Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBlíAÐIÍ) FÖSTUDAGUB;30. NÓVEMBER 1990
EB-GATT:
Nauðsynlegt að
leiða viðræðurnar
til farsælla lykta
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRANS Andriessen, framkvæmdastjóri utanrikisviðskipta innan
framkvæmdasljórnar Evrópubandalagsins (EB), sagði á miðvikudag
að mikilvægi Iandbúnaðar 'væri stórlega ýkt í viðræðunum innan
GATT aukið viðskiptafrelsi í heiminum. Hann sagði jafnframt að
stjórnmálamenn bæru pólitíska ábyrgð á því að viðræðurnar yrðu
leiddar til farsælla lykta. Iðnþróuðu ríkin yrðu að vera reiðubúin
til að láta eitthvað af hendi við þróunarríkin sem að sama skapi
yrðu að leggja sitt af mörkum. 011 spjót standa nú á EB að láta
af tregðu sinni til að semja um umtalsverðan niðursskurð á styrkj-
um til landbúnaðar.
Andriessen sagði að það væri
óraunsæi að gera ráð fyrir því að
vandamál svo viðkvæmrar at-
vinnugreinar sem landbúnaðar
yrðu leyst á stuttum tíma, til þess
væri atvinnugreinin allt of við-
kvæm bæði pólitískt og félagslega.
Svo virtist sem sumir hefðu ekki
áttað sig á því að viðræðurnar inn-
an GATT eru ekki vangaveltur um
eitthvað sem mætti gera heldur
tilraun til að semja um raunveru-
legar endurbætur á viðskiptaum-
hverfi heimsins. Þess vegna væri
til lítils að leggja fram tillögur sem
væru augljóslega óframkvæman-
legar.
Andriessen kvaðst telja góðar
líkur á samkomulagi í næstu viku
í Brussel ef tekið yrði á málunum
af.einurð og raunsæi annas væri
hætt við að viðræðumar færu út
um þúfur á fyrstu dögunum. Allir
samningar byggist á því að gefa
og þiggja í staðinn og spyija mætti
hvað EB fengi fyrir að fallast á
ýtrustu tillögur í landbúnaði. Fyrir-
hugaður lokafundur GATT-við-
ræðnanna sem kenndur er við Úr-
úgvæ hefst í Brussel á mánudag.
Fulltrúar íslands á fundinum verða
ráðherrarnir Jón Baldvin Hannib-
alsson og Steingrímur J. -Sigfús-
son.
Fenriseðla finnst í Bandaríkjunum
Bein fenriseðlu hafa fundist í Wyoming í Bandaríkjunum. Þau munu sýna að skepnan hafi verið um 21 metri
á lengd og stærsta fenriseðla sem fundist hefur til þessa. Hópur vísindamanna undir stijórn steingervinga-
fræðingsins Roberts Bakkers við Colorado-háskóla gróf beinin upp. Stærri myndin er af einum þeirra við
leifar risaeðlunnar en á innfelldu teikningunni sést hvernig fenriseðlan mun hafa litið út.
Forsetakjörið í Póllandi:
Walesa varar við borgara-
stríði ef Tyminski sigrar
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa sagði á fundi með
leiðtogum Samstöðu í Póllandi í
gær að hætta væri á að borgar-
astríð fylgdi í kjölfarið ef Stan-
islaw Tyminski, keppinautur
hans í seinni umferð forsetakosn-
inganna sem fram fer 9. desemb-
er, ynni sigur. „Astandið er mjög
alvarlegt. Það skelfir mig að sjá
hve margir þjóðfélagsþegnar eru
óánægðir með okkur og hvernig
málin eru að þróast,“ sagði Wa-
lesa. Langflestir þingmenn Sam-
stöðu á pólska þinginu lýstu í gær
yfir stuðningi við Walesa í barátt-
unni gegn Tyminski.
Einn þingmannanna, Adam Mic-
hnik, sem eitt sinn var náinn sam-
verkamaður Walesa, sagði sig þó
úr þingflokknum og sagði Walesa
bera ábyrgð á klofningi sem kom
upp í hreyfingunni vegna forseta-
kjörsins. Michnik studdi Tadeusz
Mazowiecki forsætisráðherra er
varð þriðji í fyrri umferðinni. Mic-
hnik sagði Walesa hafa eyðilagt
Samstöðu og afhent Tyminski at-
kvæði á silfurbakka. „Þessi frelsari
getur þakkað þér fyrir þann árang-
ur kem hann hefur náð. Það er rétt
Theo Waigel fjármálaráðherra Þýskalands:
Gorbatsjov vill að ég verði
áfram fjármálaráðherra
MUnchen. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaösins.
