Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
25
|fMnrle3árT|lfræð8ri I (í stéttarfélaqi | | sfjórnandT
latundarafcrárqerV
Isamninq pröfa I
|leiáréttinq prófa]
Iflqtur efni milli staða
námsrá&qjafi félagi
hvatama&ur lei&toqi
tæknimabur (mqnd-
hljófi, tölva)
| umrg&u3tjóri
sam-
borqari
qesluma&ur sálu-
aorgari
qerð
rá&qjafi
Þau verkefni sem geta falist í kennarastarfinu taka stundum á sig
margvíslegar mótsagnakenndar myndir.
Hvað tókst vel, hvað miður í
Grasbergsskólanum?
Vorið 1987 voru um 1.000 nem-
endur í skólanum. Rúmur helming-
ur þeirra var á þriggja ára brautum
(jafngiidi stúdentsprófs?). Skipting
milli kynja var nokkuð jöfn, en
stúlkur voru mun fjölmennari í sam-
félags- (húmanísku) námi en piltar
í tækninámi. Tveggja ára brautir
voru fjölmennar: félagsfræða-,
bygginga-, dreifingar-, raf-
magns/sjónvarps-, umferðar-, mat-
væla-, félagsþjónustu-, og verk-
stæðisbrautir. Við skólann er einnig
möguleiki til framhaldsnáms og
sérhæfð námskeið sem taka eitt ár.
Fimm deildarstjórar eru við skól-
ann, þar sem hver deildarstjóri er
með réttindi á því námsgreinasviði,
sem heyrir undir hann. Asamt skól-
ameistara og „náms-skólameist-
ara“ eru þrír aðstoðarskólameistar-
ar, sem skipta með sér verkum:
einn sér um ýmsa þætti er varða
hið hagnýta nám/kennslu, annar
um framhalds- eða símenntun
kennara og starfsliðs og hinn þriðji
um upplýsingastarfið. Nokkrir
námsráðgjafar starfa við skólann.
Kennarar skiptast í hópa eftir
kennslugreinum og þar sem hver
fagkennarahópur undir stjórn deild-
arstjóra býr yfir „sérfræðiþekk-
ingu“ hver á sínu sviði, eru þetta
hinir raunverulegu valdaaðilar hvað
varðar hið innra starf í skólastof-
unni. Slíkir hópar hafa ágæt vinnu-
skilyrði og sérstaka fundarstaði
hver fyrir sig.
I skólanum er bekkjarkennsla
með u.þ.b. 50 bekkjum á stærðarbil-
inu 10-30 nemendur í bekk. Hver
nemandi starfar 1-2 vikur á skóla-
ári við þjónustustörf, „hjálpar til
við að hirða lóð, hafa umsjón í borð-
stofu (en í öllum grunn- og fram-
haldsskólum í Svíþjóð fá nemendur
ókeypis hádegisverð) og kaffi-
stofu“. Þetta þykir hafa gefið góða
raun. Bekkjarráð og nemendafé-
lagsstjórn eru starfandi (og nýleg
tilraun að breyta nemendaráðinu
þannig að í viðbót við eina stjórn,
sem sæi um allt, voru stofnuð mörg
undirráð með takmörkuðu verk-
sviði. Enn eitt dæmið um valddreif-
ingu og þykir hafa gefist vel.)
Átök, ágreiningur
Öllum breytingum fylgja átök.
Það er ekki nægilegt að ákveða þær
að ofan. í Grasbergsskólanum var
Husqvarna
SAUMAVÉLAR
• 7 GERÐIR •
> ALLIR NYTJASAUMAR •
• MYNSTURSAUMAR •
• STERKUR MÓTOR •
• SÆNSK GÆÐI •
• FRÁBÆRT VERÐ •
. • NÁMSKEIÐ •
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA >
• SÝNIKENNSLA •
• ALLT Á SAMA STAÐ •
VÖLUSTEINNhf
Faxofen 14, Sími 679505
tekið vel á móti „rannsóknarnefnd-
inni“ og bæði stjórnendur, kennarar
og nemendur sögðu meiningu sína
opinskátt. Síkt er auðvitað algjör
forsenda þess að umbætur geti orð-
ið en ekki trygging fyrir því að þær
verði framkvæmdar í raun. Það sem
helst var talið ama að var skortur
á samstarfsvilja milli „hagsmuna-
hópa“ eða „deilda“ og sambands-
leysi.
