Morgunblaðið - 12.01.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991
Framboðsmál framsóknarmanna:
Óvíst hvar Stein-
grímur fer fram
Á FUNDI fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reylyanesi í dag á að
ganga endanlega frá framboðslista flokksins fyrir næstu kosningar.
Enn liggur ekki fyrir hvórt Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra flytur framboð sitt frá Reykjanesi til Reykjavíkur.
í prófkjöri sem fram fór meðal
framsóknarmanna á Reykjanesi í
vetur, hlaut Steingrímur Hermanns-
son bindandi kosningu í fyrsta sæt-
ið, Jóhann Einvarðsson alþingismað-
ur í 2. sætið og Níels Árni Lund
deildarstjóri í 3. sætið. Jóhann Ein-
varðsson sagði í gær, að á meðan
ekkert annað hefði komið fram yrði
því striki haldið að leggja fram þenn-
an framboðslista á fundinum til sam-
þykktar. Það yrði svo að koma i ljós
á fundinum hvort eitthvað yrði til
að breyta því.
Samkvæmt uppiýsingum Morgun-
blaðsins hefur Steingrímur Her-
mannsson verið ákaft hvattur til
þess af stuðningsmönnum sínum á
Reykjanesi að flytja framboð sitt
ekki til Reykjavíkur, eins og stjórn
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reykjavík hefur óskað eftir.
Steingrímur hefur lýst því yfir að
hann flytji framboð sitt ekki, nema
sæmileg sátt sé um það í Reykja-
nesi_ Morgunblaðið náði ekki tali af
Steingrími í gær um þessi mál.
Jóhann Einvarðsson sagði að-
spurður, að ef Steingrímur ákvæði
að flytja sig til Reykjavíkur, yrði
væntanlega kallað saman kjördæm-
isþing, til að ijalla um þá stöðu.
Tap hjá Helga
HELGI Ólafsson tapaði fyrir Sov-
étmanninum Bareev í 13. umferð
Hastings-skákmótsins í gær.
Önnur úrslit urðu þau að Speel-
mann vann Larsen, Chandler vann
Kosten og King og Sax gerðu jafn-
tefii.
Bareev er efstur með 9,5 vinn-
inga en Helgi er í 7. sæti með 5
vinninga.
Bústjóri skipaður vegna
gjaldþrots Laxalóns hf.
SKIPTARÁÐANDINN í Árnessýslu hefur skipað Jóhannes Sigurðsson
héraðsdómslögmann bústjóra þrotabús Laxalóns hf., en fyrirtækið var
úrskurðað gjaldþrota í fyrrakvöld.
Laxalón var úrskurðað galdþrota
eftir að íslandsbanki hafði gjaldfellt
83 milljóna króna afurðalán til fyrir-
tækisins. Valur Valsson bankastjóri
vildi ekkert tjá sig um málið í gær.
Þá vildi Össur Skarphéðinsson að-
stoðarforstjóri Reykvískrar trygg-
ingar ekki tjá sig um málið, en fyrir-
tækið tryggði físk í kvíum Laxalóns.
Þeim tryggingum hefur nú verið
sagt upp.
Jóhannes sagði að gera mætti ráð
fyrir að kröfulýsingarfresti í þrota-
búið yrði lokið í byijun apríl og
fyrsti skiptafundur haldinn í byijun
Tillaga í borgarráði:
Eitt kort
fyrir öll
bílastæði
Á FUNDI borgarráðs í gær
kom fram tillaga frá Sigr-
únu Magnúsdóttur, borgar-
fulltrúa Framsóknarflokks-
ins, um að borgin léti hanna
kort sem giltu fyrir öll bíla-
stæði og bifreiðageymslur
borgarinnar.
í tillögunni er gert ráð fyrir
að kortin kosti 2.000 kr. og
eða 5.000 kr. Kortin myndu
spara bílaeigendum talsverð
óþægindi og auka tvímæla-
laust nýtingu bifreiðastæð-
anna.
’91 á Stöðinni hefst í kvöld:
Nýjar persónur bætast í hópinn
FYRSTI æsifréttaþáttur Spaug-
stofunnar verður á dagskrá
sjónvarpsins að loknum fréttum
og lottói í kvöld. í stuttu sam-
tali við Karl Ágúst Úlfsson kom
fram að þættirnir yrðu með
svipuðu sniði og í fyrravetur.
„Við munum reyna að létta fólki
lund með svipuðum hætti og áð-
ur,“ sagði Karl Ágúst „en auðvitað
verða einhvetjar nýjungar. Til
dæmis verðum við með-nýjar frétt-
ir og einhveijar nýjar persónur
munu sýna sig í þáttunum. Gömlu
persónumar verða flestar áfram
en sumar verða ekki eins áþerandi
eins og þær hafa verið. Ég býst
til að mynda við að Ragnar Reyk-
ás verði ekki jafn áberandi fyrst
um sinn eins og verið hefur.“
Af öðrum nýjungum sagði Karl
Ágúst að stefnt yrði að því að
leggja meiri áherslu á erlendar
fréttir. Hann sagði að ekki væri
búið að ákveða hvað Spaugstofu-
þættirnir yrðu margir í vetur en
sagðist búast við að fréttamenn-
irnir þraukuðu fram yfir kosningar
í vor.