AÐSTOÐIN við íbúa Sovétríkjanna fléttast inn í þýsku kosninga-
baráttuna á lokadögum hennar. í ræðum sínum hvetja stjórnmála-
menn úr öllum flokkum kjósendur til að rétta hinni hungruðu
þjóð hjálparhönd. Þeir minna á þátt Míkhaíls Gorbatsjovs í samen-
iningu Þýskalands og láta þess jafnframt getið, að um þessar
mundir séu 50 ár liðin síðan nasistar réðust inn í Sovétríkin. Nú
gefist tækifæri til að bæta fyrir hörmungarnar sem það olli. Fjöl-
miðlar taka undir þessa hvatningu og tugir þúsunda matar-
böggla eru þegar á leiðinni.
Theo Waigel fjármálaráðherra
Þýskalands og leiðtogi kristilega
flokksins í Bæjaralandi, CSU,
minntist oftar en einu sinni á
Gorbatsjov í magnaðri kosninga-
ræðu, sem hann flutti í bænum
Lindau við Bodensee í fyrradag.
Taldi hann flokki sínum sérstak-
lega til tekna, hve staðfastur hann
hefði verið í andstöðu sinni við
kommúnista. Hinn mikli árangur
í baráttunni við þá hefði náðst án
þess að orði í stefnu flokksins um
þau mál hefði nokkru sinni verið
breytt.
Waigel sagði, að Gorbatsjov
hefði kvatt sig með þeim orðum
í Bonn fyrir tveimur vikum, að
vonandi næði hann góðum ár-
angri í kosningunum. Sagðist
Waigel hafa orðið undrandi yfir
þessu og spurt, hvort hann mætti
segja frá heillaóskunum opinber-
lega. Mörgum þætti vafalaust ein-
kennilegt að leiðtogi Sovétríkj-
anna óskaði forystumanni CSU
velfarnaðar í kosningum. Hvers
vegna vildi Gorbatsjov að mér
vegnaði vel? spurði Waigel. Jú,
af því að hann hafði haft spurnir
af fjármálastjórninni í Saarlandi
og einhveijum Caspar, ijármála-
ráðherra þar. Við þessi ummæli
brutust út mikil fagnaðarlæti í
salnum, enda er Oskar Lafonta-
ine, kanslaraefni jafnaðarmanna,
SPD, forsætisráðherra í Saarl-
andi.
Ræðu sína flutti Waigel meðal
öruggra stuðningsmanna í sveita-
héraði Bæjaralands. CSU, flokkur
Franz Josefs Strauss, sækir fylgi
sitt einkum til landsbyggðarfólks
og hann á landbúnaðarráðherrann
í stjórninni í Bonn. Fyrstu kosn-
ingarnar til þings og ríkisstjómar
í Bæjaralandi eftir fráfall Strauss
voru nú í október. Úrslitin komu
CSU þægilega á óvart, því að
flokkurinn hélt fyrri stöðu sinni,
fékk um 54% atkvæða og hreinan
meirihluta á þingi. Strauss fékk
mest fylgi 1966, þegar hann náði
62% atkvæða. Það segir sína sögu
um viðhorf kjósenda, að sé litið á
Theo Waigel
21 borg í Bæjaralandi þá eru jafn-
aðarmenn í meirihlutastjórn í 16.
Waigel ræddi mest'um samein-
ingu Þýskalands og fjárhagslega
hlið hennar, sem hefur hvílt mjög
á honum. Oftar en einu sinni vitn-
aði hann í Karl Schiller, sem hef-
ur lengi verið helsta átrúnaðargoð
þýskra jafnaðarmanna í efna-
hagsmálum og var efnahagsmála-
ráðherra á áttunda áratugnum.
