Morgunblaðið - 05.10.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990
7
Helgi Guðmundsson
Hæslirétlur staðfestir dóm
vegna dönsku myndanna
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm sakadóms Reykjavíkur í máli
ákæruvaldsins gegn Jóni Ottari Ragnarssyni fyrrum sjónvarpsstjóra
Stöðvar 2 og gert honum að greiða 200 þúsund króna sekt en sæta
40 daga varðhaldi ella vegna sýninga stöðvarinnar á tveimur dönskum
kvikmyndum, „I tvíburamerkinu"
og október 1989.
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu
sakadóms sem byggðist á að í 14
atriðum myndanna tveggja hafi ver-
ið lögð áhersla á að sýna á ögrandi
hátt, oft í nærmynd, kynfæri karla
og kvenna, kynmök fólks og fólk
við sjálfsfróun án þess að séð verði
og „í nautsmerkinu", í september
að það þjóni neinu augljósu mark-
miði öðru en að sýna kynlífsathafn-
ir. Listrænn, fagurfræðilegur og
leikrænn tilgangur þessara atriða í
myndunum þyki eigi vera sýnilegur
og því sé talið að um klám sé að
ræða.
Helgi Guðmundsson
ritsljóri Þjóðviljans
Sýningar
í Nýlista-
safninu
HELGI Guðmundsson hefur verið
ráðinn ritstjóri Þjóðviljans í stað
Arna Bergmann, og mun hann
væntanlega hefja störf á blaðinu
næstkomandi mánudag.
Að sögn Halls Páls Jónssonar,
framkvæmdastjóra utgáfufélags
Þjóðviljans, var ákvörðun um að
ráða Helga tekin á þriðjudaginn.
Hann sagði að Ámi Bergmann
myndi halda áfram einhveijum
skrifum í blaðið , en hann hefur
nú tekið að sér aukna kennslu í
rússneskum bókmenntum við Há-
skóla íslands.
Helgi Guðmundsson er fæddur
1943. Hann er trésmiður að mennt
og hefur sinnt ýmsum störfum í
verkalýðshreyfingunni og fyrir Al-
þýðubandalagið. Meðal annars var
hann formaður stjórnar Menningar-
og fræðslusambands alþýðu í 8 ár,
og ritari stjórnar Alþýðubandalags-
ins um skeið. Hann hefur undanfar-
ið unnið að ritstörfum, en tvær
bækur eftir hann koma út á vegum
Máls og menningar í haust.
Morgunblaðið/Sverrir
Haraldur Jónsson og Ingileif
Thorlacius.
TVÆR sýningar verða opnaðar
í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b. í
dag, föstudag. Á efri hæðum sýn-
ir Haraldur Jónsson þrí<f|ð verk.
I neðri sölum sýnir Ingileif
Thorlacius málverk.
Haraldur er fæddur í Helsinki,
Finnlandi. Hann stundaði myndlist-
arnám í Aix en Provence í Frakk-
landi, Myndlistar- og handíðaskóla
íslands og við Kunstakademie Dus-
seldorf. Þaðan útskrifaðist hann
sem Meisterschuler síðastliðið vor.
Þetta er önnur einkasýning Harald-
ar hér á landi.
Ingileif stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og
svo við Jan van Eyck Akademie í
Maastricht í Hollandi. Þetta er önn-
ur einkasýning Ingileifar, sú fyrri
var haldin í Ásmundarsal árið 1989.
(Fréttatilkynning)
VIÐ HREINSUM TIL
ÍFYRIRUEKJUM
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyrí
Securitas hf. ræstingardeild hefur innan sinna raða
230 manns sem daglega gera hreint
í tugum fyrirtækja á stórreykjavíkursvæðinu
ogáAkureyri.
Hrossarétt- !
ir í Víðidal
Hvammstanga.
HROSSARÉTTIR verða í Víðidal
á morgun, laugardag. Að sögn
Þóris Isólfssonar á Lækjarmóti,
má reikna með að um 500 hross
verði rekin til rettar, og hefjast
réttarstörf um kl. 11.00.
Sú hefð hefur komist á, að tals-
verð „hrossakaup" séu stunduð á
réttardaginn, enda margt velætt-
aðra hrossa í sveitinni. Ekki spillir,
að um kvöldið verður réttardans-
leikur í Víðihlíð.
- Karl. ' _
Við gerum þér tilboð án skuldbindinga!
SECURITAS
RÆSTINGARDEILD
Sími 687600