Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990 ---------------------------------------------------- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990 31 Útgefandi pramkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. • Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. f Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Verðbréfasjóður fyrir erlend verðbréf Settur hefur verið á fót verð- bréfasjóður á vegum Landsbréfa hf. — Heimsbréfa- deild Landssjóðs hf. — sem Ijár- festa mun í erlendum verðbréf- um, skuldabréfum og hluta- bréfum, eftir 15. desember nk. þegar heimild þar að lútandi tekur gildi. Sala bréfanna er hafin og mun sjóðurinn geyma fé sitt í innlendum verðbréfum unz heimildin til fjárfestingar erlendis tekur gildi. Landsbréf hafa gengið til samninga við brezka verðbréfafyrirtækið Barclays de Zoete Wedd (BZW), sem sér um sjóðastjóm- un. BZW hefur aðstöðu í 75 löndum, m.a. í London, Tókíó og New York, stærstu fjár- málamiðstöðvum heims. — Að- ur var stofnaður Fjölþjóðasjóð- ur Fjárfestingarfélagsins, sem fjárfestir i erlendum verðbréf- um. Sá sjóður hefur gert sam- komulag við Skandinaviska Enskilda Banken, sem annast mun kaup á bréfunum. Þá má búast við að önnur verðbréfa- fyrirtæki geri grein fyrir sínum fyrirætlunum í þessum efnum á næstunni. Fagna ber því skrefi í frjáls- ræðisátt, sem stigið er með opnun þessa fjárfestingar- möguleika. Morgunblaðið hefur ítrekað lýst stuðningi við það að íslendingum gefist kostur á að eignast erlend verðbréf, eins og almenningi í flestum vest- rænum ríkjum. Frelsi einstaklinga og fyrir- tækja til að ráðstafa eigin sparnaði og fjármunum á þenn- an hátt er — eins og frjáls gjaldeyrisviðskipti — liður í því að brjótast út úr þeirn vítahring verðbólgu og gengisfellinga, sem við höfum verið föst í síðustu tvo ártugi. Almenningur eygir ekki að- eins aukið viðnám gegn verð- bólgu í þessu aukna frjálsræði. Það gerir og stjórnmálamönn- um erfiðara um vik í brenglun á gengi krónunnar. Sé gengi hennar of hátt skráð gæti sparnaður leitað út úr landinu þar eð sparifjáreigendur vilja tryggja síg fyrir gengisfalli sem ekki yrði komizt hjá þegar til lengri tíma er litið. Sameining Evrópu í einn markað og hugsanlegt sameig- inlegt myntkerfi gera slíka breytingu enn brýnni en ella. Ýmsir vilja að gengi krónunnar verði tengt við Evrópumyntina. Um það eru skiptar skoðanir. En mergurinn málsins er að íslenzkur fjármagnsmarkaður fái og nái að bijótast út úr þeirri einangrun sem hann hef- ur verið og er í. Þessi fjárfestingarmöguleiki færir þjóðinni betur en ella æskilega viðmiðun við erlendan markað. Og skapar þann veg aðhald í fjárfestingu á heima- vettvangi, sem á stundum hef- ur ekki haft arsðemissjónarmið nægilega að leiðarljósi, sem dæmin sanna, og bitnað hefur á lífskjörum í landinu. Það er og meira en tímabært að Islendingum gefíst kostur á því að eiga hlut í verðmæta- sköpun og arði erlendra fyrir- tækja, með hlutabréfakaupum, og hagnast á því að leggja fjár- muni í erlend skuldabréf. Það er hins vegar vert að undir- strika að slíkri fjárfestingu fylgir alltaf áhætta — stundum tap í stað hagnaðar — og að hún krefst mikillar þekkingar og yfirsýnar. Fjárfestar verða sjálfir að taka áhættuna eins og í öðrum viðskiptum. Það er því engin ástæða til að óttast að sparnaður flæði út úr landinu, enda er áræði með varúð og hófsemd trúlega bezti kosturinn. Aukið fijálsræði í viðskiptum með erlend verðbréf er skref í átt að almennara fijálsræði í