Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 22
ooer aaaMavðví oe HUDAnuTaöa gioa iaviuoaoM
MOROUNBLAÐIÐ FOSTUÐAGUR 30. NÓVÉMBER 1990
FATASKÁPAR
JÓLATILBOÐ
Henta t.d.
í Forstofur
Barnaherbergi
Gestaherbergi
og víðar.
Stærð. Breidd 100cm,
Hæð 21 Ocm
VÉRÐ 19.900 stgr.
býður einhver betur ?
H - GÆÐI h\f
Suðurlandsbraut16
108 Reykjavík
Sími: 67 87 87
GLÆSILEGT
JÓLAHLAÐBORÐ
A GÓÐU VERÐI
Nú þegar jólin eru í nánd færist jóla-
stemmningin yfir Skrúð. Þar er
gestum og gangandi boðið upp á
stórglæsilegt jólahlaðborö, heitt og kalt,
á hagstæðu verði. Jólahlaöborðið er á boð-
stólum í hádeginu frá kl. 12-14 á 1400 kr.
og á kvöldin frá kl. 18-22 á 1900 kr.
Að sjálfsögðu er jólaglögg svo alltaf til reiðu.
Ath. Við bjóðum upp á jólaglögg og jóla-
hlaðborð í einkasölum - fyrir starfsmanna-
hópa og hvers konar jólagleðskap.
Skrúður kemur öllum í jólaskapið!
hókel
-lofargóðu!
Skipbrot vel-
ferðarkerfísins
Hugleiðing um heilbrigðismál
eftir Ólaf Örn
Arnarson
í tilefni 60 ára afmælis Landspít-
alans var laugardaginn 24. nóvem-
ber sl. haldin samkoma í spítalan-
um þar sem minnst var merkra
tímamóta. Tónninn í ræðum manna
var nokkuð blendinn, annars vegar
ánægja með margt sem gert hefur
verið á undanförnum árum, hins-
vegar kvíði og vonleysi um framtíð-
ina. Heilbrigðisráðherra flutti þau
tíðindi, að nú væri svo. komið að
við eyddum rúmlega 8% af þjóð- '
arframleiðslu til heilbrigðismála og
meira fengist ekki til heilbrigðis-
þjónustunnar. Með öðrum orðum
var hann að boða að núverandi
ástand í rekstri spítala og annarra
heilbrigðisstofnana skyldi verða
viðvarandi. Þetta þýðir í raun skip-
brot þess heilbrigðiskerfis sem við
búum við í dag. Það hlýtur að telj-
ast algerlega óviðunandi ástand að
sjúklingar skuli ekki geta fengið
eðlilega og sjálfsagða þjónustu og
að aldrað fólk skuli rifið upp úr
rúmum sínum og sent heim, vegna
lokunar sjúkradeilda í sparnaðar-
skyni, eins og gerst hefur að und-
anfömu. Það em hrein svik við það
fólk, sem byggt hefur upp það vel-
ferðarkerfi, sem við höfum búið
við, og þarf nú á þjónustu þess að
halda.
Ríkisforsjá
Sú stefna sem fylgt hefur verið
undanfarna áratugi hefur byggst á
því að ríkið sjái þegnunum fyrir
öllu og beinn kostnaður neytenda
þjónustunnar skuli vera sem
minnstur. Ekki hefur heldur mátt
koma fram hver raunverulegur
kostnaður þjónustunnar er hverju
sinni og verðskyn neytenda og veit-
enda þjónustunnar þar með slævt
mjög. Allur rekstur hefur smám
saman verið að færast til ríkisins
og sú stefna var kórónuð með ný-
legum lögum um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Þegnamir
skulu taka við heilbrigðisþjónustu
sem ölmustu úr hendi stjórnmála-
manna í umboði ríkisins og hún
skal skömmtuð eftir því hvemig til
tekst um rekstur ríkissjóðs á hverj-
um tíma. Með öðrum orðum emm
við hér á íslandi að innleiða í heil-
brigðisþjónustuna samskonar kerfi
miðstýringar og ríkisrekstrar og
beðið hefur skipbrot alls staðar
annars staðar og sýnt sig að skila
hvað lélegustum árangri á öllum
sviðum.
Hugarfarsbreyting.
Hér þarf því að koma til grund-
vallar hugarfarsbreyting. Menn
verða að leita leiða til þess að
hægt verði að veita eðlilega og
góða heilbrigðisþjónustu í landinu
og tryggja að framfarir eigi sér
stað og nýjungar teknar upp. Það
hlýtur að vera stór þáttur í Íífskjör-
um fólks að svo sé og íslendingar
munu ekki sætta sig við neitt ann-
að en sambærilega heilbrigðisþjón-
ustu við það sem best þekkist með-
al nágranna okkar. Frekar mun
fólk leita þjónustu til annarra
Ólafur Örn Arnarson
„Það hlýtur að teljast
algerlega óviðunandi
ástand að sjúklingar
skuli ekki geta fengið
eðlilega og sjálfsagða
þjónustu og að aldrað
fólk skuli rifið upp úr
rúmum sínum og sent
heim, vegna lokunar
sjúkradeilda í sparnað-
arskyni.“
landa, ef efnahagur og aðstæður
leyfa, eins og reyndar nú þegar er
farið að bera á.
Tryggingakerfi
Þær leiðir sem þarf að fara eru
þessar: Setja þarf á stofn sjúkra-
tryggingakerfí sem stendur undir
rekstri heilbrigðisþjónustunnar.
Gmndvöllur kerfisins á að vera sá,