Jón Baldvin sendir utanríkisráðherrum NATO-ríkjanna bréf:
Astandið í Eystrasaltsríkjun-
um er orðið mjög uggvænlegt
Hvetur ráðherrana til harðra mótmæla við Sovétstjórn
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra hefur skrifað
utanríkisráðherrum Atlantshafs-
bandaiagsins bréf vegna ástands-
ins í Eystrasaltslöndunum þar
sem bent er á að ástandið í lönd-
unum og þá sérstaklega í Litháen
fari hraðversnandi og sé orðið
nyög uggvænlegt. Ráðherra seg-
ir, að afstaða vestrænu lýðræð-
isríkjanna muni leiða í ljós hvort
þau vilji vera sjálfum sér sam-
kvæm. Viðbrögð við innrás íraka
í Kúveit voru með réttu harkaleg
en staða Eystrasaltsþjóðanna
væri sambærileg, eini munurinn
Stefán Hilmarsson
fv. bankastjóri látinn
Stefán Hilmarsson, fyrrver-
andi bankasljóri Búnaðarbanka
íslands, lést að kvöldi fimmtu-
dagsins 10. janúar, á 66. aldurs-
ári.
Stefán fæddist f Reykjavík 23.
maí árið 1925, sonur hjónanna
Hilmars Stefánssonar, bankastjóra
Búnaðarbankans, og Margrétar
Jónsdóttur. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1945 og prófi frá
lagadeild Háskóla íslands árið
1951. Stefán var fulltrúi á skrif-
stofu flugvallarstjóra árið 1951 og
blaðamaður á Morgunblaðinu
1951-1952. Hann var ráðinn full-
trúl _ í .utanríkisráðuneytinu. árið
1952 og skipaður í þá stöðu 1953.
Stefán var skipaður sendiráðsritari
í Washington árið 1956, en lét af
störfum þar árið 1962, þegar hann
var skipaður bankastjóri við Búnað-
arbanka íslands. Þeirri stöðu
gegndi hann til ársloka 1989.
Stefán átti sæti í ýmsum nefnd-
um og stjórnum á vegum banka-
kerfisins, þ. á m. stjóm Iðnþróunar-
sjóðs, Reiknistofu bankanna og
Sambands viðskiptabankanna.
Hann átti sæti í sendinefnd íslands
á þingi Sameinuðu þjóðanna árið
1967 og var í stjórn Félagsstofnun-
ar stúdenta um árabil frá stofnun
hennar.
Eftirlifandi eiginkona Stefáns er
.Sigríðuc Jýjartansdóttir, Thcirs. Jíau.
hjón eignuðust þijár dætur.
væri að þau hafi orðið að una
ástandinu í 50 ár en ekki fimm
mánuði.
Að sögn Jóns Baldvins er í bréf-
inu enn fremur bent á, að aðgerðir
Sovétstjómarinnar bijóti í bága við
yfirlýsingar sem utanríkisráðherr-
unum hafí verið gefnar af hálfu
Sovétstjómarinnar, en þar vora
þeir fullvissaðir um að Gorbatsjov
forseti mundi í engu víkja frá þeirri
stefnu að beita ekki valdi.
Þá segir, að staða mála sé orðin
svo eldfim að ástæða sé til að Atl-
antshafsbandalagið láti það til sín
taka. Vakin er athygli á, að mönn-
um komi ekki á óvart, að meðal
íslendinga hafi sjálfstæðisbarátta
Eystrasaltsþjóða snert djúpan
streng og að íslendingar hafi áður
við hvert tækifæri innan Atlants-
hafsbandalagsins og utan óskað
eftir samstöðu lýðræðisríkjanna við
baráttu þeirra.
Loks er skorað á ráðherrana, að
þeir, fyrir hönd ríkisstjórna sinna
og síðan innan Atlantshafsbanda-
lagsins, komi hörðum andmælum á
framfæri við Sovétstjórnina og vari
við afleiðingunum og minni um leið
sovésku stjórnina á skuldbindingar
hennar, sámkvæmt Helsinki-sátt-
málanum og Parísar-yfirlýsingunni.
...Jón Baldvia.v.ekur athygli.á að.
í upphafi sjálfstæðisbaráttunnar
hafi tiltölulega fáir utanríkisráð-
herra vestrænna ríkja opinberlega
lýst yfír eindregnum stuðningi við
málstað Eystrasaltsríkjanna. Það
hafi fyrst og fremst verið Danir og
íslendingar sem það gerðu. Nú hafi
meirihluti utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagins kallað sendi-
herra Sovétríkjanna á sinn fund og
mótmælt aðgerðunum og varað við
afleiðingunum og um leið krafist
friðsamlegra lausna. „Á'hitt er að
líta að styijaldarástandið við Persa-
flóa heför þýtt að mörg þessara
ríkja leggja höfuðáherslu á þá sam-
stöðu sem þar hefur tekist með
Sovétríkjunum og hafa því verið
treg til að gefa út harðorðar yfirlýs-
ingar eða beita sér til stuðnings við
Eystrasaltsríkin," sagði Jón Bald-
vin.
Atburðum
í Litháen
mótmælt
SAMTÖKIN Átak gegn stríði
efna til þögullar mótmælastöðu
fyrir utan sendiráð Sovétríkj-
anna við Garðastræti í
Reykjavík klukkan 14 í dag,
laugardag, til að mótmæla at-