gjaldeyrisviðskiptum. Það var mál að fækka þeim höftum sem enn halda velli. íslenzka krónan verður seint alvörugjaldmiðill ef stjórnmálamenn eru stöðugt að ráðskast með gengi hennar og nýta sem stjórntæki í efna- hagsmálum. Og á meðan ís- lendingar geta ekki keypt og selt erlenda gjaldmiðla fyrir krónur öðlast þeir ekki nauð- synlegt traust á eigin gjald- miðli. Það ber að fagna því að stig- ið hefur verið skref til aukins fijálsræðis borgaranna — til 'að ráðstafa eigin sparnaði og ávaxta hann. Skref sem í senn brýtur íslenzkum fjármagns- markaði leið út úr þeirri ein- angrun, sem hann hefur lengi verið í, og lagar aðstæður hér að hluta til að þeirri þróun sem orðin er og fyrirsjáanlega verð- ur í viðskiptalegu umhverfi okkar báðum megin Atlantsála. Öll slík spor eru heillaspor. Tími úreltrar hafta- og forsjárstefnu er liðinn. HVAÐ SEGJA ÞEIR UM AFSTÖÐU SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS TIL BRÁÐABIRGÐALAGANNA Þorsteinn Pálsson: Ríkisstjórninni ber að fara fránúþegar ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ríkisstjórnin eigi að segja af sér nú þegar, mynda eigi nýja ríkis- stjórn og sú stjórn eigi að leita eftir viðræðum við BHMR og aðra aðila vinnumarkaðarins til þess að leysa það vandamál sem upp kynni að koma ef samningur BHMR og ríkisins öðlist gildi. Þetta segir hann verða að gerast áður en til þess kemur að það reyni á hvort bráðabirðalögin um afnám samingsins -hafi meiri- hluta á Alþingi. Hann segir Sjálf- stæðisflokkinn fyrir sitt leyti vera reiðubúinn til slíkrar stjórn- arþátttöku. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gær sem hald- inn var af Þorsteini og Olafi G. Einarssyni, formanni þingflokks sjálfstæðismanna, vegna ákvörð- unar þingflokksins um að greiða atkvæði gegn bráðabirgðalögun- um. „Við vekjum hér athygli á því að við búum í þingræðislandi. Sam- kvæmt okkar stjórnarskrá gildir hér þingræðisregla og ríkisstjórn verður að hafa meirihlutá á bak við sig á þinginu. Nú hafa þrír af hennar þingmönnum lýst yfir því að þeir ætli að greiða atkvæði gegn frum- varpi sem ríkisstjórnin telur vera fráfararatriði. Það þýðir van- Þorsteinn Pálsson traustsyfirlýsingu af þeirra hálfu, ríkisstjórnin hefur ekki meirihluta á bak við sig til þess að koma sínum málum fram og þá á hún að fara irá,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði einkanlega tvö atriði standa upp á ríkisstjórnina varðandi framkvæmd kjarasamninganna sem þjóðarsátt er kennd við. í fyrsta lagi ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja tveggja milljarða króna nýja skatta á atvinnulífið, ríkisstjórnin Ólafur G. Einarsson: Spurning um hvort virða eigi lýðræði í landinu ÓLAFUR G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðsmanna, segir að ákvörðun þingflokksins á miðvikudag um að greiða at- kvæði gegn samþykkt bráða- birgðalaganna um BHMR samn- inginn byggjast á því að virða beri þingræði og lýðræði í landinu, málið snúist ekki um þjóðarsátt. Hann segir algeran einhug hafa verið um þessa ákvörðun í þingflokknúm. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gær þar sem Óalfur og Þorsteinn Pálsson formaður Sjáflstæðis- flokksins gerðu grein fyrir þess- ari ákvörðun þingflokksins. Ólafur sagði boðað til fundarins þar sem svo virtist sem samþykkt þingflokksins hafi komið. ýmsum á óvart og einnig sé , jafnvel látið liggja að því að við höfum brugðist ríkis- stjórninni sem við þó höfum verið í andstöðu við, frá upphafi og erum enn. Svo er jafnvel vísað á Sjálfstæð- isflokkinn ábyrgð á því að ný verð- bólguskriða kunni nú að fara á stað. " Þessu vísuðum við að sjálfsögðu á bug. Forsætiráðherra hlýtur að eiga það við sitt lið, hvort það bregst honum, hvort það hafi skrökvað að honum, eða hann að þingi og þjóð, en annað hvort hlýtur að hafa gerst.