu um formsatriði og aðild, hvemig á þeim væri haldið. Hvað nákvæmlega væri verið að semja um vildi stund- um gleymast. „Við erum hér að tala um eitt mikilvægasta framfara- ■ skref í okkar atvinnumálum sem saga síðustu ára geymir. Við skul- um ekki missa sjónar á því að hér er verið að breikka atvinnugrund- völl í landinu, bæði í héraði þar sem álverið mun rísa og reyndar fyrir landið allt. Við erum að breyta okk- ar auðlindum í tekjur og atvinnu fyrir almenning í þessu landi.“ Þegar Morgunblaðið spurði Jón hvaða þýðingu þessi áfangi hefði og hvort hann væri bindandi í öllum atriðum fyrir endanlegan samning, sagði hann að allt sem staðfest væri í þessum áfanga væri háð samkomulagi um málið í heild. En hann bætti við, að þegar menn kæmu sér saman um áfanga þá sé það gert í alvöru. Jón sagði einnig að til að tryggja gönguna hefði verið valið að marka sporin og tryggja hvern áfanga. Það væri þeim mun mikilvægara þar sem þama væru þijú félög að semja á annari hliðinni. Og hin hliðin væri einnig samsteypuhlið, sem væri flókin í samsetningu. Þar væri ríkisstjórnin, sem væri samsteypu- stjórn, og einnig væri um að tefla hagsmuni sveitarfélaga og Lands- virkjunar sem væri eigu ríkisins og tveggja sveitarfélaga. En aðgangur ríkisstjórnarinna væri eðlilega á síðasta stigi málsins. Það fælist í því að fela ráðherra í einstökum Alþýðubandalagið: Hugsanlegir samningar þurfa nánari athugun ÞINGFLOKKUR Alþýðubanda- lagsins gerði eftirfarandi sam- þykkt á fundi sínum í gær: Þingflokkur Alþýðubandalagsins bendir á að gefnu tilefni, að flestir þættir hugsanlegra samninga um nýtt álver þarfnast nánari athugun- ar, til dæmis hvað varðar umhverfis- mál og mengunarvarnir, svo og ákvæði um orkuverð sem bersýni- lega eru ekki nógu hagstæð og fela í sér mikla áhættu. Þingflokkurinn minnir á yfirlýs- ingu Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, að ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafi ekki tekið afstöðu til neinna efnisatriða í samn- ingsvinnunni. Þingflokkurinn telur því fráleitt, að iðnaðarráðherra und- irriti áfanganiðurstöðu í nafni ríkis- stjórnarinnar með hinum erlendu samningsaðilum, þegar ekkert sam- komulag liggur fyrir um málið milli stjórnarflokkanna, og lýsir því yfir, að Alþýðubandalagið er með öllu óbundið af undirskrift ráðherrans í þessu máli. Þá liggur fyrir að Lands- virkjun hefur fyrir sitt leyti ekki fallist á drög að orkusölusamningi og ekki veitt umboð til undirskriftar. Þingflokkurinn lýsir furðu sinni á því, að ráðherrar Alþýðuflokksins skuli hafa átt formlegar viðræður við forystulið Sjálfstæðisflokksins um málið, á meðan málið er til umfjöllunar í ríkisstjórninni og harmar, ef vinnubrögð ráðherrans verða til að spilla annars ágætri samvinnu stjórnarflokkanna. málaflokki meðferð málssins. Robert G. Miller varaforseti Al- umax sagði eftir undirritunina, að þetta væri vendipunktur samninga- viðræðna sem staðið hefðu þrot- laust í 6-8 mánuði. Hann sagði að menn fylgdust vel með almepning- sáliti á íslandi, og vissu að íslend- ingar hefðu áhuga á því verkefni sem verið væri að semja um. Það sýndi niðurstaða skoðanakönnunar sem birt var nýlega. „Við erum kaupsýslumenn sem nálgumst þetta verkefni á annan hátt en ríkisstjórnin, þar sem við horfum aðeins á það frá raunhæfum efnahagsforsendum. Ég held að samninganefndin hafi tekið undir það sjónarmið, að það sem samið er um, verði að vera mjög sann- gjarnt fyrir bæði ísland og Atlant- sálshópinn, svo niðurstaðan verði álver sem sé samkeppnisfært næstu 35 ár,“ sagði Miller. Jóhannes Nordal sagði að þetta hefðu verið flóknir og langvinnir samningar. Valin hefði verið sú leið