Morgunblaðið - 30.11.1990, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
Önnur umræða um frumvarp til fjáraukalaga:
Hækkun um hundrað
fímmtíu og sjö milljónir
Ekki öll kurl komin til grafar segir Pálmi Jónsson
FRUMVARP til fjáraukalaga var
til annarrar umræðu í sameinuðu
þingi í gær. Sljórnarandstæðingar
gerðu harða hríð að fjármálaráð-
herranum sem þeir sögðu fela
margháttaðan fjárhagsvanda.
Alexander Stefánsson (F-Vl)
hafði framsögu fyrir meirihluta fjár-
veitinganefndar í 2. umræðu um
fjáraukalög fyrir árið 1990. Hann
greindi frá því að hækkunarbeiðnir
til nefndarinnar hefðu numið samtals
406 milljónum króna en tillögur frá
meirihluta nefndarinnar næmu
157.705 þús. kr. Ræðumaður skýrði
einstakar hækkunartillögur, t.d.
gagnrýndi hann nefndir Alþingis fyr-
ir að áætla kostnað ónákvæmar en
þyrfti. Ríkisspítölunum er ætluð 35
milljóna króna aukafjárveiting vegna
kostnaðar við sjúklinga sem þurfa
dýra læknismeðferð. Alexander gerði
grein fyrir því að enn væri óleystur
fjárhagsvandi sjúkrahúsa sem staf-
aði að verulegu leyti af því að stofn-
anirnar virtust ekki gera ráð fyrir
að greiða virðisaukaskatt á þessu
ári. Væri hér varlega áætlað um 100
milljónir að ræða. Meirihlutinn legði
til að þetta yrði skoðað sérstaklega
milli annarrar og þriðju umræðu.
Viðræður þyrftu að fara fram við
heilbrigðisráðherra og fjármálaráð-
herra og finna viðráðanlega lausn
svo ekki ylli truflunum.
Stöðugleiki á silfurfati
þetta frumvarp sýndi að þar hefði
verið sýndarniðurskurður á ferð.
Halli ríkissjóðs hefði farið síhækk-
andi og væri kominn yfir fimm millj-
arða og þó ekki öll kurl komin til
grafar. Pálma varð tíðrætt um
skattahækkanir sem flestar hefðu
verið gerðar í tíð núverandi fjármála-
ráðherra, síðustu þijú ár hefðu skatt-
ar hækkað um 15 milljarða.
Pálmi Jónsson taldi eftirtektarvert
að rýmilega væri gert ráð fyrir aukn-
um útgjöldum fjármálaráðuneytisins
éða samtals 909 milljónum. Það
væru ekki sterk tök á rekstrinum
þegar svona væði á súðum hjá fjár-
málaráðuneytinvj, væri ekki að undra
þótt eitthvað læki þar. Fleira varð
Pálma að gagnrýnisefni, t.d. kostn-
aður við skattkerfisbreytingar og
óhóflegur kostnaður vegna hönnunar
hugbúnaðar sem væri með ólíkind-
um. Ennfremur gagnrýndi hann
blaðakaup ríkisins, heimild hefði ver-
ið samþykkt til að kaupa 500 eintök
til viðbótar við 250 sem fyrir voru.
— Fjármálaráðherra las víðlesið
íslenskt morgunblað undir þessari
ræðu. — Pálmi taldi ýmis verðug
mál ekki fá þá fyrirgreiðslu sem
skyldi, t.d. hefði fjárveiting sem hefði
verið ákveðin í svokallað sjálfvirkt
tilkynningakerfi fyrir fiskiskip verið
skorin niður.
Leyndur vandi
Ræðumaður lauk lofsorði á Alex-
ander Stefánsson fyrir að draga ekki
dul á óleystan vanda sjúkrahúsanna
en gagnrýndi harðlega meintar til-
raunir til að leyna raunveruleikanum.
Stærst slíkra mála væri yfirtaka á
yfirdráttarskuldum Verðjöfnunar-
sjóðs fískiðnaðarins í Seðlabankan-
um. Um væri að ræða liðlega 1.500
milljónir króna en þær væru ekki
gjaldfærðar á greiðsluyfirliti þessa
árs.
Ræðumaður fór einnig mörgum
orðum um þann vanda sem ráðs-
mennska n'kisstjórnarinnar vísaði til
framtíðar, s.s. vanda húsnæðismála-
sjóða og Lánasjóðs námsmanna
o.fl.„En það kæmi að skuldadögun-
um.“
Friðrik Sophusson (S- Rv) lagði
fram breytingartillögu varðandi jöfn-
unargjald og endurgi-eiðslu uppsafn-
aðs söluskatts. En hann sagði ríkis-
stjórnina hafa heykst því að standa
við gefin fyrirheit í því efni og þar
að auki ekki telja fram fullar tekjur
af gjaldinu á þessu ári. Öll fram-
ganga einkenndist af skattagleði.
