Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 Bretland: Er Bayeux-refillinn ekki j afn gamall og talið hefur verið? St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BRESKUR sérfræðingur I vefnaði telur, að matreiðsluaðferðir, sem sýndar eru í Bayeux-refiinum, bendi til, að hann sé ekki 900 ára gamall, eins og talið hefur verið. Forstöðumaður British Museum hafnar þessari kenningu. Refillinn er kenndur við frönsku borgina Bayeux á Normandie-skaga og sýnir orrustuna við Hastings 1066. Robert Chenciner, sem er sér- fræðingur í persneskum vefnaði og saumaskap og er nú á Garði heil- ags Antoníusar við Háskólann í Oxford, telur að matbúningur, sem sýndur er á einum stað á reflinum, bendi til, ásamt öðru, að refillinn sé ekki eins gamall og álitið hefur verið. Þar er kjöt skorið niður í teninga og þrætt upp á tein og nefnist sú steikingaraðferð nú „shish kebab“. Chencier segir við breska blaðið Observer að engar heimildir um þessa tegund matseld- ar séu til frá elleftu öld. Hann telur þijár ástæður til við- bótar benda til þess, að yefillinn sé ekki 900 ára gamall. í fyrsta lagi er hann svo vel varðveittur, að erfitt er að fallast á að hann sé svo gamall. Reflar frá 15. og 16. öld eru mun_ ver famir en Bayeux-refillinn. í öðru lagi er myndgerðin, teikningin, mun frum- stæðari en í verkum frá sama tíma. Hann bendir á að lýsingar, þ. e. teikningar, í handritum frá þessum tíma og saumaskapur í öðrum verk- um sé mun fágaðri og flóknari. í þriðja lagi segir hann, að eng- in för eftir teikningu megi finna á reflinum, sem sé algengt í svona viðamiklum verkum, heldur bendi ýmislegttil, að hann sé eftirmynd. Chencier sá Bayeux-refilinn, sem er til sýnis fyrir almenning, í Hluti refilsins sem kenndur er við frönsku borgina Bayeux á Normandie-skaga og sýnir orrustuna við Hastings 1066. fyrsta sinn sl. sumar. Tók hann þá eftir því að einn þjónn Vilhjálms konungs undirbjó mat fyrir konung með fyrrgreindum hætti. Þegar hann kom heim fór hann að afla sér upplýsinga um matargerð þessa tíma. Honum hefur reynst ómögu- legt að finna nokkrar heimildir um „shish kebab“ frá 10. öld. Hann telur þessa aðferð við kjötsteikingu vera að líkindum komna frá Márum á Spáni, en miklu seinna en á þeim tíma, sem refillinn á að hafa verið saumaður. Þá tók hann að skoða aðra þætti refilsins og taldi suma þeirra benda til þess að hann væri síðari tíma eftirmynd. Sir David Wilson, yfirmaður British Museum, hafnar þessum rökum og telur refilinn ósvikinn. Hann sé augljóslega frá 11. öld og sé í samræmi við þekkta myndgerð frá þeim tíma og ástæðan til þess, að hann hafi varðveist svo vel, sé sú, að hann hafi verið geymdur lengst af vafinn upp. Uppreisnin í Rwanda Uppreisn- \ o km 150 armenn Kampala fara yfir ÚGANDA landamærin ZAIRE r 'iktoríu- vatn TANZAMiA r^Kigali /l' 0 p RWANDA fBURUNDI REUTER Franskar og belgískar her- sveitir sendar til Rwanda borg Mið-Afríkuríkisins. Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins sagði að stjórnin hefði miklar áhyggjur því að hatrammar ætt- bálkaeijur kynnu að bijótast út í landinu. Uppreisnin hófst á sunnudag er flóttamenn frá Rwanda réðust jnn í landið frá nágrannaríkinu Úg- anda. Talið er að um hálf milljón manna hafi flúið Rwanda til ná- grannaríkjanna Burundi, Zaire, Tanzaníu og Úganda á undanförn- um árum og áratugum. Langflestir þeirra eru af Tutsi-ættbálkinum, sem er í miklum minnihluta en var við völd í landinu þar til árið 1959 er langfjölmennasti ættbálkurinn, Hutumenn, sem eru um 85% lands- manna, gerði uppreisn. Síðan hafa hvað eftir annað brotist út blóðug átök á milli ættbálkanna. Uppreisnarmennimir segjast ætla að steypa forseta landsins, Juvenal Habyariman, og „spilltri valdaklíku hans“. Stjómarhermenn reyndu í gær að stöðva framrás uppreisnarmanna við bæinn Gahiro, um 70 km fra Kigali. íbúar höfuð- borgarinnar sögðu að mikil ringul- reið ríkti á meðal stjórnarher- manna, sem væru orðnir uppi- skroppa með skotfæri. París. Reuter. STJÓRNVÖLD í Belgíu ákváðu í gær að senda þegar í stað her- menn og hergögn til Mið-Afríku- ríkisins Rwanda til að vernda belgíska borgara eftir að upp- reisn hafði hrotist út í iandinu. Franska