Morgunblaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 36
36.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
>ú getur glaðst yfir því að sam-
band þitt við náinn ættingja eða
vin batnar á næstunni. Þér geng-
ur vel.í viðskiptum núna, en ein-
hver þeirra sem þú umgengst er
ekki aliur þar sem hann er séður.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er óráðlegt að vænta sér
mikils af daðri. Sumir láta óör-
yggi út af persónulegum málefn-
um hafa neikvæð áhrif á afköst
sín í starfi. Kvöldið verður
ánægjulegt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Taktu enga áhættu í Qármálum.
Hugmyndaflugið ber þig ofurliði
í rómantíkinni núna. Notaðu
frítíma þinn á uppbyggjandi hátt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf) HIB
Farðu að finna vini þína. Einhver
misskilningur verður í ástarsam-
bandi þínu. Þú getur breytt því
sem þú vilt breyta núna. Láttu
vitið en ekki tilfinningarnar ráða
ferðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér bjóðast ný tækifæri í vinn-
unni, en það reynist þér erfitt að
halda fullri athygli við hversdags-
störfin. Hikið getur orðið þér fjöt-
ur um fót í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) CB-*1
Þér bjóðast óvæntir ferðamögu-
leikar. Þig langar til að hjálpa
einhveijum sem er i peningavand-
ræðum, en þér er ráðlegast að
blanda fjármáium þínum ekki í
málið. Forðastu tiifinningalega
og peningalega áhættu.
(23. sept. - 22. október)
Þér finnst ættingi þinn haga sér
undarlega núna. Farðu varlega
með krítarkortið í dag. í kvöld
langar þig að gera eitthvað
óvenjulegt og skemmtilegt.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Ekki er allt sem þú heyrir í dag
sannieikanum samkvæmt. Ógn-
vekjandi fréttir kunna að reynast
orðasveimur einn. Maki þinn
kemur þér skemmilega á óvænt
í kvöld.
Bogmaöur
(22. nóv. — 21. desember)
Vinur þinn kann að valda þér
vonbrigðum í peningamáJum. Þú
tekur aukinn þátt í hópstarfi
næstu vikumar. Þér miðar vel
áfram í vinnunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Sjálfstæði þitt kann að vinna á
móti þér i viðskiptum í dag. Var-
astu hvers konar fljótræði. I kvöld
ættirðu að sækja mannfundi og
slaka á.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Ráð sem þú fætð í dag getur
ieitt þig á viliigötur. Samskipti
þín við annað fólk eru ekki eins
góð og þau gætu verið. Þú gerir
jákvæðar breytingar heima fyrir
í kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Blandaðu geði við fólk, því að
maður er manns gaman. Þú verð-
ur að hafa gott yfirlit yfir fjár-
mál þin svo að hlutimir séu ekki
alltaf að koma þér á óvart.
AFMÆLISBARNIÐ verður að
vera sívinnandi tii að vera ánægt.
Það er líklegt til að leita víða
fyrir sér áður en það ákveður
lífsstarf sitt Það getur auðveld-
lega náð góðum árangri á sviði
lögfræði og leikiistar, en ætti að
varast að láta óeirðina leiða sig
til þess að gera breytingar breyt-
inganna vegna. Því iíkar lífið
best þegar allt er á fuliri ferð,
en nær sér best á strik þegar það
hefur róast.
Stjomuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
VOU D0NT MAVE TO 5AV,
V'L0U5V FIR5T 5ERVE "
8- IB
Þú þarft ekki að segja: „ömurleg
uppgjör*.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
MARMIC sagnkerfíð hefur
fyrir löngu gengið sér til húðar.
Ein hugmynd lifði þó af og var
tekin upp í Roman-laufínu og
síðar Precision. Það eru opnanir
á tveimur sem sýna 3-lita hend-
ur. Á EM 1952, fengu höfundar
kerfisins, ítalimir Mario Franco
og Michele Giovine, tækifæri til
að beita vopninu í leik gegn
Norðmönnum.
Austurgefur, enginn á hættu.
Norður
♦ KIO
VD106543
♦ ÁK6
+ 86
Vestur Austur
+ 632
V87
♦ 98
+ K109732
li
+ ÁG54
VÁKG92
♦ D1032
+
Suður
+ D987
V-
♦ G754
♦ ÁDG54
Vestur Norður
Dobl Pass
Austur Suður
2 lauf 3 lauf
Pass Pass
Útspil: tígulnía.
Opnun austurs á 2 laufum
sagði frá 3-lita hönd og 12—16
punktum. Norðmaðurinn Rarik
Halle var nokkuð djarfur að
skella sér inn á þremur laufum,
sem virðast svona fljótt á litið,
fara einhveijar milljónir niður.
En það er fljótt á litið. Það er
raunverulega gerðist var þetta:
Halle drap á tígulás og spilaði
spaðakóng. Austur tók á ásinn
og skipti yfír í hjarta, sem Halle
trompaði. Hann lagði niður
spaðadrottningu og trompaði
spaða. Stakk síðan hjarta heim
og spilaði tígli á kóng. Halle
hafði nú fengið 6 slagi og átti
ÁDG eftir í trompi. Vestur var
hins vegar altrompa og varð að
drepa hvem slaginn á fætur
öðmm af makker sínum og spila
upp í trompgaffal suðurs. Níu
slagir, en sagnvenjan lifir sem
sagt enn, þrátt fyrir allt.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Interpolis stórmótinu í Til-
burg um daginn kom þessi staða
upp í skák hinna kunnu stórmeist-
ara Yasser Seirawan (2.635),
Bandaríkjunum og Jan Timman
(2.660), Hollandi, sem hafði svart
og átti leik, Seirawan er kunnur
fyrir vamartækni sína, en hér
hefur hann blásið til sóknar á
kóngsvæng. Það hlutverk fer hon-
um ekki eins vel, sem sjá má nær
Timman óvæntri gagnsókn:
21. - Hxg2+! 22. Kxg2 - Db2+,
23. Kg3 - Rh5+, 24. Dxh5 -
gxh5 og svartur vann auðveld-
lega, úrsiitin í Tilburg urðu mjög
óvænt: 1-2. Kamsky (16 ára) og
Ivanchuk (21 árs) 8 ’/z v. af 14
mögulegum, 3. Gelfand (22ja ára)
8 v., 4. Short 7Vi v., 5—6. Anders-
son og Timman 6 ’A v., 7. Nikolic
6 v., 8. Seirawan 4 ‘A v.
Þeir Ivanchuk og Gelfand era
nú jafnir í þriðja sæti alheims-
stigalistans á eftir Kasparov og
Karpov, en árangur Kamskys kom
gífurlega á óvart.