Morgunblaðið - 07.10.1990, Qupperneq 1
104 SIÐUR B/C
227.tbl.78.árg.
Nú geta konur
pissað standandi
KARLMENN geta vart höfðað öllu
lengur til þeirrar sérstöðu að geta kast-
að af sér vatni standandi því nú sténd-
ur yfir í Chicago vörusýning þar sem
sýnd er ný hönnun; migildi fyrir konur
sem vilja ekki silja er þær þjóna kalli
náttúrunnar. Svipar því til veggskálar
sem hingað til körlum einum hefur
verið kleift að nota. Kvennaskálin er
þó „stillanleg" svo hún henti öllum
stærðum og gerðum og af því tilefni
er trektin á sveigjanlegum rana.
Ljónsungi veldur
ónæði í Brooklyn
ÍBÚAR í Brooklyn-hverfinu í New York
vörpuðu öndinni léttar í gær eftir að
lögregla „handsamaði“ ljón í íbúð þar
í hverfinu. Stóð þeim stuggur af öskri
miklu í tíma og ótíma úr einni blokkar-
íbúð og kölluðu á lögreglu. Reyndist
þar inni sex mánaða gamall ljónsungi
sem húsráðandi, innflytjandi frá Dóm-
inikanska lýðveldinu, geymdi þar í búri
sem gæludýr. Stranglega var bannað
að hafa framandleg dýr í blokkinni og
var ljónið því tekið og komið fyrir í
sérstöku dýraathvarfi.
Eigandi Scandinav-
ian Star ákærður
HENRIK Johansen, eigandi Danolini-
ens-útgerðarfélagsins, hefur verið
ákærður fyrir brot á hegningarlögum
vegna brunans um borð í ferjunni Scand-
inavian Star fyrr á þessu ári Ákæran
byggist á því að Johansen hafi stofnað
lífi og heilsu farþeganna í yfirvofandi
hættu í ábataskyni. Refsing fyrir slíkt
brot getur varðað allt að fjögurra ára
fangelsisdómi.
Kastró hættur
vindlareykingum
KASTRÓ Kúbuleið-
togi hefur fyrirskip-
að átak gegn
reykingum í skólum
landsins, allt frá
leikskólum og upp í
háskóla. Til þess að
fara á undan með
góðu fordæmi hefur
hann sjálfur hætt
reykingum. Var hann stórreykinga-
maður og Havanavindlar hafa löngum
verið vörumerki hans. Verður áróður
gegn tóbaksreykingum skyldugrein í
öllum menntastofnunum Kúbu næsta
vetur.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Pattstaða milli Bandaríkjaþings og ríkissljórnar:
Ríkisútgjöld stöðvuð vegna
skorts á fjárlagaheimildum
Einungis allra nauðsynlegustu þjónustu haldið gangandi
Washington. Reuter.
Á MIÐNÆTTI aðfaranótt laugardags var byrjað að draga úr opinberum umsvif-
um í Bandaríkjunum. Ástæðan er pattstaða sú sem komin er upp milli George
Bush Bandaríkjaforseta og þingsins vegna afgreiðslu fjárlaga. Hætt var að selja
aðgang að Frelsisstyttunni og öðrum ferðamannastöðum í gær, tafir urðu á toll-
afgreiðslu og sorphirða var í lágmarki svo dæmi séu nefnd um þau áhrif sem
skortur á fjárlagaheimildum hefur á starfsemi ríkisins.
Aföstudagskvöld samþykkti þingið
aukafjárveitingu til að halda starf
semi hins opinbera gangandi í viku til við-
bótar á meðan fundin væri endanleg lausn
á deilunni um fjárlögin.
Bush stóð hins vegar við orð sín og
neitaði að leggja blessun sína yfir aukafjár-
veitinguna. Hann vildi að þingið sam-
þykkti fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar
eða kæmi með ný frumvarpsdrög ella.
í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar sem
er niðurstaða mánaðalangra viðræðna
ríkisstjórnar og þipgleiðtoga var gert ráð
fyrir 500 milljarða dala niðurskurði fjár-
lagahallans næstu fimm árin. Fulltrúadeild
Bandaríkjaþings felldi frumvarpið hins
vegar óvænt á fimmtudagskvöld.
Richard Darman, forstöðumaður ijár-
laga- og hagsýslustofnunar Banda-
ríkjanna, sagði í gær í bréfi til forstöðu-
manna ríkisstofnana að stöðva ætti alla
starfsemi nema þá sem væri til þess fallin
að „vernda líf og eignir“ manna. Það þýð-
ir til dæmis að útgjaldastöðvunin kemur
ekki niður á starfsemi Bandaríkjahers.
Frídagur er í Bandaríkjunum á mánudag
þannig að áhrif stöðvunarinnar verða ekki
fullljós fyrr en á þriðjudag.
Hafi lausn ekki fundist á fjárlagadeil-
unni þá, er gert ráð fyrir að opinberir
starfsmenn mæti samt til vinnu. Einungis
allra nauðsynlegasta fólki verður síðan
haldið í vinnu en hitt sent heim.
Bush átti í gær fundi með leiðtogum
þingsins til þess að finna lausn á deilunni
og einnig voru báðar deildir Bandaríkja-
þings boðaðar til þingfundar í gær. Er
slíkt mjög óvenjulegt á laugardegi.
miim
iÞmpommi
m
WIDERÁÐ
HRlMKOm
LYKLA- 1C
PESAR