Olafi Ragnari Grímssyni var líkt við
töframann sem drægi sífellt nýjar
kanínur úr sínum hatti.
Matthías Bjarnason
(S-Vf) hafði sitthvað að athuga við
stjórnun fjármála ríkisins. Einnig
óraunhæfa áætlanagerð, t.d. hefðu
starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins
haft lítið samráð við starfsmenn heil-
sugæslustöðvar og'annarra stofnana,
enda komið á daginn að um veruleg-
ar vanáætlanir hefði verðið að ræða.
Morgunblaðið/Sverrir
Alexander Stefánsson
Umdeilanleg tölvísi
Ólafur Ragnar Grimsson fjár-
málaráðherra greindi þingheimi frá
jákvæðum umsögnum ýmissa vest-
rænna efnahags- og hagsýslustofn-
ana um efnahagsstefnuna. Hann
taldi nauðsynlegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn gerði grein fyrir sinni
stefnu og sparnaði.
Fjármálaráðherra var þó sammála
Pálma Jónssyni um eitt, kostnaður
ríkisins við hugbúnað væri óhófleg-
ur. Ræðumaður vék að þeirri gagn-
rýni og reiknifærslu sem fram hafði
komi í umræðunni, t.a.m. sagði hann
Pálma Jónsson þvæla yfirtökunni á
skuldum Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn-
aðarins í umræðuna til að fá fram
sem hæstar tölur. Það kom einnig
fram í máli ráðherra að ríkisbókhald
væri mjög umdeilanlegt umræð.uefni.
En með röksemdafærslum Pálma
væri nánast hægt að sýna hvaða
halla sem óskað væri eftir. Jöfnunar-
gjaldið var einnig rætt, umdeilanlegt
væri hvenær ætti að setja punkt við
þau viðskipti og söluskattinn. Hann
taldi tillögu Friðriks Sophussonar
óþarfa.
Stefán Valgeirsson (SFJ-Ne)
ræddi fjármálastjórnina, loforð og
efndir, innti eftir fyrirheitum í stjórn-
arsáttmála um skatt á fjánnagns-
tekjur.
Pálmi Jónsson (S-Nv) gerði fjár-
málaráðherra og öðrum grein fyrir
því að ekki sýndust efni til að skera
niður sem svaraði skattahækkunum
síðustu ára. Kæmi þar til ráðs-
mennska ríkisstjórnarinnar, við
stjórnarskiptin 1988 hefðu flóðgáttir
opnast, greiðsluhalli safnast fyrir og
íjárhagsvandi mikilvægra sjóða auk-
ist stórum. Pálmi sagði sjálfstæðis-
menn ætla að stöðva þessa þróun
og koma í veg fyrir áframhaldandi
skattahækkanir. En þær væru næsta
vísaréf þessi ríkisstjórn yrði við völd
á næsta kjörtímabili. Hann ítrekaði
gagnrýni sýna á bókhaldið varðandi
skuldir Verðjöfnunarsjóðsins, „ég vil
bara að rétt sé fært.“
Friðrik Sophusson (S-Rv) ræddi
öðru sinni um jöfnunagjaldið og sagði
rétt að láta auknar gjaldatekjur sjást
í reikningnum.
Halldór Blöndal (S-Ne) gerði
einnig harða hríð að fjármálaráðherr-
anum. En einnig gerði hann að um-
talsefni vanda Leikfélags Akureyrar
og íslensku óperunnar sem sem liðu
fyrir þröngsýni og takmarkaðan
áhuga ríkisstjórnarinnar á menn-
ingu.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra greindi frá því að unn-
ið væri að lausn þessara vandamála
m.a. í samvinnu við Akureyrarbæ
og einnig hefði verið leitað viðræðna
við Reykjavíkurborg um málefni
óperunnar.
Gengið var til atkvæða um frum-
varpið. Átján þingmenn greiddu 1.
grein frumvarpsins atkvæði, sextán
sátu hjá en túttugu og níu þingmenn
voru fjarverandi. Ekki tókst að ljúka
atkvæðagreiðslu um allar greinar
frumvarpsins og kemur það því til
atkvæða á næsta þingfundi.
Pálmi Jónsson (S-Nv) gerði grein •
fyrir áliti minnihluta fjárveitinga-
nefndar. Hann sagði m.a. að fjár-
málastjórn ríkisstjórnarinnar væri
með þeim hætti að fulltrúar minni-
hlutans gætu þar tæpast átt hlut að.
