Morgunblaðið - 05.10.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
Samvinnuferðir-Landsýn;
1.250 íslending-
ar fara til Dublin
MIKIL aðsókn hefur verið í fjögnrra daga ferðir sem ferðaskrifstofan
Samvinnuferðir-Landsýn hefur skipulagt til Dublin á Irlandi og hafa
alls um 1.250 manns keypt farmiða í siíkar ferðir hjá ferðaskrifstof-
unni. Upphaflega stóð til að famar yrðu tvær ferðir, en vegna aðsókn-
arinnar varð að fjölga ferðunum í átta.
reynslu í tvær ferðir til viðbótar
síðastliðinn sunnudag og uppselt
varð í þær strax daginn eftir.“
Að sögn Helga er verðlag mjög
hagstætt í Dublin og greinilegt að
fólk sækist eftir því að kómast þang-
að til innkaupa. „Við reynum að stíla
þetta ekki eingöngu upp á að fólk
fari í verslanir og því efnum við td
skoðunarferða um Dublin og kvöld-
skemmtana, þannig að fólk geti kom-
ið eitthvað fróðara heim jafnframt
því sem kannski verður eitthvað
meira í töskunum.
Ferðakrifstofan auglýsti tvær Du-
blin-ferðir í Morgunblaðinu sunnu-
daginn 23. september og að sögn
Helga Daníelssonar hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn var búið að selja í
fimm ferðir fyrir hádegi daginn eftir
og uppselt varð í þá sjöttu eftir há-
degið. „Við auglýstum síðan til
Hluthafafund-
ur Isflug*s í
næstu viku
Rætt um Rockall-svæðið
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Viðræður íslendinga við Dani/Færeyinga um Rockall-svæðið hófust í Reylcjavík í gær og lýkur í dag.
Kynntar voru endanlegar niðurstöður sameiginlegs rannsóknarverkefnis íslendinga og Dana/Færeyinga á
svæðinu. Að sögn Guðmundar Eiríkssonar sendiherra, formanns íslensku nefndarinnar, er þar að finna
ýmislegt sem vísindamenn telja athyglisvert, og staðfestir grun um að ekki sé útilokað að olía fínnist á
svæðinu þótt frekari rannsókna sé þörf með borunum. í öðru lagi munu nefndir þjóðanna bera saman
bækur og skiptast á skoðunum um hvernig best að standa að kynningu og stefnumótun í málinu varð-
andi fyrirhugaðar tvíhliða viðræður sem Bretar hafa ákveðið að eiga annars vegar við íslendinga og hins
vegar Dani/Færeyinga um málið.
Stjórn Landsvirkjunar:
Ekkert samþykkt um
orkusölu til nýs álvers
Málsmeðferð iðnaðarráðherra í álmálinu gagnrýnd
STJÓRN Landsvirkjunar gerði á fundi sínum í gær enga samþykkt
varðandi þau drög að samningi um orkusölu til nýs álvers, sem liggja
fyrir. Hins vegar kom fram gagnrýni frá ýmsum stjórnarmönnum á
samningsdrögin og á málsmeðferð Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra.
Landsvirkjun er sá aðili, sem selja mun væntanlegu álveri raforku, og
verður því að samþykkja samninga um orkuverð. Ljóst er að stjórnin
er ekki tilbúin á þessu stigi málsins að veita sitt samþykki fyrir orku-
sölu til álvers.
HLUTHAFAFUNDUR hefur verið
boðaður í Isflugi hf. í næstu viku.
Ætlunin er að fundurinn sam-
þykki hlutafjáraukningu og kjósi
nýja stjórn.
Isflug hefur flugrekstrarleyfí, en
er að öðru leyti pappírsfyrirtæki,
stofnað af nokkrum eigendum Arn-
arflugs á síðasta ári. Þegar Amar-
flug lét flugleyfí sín af hendi til Flug-
leiða vildu Amarflugsmenn að ísflug
tæki við og réði starfsfólk Amarflugs
til sín, en samgönguráðherra hafnaði
því, m.a. vegna krafna um að eigið
fé félagsins yrði að nægja fyrir
þriggja mánaða rekstrargjöldum, án
tekna.