að marka áfanga í málinu, fyrst með viljayfirlýsingu í marsmánuði, síðan með undirritun sérstakrar fundargerðar í júní og nú með þeirri staðfestingu á áfanga í samningun- um sem undirrituð var. Með því væri verið að gefa til kynna, að verið væri að vinna að málinu stig af stigi. Málinu hefði miðað áfram nokkurnveginn eftir áætlun og hraðar en nokkrir sambærilegir samningar hér á landi. Jóhannes sagði að enn væri all- mikil vinna eftir við að ganga frá samningum, fylla upp í ýmar eyðir og búa málið undir lokasamþykkt. Jón Gunnarsson oddviti Vatns- leysustrandarhrepps, sagði Suður- nesjamenn fagna þeim áfanga sem þarna hefði verið staðfestur, og það væri von þeirra að um málið og staðinn megi takast víðtæk sam- staða og allir landsmenn fylki sér um þá lausn sem náðst hefði. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og Robert G. Miller, varaforseti Alumax, takast í hendur eftir undirritun áfangasamkomulagsins. Samkomulagið um skattamálin mjög hagstætt fyrir fslendinga - segir aðstoðarforstj óri Alumax ROBERT G. Miller aðstoðarforstjóri Alumax segir að það samkomulag sem nú hefur náðst um skattgreiðslur nýs álvers sé íslendingum mjög hagsætt. Greiddir verði háir skattar af álverinu og mun hærri en af samsvarandi álveri í Kanada. Miller sagði við Morgunblaðið, að samþykkt hefði verið að greiða ýmsa skatta á íslandi sem ella þyrfti að greiða í Bandaríkjunum, og því væru skattamálin mjög hagstæð frá sjón- arhóli íslendinga. En þegar málið væri metið yrði að horfa á allan pakkann í samhengi, þar á meðal arðinn af sköttunum og orkuverðinu. En Miller sagist einnig telja, að ís- lendingar gætu haft verulegan hagnað af orkuverðinu, sérstaklega ef álverð yrði hátt á samningstíman- um, eins og allt benti til. Þegar Miller var beðinn að meta möguleikana á að endanlegt sam- komulag um álverið náist, sagði hann að útlitið væri nokkuð gott. „Ég veit að það eru deilur innan ríkisstjórnar ykkar um einstaka þætti, en við getum ekki skipt okkur af því. Og ég fæ ekki séð að það sé mikil andstaða meðal almennings gegn álverinu. Auðvitað eru ein- hverjir á móti því en það er ekki hægt að ná algerri samstöðu um slík mál,“ sagði Miller. Hann bætti við að það samkomulag, sem nú hefði verið gert, væri mjög gott, og það hefði náðst á skömmum tíma. Aðspurður um mengunarvarnir fyrir álverið sagði hann að öll fyrir- tækin þijú í Atlantsálshópnum væru þekkt fyrir að vera framarlega í þeim efnum. Þannig hefði Alumax tekist vel að halda niðri flúormengun í verksmiðjum sínum, en vandamálið er frekar brennisteinsdíoxíð. Það væri eitt atriðið í samningunum hvaða búnaður yrði settur upp vegna' þess. Vandamálið við svonefndan vothreinsibúnað væri að að hann sé verulega dýr. Á móti kæmi að þar sem brennisteinsdíoxíðsmengun á íslandi væri mjög lítil myndi álver auka þar hlutfallslega miklu við. „Þetta er vandamál en það er ekki óleysanlegt," sagði Miller. Hann var að lokum spurður um útlit fyrir álframleiðslu, og sagði að það væri gott. Allir framleiðendur framleiddu nú eins og þeir gætu, en samt söfnuðust ekki upp birgðir. Mörgum gömlum verksmiðjum hefði verið lokað og nýjar ekki verið byggðar í staðinn. En á hveiju ári þyrfti að auka framleiðslugetuna um 2-3% eða 300 þúsund tonn, sem þýddi eina verksmiðju ári. „Það eru ekki svo margar verksmiðjur á teikniborðinu um þessar mundir og þær kosta líka milljarð bandaríkja- dala eða 4.000 dali (230 þúsund krónur) á hvern íslending. Það held- ur aftur af mörgum,“ sagði Robert G. Miller. Eitt þúsund atvinnutækifæri Atlantsál-hópurinn sendi í gær frá sér eftirfarandi upplýs- ingar: Upplýsingar Staðsetning: Staðsetning verk- smiðju