Hann rakti eldri stefnumarkmið
ríkisstjórnarinnar og gömul ummæli
íjármálaráðherra þegar hann hefur
lagt fram fésýslufrumvörp. Ráðherr-
anum væri gjarnt að tala um horn-
steina, jafnvægi og stöðugleika en
annað hefði komið á daginn og sá
stöðugleiki sem ríkisstjórnin þakkaði
sér hefði henni verið færður á silfur-
fati af aðilum vinnumarkaðarins sem
hefðu mótað nýjan grundvöll í svo-
nefndri þjóðarsátt. Ræðumaður benti
á að í fjáraukalögum í maí hefði
verið gert ráð fyrir niðurskurði en
Deilt um þingsköp og upplýsingar
HLÉ var gert á umræðum í Sameinuðu þingi í gær til að ræða þing-
sköp að ósk Halldórs Blöndal (S-Ne), en hann var óánægður með tregðu
sjávarútvegsráðherra til að láta í té upplýsingar um fiskveiðistjórnun.
Þingmenn óska stundum umræðu
um þingsköp þegar þeim finnst starf
þingsins vera með einhveijum hætti
torveldað. Halldór Blöndal greindi
frá því að fyrr um morguninn hefði
verið fundur í sjávarútvegsnefnd efri
deildar. Tilefnið var að þessa dagana
væri smábátaeigendum að berast
bréf frá sjávarútvegsráðuneytinu
með upplýsingum um hversu mikilla
veiðiheimilda þeir mættu vænta, og
væri tilgreindur frestur til að gera
athugasemdir fram til 15. desember.
* Þingmaðurinn hefði beðið sjávarút-
vegsráðherra í gær um upplýsingar
um veiðiheimildirnar en ráðherrann
ekki viljað verða við því. Og á nefnd-
arfundinum í gærmorgun hefðu full-
Margvísleg hátíðahöld stúdenta 1. des:
Atta metra fullveld-
isterta í Háskólabíói
Sýning á rannsóknarverkefnum stúdenta
STÚDENTAR við Háskóla íslands halda fullveldisdaginn 1. desember
hátíðlegan á margvíslegan hátt. Mestur hluti hátíðahaldanna fer fram
í Háskólabíói.
Fyrsti liður á hátíðadagskránni er
stúdentamessa í Háskólakapellunni,
sem hefst kl. 11. Sr. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og
Jóna Hrönn Bolladóttir guðfræði-
nemi prédikar.
Klukkan 12.30 verður blómsveigur
lagður á leiði Jóns Sigurðssonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu. Berg-
steinn Jónsson prófessor flytur minni
Jóns Sigurðssonar.
Klukkan 14 verður opnuð í tengi-
byggingu Háskólabíós sýningin „Há-
skólinn sem rannsóknavettvangur
stúdenta". Þar verða sýnd rannsókn-
arverkefni stúdenta úr öllum deildum
skólans, sem þeir munu sjálfir kynna
fyrir gestum. Má þar nefna verkefni
lyfjafræðinema: „Ahrif omega-3 fitu-
sýra úr jurtaolíu á fitusýrusamsetn-
ingu og kalsíumgöng í rottuhjarta"
og lokaritgerð stjórnmálafræðinema:
„Erlend fjárfesting í stóriðju á ís-
landi - tímabilið 1960-1990.“
Hátíðadagskrá hefst í sal 2 í
Háskólabíói kl. 15. Siguijón Þ.
Árnason, formaður Stúdentaráðs
Háskóla Islands, setur hátíðina.
Sigmundur Guðbjarnason, rektor
HI, ávarpar stúdenta. Háskólakór-
inn syngur nokkur lög, Börkur
Gunnarsson heimspekinemi flytur
ræðu stúdents og Steinunn Sig-
urðardóttir rithöfundur flytur
hátíðarræðu. Kynnir verður Jó-
hannes Kristjánsson.
Kristján Kristjánsson og Þor-
leifur Guðjónsson hefja kl. 16 að
leika blústónlist í anddyri bíósins,
og á meðan geta hátíðargestir
kynnt sér sýningu stúdenta eða
gætt sér á átta metra langri marzi-
pantertu, „Fullveldistertu".
Málþing hefst svo í sal 3 í Há-
skólabíói kl. 16.30. Yfirskrift þess
er „Hvað bíður okkar, er ísland
of dýrt?“. Frummælendur verða
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra, Hannes Hólmsteinn Gis-
surarson lektor, Páll Skúlason
prófessor og Vilhjálmur Egilsson
framkvæmdastjóri Verzlun-
arráðs. Andri Þór Guðmundsson
viðskiptafræðinemi stýrir umræð-
um.