Reynt hefur verið undanfarið að
fá hlutafé inn í ísfiug frá öðrum
aðilum en núverandi eigendum. Með-
al annarra hafa starfsmenn Amar-
flugs sýnt áhuga á að eignast hlut
í félaginu. Víglundur Þorsteinsson
framkvæmdastjóri hefur undanfarið
staðið í samningaviðræðum við er-
lenda aðila um samstarf, sem myndi
gera ísflugi kleift að halda uppi
áætlunarflugi til Amsterdam, þar á
meðal hollenzka flugfélagið KLM.
Víglundur sagði í gær að búizt væri
við svörum frá KLM í dag, og þá
myndi skýrast framtíð áforma um
að ísflug tæki við fluginu.
Missti út tvo
plastbáta
Flutningaskipið Hvassafell
missti út tvo nýja plastbáta, 10
og 14 tonna, tvær sjómílur út af
Hvanndalabjörgum um klukkan
18 í gær.
Loðnuskipið Guðmundur Ólafur
ÓF og togarinn Sigurbjörg ÓF náðu
glastbátunum og fóru með þá til
Ólafsíjarðar en mjög slæmt veður
var á þessum slóðum í gær.
Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík og stjómarmaður í Lands-
virkjun, segir að hann hafí á fundin-
um lýst því yfir að hann teldi það
mikinn feng ef álver yrði reist ef
bærilegir samningar næðust um
orkuverð,_ og að því ættu menn að
stuðla. „Á hinn bóginn vakti ég at-
hygli á því að Landsvirkjun, sem er
samningsaðili, hefur í raun hvorki
samið um orkuverðið né veitt neinum
aðila umboð sitt til að gera það,“
sagði Davíð. „Þess vegna er nauðsyn-
legt áður en að Landsvirkjun tekur
efnislega afstöðu og metur hvort
fyrirtækið sem slíkt þolir þessa
samninga eða ekki, að ríkið, sem
hefur haft með samningsgerðina að
gera, klári sinn hlut og afstaða ríkis-
stjómarinnar liggi fyrir fyrirvara-
laus.“
Aðspurður hvort hann teldi af-
stöðu ríkisstjómarinnar liggja fyrir
með undirritun Jóns Sigurðssonar
iðnaðarráðherra og fulltrúa Atlants-
áls í gær, sagðist Davíð ekki hafa
séð hvað Jón hefði undirritað. „Form-
aður þingflokks Framsóknarflokks-
ins segir að hann hafí undirritað
sendibréf, forsætisráðherra að hann
hafí undirritað fundargerð og sjálfur
segist hann hafa undirritað mikil-
vægan áfanga í átt að samninga-
gerð. Ég hef ekkert af þessu séð,“
sagði Davíð.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins tók Ámi Grétar Finnsson,
þingkjörinn fulltrúi Sjálfstæðisflokks
í stjóminni, þá afstöðu að eftir væri
að vinna að ýmsum mikilvægum at-
riðum í orkusölusamningnum, og því
væri ekki hægt á þesSU stigi að af-
greiða hann af hálfu Landsvirkjunar,
hins vegar væri nauðsynlegt að halda
samningsgerðinni áfram og hraða
henni sem mest.
Páll Pétursson, þingflokksformað-
ur Framsóknarflokksins, lét bóka
eftirfarandi á stjómarfundinum: „í
lögum nr. 42 frá 1983 um Lands-
virkjun segir m.a. að orkusölusamn-
ingar við iðjuver megi ekki „valda
hærra raforkuverði til almennings-
rafveitna en ella hefði orðið“. Þau
drög að orkusölusamningi við Atl-
antsál sem kynnt hafa verið í stjóm
LV tryggja þetta ekki og þarfnast
því breytinga.