Atlantsáls verður á Keilis- nesi. Landsvæðið sem þörf er fyrir undir verksmiðjuhúsin er 100 hekt- arar eða 250 ekrur. Höfnin sem þarna þarf að vera verður að geta tekið á móti stórum skipum með 12 metra djúpristu. Starfsfólk: 500-600 manns munu starfa við verið þegar fram- leiðsla er í hámarki. Það mun óbeint leiða af sér 1.000 atvinnu- tækifæri. Um 2.000 bygginga- verkafnanna verður þörf. Kostnaður: Kostnaður við smíði verksmiðjunnar er talinn verða 1 milljarður bandaríkjadollara. Stjórntæki mengunarbúnaðar mun kosta rúmlega 50 millj. bandaríkja- dollara. Framleiðsla: Álverið mun hafa getu til að framleiða um það bil 200.000 smálestir af áli á ári og hugsanlegt er að síðar verði getan aukin í 400.000 smálsetir. Smíði: Smíði versins tekur tvö til þijú ár. Ekki kann að líða lengra þar til framleiðsla hefst en til árs- loka 1994 eða ársbyijunar 1995. Orka: 350 Megavött. Umhverfismál Loft: Þurrhreinsibúnaður fyrir flúor úr kerum nær til sín 99+% þess. Ryksöfnunarbúnaði verður komið fyrir á öllum efnisvinnslu- stöðum. Mengunareftirlitsáætlun verður gerð svo fylgjast megi með hugsanlegum breytingum á flúor í gróðri og lofti umhverfís verksmiðj- una. Vatn: Frárennslisvatn verður hreinsað og notað á nýjan leik að því marki sem unnt er. Ferskt lind- arvatn verður þó fyrst og fremst notað til kælingar. Állt frárennslis- vatn verður hreinsað þannig að það standist eðlilegar kröfur. Meðferð úrgangsefna. Föst úrgangsefni verða endurunnin, brennd eða nýtt til uppfyllingar í samræmi við kröfur íslenska um- hverfisráðuneytisins. Félagsleg starfsemi: Atlantsál mun taka þátt í starfsemi óform- legrar umræðunefndar um starf- semi álversins. í henni munu sitja fulltrúar Atlantsáls, íslensku ríkis- stjórnarinnar og nærliggjandi bæj- ar-_og sveitarstjórna. Útlit: Sérstaklega verður vandað til útlitshönnunar og litavals verk- smiðjuhúsanna. Fulltrúum landshluta formlega greint frá staðarvalinu í gær: Snúum okkur að öðrum lausnum í atvinnulífinu - segja Eyfirðingar og Austfirðingar JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra og aðstoðarmenn hans, fulltrúar ál- viðræðunefndar og fulltrúar fyrirtækja Atlantsálshópsins, héldu í gær fundi með fulltrúum þeirra þriggja landshluta, þar sem rætt hefur verið um að velja álveri stað. Tilgangur fundanna var að skýra heima- mönn-im í Eyjafirði, á Reyðarfirði og á Suðurnesjum formlega frá þvf að nýju álveri hefði verið valinn staður á Keilisnesi. „Iðnaðarráðherra og þessir er- lendu aðilar hafa ekki áður gert okkur formlega grein fyrir staðar- valinu, heldur var það gert á þessum fundi,“ sagði Halldór Jónsson, bæj- arstjóri á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið eftir fund norðan- manna með ráðherra. „Þeir kjósa að láta okkur vita af þessu beint, og ég virði það auðvitað. Ég virði líka í sjálfu sér þessa niðurstöðu sem þeirra niðurstöðu, hvort sem ég er sammála henni eða ekki.“ Er Halldór var spurður að hvaða verkefnum í atvinnumálum Eyfirð- ingar myndu nú snúa sér, fyrst ál- ver væri úr sögunni í bili, sagði hann að það hefði ekki verið rætt á fundin- um með iðnaðarráðherra. „Það er hins vegar ljóst að það geta verið möguleikar á iðnaðarsviðinu. Það eru auðvitað erlendir aðilar í sam- bandi við íslenzk stjórnvöld á hveij- um tíma, sem hljóta að koma til greina. Við hljótum líka að horfa til fleiri þátta almennt í atvinnuupp- byggingu, hvort sem það snýr að sjávarútvegi eða ýmsu öðru,“ sagði Halldór. Hann sagðist ekki geta nefnt nein ný verkefni, sem menn gætu snúið sér að strax. „Það verður kannski að segjast eins og er að púðrið á undanförnum misserum hefur farið í álver. í það hefur farið mikil vinna, og starfskraftar til að vinna að stór- um verkefnum eru takmarkaðir. Það er þannig út af fyrir sig ekkert eitt stórt verkefni, sem bíður eftir því að verða meðhöndlað. Við þurfum smátíma til að komast í gang.