“ Ólafur sagði ákvörðun þingfiokks- ins núna vera tekna einfaldlega . vegna þess að það dragi af því að málið verði afgreitt úr þingnefnd. „Og leit svo út í gær að það yrði gert núna fyrir helgi. Þegar að fyrri ástæðu var ekki ástæða til að bíða með það lengur, að taka um það endanlega afstöðu og formlega ákvörðun. Auk þess hefur forsætisráðherra verið með yfirlýsingar um það, bæði í gær og í fyrradag að hann muni ekki tala við einn eða neinn um það hvort hann muni fylgja þessu frum- varpi ríkisstjórnarinnar. Okkur sýn- ist að það út~af fyrir sig bendi til þess að forsætisráðherra vilji losna Ólafur G. Einarsson út úr þessari ríkisstjórn. Það getur auðvitað ekki verið viðfangsefni þingflokks sjálfstæðismanna að telja þá aðgerð. Við höfum haldið því fram frá upphafi að það beri að virða samn- inga. Þetta er ekki spurning um það hvor haldi beri hina svonefndu þjóð- arsátt. Þetta er spurning um það, hvort virða eigi þingræði í landinu og lýðræði, hvort Alþingi eigi að ráða eða einhver samtök sem ekki er kostið til í almennu kosningum." Ólafur sagði í samtali við Morgun- blaðið að einhugur hefði verið í þing- flokkknum um þessa ákvörðun. Fjar- verandi voru Eyjólfur Konráð Jóns- son vegna forfalla, Guðmundur H. Garðarsson, Ingi Björn Albertsson, Ragnhildur Helgadóttir og Salóme Þorkelsdóttir, sem öll voru erlend- is.Ólafur sagði, að ekki væri ástæða til að ætla annað en að þau, sem fjarverandi voru hefðu sömu afstöðu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins urðu nokkrar umræður um þetta mál og var ekki gerður ágreiningur um að greiða atkvæði gegn bráða- birgðalögunum. hafði enga grein gert fyrir því hvernig þetta verði gert í samkomu- lagi við aðila vinnumarkaðarins. Hitt atriðið sagði hann lúta að bráðabirgðalögunum á samninga BHMR. Hann sagði alla tíð hafa verið ljóst að sjálfstæðismenn hafi varað við samningunum og þegar við gerð samninganna hafi verði bent á að allar efnahagslegar for- sendur skorti fyrir þeim. Þorsteinn sagði ríkisstjórnina hafa sleppt tækifærum til að hefja viðræður við BHMR um lausn máls- ins þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um nauðsyn þess. „Ef forsendur samninga breytast, þá hljóta samn- ingsaðilar að óska eftir því, að þeim verði breytt og í réttarríki gera menn það með því að óska eftir viðræðum um endurskoðun. Þessu var hafnað í ríkisstjórninni." Þorsteinn sagði sjálfstæðismenn vera reiðubúna til þátttöku í ríkis- stjórn sem yrði mynduð eftir að ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar segði af sér og sú ríkisstjórn myndi taka upp viðræður við BHMR og aðra aðila vinnumarkaðarins til þess að leysa mál á þann hátt, að ekki stefndi þjóðarsátt í voða. Hann sagði hins vegar að það væri alfar- ið á ábyrgð forsætísráðherra komi til þess að bráðabirgðalögin verði felld í þinginu. Hann sagði forsætis- ráðherra hafa lýst því yfir, að hann ætlaði ríkisstjórninni að sitja áfram, þrátt fyrir að meirihluti á þingi sé ekki fyrir hendi og þrátt fyrir að bráðabirgðalögin verði ekki stað- fest. Ef frumvarpið fellur þá munu samningar BHMR taka gildi frá þeim degi þegar bráðabirgðalögin hætta að gilda, það er frá þeim degi sem þau yrðu felld, fari svo. „Það er auðvitað mál ríkisstjórn- arflokkanna hvernig þetta fer. Þeir tókust á hendur þá ábyrgð að koma málinu í gegn. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu í dómsorði, að aðferð ríkisstjórnarinnar hefði verið ólögmæt og við teljum það siðferði- lega rangt að framkvæmdavaldið, annar aðili þessa samnings, setji síðan bráðabirgðalög á þá dómsnið- urstöðu. Við teljum óverjandi að þannig sé staðið að framkvæmd mála,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Ásmundur Stefánsson: Hringrás launahækk- ana með ófyrirséðum afleiðingum ÁSMUNDUR Sýefánsson, forseti ASÍ, segir að ef bráðabirgðalögin verða felld úr gildi séu allar líkur á að hefjist samfelld hringrás launahækkana. Verðlagsforsendur fari úr skorðum, gefið verði eftir í gengismálum og hringrásin fari af stað. „Ef lögin verða felld hækka hskólamenn hjá ríkinu um 4,5%, flugumferðarsljórar liækka töluvert meira og hugsanlega fleiri hópar, nema BHMR taki afstöðu sína til endurskoðunar," segir hann. „Þegar við sömdum síðast liðinn vetur vorum við með skýran fyrir- vara um að ein af forsendum samn- ingsins væri að launahækkanir ann- arra hópa yrðu þær sömu og okk- ar. í sumar staðfestu atvinnurek- endur fyrir sitt leyti að það væri réttur skilningur á samningnum og bjuggu sig undir að gera samning um sambærilega hækkun til okkar og þá stóð lynr dyrurn," sagði Ás- mundur. Hann sagði að næsta skrefið í atburðarásinni yrði því væntanlega 4,5% hækkun til Agl-félaga. „Sam- anburðarákvæði í samningum BHMR myndi því næst leiða til að þeir gerðu tilkall til þeirrar hækkun- ar sem við höfum samið um 1. des- ember, auk þeirrar 4,5% hækkunar Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur BHMR: Verðbólgulij ólið fer ekki af stað nema VSÍ bjóði sömu hækkun BIRGIR Björn Sigurjónsson hagfræðingur . BHMR segir, að þótt bráðabirgðalögin um afnám samnings BHMR og ríkisins verði felld á Alþingi og BHMR-samningurinn öðlist þar með gildi þurfi það ekki að þýða að þjóðarsátt sé stefnt í voða með víxlhækkunum launa. „Hjólið fer ekkert af stað nema Vinnuveitendasamband ís- lands ákveði að bjóða öllum launþegum sömu hækkunina. Hún er ekki samningsbundin í þeirra samningum, VSÍ valdi að gera það í sumar og taldi sig vera í stöðu til að þvinga ríkisstjórnina til að rjúfa samninga á starfsmönnum sínum,“ segir hann. „4,5% hækkun á launum þrú þús- und manns hefur hverfandi áhrif á framfærsluvísitöluna, einkum vegna þess að væntanlega mundu opinberu fyrirtækin ekki hækka þjónustu sína og þá sé ég ekki bein verðlagsáhrif af því að laun BHMR- manna hækki. Það er öðru vísi en á hinum almenna markaði, að fyrirtækin yfirleitt stefna öllum kostnaðarhækkunum beint út í verðlagið," segir Birgir Björn. Verði bráðabirgðalögin felld segir hann 4,5% hækkunina vera gjald- fallna frá 1. september, þegar bráða- birgðalögin afnámu hana. „Þá mundi auðvitað líka reyna á ákvæði samn- ingsins um launaleiðréttinguna sem ekki hefur verið efnd ennþá,“ segir hann. „Nú eru engir aðrir launamenn í sjálfu sér, frekar en í sumar, með samninga um að þeir fái allar hækk- anir sem BHMR fær og samningar hjá launafólki almennt eru ekki laus- ir fyrr en í ágúst, september á næsta ári. Þannig að aðrir laúnamenn eiga ekki samningsbundinn rétt á að fá þessar hækkanir sem BHMR fær, hins vegar kom upp þessi staða í sumar, að þegar við fengum þessi 4,5% þá töldu allir aðrir launamenn sig eiga rétt á því sama.