í samningum verður að koma
ákvæði um endurskoðunarrétt vegna
harðræðis (sanngimissjónarmiða).
Ef spár um verðþróun ganga ekki
eftir og álverð verður lægra um ára-
bil hlýtur LV að verða að lækka
verð til almenningsveitna fremur en
stofna fyrirtækinu í voða.
Gólf verður að setja í samninginn,
annai-s er áhættan óbærileg. Aður
en LV getur samþykkt samning verð-
ur að liggja fyrir að traustir erlendir
bankar séu reiðubúnir að iána án
ábyrgðar frá eignaraðilum út á
samninginn það sem kostar að virkja.
Mörg önnur átriði þarfnast nánari
athugunar. Óhjákvæmilegt er að
stjóm LV hefur ekki samþykkt nein
atriði draga að orkusölusamningi.
Því hefur iðnaðarráðherra enga
heimild frá LV til þess að undirrita
skuldbindingar hvað varðar orku-
sölusamning."
Fulltrúar Alþýðubandalagsins í
stjóm Landsvirkjunar, þeir Siguijón
Pétursson, kjörinn af Reykjavíkur-
borg, og Finnbogi Jónsson, þingkjör-
inn varamaður Ólafs Ragnars
Grímssonar, bókuðu að þeir tækju
undir bókun Páls, en bættu við: „Nú
um nokkum tíma hafa stjórnarmenn
LV haft undir höndum, sem trúnað-
armál, ýmsar upplýsingar um þann
grunn, sem samninganefnd um
orkufrekan iðnað leggur til grund-
vallar í viðræðum sínum við Atlantal-
hópinn.
Þrátt fyrir það að stjóm LV hefur
sáralítð rætt hugsanlegt orkuverð
og þó að hún eða fulltrúar í beinu
umhoði hennar hafí aldrei hitt eða
rætt við væntanlegan orkukaupanda
virðist nú vera komið að lokum samn-
inga. Augsjáanlega á að stilla stjóm
fyrirtækisins upp andspænis full-
gerðum samningi.
Ráðherra orkumála hefur boðað
að hann muni síðar í dag undirrita
'samningsdrög varðandi byggingu
nýs álvers en ekki er einu sinni haft
fyrir því að kynna þessi drög fyrir
stjórninni áður en þau em undirrit-
uð. í öllum þessum málum hefur
verið gróflega gengið fram hjá stjóm
LV, nánast eins og henni komi samn-
ingsgerðin ekkert við.
Með þeim hugmyndum sem nú eru
á lofti er verið að binda alla beztu
virkjunarkosti þjóðarinnar til langs
tíma á verði sem er umtalsvert lægra
en meðalverð til álvera í „hinum vest-
ræna heimi". Því er veruleg hætta á
því að íslenzkir orkunotendur verði
í framtíðinni að greiða hærra orku-
verð en ella. Þessum vinnubrögðum
ber að mótmæla."
Jóhannes Nordal, formaður stjóm-
ar Landsvirkjunar, sagði í samtali
við Morgunblaðið eftir stjómarfund-
inn í gær að hann hefði á fundinum
ekki farið fram á umboð til að undir-
rita neitt samkomulag um orkusölu.