“ Halldór sagði að sú gagnrýni ætti ef til vill rétt á sér, að um of hefði verið einblínt á nýtt álver í Eyja- firði, en minna á aðra kosti í atvinnu- málum. „Það er auðvelt að segja slíkt, ekki sizt núna, þegar þessi ákvörðun liggur fyrir,“ sagði Hall- dór. „Ég geri ráð fyrir að ýmsir segi að það hefði átt að vinna miklu meira í þessu álmáli og hafa þá trú ,að þá hefðu kannski verið meiri líkur á að það kæmi. Ég er samt sem áður ekki viss um að svo sé. Ég held að það hafi verið unnið tiltölu- lega markvisst. Ég viðurkenni það reyndar að það hefði hugsanlega mátt hafa eitthvað fleira inni í mynd- inni samhliða, þótt smærra væri.“ Isak Ólafsson, sveitarstjóri á Reyðarfirði, sagði að á fundinum með ráðherra og Atlantsáls-mönnum hefði Austfirðingum verið skýrt formlega frá staðarvalinu og þeim þökkuð sú vinna, sem þeir hefðu lagt í málið. „Við getum tæplega verið sáttir við þessa niðurstöðu, af því að við stefndum að því að fá álverið," sagði hann. Aðspurður hvað myndi gerast næst í atvinnumálum Áustfírðinga, sagði ísak ljóst að á næstu vikum yrði að taka upp viðræður við iðnað- arráðuneytið um aðgerðir sem mið- uðu í þá átt að sporna við fólks- flótta úr fjórðungnum. Aðspurður hvort áfram væri stefnt á stóriðju af einhveiju tagi, sagði ísak það ekki vera. „Þetta er bara spurningin um að skapa fleiri atvinnutækifæri í fjórðungnum, sem styrkja stöðu hans gagnvart Suðvesturhorninu," sagði hann. 3 eignarhaldsfélög stofnuð um álverið Iðnaðarráðuneytið sendi í gær frá sér eftirfarandi frétt um staðarval og staðfestingu samningsáfanga i álsamning- unum: Inngangur í dag staðfestu iðnaðarráð- herra og samninganefnd Atlant- sálsfyrirtækjanna mikilvægan áfanga í samningaviðræðunum um nýtt álver á Islandi, sem rísa mun á Keilisnesi. Þar er Ijallað um framvindu samningsgerðarinnar, staðsetn- ingu álversins og atriði varðandi aðalsamning, orkusamning og hafnar- og lóðarsamning. Þá er staðfest málsmeðferð varðandi útgáfu starfsleyfis. Er þannig lagður grundvöllur að frumvarpi til laga um nýtt álver og þing- legri meðferð málsins nú í haust. Hafa ber í huga að með stað- festingu þessa áfanga í samning- unum er ekki verið að semja end- anlega um byggingu álvers hér á landi. Þar er hinsvegar lýst meg- inskilmálum sem lagðir verða til grundvallar við hina endanlegu samningsgerð og við samningu frumvarps til heimildarlaga. Stefnt er að afgreiðslu slíkra heimildarlaga fyrir árslok. Loka- ákvarðanir stjórna Atlantsálsfyr- irtækjanna munu liggja fyrir á fyrsta ársfjórðungi 1991. Þá gefst stjórnvöldum kostur á að leggja lokamat á málið og ákveða hvort samningsheimildin verður nýtt. Stofnun félagsins, stjórn, gildistími aðalsamnings o.fl. Gert er ráð fyrir að stofnsett verði þrjú eignarhaldsfyrirtæki Atlantsálsaðilanna hér á landi sem eigi hlutabréf í Atlantsáli hf., en það verður eigandi ál- bræðslunnar á Keilisnesi. Aformuð er skiþun sérstakrar ráðgjafarnefndartil að ræða sam- eiginleg hagsmunamál aðila á jafnréttisgrundvelli, jafnframt því sem Islendingar munu eiga full- trúa í stjórn Atlantsáls hf, Miðað er við að fyrirtækið verði starfrækt sem bræðslusamlag, þ.e. það umbreyti súráli í ál gegn endurgreiðslu alls bræðslukostn- aðar, en án þess að bræðslan eigi hráefni eða unnið ál. Fjallað er sérstaklega um rétt innlendra aðila til verktöku og þjónustu fyrir félagið. Tryggður verður réttur íslenska ríkisins til að ráðstafa allt að 5% af fram- leiðslu félagsins vegna