“ Hann segir síðan Vinnuveitenda- sambandið hafa upplýst ríkisstjórn- ina um það í júlílok að VSÍ mundi greiða þessi 4,5% ef BHMR fengi þau. „Ríkisstjórninni var þannig ógnað með þessu, að ef hún tæki ekki aftur samninginn sem hún sjálf hafði gert við starfsmenn sína, þá Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Enginn mun hafa neitt upp úr þessu nema verðbólgu „ÞAÐ mun enginn hafa neitt upp úr þessu, hvorki BHMR né aðrir, annað en verðbólgu," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær um afleiðingar þess, ef frumvarp til staðfestingarlaga um BHMR-bráðabirgðalögin svonefndu verður fellt. Steingrímur kvaðst ekki trúa því, að ábyrgir þingmenn leggi í að fella frumvarpið eftir að þeir hafi skoðað það málefnalega. Frumvarpið er nú í nefnd og ekki ljóst hvenær það verður afgreitt þaðan. 'Steingrímur sagði blasa við nú, að ljúka meðferð þessa máls í þing- nefnd og koma því síðan til af- greiðslu í þinginu eins og stjórnar- skráin geri ráð fyrir. „Stjórnar- skráin setur þær skyldur á herðar ríkisstjórn sem setur bráðabirgða- lög, að koma málinu fyrir þing sem fyrst. Hún segir ekkert um að það skuli út af fyrir sig tryggja meiri- hluta, enda hljóta þingmenn að meta málið á málefnalegum grundvelli og með þjóðarhag í huga en ekki á einhveijum pólitískum forsendum,“ sagði hann. Steingrímur var spurður um hættuna á að þjóðarsátt svonefnd bresti, ef bráðabirgðalögin verða fellt. „Mér virðist, ef ég má vísa í Einar Odd, að hann telji hana brostna ef þetta verður fellt og ég hugsa að hann sé betri að meta það en nokkur annar. Enda, ef þetta er fellt, liggur í augum uppi að þá fá BHMR menn sína 4,5% hækkun og VSÍ og VMS höfðu þegar samþykkt kröfu ASÍ um sams konar hækkun fyrir þá og síðan eiga BHMR menn sam- kvæmt 15. grein rétt á leiðréttingu á þessu aftur með hækkun sem Ásmundur Stefánsson. sem við fengjum til að jafna bilið gagnvart þeim. Þannig mynd.ast hringrás sem ekki yrði séð fyrir endann á.,“ sagði hann. Ásmundur sagði aðspurður að sá fyrirvari sem ASÍ gerði um hlið- stæðar launahækkanir væri bund- inn í 9. lið, 10. greinar kjarasamn- ingsins. Orðrétt segir þar: „Launa- þróun annarra verði sú sama og gert er ráð fyrir í samningi þess- um.“ -Kæmi til greina að falla frá þessum fyrirvara? „Ég fæ ekki séð að sættir geti náðst um það,“ sagði hann og minnti á óljóst væri hver heildar- hækkun BHMR-manna yrði því 4,5% hækkunin væri bráðabirgða- greiðsla en annar áfangi launa- hækkana þeirra umfram aðra ætti að koma til framkvæmda í sumar. „Þegar kjarasamningur okkar var afgreiddur á sínum tíma vóg þetta skilyrði mjög þungt í afstöðu félg- anna til samningsins og því hljótum við að vera skuldbundin til að halda okkur við þá viðmiðun. Samningur BHMR gerir ráð fyrir að háskóla- menntaðir hækki meira en aðrir," sagði Ásmundur. Hann sagði ennfremur að áður en kjarasamningar voru gerðir í ársbyrjun hafi ASÍ lagt áherslu á við BHMR að þeirra samningur yrði tekinn til endurskoðunar þar sem allir nytu þeirra ávinninga sem febrúarsamningarnir fælu í sér. Þessi afstaða hafi verið ítrekuð í sumar. „Allan tímann höfum við því vonast til að samningalausn fyndist á þessu máli,“ sagði hann. Birgir Björn Sigurjónsson mundu vinnuveitendur hleypa af stað þessari óðaverðbólgu, því að þeir buðust til að borga öllum öðrum þessi 4,5%, sem þeir höfðu ekki sa- mið um.