„Það voru engar samþykktir gerðar
á þessum fundi því að í raun er ekki
verið að gera neina samninga á þessu
stigi málsins," sagði hann, heldur er
verið að lýsa áföngum, sem hafa
náðst í því að skapa samningsgrund-
völl í málinu. Landsvirkjun er að
ræða þegar þau atriði, sem fyrir
ligKÍa> en það er ýmislegt í orku-
sölusamningnum, sem ennþá er ekki
búið að ræða nema að litlu leyti og
það er eðlilegt ac) stjóm fyrirtækis-
ins, sem endanlega verður ábyrg
fyrir þessum samningi, taki ekki af-
stöðu til einstakra atriða fyrr en þau
liggja öll fyrir. Ég fór ekki fram á
það að slík afstaða yrði tekin á þess-
um fundi.“
Hækkanabeiðnir í kjölfar olíuverðshækkunar;
Skipadeild Sambandsins óskar
7,5% hækkunar flutningsgj alda
SKIPADEILD Sambandsins hefur sent Verðlagsstofnun beiðni um
7,5% hækkun á flutningsgjöldum vegna hækkaðs olíuverðs og Eim-
skipafélag íslands telur sig þúrfa 6% hækkun, en kveðst reiðubúið
til að taka einhvern hluta þess á sig tímabundið á meðan þróun
olíuverðs sé óljós. Sendibílstjórar hafa farið fram á 12% taxtahækk-
un, en þar af eru tæplega 3% vegna hækkaðs oliuverðs og kostnaðar-
hækkana, og sérleyfishafar hafa farið fram á 12-14% hækkun, þar
af 5% vegna hækkaðs olíuverðs og kostnaðarhækkana, en mismunur-
inn er hækkanir sem þessir aðilar telja sig eiga inni frá fyrri tíð.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, segir að þjóðar-
sáttin sé sprungin ef olíuverðshækkunin leiði óhindrað til gjaldskrár-
hækkana á þjónustu og flutningum, og ríkið verði að sýna fordæmi
með því að halda ekki óbreyttri skattheimtu á olíu og bensín.
Ómar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar Sam-
bandsins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að farið hefði verið fram
á 7,5% hækkun fiutningsgjalda, en
mið hefði verið tekið af þeim hækk-
unum sem átt hefðu sér stað frá
því í byijun ágúst. „Olíukostnaður
hjá okkur undanfarin ár hefur ver-
ið á bilinu 5,5-6% af rekstrarkostn-
aði, og síðastliðna tvo mánúði hef-
ur komið til útgjaldaauki samfara
olíuverðshækkun. Meðal annars
hafa ýmsir undirverktakar hjá okk-
ur eriendis hækkað gjöld sín á
annan tug prósenta. Þannig kemur
þetta inn í mörg svið í okkar
rekstri, og hefur haft veruleg áhrif
á rekstrarafkomu okkar undanfar-
ið, en þó svo að beitt hafí verið
ítrustu aðhaldsaðgerðum undan-
famar vikur og mánuði þá dugir
það ekki tiL“
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim-
skipafélags íslands, sagði að verið
væri að undirbúa beiðni um hækk-
un flutningsgjalda, og Ijóst væri
að hækkunin þyrfti að vera að
minnsta kosti 6% til að ná til baka
þeim viðbótarkostnaði sem fylgdi
olíuverðshækkuninni. „Það er ekki
víst að það verði endanleg tala, því
það getur verið að við þurfum að
taka þetta á okkur að einhveiju
léyti tímabundið á meðan ekki er
ljóst hvort olíuverðshækkun verður
til frambúðar eða ekki.“
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði að ef
flutnings- og þjónustufyrirtæki
tækju olíuverðshækkunina að fullu
inn í gjaldskrár, og hækkunin yrði
ekki tekin inn í kaup launþega, þá
myndi þjóðarsáttin springa. Til
þess að olíuverðshækkuninni yrði
ekki veitt beint út í verðlagið, þá
væri það úrslitaskilyrði að ríkið
sýndi fordæmi með því að auka
ekki tekjur sínar með aukinni
skattheimtu í kjölfar olíuverðs-
hækkunarinnar, heldur halda
krónutölu skattheimtunnar
óbreyttri.
Fundur verður í verðlagsráði í
dag, þar sem beiðni olíufélaganna
um 15,4% hækkun á bensínverði
verður tekin fyrir, en ákvörðun um
nýtt bensínverð var frestað á fundi
verðlagsráðs í síðustu viku.