frekari úrvinnslu hér á landi á þess veg- um eða þriðja aðila. Islensk lög verða ráðandi um túlkun og framkvæmd samning- anna og úrskurður deilumála mun heyra undir íslenska dómstóla eða gerðardóm samkvæmt íslenskum gerðardómslögum. Gildistími aðalsamningsins verður 25 ár með rétti til fram- lengingar um 5 ár í senn í tvö skipti. Verði sá réttur nýttur yrði gildistími aðalsamnings 35 ár. Skattamál Umsvif Atlantsálsfyrirtækj- anna hér á landi verða skattlögð sem um eina heild væri að ræða og munu grundvallarreglur íslensks skattaréttar gilda um skattlagninguna. Eignarhaldsfé- lögin munu ekki njóta skattfrest- unar- eða skattlækkunarheimilda íslenskra skattalaga, en munu greiða 30% virkan tekjuskatt af breiðari stofnj. Tekjuskattur verður lagður á áætlaðar tekjur samkvæmt um- sömdum reiknireglum. Greiddur verður sérstakur skattur af heild- arveltu álbræðslunnar og Atlant- sál hf. mun greiða fasteignagjöld af umsömdu fasteignarmati með afslætti fyrstu fjögur árin. Um þetta meginatriði er samkomulag við viðkomandi sveitarfélög. Endurskoða má skattlagningu Atlantsáls í samræmi við ákvarð- anir Alþingis um að leggja á nýja skatta hér á landi. Einnig er gert ráð fyrir að Atlantsálsfyrirtækin' geti á samningstímanum valið að verða skattlögð að öllu leyti í samræmi við íslensk lög, en sérá- kvæði aðalsamningsins og heim- ildarlaganna um skattamál falli þar með niður. Lausn deilna um skattlagningu skal heyra undir íslenska dóm- stóla. Hafí deila um skattlagn- ingu veruleg áhrif á framkvæmd aðalsamningsins, verður heimilt að vísa deilum til gerðardóms- meðferðar samkvæmt íslensku gerðardómslögunum. Orkuverð I tengslum við samkomulagið var undirrituð stutt bókun um meginniðurstöðu viðræðna um orkusamning sem ráðgerður er milli Landsvirkjunar og Atlant- sálsaðilanna. Samkvæmt þessari bókun verður orkuverðið ákveðið hlut- fall af álverði. Veittur verður af- sláttur af verðinu fyrstu árin, þ.e. 1994-1996, með ákveðnum efri og neðri mörkum. Orkuafhending heijist 1994 og taki til um það bil 3.000 GWh á ári með 90% orkunnar sem forgangsorku. Kaupskylda verði af hálfu Atlant- sáls á 90% af forgangsorkunni. Endanlegur orkusamningur mun innihalda grein um endurskoðun- arrétt. Orkusamningurinn mun verða til 25 ára og skal Atlantsál hafa rétt til að framlengja samn- inginn tvisvar sinnum um 5 ár í hvort sinn. Staðsetning, lóð, höfn o.fl. Samkomulag hefur orðið um að álverið rísi á Keilisnesi á V atnsley suströnd. Meginatriði hafnar- og lóðar- samnings voru staðfest í sérs- takri bókun milli hlutaðeigandi sveitarfélag og Atlantsálsaðil- anna. Þar er gert ráð fyrir að höfn fyrir álverið verði á vegum Atlantsáls hf. sem byggi höfnina og reki en með afnotarétti ann- arra iðnfyrirtækja, ef stofnuð verða, í nágrenni verksmiðjunnar. Þá skuldbinda sveitarfélögin sig til að veita Atlantsáli almenna þjónustu á kostnaðargrundvelli. Starfsleyfi og umhverfismál I samkomulaginu er gert ráð fyrir að álbræðslan verði byggð á nýjustu tækni við mengunar- varnir við framleiðslu og steypu á áli. Alverið á Keilisnesi verður frá sjónarmiði umhverfisverndar í fremstu röð álvera í heiminum. Atlantsálsfyrirtækin þrjú eru þekkt fyrir góðar mengunarvarn- ir í verksmiðjum sínum. I samræmi vð samkomulag aðila frá í júní er staðfest að Atlantsálsaðilarnir hafi lagt fram umsókn um starfsleyfí og að umsóknin verði til umfjöllunar og útgefin í samræmi við ákvæði íslenskra laga og mengunaivarn- arreglugerðar. Starfsleyfi verði útgefið og gildi til jafnlengdar aðalsamningi, þ.e. allt að 35 ár. Endurskoða megi leyfið ef til- teknar aðstæður koma til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.