Vandinn snérist ekki svo mjög
um innihald námsefrjis en fremur
um þær grundvallarforsendur, sem
ganga ætti útfrá í starfinu. Hvað
felur markmiðið „framhaldsskóli
fyrir alla“ í sér í raun og veru?
Og einmitt hér þarf að taka upp
þráðinn á Islandi áður en lengra
er haldið. Við höfum ákveðið að
aðlaga framhaldsskólana því hlut-
verki að taka við öllum. Þetta hlýt-
ur að kosta breytingar, dýrar og
tímafrekar.
Sígild sannindi
ítalinn Niccolo Macchiavelli
(1468-1527) sem bæði var rithöf-
undur og ríkiskanslari í Flórens
gerði sér glögga grein fyrir erfið-
leikunum því samfara að breyta
einhveiju. Á fimmtándu öld ritaði
hann eitthvað á þessa leið: Það er
ekkert eins erfitt og að framkvæma
breytingar. Grimmir andstæðingar
verða allir þeir, sem höfðu komið
sér þægilega fyrir í gamla kerfínu
(sjáið bara ástandið í Rússlandi
núna!), en fylgjendurnir eru þegar
best lætur hálfvolgir, óvissir um
stöðu sína í hinu nýja kerfi.
Nýtt hlutverk framhaldsskóla á
íslandi krefst breyttra aðstæðna.
Hverjar eiga þær breytingar að
vera og hvernig á að standa að
framkvæmd? Hver skal vera sá
grundvöllur sem hinn íslenski fram-
haldsskóli fyrir alla skal byggjast á?
Höfundur er skólameistari á
Egiisstöðum og er í ársleyfi frá
störfum. Hann stundar nám í
Gautaborgarháskóla í Svíþjóð.
■ HLJOMSVEITIN Gal í Leó
mun leika á Vestfjörðum helgina
30. nóvember og 1. desember.
Hljómsveitin mun skemmta bæði
kvöldin í Uppsölum, Isafirði.
Hljómsveitin hefur leikið um hveija
helgi á dansstöðum um land allt.
Nú hefur bæst í hópinn Jens Hans-
son saxófónmaður úr Sálinni hans
Jóns míns. Stefna hljómsveitarinnar
er sem fyrr að hleypa birtu í
skammdegið, segir í fréttatilkynn-
ingu.
UTAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
SESSAN SEM NUDDAR,
HITAR OG VEITIR BAKINU STUÐNING
~ IADI !!L!5
anívrsjnnLiiii
BAKHJARLINN er splunkuný uppfinning sem fer eins og
eldur í sinu um heiminn. BAKHJARLINN er sessa sem þú
hefur í bílnum þínum. Þú stingur henni í samband við
vindlakveikjarann og þrýstir á einn hnapp og eftir augna
blik finnurðu notalegan hita leika um bakið. Með öðrum
takka seturðu nuddið á, sterkt eða vægt, og með einu
handtaki blæstu upp bakið og færð þannig ákjósanlegan
stuðning við mjóhrygginn. Allra þessara þæginda geturðu
notið»samtímis.
BAKHJARLINN hentar í allar gerðir bílsæta
og kostar kr. 5.900,-
LÁTTU EKKi KULDANN KOMA
AFTAN AÐÞÉR
BAKHJARLINN er hlý og góð jólagjöf
handa þeim sem þú vilt vel.
SÖLUSTAÐIR
Bílaraf, Borgartúni 19.
Háberg, Skeifunni 5a.
Heimilistæki, Kringlunni.
Póllinn, (safirði.
Þórshamar, Akureyri.
KÞ, Húsavík.
Vélsmiðjan Horn, Hornafirði.
Verslunin ösp, Selfossi.