stjórnin ákvað að gera slíkt hið sama. Wilfried Martens, forsætisráð- herra Belgíu, sagði að ákvörðunin hefði verið tekin með samþykki stjórnarinnar í Rwanda til að vernda franska borgara og koma þeim úr landi ef þörf krefði. Um 1.600 Belg- ar eru í Rwanda, sem er fyrmm nýlenda Belgíu. Stjórnin í Frakklandi ákvað að senda 150 hermenn til Rwanda til að vernda franska borgara og sendiráð landsins í Kigali, höfuð- Sprenging í Parísarborg SPRENGING varð í íbúðarbyggingu í einu af úthverfum Parísar, Massy, fyrir dögun í gær. Að minnsta kosti fjórir menn biðu bana í sprenging- unni og átta urðu fyrir meiðslum. Ekki var vitað um afdrif tíu manna til viðbótar og var þeirra enn leitað í gær. Björgunarmenn áttu erfitt um vik þar sem þeir þurftu að grafa í rústunum með höndunum. Árs gömul Stúlka og móðir hennar, sem brenndist illa, voru fluttar á sjúkrahús með þyrlu og tveggja ára gamalt barn missti fótinn. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni. Mónakó: Þjóðarsorg ríkir vegna dauða Stefan- os Casiraghis Mónakó. Reuter. ALMENN sorg ríkti í Mónakó í gær vegna dauða eiginmanns Karólínu prinsessu, ítalska kaup- sýslumannsins, Stefano Casirag- hi, sem fórst í bátsslysi undan strönd Mónakós á miðvikudag. Fyrir átta árum fórst móðir Kar- ólínu, bandariska kvikmynda- stjarnan Grace Kelly, þegar hún fékk heilablóðfali undir stýri og bíll hennar fór út af vegi í fjall- lendinu fyrir ofan Mónakó. Casiraghi, sem var 30 ára að aldri, var að veija heimsmeistaratit- il sinn í siglingu hraðbáta. Bátur hans var 15 metra langur, fimm tonn að þyngd og gat náð um 180 kílómetra hraða á klukkustund. Bátnum tókst á loft á óvæntri öldu, snerist í loftinu og skall niður á hvolfi. Casiraghi tókst ekki að losa sig úr öryggisbeltinu. Casiraghi kvæntist Karólínu prinsessu árið 1983. Þau áttu þijú börn, Andreu, sex ára, Karlottu, fjögurra ára, 0 g Pierre, þriggja ára. Þegar Casiraghi sigraði í heims- meistarakeppninni í Atlanta í Bandaríkjunum í fyrra sagði hann að það væri draumur sinn að vinna við strönd Mónakós. þegar keppnin yrði haldin úti fyrir Mónakó. Hann tjáði blaðamönnum á laugardag að þetta yrði síðasta keppnin sem hann tæki þátt í. I fyrsta hluta keppninnar sem fram fór á mánudag tafðist Casirag- hi við björgun eins keppinauta sinna sem varð fyrir því að eldur kviknaði um borð í báti hans. Casiraghi bjóst við að verða að víkja úr keppninni, en ein grein keppnisreglnanna gerði honum fært að halda áfram. Casiraghi viðurkenndi í fréttavið- tali í fyrra að þessi íþrótt hefði hættur í för með sér. „En mér reynd- ist ómögulegt að hætta,“ sagði hann. „Mig hefur Iangað til að stjóma hraðbát frá því að ég var tíu ára gamall.“ í gær var tilkynnt að jarðarför Casiraghis færi fram á morgun, laugardag. Þing sameinaðs Þýskalands: Fyrsti fundurinn 1 Berlín- arborg* til hátíðarbrigða Bonn. Berlín. Reuter. FYRSTI þingfundur hins sameinaða Þýskalands var haldinn í gamla þinghúsinu (Reichstags-byggingunni) í Berlín í gær. í dag flyst þingið svo til Bonn þar sem fundir þess verða fyrst um sinn að minnsta kosti. Þinghúsið í Berlín var reist á síðasta áratug 19. aldar og hýsti löggjafarsamkundur þýska keis- aradæmisins frá árinu 1894 og síðar Weimar-lýðveldisins. Aðfara- nótt 28. febrúar 1933 kviknaði eldur í þinghúsinu. Það voru eink- um þingsalurinn og hvolfþakið yfír honum sem urðu illa úti. Ta- lið er að heldur fákænn, hollensk- ur stjómleysingi, Erwinus van der Lubbe, hafi kveikt í húsinu, e.t.v. að undirlagi nasista sem kenndu kommúnistum um glæpinn. Hús- braninn markar á táknrænan hátt endalok þingræðis í Weimar-lýð- veldinu. Samkunda nasista í hús- inu fram til ársins 1945 hét áfram Reichstag. Árið 1961 var hafist handa við að gera húsið upp en það stóð þá í Vestur-Berlín. Þar á meðal var þingsalurinn endurnýjaður. Vestur-þýska þingið kom margoft saman í Berlín á áranum 1955- 1965 en eftir það hafa þingflokkar og þingnefndir stöku sinnum fun- dað í Berlín. I húsinu hefur um nokkurra ára skeið verið sýning Reuter Fyrsti fundur þings sameinaðs Þýska- laiuls í gær. Á inn- felldu myndinni sést Reichstags- byggingin í Berlín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.