Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 40

Morgunblaðið - 05.10.1990, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 t Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar og afi, JOHN HARMON GRANT, Faxabraut 2a, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 6. október kl. 14.00. Ingibjörg Benediktsdóttir Grant, John H. Grant, Benedikt Grant, Janet E. Grant og barnabarn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, RUNÓLFUR GUÐMUNDSSON bóndi, Öivisholti, Hraungerðishreppi, sem lést þann 27. september, verður jarðsunginn frá Hraungerðis- kirkju laugardaginn 6. október kl. 13.30. Sætaferð verður frá B.S.Í. kl. 12.00. Ögmundur Runóifsson, Heidi Runólfsson, Kjartan Runólfsson, Margrét Kristinsdóttir, Sveinbjörn Runólfsson, Lilja Júlíusdóttir og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi GÍSLI TÓMASSON, Melhóli, Meðallandi, V-Skaftafellssýslu, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, Meðallandi, laugardaginn 6. október kl. 14.00. Rútuferð verður frá BSl kl. 8.30. Guðrún Gísladóttir, Sigurgeir Jóhannsson, Elín Gisladóttir, Höskuldur Jónsson, Jytta Eiberg, Ragnar Gíslason, Sigrún Gísladóttir, Sveinn Gunnarsson, Magnús Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, BJARNÞÓRA EIRÍKSDÓTTIR, áður húsfreyja í Dalbæ, Gaulverjabæjarhreppi, Grænumörk 1, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 6. október kl. 15.00. Hallgrímur P. Þorláksson, Eiríkur Hallgrfmsson, María Leósdóttir, Gunnþórunn Hallgrímsdóttirjón Ólafsson, Steinunn Hallgrfmsdóttir, Egill Örn Jóhannesson, Hörður V. Árnason, Jóhanna Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SÉRA BJARTMARS KRISTJÁNSSONAR. Sérstakar þakkir til sóknarbarna í Laugarlandsprestakalli fyrir veitta aðstoð. Hefna Magnúsdóttir, Snæbjörg R. Bjartmarsdóttir, Ólafur Ragnarsson, Kristján H. Bjartmarsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Jónfna Þ. Bjartmarsdóttir, Benjamín G. Bjartmarsson, Ólöf Steingrímsdóttir, Fanney H. Bjartmarsdóttir, Bert Sjögren, Hrefna S. Bjartmarsdóttir, Aðalsteinn Jónsson og barnabörn. t Þökkum af alhug samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR STEFANÍU STEINGRÍMSDÓTTUR, Ásgarðsvegi 16, Húsavfk. Árni Jónsson, Kristín Árnadóttir, Birgir Lúðvíksson, Steingrfmur Árnason, Ragna Pálsdóttir, Sigrún Kristbjörg Árnadóttir, Sveinn Indriðason, Jón Ármann Arnason, Árdfs Sigvaldadóttir, Bjarni Árnason, Þórdfs Helgadóttir, Agnes Árnadóttir, Elmar Ólafsson, Sigurður Árnason - og barnabörn. Svavar Sigmjóns- son — Kveðjuorð Fæddur 3. maí 1920 Dáinn 30. september 1990 - Enn kemur dauðinn á óvart, maður stendur eftir berskjaldaður og smár. Hugurinn er þungur og penninn stirður. Mig langar samt að reyna með nokkrum fátæklegum orðum að kveðja fósturföður minn, Svavar Siguijónsson, og þakka hon- um samveruna sem spannar yfir 30 ár. Hann giftist móður minni þegar ég var unglingur, en ég hafði aldr- ei notið föður míns þar sem hann dó þegar ég var ungbarn. En þessi maður uppfyllti allar þær þrár sem ég hafði borið í bijósti um að eiga föður þrátt fyrir að ég væri á við- kvæmum unglingsaldri. Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar við vorum kynnt, fallegu brúnu augun, trausta handtakið og lítið bros, en frá þeirri stundu urð- um við og vorum bestu vinir, og sú vinátta entist til dauðadags. Ég meira að segja treysti honum fyrir móður minni sem ég var búin að eiga svo lengi ein. Ég ætla ekki að rekja ættir né ævistarf Svavars en ekki er hægt annað en að minnast mannkosta hans en þeir voru meiri en hægt er að rekja hér með fáum orðum. Hann var traustur og trúr, hann var fróður og víðlesinn, kunni jafn- an utanbókar það sem hann hafði einu sinni lesið. Við þurftum enga alfræðiorðabók á okkar heimili, við gátum spurt hann og þá skipti ekki máli hvort það var úr fornsögum eða nútímabókmenntum, svörin voru á reiðum höndum, enda var lestur góðra bóka hans yndi. Ég mun oft minnast hans þegar ég kom í heimsókn og hann sýndi mér nýja bók eða bækur sem hann var að kaupa og sagði mér úrdrátt úr þeim og bauð mér þær til láns. Sem fósturfaðir minn varð hann seinna afi barnanna minna tveggja og nutu þau allrar hans ástar og visku sem hans eigin væru. Og er sárt um að hugsa að litla barna- barnabarnið hans sem er aðeins níu mánaða gamalt fékk ekki að njóta hans samveru lengur, og hann fékk ekki tækifæri til að kenna henni eitthvað af öllum vísunum og þulun- um sem að hann kunni'og unni. Og miðla henni einhveiju af öllu því góða sem hann átti til. Ég gæti endalaust rakið kosti Svavars en hér er aðeins stiklað á stóru. Ég kveð hér fósturföður minn með miklum söknuði og þakka góð- ar samverustundir, ég bið góðan guð að blessa minningu hans og styrkja móður mína á erfiðri stundu. