Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 70
70
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
IBOSCH;
■ ÞÝSKAR
OG SVISSN ESKAR 1
I HÁGÆÐAVÖRUR |
iðnaöarmannsins
Desembertilboð
20-25% afsláttur til jóla
HBH 2/20 RLE
„sds“ BORVÉL
með lofthöggi, þreplaus
hraðastilling afturábak
og áfram. 500w
Aukahlutir.
Vinkilhaus
Meitilstykki
Meitlar
kr 27.129
GSR 9,6 VE
RAFHLÖÐU-
BORVÉL 9,6 V í tösku með átaks-
stilli þreplaus hraðastilling, afturábak og
áfram, tveggja drifa.
kr. 17.692 stgr.
GKS 66 CE
HJÓLSÖG
1600 w, hraðastilling
1800-4100 snún./mín.
Skurðardýpt 0-66 mm.
kr. 22.496 stgr.
GGS 27 L
FLÖSKUFRÆSARI
500 w, 27.000 snún./mín. Spindill að 8mm
kr. 19.170 stgr.
1347-1348,7
SLÍPIROKKAR
620-900W, skífustærð
115-125 mm.
11.000 snún./mín.
kr 9.456/13.360 stgr.
1506,1
JÁRNSKERI
500 w, klippir stál að
2,8 mm og ál
að 3,5 mm.
kr. 24.335 stgr.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 ■ Sími 680780
HANDKNATTLEIKUR / ALÞJOÐLEGT MOT KVENNA
Morgunblaðið/KGA
Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins gerir hér
annað af tveimur mörkum sínum gegn Spáni í gærkvöldi. ísland
tapaði 18:22.
Sóknin brást
ÞAÐ var öðru fremur sóknar-
leikur íslenska A-landsliðsins
sem brást gegn Spáni í gær.
ísland tapaði með fjórum
mörkum, 18:22. íleikhléivar
íslenska liðið líka fjórum mörk-
um undir, 7:11.
Spánn gerði þrjú fyrstu mörk
leiksins en svo komu þrjú
íslensk mörk í röð. Eftir það var
leikurinn jafn þar til undir lok hálf-
I leiksins er spænska
Hanna liðið náði fjögurra
Katrín marka forskoti.
Friðriksen Síðari hálfleikur
var jafn, en íslenska
liðið var þó ekki nálægt því að vinna
upp muninn frá því í fyrri hálfleik.
Varnarleikur íslenska liðsins var
ágætur en í sóknarleiknum kom
greinilega í ljós að samæfingin er
ekki mikil. Leikstjórnandi liðsins,
Inga Lára þórisdóttir var allt of oft
sú eina sem sótti að marki Spánar,
enda var hún 'langbest í íslenska
liðinu. Rut Baldursdóttir var óörugg
í fyrri hálfleik en átti góða spretti
í þeim síðari. Þá gerði Björg Gils-
dóttir falleg mörk af línunni undir
lokin.
Mörk Islands: Inga Lára Þóris-
dóttir 5/1, Rut Baldursdóttir 4/2,
Björg Gilsdóttir 3, Guðný Gunn-
steinsdóttir 2, Inga Huld Pálsdóttir
1, Kristín Pétursdóttir 1, Brynhildur
Þorgeirsdóttir 1, Andrea Atladóttir
1.
Mörk Spánar: Dolorez Assin 4,
Cristina Arqner 4/1, Paloma Sant-
am 3, Montserrat Diaz 3, Julia
Hoez 3/1, Vizcaino Torre 3/1, Esp-
eranza Rolando 1, Amaio Ugartem-
endia 1.
Góður sig-
ur hjá ungu
stúlkunum
ÍSLENSKA unglingalandsliðið
vann góðan sigur á Portúgal í
fyrsta leiknum á alþjóðlega
mótinu íkvennahandknattleik
sem hófst í gær. ísland sigraði
14:13 íbaráttuleikeftir að hafa
einnig verið einu marki yfir í
leikhléi, 6:5.
Islensku stúlkurnar byijuðu mjög
vel og voru fljótlega komnar með
þriggja marka forskot. Mikil létt-
leiki var í sóknarleik íslenska liðs-
IIHH ins, leikfléttur
Hanna Katrín gengu vel upp og
Fríðríksen varnarleikurinn var
skrífar sterkur.
Um miðjan hálf-
leikinn snerist dæmið við og þær
portúgölsku sóttu í sig veðrið. Þær
breyttu varnarleiknum, léku mjög
framarlega og virtist það koma
íslenska liðinu í opna skjöldu. Island
gerði ekki mark síðustu fimmtán
mínútur hálfleiksins og Portúgal
lagaði stöðuna í 6:5 fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri. ísland byijaði af sama
krafti og í fyrri hálfleik og um
miðjan hálfleikinn virtist stórsigur
vera í höfn. Þá kom aftur slæmur
kafli í sóknarleiknum jafnframt því
sem þær portúgölsku komust betur
inn í leikinn. Þær minnkuðu muninn
í eitt mark og sá munur hélst til
Ieiksloka.