“ Samningurinn við BHMR var gerður 18. maí 1989 og segir Birgir Björn hann hafa falið í sér að leið- rétta ætti laun háskólamenntaðra manna hjá ríkinu, miðað við laun annarra háskólamanna, í áföngum, annað hvort á þremur árum eða á fimm árum ef leiðréttingartilefni yrðu meiri. Gildistími samningsins var fimm og hálft ár. Samkvæmt 1. grein samningsins átti, að sögn Birgis Björns, að endur- skoða kjör háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna og jafna þann mun sem kynni að reynast á þeim kjörum og þeirra háskólamanna sem starfa á almennum markaði. Nefnd var sett á laggirnar til að kanna þennan sam- anburð. Nefndin hefur ekki lokið störfum. Ef þessi kjarasamanburð- arnefnd hefði ekki lokið störfum sínum fyrir 1. júlí síðastliðinn, kvað samningurinn á um að þá skyldu laun BHMR félaga hækka um 4,5% sem Birgir Björn segir hafa átt að vera nettó uppígreiðslu upp í bilið milli BHMR-félaga og annarra há- skólamanna á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin óskaði eftir því, þeg- 'ar nær dró 1. júlí, að fallið yrði frá þessari hækkun af hálfu BHMR. „En ákvað síðan einhliða að taka hana af okkur, með einföldu bréfi, sem var dagsett til okkar 12. júní," segir Birgir Björn. 4,5% hækkunin var síðan greidd BHMR-félögum í kjölfar úrskurðar Félagsdóms frá 23. júlí um að BHMR-félögum bæri að fá hana. Ríkisstjórnin ákvað síðan 3. ágúst að afnema 4,5% hækkunina frá 1. september síðastliðnum að telja, einnig að afnema úr samningnum ákvæðin um leiðréttingu launanna. Jafnframt var felld út úr samningn- um verðtryggingin sem í honum var og miðaðist við að BHMR-félagar fengju hliðstæðar launahækkanir og aðrir launþegar. Birgir Björn segir BHMR hafa boðið í sumar að taka upp viðræður um 15. greinina, sem fjallar um víxlhækkanirnar, og binda launa- hækkanir BHMR við verðlag í stað þess að binda þær við launahækkan- ir annarra. „Ríkisstjórnin hafði hins vegar ekki áhuga á breytingu á þess- ari grein.“ Steingrímur Hermannsson þessu samsvarar og ég held að hver maður geti séð hvað af því leiðir. Það mun enginn hafa neitt upp úr þessu, hvorki BHMR né aðrir, annað en verðbólgu.“ Hann var spurður um líkur fyr- ir meirihluta eða að frumvarpið falli. „Ég vil enn ekki trúa því, að þegar menn skoða þetta mál- efnalega og án þess að láta ein- hveija pólitíska fordóma ráða, að þá leggi ábyrgir þingmenn í að fella málið, ég trúi því ekki.“ Steingrímur segir yfirlýsingu Geirs Gunnarssonar um að hann muni greiða atkvæði gegn bráða- birgðalögunum koma sér á óvart. „Mér hafði skilist það að hann hefði að minnsta kosti áður í svona málum lýst yfir því að þó að hann kynni að vera á móti því, þá mundi hann láta flokkssamþykkt ráða,“ sagði Steingrímur. „En ekki skal ég rengja Geir Gunnarsson, hann er vandur að sínum orðum, ég hef aldrei staðið hann að því að fara með rangt, svo að þetta er eflaust misskilningur hjá mér og þá fleir- um reyndar.“ Sjálfstæðismenn hafa haldið því fram að annað hvort hafi forsætis- ráðherra farið rangt með þegar hann sagði meirihluta á þingi fyr- ir lögunum, eða að einhver hefði sagt honum ósatt um afstöðu þing- manna. „Ég sagði satt, ég taldi að það væri meirihluti fyrir þeim, en það er ekki aðalmálið, því að jafnvel minnihlutastjórn hefur leyfi til að setja bráðabirgðalög og það er síðan þingmannanna að meta hina brýnu nauðsyn sem lá til grundvallar bráðabirgðalögun- um, þannig að ég trúði því að vísu að þau hefðu meirihluta og Stefán Valgeirsson sló úr og í, þegar vic hann var talað, þannig að það gal farið á báða vegu, enda byggi ég ekki mikið á honum í svona máli,“ sagði Steingrímur Hermannsson. Einar Oddur Kristjánsson: Þingheimur veit að hér er um algjöran voða að ræða