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Harpa Elsku afi okkar er dáinn. Þessi hrausti, sterki, duglegi maður er allt í einu farinn frá okkur. Hann var okkar besti vinur og félagi fram á síðasta dag. Við minnumst þess oft þegar hann keyrði okkur um í kerru og þá strax kenndi hann okkur að þekkja fuglana og blómin. Það voru farnar ófáar ferðir niður að tjörn að gefa öndunum og á bryggjurnar að skoða bátana en þar var afi í essinu sínu, hann hafði unun á að segja okkur allt um báta, skip og það sem tengdist sjónum því hann hafði verið sjómaður í mörg ár. Afi gaf okkur fyrstu hjólin og kenndi okkur að hjóla og fór með á skauta niður á tjörn, í leikhús, skrúðgöngur, kröfugöngur að ógleymdum öllum vísunum og skemmtilegu sögunum sem hann svæfði okkur með á kvöldin. Alltaf var hann tilbúinn að leika við okkur hvenær sem okkur datt í hug og undrumst við nú þegar við erum orðin fullorðin hvað hann var alltaf þolinmóður og góður. Við vildum helst fara um hveija helgi og sofa hjá ömmu og afa. Oft fórum við í bæinn saman og kom þá fyrir að keyptir voru fuglar í búri eða hamstrar og meira að segja gat hann platað foreldra okkar til að leyfa okkur að fá kettling, og síðan höfum við alltaf haft ketti sem honum þótti svo gaman að og kom það oft í hans hlut að passa þá fyrir okkur í lengri eða skemmri tíma. Minningar þyrpast að, en hér er aðeins stiklað á stóru. Þrátt fyrir að við systkinin séum ekki lengur börn bar afi sömu umhyggju fyrir okkur og aldrei leið sá dagur að hann fylgdist ekki með hvað við verum að gera. Ef hann vissi af okkur einum heima með flensu, þá fór hann af stað og kom með heitan mat og annað góðgæti í poka og allar sínar ferðir fór hann með strætisvagni. Minningin um afa mun alltaf vera björt og hrein í hugum okkar, og biðjum við góðan guð að styrkja elsku ömmu okkar á erfiðri kveðju- stund. Kveðja frá barnabörnum Eva María Sævars- dóttir - Kveðja Fædd 12. nóvember 1982 Dáin 25. september 1990 „Þeir deyja ungir sem guðimir elska.“ Litla frænka okkar, Eva María er dáin, aðeins 7 ára gömul. Okkur er óskiljanlegt af hveiju Ijósið dó svona fljótt og hversvegna alviskan ætlaði henni ekki lengra líf hér á jörð. Litla Eva María var mjög fal- legt, glaðlegt og vel gefið barn og það sýndist svo eðlilegt að hún fengi að sýna til fulls hvað í sálu hennar bjó. Okkur þykir því lítt, skiljanlegt hver tilgangurinn var með dýrmætu gjöfinni, sem var tekin svo fljótt aftur. Elsku Auður, Sævar og börn, þó við skiljum ekki ráðsályktun Guðs, vitum við samt með vissu að sam- vera ykkar með ástkærri dóttur og systur, þó stutt væri, varð ykkur dýrmætur andlegur sjóður, og þeim auði getur enginn svipt ykkur. Þó lífsreynsla Evu Maríu væri t Elskulegur eiginmaður minn, faðir minn, tengdafáðir, afi og langafi, INDRIÐI HALLDÓRSSON múrari, lést á Borgarspítalanum að kvöldi miðvikudags 3. október. Ólöf Ketilbjarnar, Kolbrún Dóra Indriðadóttir, Guðmundur Guðveigsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR frá Múla, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 6. október kl. 14.00. Sigríður Steinsdóttir, Sveinn Magnússon, Jóna Steinsdóttir, Hilmar Guðlaugsson, Þóra Steinsdóttir, Finnbogi Árnason, Guðrún Steinsdóttir, Jóhann Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. stutt efumst við ekki um að hún fór með mikinn íjarsjóð úr heimi þessum, því hér fékk hún svo sann- arlega að njóta þess besta og dýr- mætasta sem lífið gefuri kærleika ástríkrar móður, föður og systkina. Og slíkur kærleikur lætur barns- sálina aldrei ósnerta heldur ávaxtar allt gott sem þar er geymt. Okkar trú er sú að þessi lífsreynsla hennar hér var ómiss- andi undirstaða til æðri og meiri hlutverka í öðrum heimi. Austurlenskt skáld komst eitt sinn svo að orði er hann var beðinn um að tala um börn: „Börnin eru send ykkur eins og ljósgeislar, til að lýsa ykkur, lengri eða skemmri veg, þau, sem lifa, eins og það er kallað, hverfa frá ykkur von bráð- ar, út í stritið og áhyggjurnar, og þið þekkið þau naumast framar. En börnin, sem deyja, hafið þið allt- af hjá ykkur, þau verða ekki fram- ar frá ykkur tekin.“ Elsku Auður, Sævar, Aðalmund- ur, Guðmundur og Lilja, þið hafið misst mikið en ykkur var mikið gefið. Guð gefi ykkur andlegan styrk. Fanney H. Bjartmars- dóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.