Hulda Bjarnadóttir, Auður Her-
mannsdóttir og Herdís Sigurbergs-
dóttir voru bestar íslensku stúlkn-
anna. íslenska liðið lék í heild ágæt-
lega og verður varla auðunnið þeg-
ar það mætir A-liði íslands í
Keflavík í kvöld.
Mörk Islands: Hulda Bjarna-
dóttir 5, Halla Helgadóttir 3, Svava
Sigurðardóttir 3, Auður Hermanns-
dóttir 1, Herdís Sigurbergsdóttir 1
og Heiða Erlingsdóttir 1.
Mörk Spánar: Julia Calado 4,
Maria Carvalho 4, Lusia Oliveiro 3
og Ligia Gonveia 2.
í kvöld
Tveir leikir verða í kvöld á
alþjóðlega móti kvenna í
handknattleik. Leikið verður
í Keflavík og kl. 18.30 mæt-
ast Spánn og Portúgaþ og kl.
20.15 leikur a-landslið Islands
við unglingalandsliðið.
ÍÞtírnR
FOLK
■ HEIMSMEISTARAKEPPN-
IN í golfi verður haldin á Ítalíu á
næsta ári á Le Quirce vellinum í
lok október. Heimsmeistarakeppnin
var síðast haldin á Flórída en þar
kepptu Ulfar Jónsson og Sigurjón
Arnarsson fyrir hönd Islands. Þeir
stóðu sig mjög vel og má búast við
að Islendingum verði boðið að
senda lið.
■ HARRY Butch Reynolds og
John Barnes, sem voru báðir
dæmdir í tveggja ára ára bann af
alþjóða fijálsíþróttasambandinu
vegna lyíjanotkunar, hafa ákveðið
að áfrýja. Reynolds á heimsmetið
í 400 metra hlaupi og Barnes í
kúluvarpi en hvorugur þeirra vill
kannast við að hafa tekið inn ólög-
leg lyf.
■ PORTUGALSKA liðið Sport-
ing Lissabon hefur keyptu búlg-
arska landsliðsmanninn Krasimir
Balakov frá Etur Tirnovo. Hann
samdi til þriggja ára en verðið var
ekki gefið upp.
Beckenbauer Montana
■ BERNARD Tapie, forseti
franska knattspyrnuliðsins Mar-
seille, segist hafa fundið menn til
að taka við af Franz Beckenbau-
er, ákveði hann að hætta. „Hann
er frábær þjálfari og hefur eins og
Beckenbauer orðið Evrópumeist-
ari,“ sagði' Tapie, en neitaði að
gafa upp nafnið. Beckenbauer
hefur oft sagt að hann geti ekki
■ sætt sig við afskipti Tapies af þjálf-
un liðsins og hætti ef forsetinn
bætir ekki ráð sitt.
■ JOE Montaim var valinn
íþróttamaður ársins af bandaríska
blaðinu Sports Illustrated. Hann er
leikstjórnandi San Francisco 49ers
sem sigraði í NFL-deildinni í vor
og er nú með bestan árangur liða
í deildinni.
KNATTSPYRNA
Nýrvöllur
er eina
von Ajax
Ajax í Hollandi, sem má muna
sinn fífil fegri þrátt fyrir að
hafa meistaratitil að verja, er að
byggja nýjan knattspyrnuvöll, sem á
að taka 50.000 áhorfendur í sæti og
á að vera tilbúinn árið 1993.
„„Nýr völlur er lífsspursmál fyrir
Ajax,“ sagði Uri Coronel, formaður
félagsins, í gær. „Við viljum komast
á toppinn í Evrópu á ný og það er
ómögulegt við núverandi aðstæður."
Verið er að bjóða út hlutabréf til
að ijármagna leikvanginn, sem á
ekki aðeins að vera heimavöllur Ajax
heldur fjölnota. Hlutabréfin eru frá
90.000 ISK til 9 millj. ÍSK. Dýrustu
bréfunum fylgir réttur til að leigja
sérstök herbergi á leikjum, en ódýr-
ustu bréfin tryggja eigendum sæti
fyrir aftan mörkin á hóflegu verði.
De Meer-völiurinn, heimavöllur
Ajax, er rúmlega hálfrar aldar gam-
all og tekur 20.000 áhorfendur, en
færri komast að en vilja. Nýja mann-
virkið verður reist í úthverfi Amsterd-
am, um fjóra km frá gamla vellinum.