EINAR Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasam- bands íslands segir að öðlist kjarasamningur rikisins við BHMR gildi á nýjan leik, hafi allt starf aðila vinnumarkaðar- ins verið unnið fyrir gýg. „Það niáttu állir vita, að grundvöllur þess að þjóðarsáttin héldi var sá að allir þýddu allir. Það var alltaf ljóst að launþegar myndu aldrei líða að fimm ár í röð hækkuðu félagar i BHMR meira í launum en aðrir launþegar, eins og samningur þeirra gerir ráð fyrir,“ sagði Einar Oddur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það er rétt að minna á að það var ríkisstjórnin sem stóð fyrir þess- um heimskulega samningi við BHMR. Samningi sem við gerðum strax öllum grein fyrir að gat aldrei staðist. Það var því ríkisstjórnarinnar að standa við fyrirheit sín og loforð um að afnema þennan samning. Það gerði hún með bráðabirgðalögunum og við hljótum að krefja ríkisstjórn- ina þess, að hún standi við loforð sín og handsöl um að samningurinn við BHMR verði tekinn úr sambandi. Því trúum við ekki öðru en stjórninni takist að hafa til þess meirihluta að þessi lög verði staðfest. Allt annað væru hin herfilegustu svik,“ sagði formaður VSÍ. Einar Oddur sagði að það væri fásinna að segja að atkvæðagreiðsla á Alþingi um BHMR samninginn hefði engin áhrif á þjóðarsáttina, yrðu bráðabirgðalögin felld. „Að trúa slíku er óendanleg sjálfsblekking. Það er öllum alþingismönnum mæta- vel um það kunnugt að forsenda febrúarsamninganna er sú að við höfum heitið launþegum því að aðrir fái ekki meira. Það eru handsöl og svardagar við verkalýðshreyfinguna um að ef þetta verður svikið og BHMR fær sinn samning í gildi, þá rnuni aðrir fá samskonar hækkanir og þeir. Þetta höfum við margítrekað og þetta vjta aðrir launþegar. Verði sú raunin, þá gerist það að BHMR fær sjálfvirkar hækkanir í kjölfar almennra hækkana á vinnumarkaðn- um. Tæknilega er því hægt að ímynda sér að þjóðfélagið spryngi í loft upp á örfáum klukkutímum," sagði formaður VSÍ. „Hér er því um algjöran voða að ræða og það þýðir Einar Oddur Kristjánsson ekki fyrir nokkurn alþingismann a(’ þykjast ekki vita þetta.“ Einar Oddur sagði að í upphaf hefðu aðilar vinnumarkaðarins verii •sannfærðir um að þeir hefðu stuðn- ing ríkisstjórnarinnar við þetta efna- hagsprógi-amm og þessa samninga gerð. Til dagsins í dag hefðu þeii trúað því og treyst, að svo væri „Við höfum ekki vitað annað en Sjálf- stæðisflokkurinn styddi hina svoköll- uðu þjóðarsátt heilshugar. Við höfun alltaf vitað um afstöðu Kvennalistans og ekki gert okkur rellu út af henni en það er náttúrlega skelfilegt ti þess að vita, ef aðrir aðilar, sem vií höfum hingað til trúað og treyst ætla að bregðast okkur. Það skiptii ekki máli hvort það eru menn úi stjórn eða stjómarandstöðu." Einar Oddur var spurður hvort VSÍ hefði talið sig hafa vilyrði frá Sjálfstæðisflokknum, þess efnis að flokkurinn myndi ekki beita sér gegn því að bráðabirgðalögin yrðu staðfest á Alþingi: „Við höfum vitað að éin- staka þingmenn hafa talað um að „af siðferðilegum ástæðum“ treystu þeir sér ekki til annars en greiða atkvæði gegn þessum lögum. Af því höfum við ekki haft neinar sérstakar áhyggjur, en vera kann að sumir þessara þingmanna þjáist af minnis- leysi, en það látum við liggja á milli hluta. En við höfum alls ekki látið okkur detta í hug að þingflokkurinn sem heild, færi að bindast slíkum böndum að gera allt til þess að fella þessi lög. Okkur er óskiljanlegt hvaða nauð rekur þá til þeirra hluta."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.