Þakkaði hann Schiller fyrir að
’lýsa stuðningi við þá fjármála-
stefnu sem stjórn Kohls hefði
fylgt við sameininguna. Ef menn
hefðu látið kostnaðinn við endur-
reisn V-Þýskalands vaxa sér í
augum undir lok fímmta áratug-
arins, byggju Þjóðverjar enn í
rústum. Þá hefði verið látið til
skarar skríða með tvær hendur
tómar, nú ætti mönnum ekki að
verða skotaskuld að taka til hendi
við endurreisn A-Þýskalands eftir
stöðugan uppgang í efnahagslíf-
inu undanfarin ár. Það þyrfti ekki
að leggja á nýja skatta vegna
þessa mikla verkefnis. Kostnaðin-
um yrði dreift á nokkur ár og
hann væri síður en svo óviðráðan-
legur.
CSU hefur þá samvinnu við
kristilega demókrata, CDU, flokk
Helmuts Kohls, að flokkurinn býð-
ur ekki fram annars staðar en í
Bæjaralandi og Kohl er kanslara-
efni flokksins. Waigel vék að sam-
starfsflokknum í sambandsstjóm-
inni, fijálsum demókrötum, FDP,
flokki Hans-Dietrichs Genschers
utanrfkisráðherra, og benti kjós-'
endum á að FDP mætti ekki fá
yfir 10% atkvæða í kosningunum
á sunnudag. Þá myndi flokkurinn
ókyrrast í stjórnarsamstarfinu og
slíta því eftir svo sem tvö ár og
snúa sér að jafnaðarmönnum til
vinstri. í könnunum er FDP spáð
um 10% fylgi en CDU/GSU
42-45%.
hjá þér að hafa áhyggjur af honum.
Það er ekki rétt, Lech, að enn sé
til einhver Samstaða sem þú getir
fylkt á ný að baki þér.“ Walesa
reyndi ákaft að fá stuðning
Mazowieckis og stuðningsmanna
hans í gær en það tókst ekki.
Walesa sagði á fundi með lands-
nefnd Samstöðuleiðtoga í Gdansk
■ að færi svð að Tyminski sigraði
myndi hann ekki endast lengur en
sex mánuði og síðan gæti tekið við
einhvers konar borgarastríð. Hann
sagði keppinaut sinn njóta stuðn-
ings kommúnista og liðsmanna
gömlu öryggislögreglunnar. „Ég tel
að um gagnbyltingu sé að ræða,“
sagði Samstöðuleiðtoginn. Walesa
fékk nær 40% atkvæða í fyrri. um-
ferðinni en segist vera í vanda
vegna þess að hann kunni ekki að
beijast gegn Tyminski er viti fátt
um stjórnmál og hafi fallið „ofan
úr bambusreyr.“ Auðmaðurinn
Tyminski boðar harða hægristefnu
og fer hörðum orðum um stefnu
Samstöðuleiðtoganna. Hann hefur
búið erlendis undanfarna tvo ára-
tugi þar sem hann auðgaðist. Tym-
inski var óþekktur í Póllandi fyrir
nokkrum vikum. „Ég veit ekki
hvernig á berjast gegn honum.
Hann ögrar mér og ég veit ekki
hvernig á að koma á hann höggi,“
sagði Walesa á fundi með þing-
flokki Samstöðu.
Walesa reyndi í gær að fá
Mazowiecki til að skipta úm skoðun
og draga afsögn sína úr embætti
forsætisráðherra til baka. Mazowi-
ecki hefur enn ekki svarað tilmæl-
um Walesa opinberlega. Þingmenn
höfnuðu í gær tímabundið að fjalla
um afsagnarbeiðni forsætisráðherr-
ans sem situr því áfram.
■ SANTIAGO - Hópur herfor-
ingja í Chile hefur hvatt Augusto
Pinochet hershöfðingja, fyrrum
einræðisherra, til að segja af sér
sem æðsti yfirmaður herafla lands-
ins vegna spillingarmáls sem komið
hefur upp. Pinochet er ekki sakaður
um beina aðild að málinu, sem snýst
um fjárglæfra og ólöglega lána-
starfsemi leyniþjónustumanna í
fyrrum öryggislögreglu hans. Þá
er verið að rannsaka þriggja millj-
óna dala (165 milljóna ISK) greiðslu
til sonar hershöfðingjans, August-
os Pinochets yngra, vegna kaupa
hersins á þrotabúi vopnaverk-
smiðju. Pinochet neyddist til að
setja fjóra hershöfðingja á eftirlaun
og reka 16 herforingja vegna máls-
ins.