Morgunblaðið - 07.10.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1990
/ /
SLENDINGAR I UTLONDUM
HOTELSTJORl A
\V ll LÍ XHSHÓTEIJ
• •
I KVII’HWWIIOIV
eftir Jóhannes Tómasson
íslenskur hótelstjóri er um þessar mundir að taka við starfi hótel-
stjóra á nýju lúxushóteli í Kaupmannahöfn sem opnað verður næsta
vor. Þetta nýja hótel á að að sögn eigendanna taka fram öllum lúxus-
hótelum sem hingað til hafa verið starfrækt í borginni, svo sem
D’Angleterre, Hotel Scandinavia og Royal Hotel. Nýja hótelið heitir
Fönix eða Phönix eins og það er ritað á dönskunni og er í eigu
Arp-Hansen samsteypunnar sem rekur 9 hótel og nokkra hamborg-
arastaði. Hótelstjórinn er Hlín Baldvinsdóttir og hún er langt frá
því að vera byrjandi í faginu - hefur starfað að hótel- og ferðamálum
í 25 ár. Hlín segir hvernig það hafi komið til að hún tekur nú við
þessari stöðu:
g flutti hingað
til Kaupmanna-
afnar árið 1975
Ig ætlaði fyrst
að vera heimavinnandi en
fór fljótlega að leita mér að
vinnu sem reyndist ekki auð-
velt. Hver vildi ráða konu
með tvö börn sem kunni
enga dönsku? Ég fékk þó
vinnu hjá á Spies ferðaskrif-
stofunni við bókhald og
hafði ég umsjón með að allir
hótelsamningar væru í lagi
en þeir voru um 200.
Hjá Spies vann ég í 7 ár
- var álltaf á leiðinni heim
- en mér var alltaf boðin
kauphækkun þegar ég ætl-
aði að hætta. Það kom þó
að því og þá bauðst mér
vinna hjá Arp-Hansen, starf
hóteistjóra á Hotel Gentofte.
Ég þáði það og kvaðst geta
verið þar í þijú til fjögur ár
en ætla svo heim. Árið 1986
kaupir hann Grand hotel og'
bauð mér að taka við því
og þar hef ég verið þar
til ég flyt mig enn á
nýtt hótel sem hann
ráðgerir að opna í
Á leiðinni heim
Þú ert þá ekki á leiðinni heim
lengur?
„Jú, ég á tvo stálpaða unglinga
sem eru langt komnir í námi og
þegar þau eru búin ætla ég heim
- það er ákveðið mál. Ég ætla
ekki að taka þátt í að byggja upp
fleiri hótel hér.“
Alf Arp-Hansen er múrara-
meistari sem hefur gegnum árin
keypt gömul hús, gert þau upp
og selt. Þar er einnig um að ræða
hótel og nú eru þau orðin 9: Ny-
havn 71 hotel, Hotel Opera, Grand
hotel, Hotel Astoria og Hotel
Christan IV sem öll eru í hjarta
Kaupmannahafnar, síðan Gen-
tofte Hotel, Hotel Konstrup Mölle-
kro í Holbæk og Hotel Kong
Valdimar í Vordingborg. Arp-
Ilansen er enn í fullu fjöri en son-
ur hans, Henning, er framkvæmd-
astjóri samsteypunnar.
I ársbyijun var gengið frá
samningum um kaup á húsnæðinu
fyrir Hótel Phönix en það er á
horni Bredgade og Dronningens
Tværgade. Húsið er 300 ára gam-
alt og þar hefur lengst af verið
rekið hótel, þó ekki síðustu 40
árin. Um miðjan júní hófust tugir
manna handa við að rífa niður
innviði byggingarinnar og í ágúst-
byijun hófst uppbyggingin. Er
það dæmi upp á um 200 milljónir
danskra króna eða nærri tveggja
milljarða íslenskra.
Alls verða 212 herbergi í Phön-
ix, þar af 8 stórar svítur og 50
litlar. Hver svíta verður með gulli
slegnum krönum á baði og þar
verða öll hugsanleg þægindi og
m.a. myndsenditæki fyrir þá sem
þurfa að vinna. Anddyrið verður
gríðarstórt og þar verða gos-
brunnar og allt slegið marmara.
Var hann sóttur til grísku eyjar-
innar Tasos. En hvernig leggst
það í Hlín að taka við þessu starfi?
„Það leggst í sjálfu sér ágæt-
lega í mig en samt finnst mér
skrítið þegar ég hugsa til baka
af hverju Islendingur skuli vera í
þessari stöðu. Ég hef nú síðustu
árin tekið sæti í stjórn Hótel- og
veitingasamtakanna hér og sit þar
í ýmsum nefndum og mér finnst
það skrítnast af hveiju íslending-
ur skuli sinna öllum þessum
dönsku málefnum.“
Vantar hótelherbergi
En hver er ástæðan fyrir að
ráðist er í að byggja hótel sem
þetta - eru þau ekki nógu mörg
fyrir í Kaupmannahöfn?
„Nei, í rauninni ekki. Kaup-
mannahöfn á ekki í dag það sem
maður myndi kalla verulega glæs-
ilegt hótel - þau sem hafa verið
það eru það ekki lengur því kröf-
urnar eru alltaf að breytast.
Heildarijöldi hótelherbergja er
heldur ekki nægur. Fyrir nokkru
var kannað hvort hægt yrði að
halda hér alþjóðlegt rotaiy-þing
árið 1994 en þá þurfti að útvega
6 þúsund manns gistingu.1 Það
kom í ljós'að ekki var hægt að
tryggja nægilegan herbergja-
fjölda þannig að hér vantar enn
talsvert á að hægt sé að halda
fjölmennar alþjóðlegar ráðstefn-
ur.“
Hlín Baldvinsdóttir segir að um
þessar mundir sé sölustarfsemi
fyrir Phönix að hefjast og þegar
hefur starfsmaður tekið til við það
verkefni. Aðrir starfsmenn, um
100, verða ráðnir á næstu vikum
og mánuðum. Salan fer m.a. fram
gegnum tölvuvætt bókunarkerfi,
Supranational, sem Grand og
fleiri hótel taka þátt í og nær til
450 hótela í 30 löndum, meðal
annars íslandi. Gegnum þetta
kerfi er hægt að bóka hótel um
allan heim og fá allar upplýsingar
um verð og annað en eitt af mörg-
um verkefnum Hlínar hefur ein-
mitt verið að sjá um daglega
stjórn á þessu bókanakerfi.
Verður erfitt að ná upp nýtingu
á Phönix þar sem fjárfestingin er
um það bil ein miiljón danskra
króna á herbergi?
Meðalnýting 62%
„Það verður sjálfsagt erfitt en
hins vegar má benda á að meðal-
nýting á hótelum í Kaupmanna-
höfn hefur verið um 62%_ en hún
var 76% á Grand hotel. Ég vona
að við getum fljótlega náð þeirri
nýtingu sem þarf. Við munum til
dæmis kynna hótelið rækilega
fyrir starfsmönnum flugfélaga og
ferðaskrifstofa en það er mjög
mikilvægt að þeir hafi séð viðkom-
andi hótel svo að þeir viti hvað
þeir eru að selja.“
Ekki er að heyra að Hlín hafi
tapað íslenskunni eftir 15 ár í
Danmörku - danskan er þó oft
komin fram á varirnar þegar hún
leitar að rétta orðinu á íslensku.
„Nei, ég hef ekki farið heim nema
þrisvar á þessum tíma en hins
vegar koma foreldrar mínir oft í
heimsókn og ég les líka alltaf
Morgunblaðið."