Á sama tíma og málþingið verð-
ur haldin menningarvaka í sal 4,
þar sem nokkur ljóðskáld úr Há-
skólanum flytja frumsamin ljóð,
ungir tónlistarmenn flytja klass-
íska tónlist, lesið verður úr nýút-
komnum bókum og nýendurreist
Stúdentaleikhús leikur listir sínar.
Klukkan 17 verður kvikmynda-
sýning fyrir stúdenta í sal 2 í
Háskólabíói. Sýnd verður kvik-
myndin „Don’t tell er it is me“,
með Steve Guttenberg og Shelley
Long í aðalhlutverkum.
trúar sjávarútvegsráðuneytisins
einnig hafnað þessari beiðni. En
nefndarmenn gætu farið upp í ráðu-
neyti og skoðað listana þar.
Annar varaforseti þingsins, Val-
gerður Sverrisdóttir, sló nokkrum
sinnum í bjöllu, einnig kom til frekar
snarpra orðaskipta um þinglega með-
ferð þessa erindis Halldórs Blöndals.
Ræðumaður vísaði til Guðrúnar
Helgadóttur sem tekið hafði sér sæti
á þingmannabekk og krafðist að hún
settist í forsetastól. Halldóri mislík-
aði einnig að Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherrá hvarf af vett-
vangi undir ræðu hans. Svo fór að
fundi var frestað og yfirgáfu ræðu-
maður og þingforseti salinn í nokkr-
um skaphita.
Fundi var framhaldið að u.þ.b. 20
mínútum liðnum. Guðnín Helgadóttir
nefndi þennan atburð dapurlegan,
Halldór Blöndal hefði farið fram á
utandagskrárumræðu en sú beiðni
hefði komið of seint; en það væri
tilefni til athugasemda með þing-
skapaumræðu ef þingnefndum væri
neitað um upplýsingar. Hún harmaði
þær raunir sem Valgerður Sverris-
dóttir hefði mátf þola. Halldór Blön-
dal vildi láta það koma fram að það
hefði ekki verið meint sem vantraust
á Valgerði Sverrisdóttur, þegar hann
hefði óskað eftir setu Guðrúnar
Helgadóttur í forsetastóli. Ennfrem-
ur skýrði ræðumaður frá því að hann
hefði nú óskað eftir almennri og
langri utandagskrárumræðu um
sjávarútvegsmál og þann trúnað sem
Álþingi hiyti að eiga að njóta.
Skúli Alexandersson (Ab-Vl)
sagði tilefni þessarar umræðu um
svo viðkvæmt efni ærið, og varla
bíðandi fram yfir helgi. Verið væri
að ákvarða afkomu fjölda manns og
það væri miður að fá ekki upplýsing-
ar sem fjöldi annarra hefði farið
höndum um. Stefán Guðmundsson
(F-Nv) aftur á móti sagði að sam-
vinna við sjávarútvegsráðuneytið
væri góð en vinnu við þessi mál
væri ekki lokið í ráðuneytinu og
starfsmenn ekki viljað láta frá sér
vinnuplögg en boðið að fara í gegnum
þau með þingmönnum. Matthías
Bjarnason (S- Vf)_, Kristinn Péturs-
son (S-Al) og Árni Gunnarsson
(A-Ne) tóku einnig til máls. Það kom
fram í máli þeirra að þeim þótti fram-
kvæmdavaldið fullfrekt til þeirra
valda sem löggjafarvaldinu bæri.
Guðrún Helgadóttir tók einnig til
máls og hvatti til þess að dagskrá
fundarins yrði framhaldið og
fjáraukalög rædd.
Þingmönnum mun gefast betra
tækifæri til að tjá hug sinn allan um
þessi málefni því fallist hefur verið
utandagskrárumræðu á mánudag-
inn.
Feðgin sýna listvefnað og
olíumálverk í Hafnarborg
SIGRÚN Steinþórsdóttir og Steinþór Marinó Gunnarsson opnuðu
samsýningu í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. laugardaginn 24. nóv. sl.
í Noregi og starfrækir eigin vef-
stofu í Stavern.
Sigrún og Steinþór Marinó hafa
bæði haldið fjölda einkasýninga
og tekið þátt í samsýningum hér
heima og erlendis. Sýningin verður
opin alla daga nema þriðjudaga
frá kl. 14-19. Sýningin stendur til
9. des. nk.
Á sýningunni er listvefnaður
unnin úr íslenskri ull og jute eftir
Sigrúnu og olíumálverk og mynd-
verk unnin með blandaðri tækni
eftir Steinþór Marinó.
Þetta er sjötta samsýning þeirra
en síðast sýndu þau í Listasafni
alþýðu árið 1987. Sigrún er búsett